Morgunblaðið - 24.11.1985, Síða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985
leystir út með gjöfum. (Hreinn
bendir á kassa á stærö viö feröa-
tösku, fullan af dýrum ilmvötnum
og ýmiskonar gjafavörum frá Par-
ís.) Og þá er ég vel séöur um jólinl
Veistu aö hér er þaö voöa mikið
atriöi aö þekkja rétt fólk. Geysimik-
iö atriöi.
Fyrir fullu húsi
íOrdway-óperunni
— Þú hefur þegar aungiö vída í
Bandaríkjunum ?
Ég hef feröast um öll miðvestur-
fylkin, Norður-Dakota, Suöur-
Dakota, Minnesota, Nebraska og
lowa. Ég hef verið meö marga tón-
leika eins og þú sérö af úrklippu-
safninu. Núna er ég aö gera samn-
inga fram á áriö 1987. Allied Con-
cert Services umboöiö, sem hefur
veriö mitt aöalumboö hér, er með
samband viö 90 borgir í Bandaríkj-
unum og er núna aö skipuleggja
tónlistaráriö 1986-87 fyrirmig.
Aðrir umboösmenn í New York
hafa frétt af mér og meðal þeirra
sem hafa sýnt áhuga aö fyrra bragói
er International Concert Manage-
ment umboðiö, sem er þaö stærsta
i veröldinni. Þannig aö það sem mér
fannst ég hafa misst er allt aö koma
til baka. Ég er ánægöur meö líf mitt
núna.
— Þú ert aó veróa nafn hérna?
Já, ég hef sungiö í óperunni i
Minnesota og hef haldiö marga
konserta. Ég hef nokkrum sinnum
komiö fram í sjónvarpi og mikiö
veriö fjallaö um mig í blööunum. Ég
er orðinn þekktur — orðinn nafn í
Twin Cities, þaö er aö segja St.
Paul og Minneapolis.
Um jólin í fyrra var ég einn daginn
meö konsert um miöjan dag og
síóan átti ég aö syngja á öörum staö
í St. Paul síódegis. Ég átti þá ekki
bíl og baö stúlku sem vann þar sem
ég var meö konsertinn aö ná fyrir
mig í leigubíl og biöja hann aö vera
tilbúinn viö leiksviösdyrnar um leiö
og ég væri búinn. Hún kom svo til
mín og sagöi aö þetta mundi ganga
en bætti viö á ensku: Ég vissi ekki
aö þú væri svona frægur. Frægur?
hváöi ég, hvaö áttu viö? „nú, stúlk-
an á skiptiboröinu á leigubílastöö-
Inni sagöi þegar hún heyröi nafniö:
Oh, the wonderful lcelandic tenor!“
Nýlega var opnað eitt fegursta
og fullkomnasta óperuhús í Banda-
ríkjunum. Ordway-óperan í St.
Paul. Milljónamæringurinn Sally
Irvine Ordway lagöi til peningana,
litlar 47 milljónir dollara. Húsiö var
vígt 9. janúar síöastliöinn og þá
söng Leontyne Price þar. Ég hélt
konsert í Ordway-óperunni 9. febr-
úar og söng fyrir fullu húsi. Á dag-
skránni voru Schubert, ítalskir
söngvar og skandinavísk lög þar á
meðal íslensk. Ég syng talsvert af
skandinavískum lögum, í Minne-
sota búa svo margir Skandinavar.
nn
Hörð samkeppni
— Hver er munurinn é Evrópu
og Bandaríkjunum, fyrir söngvara
eina og þig?
Þaó eru meiri tækifæri hér en þú
veröur aö vera góöur. Ef þú ert góö-
ur þá eru tækifærin mörg hérna og
mjög vel borgað. En samkeppnin
er svo svakalega hörö, aö þú veröur
aö sýna fullkomlega fram á hæfni
þína.
Hér er allt bisness. Ef þú ert meö
einhverja góöa vöru sem selst, og
þeir eru jafnvel búnir aó selja hana
áöur en hún er tekin í umboóssölu,
þá skiptir ekki meginmáli hversu
hátt veröið er.
— Tekat þér aó lifa á aöngnun?
i Núoröiö já. En ég get ekki sagt
aö ég lifi góóu lifi á þessum tekjum
fyrr en á næsta ári. Núna er ég að
borga upp skuldir og koma málum
á hreint. Þetta er vel borgað. Ég fæ
750 dollara fytir konsertinn en eftir
aö hafa borgaö undirleikaranum á
ég eftir um þaö bil 500 dollara. Á
næsta ári verð ég meö 4—5 kon-
serta á viku og þaö eru dágóöar
tekjur.
