Morgunblaðið - 24.11.1985, Síða 36
k36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÖVEMBER1985
Rétt að verki staðið
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Nýlega var sagt frá því í fjöl-
miðlum, að Hafsteinn Austmann
myndlistarmaður hafi lokið við
að gera iistaverk fyrir Lands-
yirkjun, sem komið verður fyrir
á vegg stöðvarhússins við Hraun-
eyjarfoss. Listaverkið, sem nefn-
ist „Á móti straumnum" er um
18 metra breitt og 5 metra hátt
og vegur 5-6 tonn.
Hér er ekki alveg rétt greint
frá því, að Hafsteinn útfærði
' hugmyndina á árinu 1981 og tók
þá þátt í samkeppni um skreyt-
ingu stöðvarhússins í Sigöldu og
hlaut önnur verðlaun. Er svo
stjórn Landsvirkjunar bað Haf-
stein að gera tillögu um skreyt-
ingu á húsinu við Hrauneyjar-
foss, varð þessi hugmynd frá
1981 kveikjan og uppistaðan í
nýja verkinu.
Það sem nú hefur skeð, er að
Stálsmiðjan hefur lokið við að
stækka verkið eftir uppkasti
Hafsteins úr sérstöku stáli, er
fellur vel að hugmynd lista-
mannsins.
Hér uppi á íslandi höfum við
alltof lengi blandað saman fag-
vinnu og hugmynd, sem eru tveir
ólíkir hlutir. Á öllum tímum hafa
listamenn haft aðstoðarmenn við
faglega vinnu, þar sem því var
komið við, svo að þeir sjálfir
gætu einbeitt sér að hugmynd-
inni sjálfri, sem oftast tók alla
krafta þeirra.
Þá þarf að taka tillit til margra
annarra þátta svo sem, að lista-
maður er vinnur í smágerðum
formum, getur verið ófær um að
hugsa í stórum formum og þarf
þá aðra til þess að stækka verkið.
Þannig er t.d. mikil skreyting á
Fomebu-flugvelli eftir Kai Fjell,
sem Snorre Andersen listmálari
var fenginn til að útfæra, þar
sem Fjell treysti sér ekki til að
hugsa í svo stórum formum. Þá
er hugtakið myndhöggvari nær
orðið úrelt á okkar dögum, þar
sem unnið er í svo mörgum
óskyldum efnum, þar sem hamar
og meitill koma hvergi nærri.
Efnin eru orðin svo mörg, að
útilokað er að einn maður geti
fullnumað sig í nema broti af
þeim. Svið mótunarlistarinnar
hefur víkkað mjög á undanförn-
um árum og svo er einnig um
svið málaralistarinnar. Þessi tvö
svið hafa í senn nálgast hvort
annað og fjarlægst.
En eftir stendur, að hug-
myndin er það, sem mestu máli
varðar, og svo skiptir öllu, að
útlærðir fagmenn útfæra hana
eftir leiðsögn listamannsins.
Alltof oft sér maður myndhöggv-
ara sjálfa ráðast í verkefni þar
sem þá skortir faglega kunnáttu
og útkoman getur orðið klúðurs-
leg, jafnframt því að verkin taka
Hafsteinn Austmann
tiltölulega fljótt að láta á sjá og
skemmast.
Erlendis sér maður hvernig
myndlistarmönnum - jafnt
málurum sem myndhöggvurum
er falið að vinna verk í rúmtaki
og lítill munur gerður hér á
milli. Ekki er þá ætlast til þess
t.d. að viðkomandi fari að hræra
steypu eða logsjóða samskeyti,
heldur er slíkt allt alfarið lagt
upp í hendur útlærðra fagmanna
á hverju sviði.
Hér er ég að leggja áherslu á,
að það er hugmyndin, sem máli
skiptir, en ekki það, hvort maður
kunni að hnoða leir, leggja mósa-
ikflisar eða hræra í gifsi. Hug-
myndin ein og sér er meira virði
en allur faglegur lærdómur, en
hins vegar getur þetta tvennt
ekki án hins verið og án fullkom-
innar samvinnu þessara tveggja
þátta næst ekki rismikill árang-
ur. Þar stendur hnífurinn í
kúnni.
Ný bók um
Einar Áskel
ÚT ER komin ný bók um Einar
Áskel. Hún heitir Þú átt gott, Einar
Áskell. Höfundur texta og mynda
er Gunilla Bergström en Sigrún
Árnadóttir þýddi bókina.
í fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir:
„Þegar sagan hefst eru jólin
nýliðin og allt orðið hversdagslegt
aftur. Einari Áskeli og pabba hans
leiðist óumræðilega, en amma
segir að þeir hafi bara gott af því.
Hún heldur því fram að okkur
þætti aldrei neitt skemmtilegt ef
okkur leiddist ekki við og við. Við
þetta hressist Einar Áskell og
hugsar með sér að úr því allt sé
svona ömurlega leiðinlegt hljóti
eitthvað skemmtilegt að gerast
rétt bráðum. En hvað skyldi það
vera?“
Sagan er gefin út af Máli og
menningu en prentuð í Danmörku.
Setning og filmuvinna: Prentstofa
G. Benediktssonar.
Hafnarfjörður:
Adalfundur og
kvöldvaka Nor-
ræna félagsins
NORRÆNA félagið í Hafnarfirði
heldur aðalfund og kvöldvöku annað
kvöld, mánudagskvöld, kl. 20.30 í
veitingahúsinu Riddaranum við Vest-
urgötu.
Dagskrá aðalfundar er sam-
kvæmt lögum félagsins, en að
honum loknum verður kvöldvaka
þar sem þátttakendur segja frá
vinabæjamóti, sem haldið var í
Bærum í Noregi á sl. sumri.
Félagar og aðrir velunnarar
Norræna félagsins eru hvattir til
þess að mæta á fundinn.
7*