Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 32
Þrír norskir hjúkrunarfræðingar í störfum á Borgarspítalanum: MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985 Ahöld illa nýtt, pantað og keypt án tillits til hvað til er fyrir, sjaldnast spurt hvað hlutirnir kosta Morgunblaðið/Fridþjófur Hjúkrunarfræðingarnir á heimili sínu í Reykjavík, talið frá vinstri: Astrid, Bente og Anna Greta. „Útlendingahersveitin bara öll mætt,“ sögðu tveir læknanemar glettnislega, er blaðamaður tróð sér inn í starfsmannalyftu á Borgarspítalanum ásamt norsku hjúkrunarkonunum þremur, en ferðinni var heitið á efri hæðir í leit að aðsetri til viðtals. Hjúkrunarkonurnar eru Anna Greta Blaa, Astrid M. Borgen og Bente I. Tettum. Tvær þeirra eru frá nágrannabæjum Oslóarborgar en Anna Greta frá Fredrikstad. Þær hafa starfað á Borgarspítalanum í átta mánuði, tvær þeirra verða fram í marzmánuð á næsta ári, en Anna Greta hættir um næstu mánaðamót, þar sem hún treystir sér ekki til að vera í heilt ár, eins og hún ætlaði sér. Ástæðan? „Launin, ég hef ekki efni á þessu lengur," sagði hún. Sýnum litla samstöðu, látum vita af þessu í Noregi. Það lá fyrst fyrir að spyrja hvernig á veru þeirra hérlendis stæði. Þær sögðu að auglýst hefði verið í norskum hjúkrunartímaritum eftir hjúkrunarfólki til starfa á íslandi og ástæðan sögð skortur á hjúkrunarfólki. „Við byrjuðum á að spyrjast fyrir um laun og þegar við fengum svörin datt okkur ekki annað í hug, en að þarna væri einhver tölvan að gera okkur grikk," og þær skellihlógu við tilhugsunina. „Við trúðum því hreint ekki að launin væru svona lág og það er líklega ástæðan fyrir því að við komum hingað á endanum. Við biðum áfram réttra upplýsinga um launin og Viðtal/ Fríða Proppé Ef marka má orðtakið, að glöggt sé gests augað, þá er enginn skortur á hjúkrunarfólki á íslandi, en laun þess eru hreint hlægilega lág og því fæst hjúkrunarfólk ekki til starfa í fagi sínu. Vinnuálag á starfsfólki sjúkrahúsanna er langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Þá er lítil forsjá í meðferð fjármuna á íslenskum sjúkrahúsum. Sjaldnast er spurt hvað hlutirnir kosta, áhöld eru illa nýtt og yfirleitt er keypt og pantað án nokkurs tillits til hvað til er fyrir. Þetta kemur fram í viðtali við þrjár norskar hjúkrunarkonur, sem starfað hafa á Borgarspítalanum í Reykjavík undanfarna átta mánuði og er viðmiðun þeirra norsk sjúkrahús. Þær sjá einnig ýmislegt hérlendis sem þær telja að fari betur en í þeirra heimalandi og telja þar fyrst til óþvingaðra viðmót fólks á íslenskum sjúkrahúsum, jafnt starfsfólks og sjúklinga, ennfremur sé „stress“ minna hérlendis. öryggisástæðum. Hérna erum við með margar aukavaktir inni í þessum útreikningum," sagði Anna Greta. Hún sagði ennfremur: „Við erum sem sagt búnar að komast að því, að á fslandi er alls enginn skortur á hjúkrunarfólki. Það vill bara enginn vinna fulla vinnu á þessu kaupi. Mjög margt hjúkrunarfólk vinnur til dæmis í hlutavinnu hér á spítalanum og tekur síðan aukavaktir. Með því vinnur það kannski miklu meira en fulla vinnu, en þannig er hægt að ná hærri launum. Við sýnum áreiðanlega litla samstöðu með íslenskum stéttarsystrum og bræðrum með því að koma hingað í vinnu, því launin verða varla hækkuð á meðan hægt er að fá aðkomufólk til að leysa vandann." Þær stöllur sögðust mundu upplýsa þetta mál í sínu stéttarfélagi í Noregi, þegar heim kæmi. Fá aðeins heimþrá á útborgunardögum. Laun hjúkrunarfólks í Noregi sögðu þær aðspurðar vera góð miðað við það sem almennt gerðist og að þau hefðu hækkað umtalsvert á síðustu tíu árum, en það byggðist fyrst og fremst á þeirri staðreynd, að hjúkrunarfólk hefði mjög sterk hagsmunasamtök. Ábyrgð hjúkrunarfólks virtist þeim enda meiri í Noregi, t.d. væri stjórnun hverrar spítaladeildar alfarið í höndum hjúkrunardeildarstjóra og sæi hjúkrunarfólk ætíð um inntöku og skráningu nýrra sjúklinga. — En þarf þá ekki meira til hnífs og skeiðar í Noregi en hér á íslandi? Getur skýringa verið að leita í því? „Nei, ef eitthvað er þá má gera betri kaup á matvælum í Noregi, þá á ég við í stórmörkuðum. Hvað varðar fatnað og aðrar nauðsynjar ævintýraþráin, löngunin að kynnast einhverju nýju og nýju fólki náði tökum á okkur. Þess vegna komum við, þó svo í ljós kæmi að launin væru engin tölvuvitleysa." Þær stöllur lögðu á borðið útreikninga, sem sýndu fram á, að þrátt fyrir að fullt tillit sé tekið til skattagreiðslna, eru laun hjúkrunarfólks í Noregi tvöföld á við launin hér á íslandi - og þar að auki er vinnan mun meiri hérlendis, sögðu þær. „í Noregi er það brot á lögum að vinna meira en 36 til 38 klukkustundir á viku og er það fyrst og fremst af Á Borgarspítalanum Bente lengst til vinstri starfar á lyfjadeild, Astrid á skurðdeild og Anna Greta, lengst til hægri á hjartadeild. MorKunblaðiö/Árni Sæberjf Lítil forsjá í meðferð fjármuna, þó allir kvarti yfir peningaleysi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.