— Þú varat meó veraiun heima
á íslandi?
Ég reyndi. Þaö getur enginn lifað
almennilega á söng á íslandi. Ég
reyndi aó kenna, en þaó átti ekki
viö mig. Þá geröi ég tilraun meö
verslunarrekstur. Ég tala flest evr-
ópsk tungumál og haföi góö sam-
bönd á Italíu, svo aö ég byrjaöi aö
flytja inn vandaöan tískuvarning og
opnaöi verslun. þetta var mjög góö-
ur varningur, frá Ninu Cerutti,
Armani, Donatilla og Hermes —
allt merki sem eru seld áfram á ís-
landi. Égáttiengapeningaþegarég
byrjaöi á þessu og var meö allt á
lánum, en þaö rekur enginn bisness
á íslandi á lánum, þaö voru skýja-
borgir.
Ég reyndi aö bjarga málunum
meö því aö taka lán hjá okurlánur-
um, hákörlum — ég reyndi allt sem
ég gat til aö bjarga versluninni, en
tókst ekki og þetta fór mjög illa meö
mig. En þar var fólk sem reyndist
mér mjög vel, bæði ættingjar og
vinir. Ég stefni aö þvi aö gera upp
viö þá sem ég skulda, og þá fyrst
viö mínafjölskyldu.
Gjaldþrot
— Fóratu á hauainn?
Ég varö gjaldþrota og þaö var
allt hirt af mér. Og ég fór líka illa
andlega, ég þoldi þetta ekki. Þetta
var afskaplega erfitt, ég var meö
fólk í ábyrgö fyrir lánum og maöur
gerir svona ekki viljandi, en þó er
maóur sjálfum sér verstur í þessu
öllusaman.
En peningar og veraldlegir hlutir
eru ekki allt. Ég skal segja þér aö
þegar allt kemur til alls, hefur mér
reynst erfiöara aö ráöa viö vel-
gengni en illgengni. Þegar illa geng-
ur tekst maóur á viö vandann og
veröur að standa sig, en velgengnin
vill stíga manni til höfuös. Þannig
var þaö oft á tíðum meö mig. Þetta
var allt svo auövelt, ég gekk alls
staöarinn.
Eins og til dæmis í Vín. Þaö fer
ekki hver sem er inn í starf hjá óper-
unni í Vín, jafnvel þótt menn hafi
mikla reynslu. Ég labbaöi þar inn!
En ég stóöst ekki andrúmsloftiö í
Vín og hiö Ijúfa líf. Drykkjuskapur
var mitt vandamál. Ég missti stöö-
una en sá þó ekki vandann, skildi
ekki hvers vegna var veriö aö níöast
ámér!
— Frægóin hefur oróió þér aó
falli?
Ég mundi segja þaö. Hlutirnir
voru um skeiö of auöveldir.
Kýs heldur konserta
— Núna heldurðu einkum
konaerta?
Já, mér finnst ég núna vera orö-
inn of gamall til aö fara aftur inn í
óperuna. Ég vil heldur halda kons-
erta, jafnvel þótt þaö sé á vissan
hátt auöveldara aö syngja í óper-
unni. Mér finnst þaö persónulegra
aö syngja á konsert.
Þú ert þarna uppi í einn og hálfan
tíma og þú veröur aö gefa þig allan.
j óperunni er hlé og hvíldir milli
atriöa. Margir þekktir óperusöngv-
arar geta ekki haldiö konsert. Ég
vil heldur halda konserta, af því af
þegar ég er aö syngja, þá get ég
gefiö. Eftir þaó sem ég hef gengiö
í gegnum, á ég mikið hægara meö
þaö aö túlka tónlistina og ná góóu
sambandi viö áheyrendur.
Ég gaf út hljómplötu í fyrravetur
og ætla aö gefa aöra út í vetur. Ég
reyndi sjálfur aö spara sem mest
viö gerö plötunnar, gerói allt sjálfur
með aöstoö vina minna. Viö vorfum
sjö klukkutíma aö taka plötuna upp
í kirkju meö aðstoö barnakórs meö
orgelundirleik.
