Morgunblaðið - 24.11.1985, Blaðsíða 68
ffgunMiiMfe
r&
_ _iiglýsinga-
síminn er 2 24 80
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Söluturn f Reykjavík:
.X-3B
Ræninginn ógnaði
afgreiðslustúlku
með gosflösku
LÖGREGLAN leiUði í gær og fyrri-
nótt ungs manns, sem rendi söluturn
í Reykjavík í fyrrakvöld og ógnadi
afgreióslustúlku þar meó flösku.
Það var um ellefuleytið á föstu-
dag9kvöldið, að maðurinn kom inn
í sðluturninn Ciro á Bergstaða-
stræti og heimtaði peninga. Hann
greip til gosflösku, sem þar var,
og ógnaði afgreiðslustúlkunni.
Síðan fór hann í peningakassann
og rótaði þar til sin fimm hundruð
eitt hundrað króna seðlum,
samtals um níu þúsund krónum.
Síðan hvarf hann upp Njarðargöt-
una en stúlkan hringdi þegar i
lögreglu.
Afgreiðslustúlkan gat gefið lög-
reglu greinargóða lýsingu á ræn-
ingjanum, sem var með sár á
vanga, og átti hún síðdegis í gær
að leita myndar af honum í mynda-
safni Rannsóknarlögreglu rikisins.
Hún telur vist að hann hafi verið
ódrukkinn en líklegast undir áhrif-
um einhverra eitur- eða fíkniefna.
Þorlákshöfn:
Meitillinn kaupir
ís í Reykjavík
— þótt ísverksmiðja sé á staðnum
AFKASTAMIKIL ísverksmiðja var
formlega tekin í notkun í Þorláks-
höfn á laugardag eftir að hafa verió
keyró í einn mánuó. Hluthafar eru
um 50 þar í be og á Eyrarbakka og
Stokkseyri. Öll helztu fiskvinnslu-
fyrirteki staðanna nema Meitillinn,
sem kaupir ís aó mestu í Reykjavík
og ekur honum á bflum til Þorláks-
hafnar.
Hafsteinn Ásgeirsson, einn
stjórnarmanna ísfélags Þorláks-
hafnar, sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að verksmiðjan afkastaði
um 60 lestum af ís á sólarhring
Ókeypis í
strætó um
jólin
STJÓRN Stretisvagna Reykja-
víkur befur ákveóið aó veróa vió
tilmelum borgarstjóra um að
ókeypis verói í stretó í borginni
um jólin.
Gildir þetta í fimm daga um
átíðarnar, frá og með sunnu-
deginum 22. desember og til og
með fimmtudeginum 26. des-
ember, sem er annar dagur jóla.
SVR færði farþegum sínum
samskonar jólagjöf ( fyrra.
Sigurjón Fjeldsted, formaður
stjórnar SVR, sagði í gær að
.væntanlega gæti það orðið siður
í borginni, að ókeypis yrði í
strætóumjól.
og geymsla væri fyrir 500 lestir.
Hún gæti því annað ísþörf allra
fyrirtækjanna á staðnum undir
eðlilegum kringumstæðum. Því
kæmi sér það á óvart, að stjórn-
endur Meitilsins kysu heldur að
aka hundruðum lesta af ís frá
Reykjavík með ærnum tilkostnaði,
aksturinn kostaði í flestum tilfell-
um meira en ísinn.
Hafsteinn sagði, að ísleysi á
staðnum hefði lengi verið mikið
vandamál og því væri þessi verk-
smiðja kærkomin. Hún kostaði
fullgerð um 25 milljónir króna, en
ætti að geta skilað talsverðri
gæðaaukningu afla vegna aukinn-
ar ísingar og þannig borgað sig
upp á skömmum tíma. Verksmiðj-
an hefði verið keyrð til reynslu í
um einn mánuð og gengið mjög
vel. Ljóst væri, að hún hefði bjarg-
að miklu á yfirstandandi síldveið-
um og þannig þegar sannað ágæti
sitt.
Morgunbladið/Arnór
Leóurblakan er lítil eins og sjá má af samanburói vió eldspýtustokkinn
Leðurblakan í Garðinum:
Hefur komið með skipi
eða hrakist fyrir vindi
LEÐURBLAKAN, sem rólaói sér í gardínustöng í húsi í Garði á föstu-
dagskvöldið og sagt var frá í blaðinu í ger, er ekki fyrsta kvikindió
sinnar tegundar sem hingaó hrekst Fyrir um tveimur árum fundust átta
nýdauóar leóurblökur í lest skips í Reykjavíkurböfn. Höfðu þer líklega
flekst um borð í erlendri höfn og ekki lifaö af sjóferðina, aó sögn
Ævars Petersen dýrafreóings hjá Náttúrufreóistofnun fslands.
Ævar sagði að á undanförnum
áratugum hefði oft orðið vart við
leðurblökur hér á landi og að þær
hefðu borist bæði frá Norður-
Ameríku og Evrópu. Hann taldi
mögulegt að leðurblakan í Garð-
inum hefði borist hingað með
skipi eða jafnvel hrakist með
veðri og vindum, eins og mein-
dýraeyðirinn á Suðurnesjum lét
sér detta í hug. Um áratugur er
liðinn síðan lifandi leðurblaka
fannst síðast hér á landi - en nær
útilokað er að slíkar skepnur geti
lifað hér á landi og síst að vetrar-
lagi, enda lifa þær einkum á skor-
dýrum, sem þær veiða á flugi.
