Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985 57 var safnið vígt af forseta Islands 1983. Stefán Skarphéðinsson sýslumaður er stjórnarformaður. Sagði Egill að sýslumaður hefði mikinn áhuga á safninu og væri verið að undirbúa stækkun á því. Egill og frændi hans, Sigmundur Hansen, settu safnið upp með aðstoð góðra manna og fara ekki alveg troðnar slóðir. Bjarni Jóns- son listmálari hefur gert teikning- ar sem sýna hvernig viðkomandi áhöld voru notuð og Hrafn Hafn- fjörð hefur unnið prentverk. Er safnið því hið aðgengilegasta. Er þarna leitast við að sýna lífs- baráttu þjóðarinnar frá örbyrgð og þar til hún var farin að standa á eigin fótum. Safnið ber merki umhverfis síns á einu hriklegasta byggða bóli við ysta haf, með hamrabjörgum og sjósókn úr vík- um og uppsátrum. Þarna er bátur safninu er bátur sem Bergsveinn Ólafsson skipstjóri í Bjarneyjum smíðaði 1882. Sfld landað úr Haukafellinu til frystingar hjá Pólarsíld. Morgunblaðið/Albert Fáskrúðsfjörður: Víkingaskipið sem smíðað var fyrir þjóðhátíðina 1974 f Vatnsfirði sómir sér nú vel við minjasafnsbygginguna, sem Barðastrandarsýsla reisti yfir minjasafn Egils Ólafssonar. Mikil vinna við síldarfrystingu Fáskrúdsfirdi, 22. nóvember. MIKIL vinna er enn við síldar- frystingu hjá Pólarsíld á Fá- skrúðsfirði, en söltun síldar er lokið fyrir nokkru. Á mánudag var til dæmis landað hér um 1000 lest- um af síld. I haust var saltað í um 23 þúsund tunnur af síld hjá tveim- ur söltunarstöðvum hér á staðn- um. — Albert. Troðfull búð af nýjum, spennandi tískufatnaði! með seglbúnaði, smíðaður af Berg- sveini Olafssyni skipstjóra í Bjarn- eyjum 1882, frönsku önglarnir, eða neifin eins og þeir voru kallaðir, sem ásamt tóginu gerðu körlunum betur fært að sækja sjóinn eftir að þeir fóru að fá þá í skútunum, og pólkompás úr skipum eftir að þeir komu til, svo eitthvað sé nefnt. Munir sem ekki eru til lengur, flestir voru látnir fara með skipun- um þegar þau gengu úr sér. Mun- irnir segja sögu sjósóknar allt frá áraskipunum og þar til stærri skipin voru komin til um 1940. Og þeir gefa gestum hugmynd um verbúðirnar og lífið í þeim þegar róið var úr hverri vík sem lendandi var í. Egill bendir mér á skrifpúlt sem menn höfðu með sér í verið og vekur athygli á því að margir sjómennirnir notuðu tækifærið í landlegum til að skrifa og þannig hafi verbúðirnar m.a. verið þeim nokkurs konar skólar. Þarna í safninu má kynnast vinnunni sem fram fór f baðstofun- um um aldir og úti við til að afla fanga handa skepnum og heimili. Kemur m.a. við sögu bjargsigið. Þarna má sjá hvernig hvalbeinin voru nýtt í byggingar og bera heiti í samræmi við það, svo sem dyra- tré, árefti, sperrileggur, skafbein, mari ( til að festa rúmstæðin í verbúðunum) o.s.frv. Egill hefur hirt þau úr hrundum húsum en slíkt er ekki lengur að finna. Ekki verður reynt að gefa neina lýsingu á Minjasafni Egils ólafs- sonar á Hnjóti, enda vart hægt í skjótu þragði. Þangað leggja líka margir leið sína, gestir voru um 2.000 í sumar. Rútubílar á leið út á Látrabjarg koma við. Fólkið á Hnjóti gætir safnsins og sýnir það. Og Egill ólafsson hefur mik- inn hug á að bæta við það. „Ég á svo mikil verkefni framundan og ætla mér að ljúka við ýmislegt og skila þessu verkefni almennilega af mér áður en ég er allur," segir Egill er við göngum aftur heim í bæ. Hann þarf að fara að flýta sér inn á flugvöll, því daglega þarf að taka á móti áætlunarvélinni auk annarra bústarfa. Safnið verður að vera alger aukaábót. Styrkur aðeins um 20 þús. kr. fyrir að gæta þess, og raunar ótrúlegt hvað áunnist hefur. Þarna hefur miklu og merku dagsverki verið skilað. E.Pá. Þessi mynd var tekin fyrir skömmu þegar allur kórinn æföi saman. Nýtt úrval daglega! Tískuverslunin X- Laugavegi 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.