Morgunblaðið - 24.11.1985, Side 5

Morgunblaðið - 24.11.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985 5 Jón Laxdal hyggst stofna eigið leikhús í Sviss Leikur nú í „Friðarkonunni“ í boði leikhúss í Hamborg ióni Laxdai leikara, sem er búsett- ur í Sviss, hefur verið boðið að leika í „Die Friedensfrau“ eða „Friðar- konunni" sem frumsýna á í leik- húsinu Kammerspiele í Hamborg 10. desember nk. Tilefnið er 40 ára afmæli leikhússins og 85 ára afmæli Idu Ehre sem er leikhússtýran. Þau Ida og Jón munu leika saman, en verkið er eftir Walter Jens og er það smíðað upp úr „Lýsiströtu“. Jón sagði í samtali við Morgun- blaðið, að hann hafi nokkrum sinn- um áður leikið sem gestaleikari í leikhúsi Idu. „Þegar sýningum lýk- ur í Hamborg, fer ég í leikför um Þýskaland og Sviss með ríkisleik- húsinu í Bonn þar sem ég leik um tíma í einu verki þeirra. Síðan ætla ég að opna mitt eigið leikhús í mars í heimabæ mínum Keiser Stuhl í Sviss. Leikhúsið kalla ég „Amtshaus" eða „Embættisbú- slað“ og verður fyrsta verk mitt þar einleikur eftir Kafka. Tékk- neskur vinur minn frá Prag, Jar- uslav Gillar, setur verkið upp. Þá hef ég verið að leika í sjónvarps- þáttum sem nefnast á þýsku „Ein Mann magt klar Schiff". Gerðir voru fimm þættir í sumar í Frank- furt, sem var tekið með það mikilli hrifningu að við gerðum nú fimm þætti í viðbót. Þá er fyrirhugað að gera fleiri slíka sjónvarpsþætti í vor.“ Jón sagðist standa einn að leik- húsinu, en húsnæðið sem það er í er fyrirhugað sem menningarmið- stöð þar sem fleiri aðilar koma inn í með aðra starfsemi. Leikarar allir verða eingöngu lausráðnir og sagðist Jón ætla að sýna þar verk sem sjaldan eða ekki hafa verið flutt áður. „Ég er t.d. með verk eftir Dúrrenmatt á prjónunum. Svo er ég með stykki eftir sjálfan mig, „Lúðvík" og „Veraldasöngvar- inn“, sem ég setti einu sinni upp í Þjóðleikhúsinu. Þá er ég með verk í bígerð eftir Strindberg um Eirík konung af Svíþjóð." Jón hefur nýlega þýtt þrjár ís- lenskar bækur á þýsku: „Undir kalstjörnu" eftir Sigurð A. Magn- ússon, „Palli' er ekkert blávatn" eftir Andrés Indriðason og „Ult- Jón Laxdal leikari ima Thule“, sem er ljóðabók eftir Matthías Johannessen og tók Helfried Weyer ljósmyndirnar í þá bók. SS-skuldabréfín: Þriðjungur seldist á 2 dögum Á TVEIMUR dögum hafa selst skuldabréf í útboði Sláturfélags Suðurlands fyrir 20 milljónir króna, og skuldabréf Kópavogskaupstaðar hafa einnig selst vel, en þó hlutfalls- lega minna. Að sögn Magnúsar Bergs hjá Kaupþingi hf. sem annast sölu þessara bréfa, er ljóst að sparifjár- eigendur eru hrifnir af traustum skuldabréfum til langs tíma. Skuldabréfaútboð Sláturfélagsins er að fjárhæð 60 milljónir króna, en Kópavogs 30 milljónir króna. I báðum tilfellum er um verðtryggð bréf að ræða en vaxtalaus. Þau eru seld með afföllum er tryggja, að sögn Kaupþingsmanna 10% raun- ávöxtun á ári. Stokkseyri: Brimvarn- argarður- inn stóð fyrir sínu í óveðrinu ^ Selfossi, 22. nóv. I ÓVEÐRINU sem gekk yfir landið á dögunum sannaði brimvarnargarð- urinn við höfnina á Stokkseyri gildi sitt Þessa daga sem óveðrið gekk yfir var einn bátur, Jósep Geir, inni á höfninni þar sem hann lok- aðist inni. Brimvarnargarðurinn bjargaði því að báturinn var óskemmdur þegar veðrinu slotaði, en hann ver höfnina fyrir suðaust- an veðrum. Brimvarnargarðurinn var byggður 1971—1972 eftir að þrír bátar fóru upp í fjöru 1970 þegar mikið óveður gekk yfir. Þessa óveðursdaga óku björgun- arsveitarmennirnir á Stokkseyri um götur þorpsins og aðstoðuðu ef þurfti. Komu þeir í veg fyrir að þök fykju af húsum með því að grípa inn í á réttum tíma. Sig. Jóns. Leiðrétting MEINLEG prentvilla varð í grein eftir Guðnýju Aðalsteinsdóttur í Morgunblaðinu í gær. Þar stóð: „Málefni aldraðra verða alltaf að vera í stöðugri umfjöllun. Þótt mikið hafi áunnist síðastliðin ár, verður þessi andi erfiðari við- fangs." Hér átti að sjálfsögðu að standa að þessi vandi yrði erfiðari viðfangs. Þetta leiðréttist hér með. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í frásögn Morg- unblaðsins á laugardag um umönnunar- og hjúkrunarheimilið Skjól, að Páll Gíslason, læknir, var sagður formaður byggingarnefnd- ar. Svo er ekki. Það er séra Sigurð- ur H. Helgason, fulltrúi þjóðkirkj- unnar í nefndinni, sem veitir henni forstöðu. Morgunblaðið biðst hér með velvirðingar á þessum mistök- um og leiðréttir þau jafnframt. PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISMANNA í REYKJAVÍK dagana 24. og 25. nóv. 1985 borgarfulltrúi Við hvetjum þig til að setja Huldu í öruggt sæti á prófkjörslistanum vegna dýrmætrar reynslu hennar, fjölþættra hæfileika og nútímalegra viðhorfa. Stuðningsmenn Kosningaskrifstofa Lágmúla 9, 2.h. Símar*. 36323 og 37595 Verið velkomin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.