Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985 33 I þá er sumt dýrara þar en sumt hér, en húsnæði, símakostnaður og því um líkt er mjög svipað," svaraði Astrid. Þeim stöllum var tíðrætt um vinnuálag íslendinga og sögðust þær varla skilja hvernig fólk kæmist af og héldi því góða lunderni, sem þær sögðu einkenna viðmót fólks á íslenskum spítölum. „Þetta er ekkert annað en vinna og aftur vinna. Starfsfólkið hérna er samt furðulega afslappað og það er miklu meira stress á norskum spítölum. Einu skiptin sem ég fæ heimþrá er á útborgunardögum. Það hlýtur að vera niðurdrepandi og lítið hvetjandi að búa við þessi lélegu kjör. Ég held að fólki leggi sig ekki eins fram og þegar það býr við eðlileg kjör. Þá er ekki hægt að gera neinar áætlanir eða safna fyrir neinu. Þetta snýst helst upp í einhverja vitleysu. Við förum kannski út að borða eða skemmta okkur á útborgunardegi, þegar við sjáum ekkert út úr því hvernig við eigum að lifa fram á næsta útborgunardag." sagði Bente. — En gætu lág laun falist í „Vandinn er ekki skortur á hjúkrunarfólld heldur hlægilega lág laun, þannig aö þaö fæst ekki tíl starfa“ þeirri staðreynd að hjúkrunarfólk er að stærstum hluta kvenfólk, eins og haldið hefur verið fram? Þær sögðu það ekki afsaka mismuninn á laununum hér og í Noregi, því þar væru konur einnig í miklum meirihluta. Þó svo karlmenn séu fjölmennari þar í hjúkrunarstétt þá sé skýringin einfaldlega sú að norskt þjóðfélag er stærra en íslenskt. Allt pantað og keypt án tillits til hvað til er fyrir. Við ræddum rekstur sjúkrahúsa í Noregi, eins og þær þekkja til, og hér á íslandi. Þær sögðu m.a., að eitt vekti sérstaka athygli þeirra, en það væri fjármálahliðin. Það væri furðulegt að horfa upp á ýmsa þætti í rekstrinum á sama tíma og allir væru sí og æ að kvarta yfir peningaleysi og slæmri efnahagsstöðu íslensks þjóðfélags. Hérna virtust samt fæstir huga að kostnaðarþættinum. Ef læknir segði til dæmis að nota ætti smyrsli ákveðinnar tegundar væri það pantað og keypt, þó svo sams konar smyrsli væri til annarrar tegundar. Hið sama væri að segja um lyf og velflest virtist þeim einnotað, þ.e. hent eftir eina notkun. Astrid sagði reyndar, að hún minntist þess að ástandið hefði verið svipað í Noregi þegar hún hóf störf sem hjúkrunarkona árið 1979, en í dag væru þar allir mjög vel upplýstir um kostnaðarhliðina og verðskrár lægju alls staðar frammi, enda fylgdust þeir sem rækju spítaladeildir með kostnaðarhliðinni frá degi til dags. „Okkur er gert að skyldu heima að velja ódýrustu leið í pöntunum og innkaupum, án þess þó að það komi niður á gæðum,“ sagði hún „en hérna virðist þetta mjög lítið tekið inn í dæmið, þó svo verðskrár lyfja liggi frammi." Þær nefndu ennfremur sem dæmi, að hjúkrunarfólki í Noregi hefði fyrir nokkru verið gerð grein fyrir því hvað það kostar að skipta um og þvo rúmfatnað af einu sjúkrarúmi. Þetta hefðu verið gifurlega háar tölur og í framhaldi af því verið gætt meiri hagsýni í umbúnaði. Hérlendis mætti áreiðanlega einnig spara hvað þetta varðar. Mjög mismunandi væri eftir sjúklingum og sjúkdómi hvers og eins hversu oft þyrfti að skipta um rúmfatnað. Þær tóku skýrt fram, að það sem þeim fyndist á skorta hérlendis miðað við í Noregi væri alls ekki íslensku hjúkrunarfólki að kenna, heldur þeim sem ábyrgð bera á fjármálalegu hlið rekstrarins. Þolinmæði starfsfólks og umburdarlyndi sjúklinga