Leðurblökur, sem hingað ber-
ast, eru litlar - búkurinn á að
giska þumlungur á lengd - og
meinlausar. Hjá Náttúrufræði-
stofnun er til ein uppsett leður-
blaka en auk þess nokkrar í
spritti.
Innbrot í
söluvagn í
Lækjargötu
BROTIST var inn í söluvagn í
Lækjargötu, gegnt Iönaóarbankan-
um, aðfaranótt laugardags.
Brotið var gat aftan á vagninn
þar sem farið var inn. 3-4000 krón-
um í skiptimynt var stolið. „Það
er greinilegt að svo svangur maður
hefur verið á ferð að hann gat
ekki beðið morguns til að fá sér
að borða, því nokkrar kínarúllur
sem ég sel þarna hurfu einnig,"
sagði Bogi Jónsson, eigandi vagns-
ins, í samtali við Morgunblaðið.
Hann sagðist þurfa að taka vagn-
inn burt um tíma til viðgerða.
Fyrirspurn
frá Bretum
um kaup á
steinull
Steinullarverksmiójunni á Sauðár-
króki hefur borist fyrirspurn frá
aóilum í Bretlandi um hugsanleg
kaup á steinull frá verksmiöjunni.
Að sögn Árna Guðmundssonar,
stjórnarformanns Steinullarverk-
smiðjunnar, er framkvæmdastjóri
verksmiðjunnar, Þorsteinn Þor-
steinsson, nú í Bretlandi til við-
ræðna við hina bresku aðila vegna
þessa máls. Árni sagði að fyrir-
spurn hefði borist um sérstaka
tegund af þungri steinull, sem
hentar vel í framleiðslu hjá verk-
smiðjunni á Sauðárkróki, en of
snemmt væri að segja til um,
hversu umfangsmikil viðskipti hér
yrði um að ræða, ef samningar
tækjust.
Árni Guðmundsson sagði að
framleiðsla verksmiðjunnar hefði
gengið vel undanfarna daga, síðan
hún fór aftur í gang eftir bilun í
bræðsluofni. Sagði Árni að auka-
vaktir hefðu verið settar á nú um
helgina til að vinna upp það fram-
leiðslutap sem varð vegna bilunar-
innar.
Litlar líkur á samningum SÍS og fslenska skipafélagsins hf.:
Útvegsbankinn óskar eftir
viðræðum við Eimskip á ný
ALLT benti til þess um hádegisbil í gær að viðræðum milli Hafskips
og íslenska skipafélagsins annars vegar og Skipadeildar SÍS hinsveg-
ar, um sameiningu fyrirtækjanna, væri lokið, a.m.k. um sinn. Útvegs-
banki íslands hefur óskað eftir því við Eimskipafélag íslands að
viðræður um kaup Eimskips á íslandssiglingum Hafskips verði teknar
upp á nýjan leik, og sagöi Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafé-
lags íslands, í gær að þessi ósk bankans yrði til skoðunar hjá stjórn
Eimskipafélagsins eftir helgi.
Viðmælendur Morgunblaðsins í
fær töldu að viðræður á milli
slenska skipafélagsins, Hafskips
og SÍS væru á enda, þótt reynt
yrði að halda þeim eitthvað
áfram, en það töldu þeir einungis
vera til málamynda. Auk þess sem
hörð andstaða kaupfélagsstjór-
anna hefði áhrif á endalok við-
ræðnanna, hefði það haft áhrif
að ákveðin forystuöfl innan Saih-
bandsins gætu ekki komið auga á
ágæti þess að stuðla að „heil-
brigðri samkeppni" í islenskum
kaupskiparekstri, með því að
reyna að efla Skipadeild Sam-
bandsins og fá til liðs aðila úr
einkaframtaksgeira efnahagslífs-
ms.
„Það kom fram mjög hörð
andstaða við samstarf við Haf-
skip á fundi kaupfélagsstjóranna
í gær, og það ásamt öðru, bindur
náttúrlega hendur okkar stjórn-
armanna á Sambandsstjórnar-
fundi í dag,“ sagði ólafur Sverris-
son, kaupfélagsstjóri i Borgarnesi
og varaformaður Sambands-
stjórnar, í gær. ólafur benti samt
sem áður á að málið væri i hönd-
um Sambandsstjórnar, og þar
yrði úrskurðað í málinu. Hann
sagðist viss um að annaðhvort
yrði þessu máli lokið af hálfu
Sambandsins á fundinum, eða að
því yrði frestað um sinn.
„Við höfum óskað eftir því við
Eimskipafélag íslands að viðræð-
ur félagsins og Útvegsbankans
um málefni Hafskips verði teknar
upp á nýjan leik,“ sagði Lárus
Jónsson, bankastjóri Útvegs-
banka íslands. Hann sagði að
einungis bæri að líta á bréf bank-
ans sem yfirlýsingu bankans um
það að hann vi'di ræða þessi mál
áfram við Eimskip.
„Við höfum móttekið bréf Út-
vegsbankans, og þessi ósk hans
mun verða til umfjöllunar hjá
stjórnendum félagsins nú eftír
helgi," sagði Hörður Sigurgests-
son, forstjóri Eimskipafélags ís-
lands.
„Við erum reiðubúnir til þess
að ræða við Útvegsbankann á
nýjan leik,“ sagði Hörður, „en það
hefur engin afstaða verið tekin
til þess á hvaða grundvelli þær
viðræður verða."
4l