Ég reyndi aö koma henni á mark-
aö á íslandi en var hunsaöur. Þaö
hefur tekiö mig sárt hvers konar
viötökur ég hef fengiö á íslandi. Ég
á þar yndislegt fólk aó og góöa vini,
en mér finnst aö ég hafi samt ekki
verið metinn sem skyldi. Af hverju
þaö er veit ég ekki. Hvort ég vann
til þess aö einhverju leyti eöa
ekki ...
— Ertu bitur út at viótökum á
íslandi?
Já, ég hugsa þaö. Mér hefur alltaf
fundist þetta en ég veit ekki út af
hverju. Þetta er svo lítiö viökvæmt,
þú veist til dæmis baö Tónlistarfé-
lagió mig aldrei um aö syngja,
þegar ég hélt tónleika geröi ég þaö
áeiginspýtur.
En maöur þarf víst aö hafa ein-
hvern til aö hampa sér til aö komast
áfram og ég hef kannski ekki verið
nógu drífandi aö því leyti. Á hinn
bóginn vil ég taka fram aö ég á
indælt fólk aö heima og þegar ég
hef haldið tónleika þar, hef ég feng-
iö mjög góöar viðtökur og góöa
krítík.
Mér þykir alltaf vænt um island
og ég sakna óskaplega minnar fjöl-
skyldu. En það er svona í lífinu,
maóur getur ekki bæöi átt kökuna
og étiö hana. Maóur veróur aó gera
þaö upp vió sig. Og hérna finnst
mér ég hafa möguleika á aö gera
þaö sem mér fannst vera hlutverk
mittílífinu.
Þaö var eitt sinn viötal vió mig í
Vikunni og mér fannst fyrirsögnin
heldur óhugnanleg: Úr sviðsljósum
Evrópu í ystu myrkur. Ég hugsaöi
síöar meir meö mér, „Andskotinn
hafi þaö, ég skal snúa þessu viö
áöur en ég dey" — og nú held ég
aö ég sé aö komast inn í heimsljósiö
á ný. Ég held mér ætli aö takast
þaö.
Kjarvalsmálverk
frá Dinesen
— Nú býrðu í St. Paul?
Ég á indælt lítiö heimili í St. Paul.
(Hreinn sýnir mér myndir frá heimil-
inu. Á þeim eru hinn þekkti söngvari
Gerard Suzet og vinkona hans,
Virginia Olsen.) Virginia er vinkona
mín og var forseti Schurt-klúbbsins
sem er 130 ára gömul stofnun í St.
Paul, sem annast skipulagningu á
konsertum og óperum. Hún er líka
forstjórióperunnaríSt. Paul.
(Á einni Ijósmynd sjást sex
myndir eftir Kjarval á einum veggn-
um heima hjá Hreini.) Hefuröu heyrt
talaö um Dinesen-hóteliö í Róm?
Laxness hefur skrifaö um þaö, en
hann bjó hjá henni Dinesen fyrir
margt löngu. Kjarval gaf henni sex
myndir eftir sjálfan sig og hún gaf
mér þær. Þá sagöi Halldór Laxness:
Ég er á rangri hillu ... Svona er aö
vera tenórsöngvari, þeir fá allt upp
í hendurnar. En óg rithöfundurinn
fékk ekki einu sinni eina mynd!
— Þú ert einhleypur?
Ég hef aldrei gifst. Ég bjó meö
vinkonu í nokkur ár. En maöur
þeyttist um og bjó hist og her. Og
úr því aö maöur gat ekki borið
ábyrgö á sjálfum sér gat maöur
varla boriö ábyrgð á öörum.
Ég ætlaói einu sinni aö skrifta
fyrir kaþólskum presti í Vín og
þegar ég sagði honum aö ég heföi
búiö meö konu í fjögur ár án þess
aó giftast, sagöi hann: „Nei, þú ert
sko ekki kaþólskur, þú ert í mesta
lagi lútherskur!" Svo rak hann mig
út og sagöist ekki veita mér neina
aflausn. En ég fór til annars prests
sem tók þetta ekki svona alvarlega.
En nú vil ég ólmur ná mér í konu
og giftast. Ég á óskaplega góöa vini
og kunningja en samt er ég einn.
Maöur er kominn á þennan aldur
og þarf á sálufélaga aö halda — nú
erég tilbúinn.
Hreinskilni er lykillinn
— Hverju avararðu ef þú ættir
að líkja lífi þínu vió óperu?
Ja — ég held aö þaó séekki langt
frá... Ævintýrum Hoffmans! Hann
var alkóhólisti og sá aldrei raun-
veruleikann fyrren í lokin.