einstakt — En vistin á íslandi að öðru leyti? Þær voru sammála um, að ævintýraþránni hefði verið svalað og þær færu heim betur að sér um margt. Sérstaklega líkaði þeim vel kynnin við Islendinga. „Það er hreint og beint ótrúlegt hversu okkur er sýnd mikil þolinmæði og umburðarlyndið er einstakt," sagði ein þeirra. „Ég er viss um að íslendingur hefði ekki fengið sömu móttökur í Noregi. Stressið er þar miklu meira og allt ópersónulegra. Þá eru alltaf allir reiðubúnir að gera sitt besta og koma til móts við okkur og ég man eftir einum sjúklingi sem ég fór með bakka til og reyndi og útskýrði fyrir honum, á minni íslensku, að bakkann setti ég á borðið til nota, ef hann þyrfti að kasta upp. Hann hefur líklega ekki skilið nógu vel íslenskuna mína og haldið að ég væri að biðja hann að kasta upp, liklega til að fá sýnishorn. Hann gerði sér lítið fyrir, tróð fingrum lengst niður í kok og sýnishorn hefði ég getað fengið, ef það hefði verið ætlunin," sagði Anna Greta. Aökomufólk getur seint komið algjörlega í staö ykkar fólks Astrid og Bente sögðu í framhaldi af sögu önnu, að þeim hefði reynst mjög erfitt að læra íslenskuna. „Beygingarnar þvælast alltaf fyrir mér,“ sagði Bente. „Helgi verður til dæmis að kvenmanni, þ.e. Helga, ef á að sækja hann eða fara með hann og þetta hefur stundum ruglað mig kyrfilega í ríminu. Astrid sagðist hafa lagt sig virkilega fram um að læra íslenskuna, en atburðurinn, sem hún segir hér frá á eftir, hefði orðið til þess að hún væri orðin svo til vonlaus um að ná betri árangri: „Ég var að sinna sjúklingi, alúðiegri konu, og lagði mig virkilega fram um að tala mína beztu íslenzku. Þegar ég kvaddi hana sagði hún hrifin: / „Veistu, ég hefði aldrei trúað því að norska og íslenska væru svona lík. Ég skyldi bara hérumbil allt sem þú sagðir." og ég sem hafði verið að tala íslensku allan tímann." Þær sögðu þessa málaerfiðleika hafa gert þeim erfiðara fyrir en ella að sinna þeim þætti hjúkrunar sem snýr að fræðslu, en mikið væri nú lagt upp úr því að upplýsa sjúklinga vel um allt sem lyti að sjúkdómum, meðferð og hjúkrun. Því væri enn mikilvægara fyrir íslensk heilbrigðisyfirvöld að fá sitt eigið fólk til starfa, aðkomufólk gæti seint komið algjörlega í þess stað. Auk þessa hafa þær stöllur kynnst landi og þjóð nokkuð. Sögðust þær hafa átt mjög gott sumarfrí - í frábæru veðri - og ferðast norður á land, til Vestmannaeyja og víðar og höfðu á orði að heimsókn á Þingvöll hefði gefið þeim eitthvað að segja frá heima. Sundlaugarnar á höfuðborgarsvæðinu sögðu þær stórkostlegar og skemmtanalif ágætt. Aðspurðar, hvort þær gætu hugsað sér að koma á ný, þó síðar verði, sögðu þær íslandsferð vissulega koma til greina. „En aðeins þá sem ferðamenn, ekki til að vinna," sagði ein þeirra, „nema launin hækki verulega", og hinar tóku undir. I' ■MHHMMPi mmm í dag, sunnudag, verðum við með sérstaka fiskhátíð frá kl. 13-18 í Vörumarkaðnum, Eiðistorgi 11, Seltjamamesi. í átján metra (18 m) löngu kæliborði bjóðum við upp á meira af ferskum fiski en þú hefur séð áður - og tilbúnum fiskréttum. Með nútímalegum matreiðsluaðferðum er fiskmeti aftur að verða sjálfsagður og vinsæll heimilismatur. Komdu og kynntu þér fiskborðið okkar, góðan og ferskan fisk og létta rétti, tilbúna í ofninn eða a pönnuna. s KS VÖRUMARKAÐURINN iiu!i EIDISTORGI11 SÍMI: 622200
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.