Mér finnst ég hafa þroskast mik-
iö viö þaö aó fara í gegnum þessa
meðferð í Hazelden. Maöur er brytj-
aöur niöur og síöan byggöur upp
aftur. Náttúrulega þola þaö ekki
allir, en mér fannst ég gera mér
grein fyrir því hver ég er. Síöan gat
ég breytt mér aö sumu leyti og líka
sætt mig viö þaö sem ég gat ekki
breytt.
Ég er mjög trúaður og þaö hefur
hjálpaö mér geysilega. Guö vinnur
í gegnum fólk ... sko, óg þóttist
vita og geta allt.. . þess vegna baö
ég aldrei um hjálp og sagöi aldrei
frá neinu.
Þaó sem mór var kennt á Hazeld-
en var að finna lykilinn: „Hvar er
lykillinn að þinni meðferö?" —
Lykill, hvaöa fjandans lykill? Ég
vissi ekkert hver meiningin var.
x Ókey, sögöu þeir, komdu meö
skriflegt svar. Þaö tók mig fimm
daga: Lykillinn er hreinskilni. Þaö
eina sem getur bjargaö mér í dag
er hreinskilnin. Ég verö aö vera
hreinskilinn — ég verö aö opna
mig, segja minar tilfinningar, tjá
mig.
Þegar ég haföi gert mór og öör-
um grein fyrir þessu þarna á Haz-
elden, var þaö líkast því sem ég
heföi misst móöinn og gefiö mig á
vald meóferöarinnar. Þá fann ég
hvaö þaö var gott aó fá hjálp og
ráöaekki fram úr öllu einn.
LOFALESTUR
Bók um
lófalestur
KOMIN er út bókin „Lófalestur“
eftir Peter West, en höfundur staö-
hæfir aó leyndarmál skapgerðar
komi fram í hönd hvers manns.
„Um langan aldur hefur mönnum
fundist eitthvaö spennandi vió aö
láta lesa í lófann á sér. En fsstir
vita að lófalestur er vísindaleg aðferð
sem getur veitt margvíslegar upplýs-
ingar um skapgerðareinkenni raanna
og hæfileika þeirra á ýmsum svið-
um,“ segir m.a. í frétt frá útgefanda.
„Höfundur bókarinnar, Peter
West, er þaulreyndur í faginu.
Hann leiðir okkur um völundarhús
þessarar ævafornu listgreinar og
lýsir því, hvernig nota má línur
og mynstur lófans, lögun handar-
innar í heild og einstakra hluta
hennar og síðast en ekki síst
handahreyfingar til að fá gleggri
vitneskju um okkur sjálf og aðra.
Náttúran hefur rist óafmáanlegar
rúnir sínar í hendur okkar, og
margt óvænt kemur í ljós þegar
farið er að lesa í lófann."
Þýðandi bókarinnar er óskar
Ingimarsson, en útgefandi Set-
berg. í bókinni, sem er 145 blaðsíð-
ur, eru margar myndir efninu til
skýringar.
BARBWRA i ,
ttartland
Veðmál
ogást
Veðmál og ást
— ný bók eftir
Barböru Cartland
SKUGGSJÁ, Hafnarfirði, hefur gefíð
út bókina,, Veðmál og ást“ eftir
Barböru ('artland. Þetta er tólfta
bókin, sem Skuggsjá gefur út eftir
Barböru Cartland.
„Hertoginn af Brockenhurst
veðjar við Freddie vin sinn um
það, að hann geti farið einsamall
ríðandi frá London til York án síns
venjulega fylgdarliðs og án þess
að láta uppi hver hann er í raun
og veru," segir m.a. í frétt útgef-
anda. „Þegar hann gistir á krá
nokkurri á leiðinni, hittir Brock
hertogi hina fögru Valoru Melford,
sem er ung og saklaus stúlka.
Stjúpmóðir hennar, sem er með
henni á kránni, ætlast til þess að
Valora giftist gegn vilja sínum
gömlum barón. Brock hertogi
hjálpar Valoru til að flýja frá
stjúpmóður sinni, og þau leggja á
flótta á hestbaki. A leiðinni bíða
þeirra ýmsar hættur og ævintýri,
áður en þau ná til York.“
Bókin er 173 bls. að stærð. Sig-
urður Steinsson þýddi.
Hreinn syngur fyrir fullu húsi í Ordway-óperunni í St. Paul. Undirleik annaðist Lawrence Henry.