Morgunblaðið - 24.11.1985, Page 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985
Veiddu norskan
hljómsveitarstjóra
og tónlistarlífið
biómstrar
Texti og myndir: E.Pá.
Ojvind Solbach og Görlind Foss í stofunni sinni á Patreksfirði.
Tónlistarlíf blómstrar á
Patreksfirði og nágrenni,
eins og blóm sem springur
út við að fá allt í einu umönnun.
„Það hefur virkað sem vítamínsp-
rauta að fá hingað hann Ojvind,"
sagði hver um annan af þeim sem
blaðamaður hitti á ferð i Barða-
strandarsýslu fyrir skömmu. Oj-
vind Solbach er Norðmaður sem
haustið 1982 kom til Patreksfjarð-
ar til að taka við Tónskólanum —
í eitt ár — og er þar enn. Síðan
hefur Tónskólinn ekki aðeins
bólgnað út bæði hvað snertir
nemendafjölda og fjölbreytni
hljóðfæra. Skólastjórinn var ekki
búinn að vera á staðnum í 3 mán-
uði þegar farið var að kaupa hljóð-
færi og koma upp lúðrasveit, sem
nú leikur við ýmis tækifæri. Auk
tónleika fyrir fullu húsi á vorin,
hefur verið komið upp skemmtileg-
um kabaretthljómleikum í Félags-
heimilinu og áform um áframhald.
Fyrir utan skólastjórnina er Oj-
vind Solbach svo organisti í 7
kirkjum og æfir kirkjukórana.
Orgelin voru víst ekki öll upp á
það besta er hann kom, svo að
hann tók sjálfur í sundur pípu-
orgelið í Patreksfjarðarkirkju,
sendi út pípur sem þurftu viðgerð-
ar við og setti það allt saman
aftur. Og fleiri fréttir af þessu
batnandi og vaxandi tónlistarlífi í
héraðinu bárust til eyrna.
Það var því ekki að undra þótt
fréttamaður á ferð vildi ná tali af
þessum Norðmanni, sem Patreks-
firðingar höfðu góðu heilli veitt í
sitt net, eins og einn þeirra orðaði
það. „Þú verður ekki í vandræðum
með að finna staðinn, það er nýtt
hús sem hann hefur keypt og á
neðri hæðinni er verslunargluggi
með hljóðfærum." Eftir slíkum
leiðbeiningum var auðvelt að finna
staðinn í nýju hverfi á Patreks-
firði. Auðséð að húsráðendur eru
að tjalda til meira en einnar næt-
ur. Það vekur vitanlega upp spurn-
inguna: Hvernig bar það að, að
erlendur hljómsveitarstjóri tók sig
upp og hélt til Islands og það
vestur á firði og er að setja sig
þar niður?
„Ég sá í Noregi auglýsingu frá
Tónskólanum og grunnskóla Pat-
reksfjarðar um að þá vantaði tón-
listarkennara. Þar sem mig hafði
lengi dreymt um að koma til ís-
lands, þá skrifaði ég eftir frekari
upplýsingum. Hugsaði svo ekki
meira um það. Og allt í einu kom
bréf og skeyti frá íslandi", svarar
Ojvind þegar við erum sest hjá
honum og konu hans Görild Foss,
sem kom á eftir honum og kennir
líka á hljóðfæri. „Nei, ég vissi
ekkert um Patreksfjörð. Hugsaði
bara með mér, að ef mér ekki lík-
aði, þá væri þó ekki um að tefla
nema eitt ár, og þá mundi ég bara
halda áfram eitthvað annað eftir
árið. Ég kom um hávetur, en var
ekki búinn að vera lengi þegar ég
fann hve vel ég kunni við mig.
Fannst gott að komast burt frá
stórbæjarstreitunni, sem er svo
yfirþyrmandi í öðrum löndum."
Ojvind Solbach kvaðst hafa verið
í músikinni alla sina æfi, starfaði
m.a. í Þrándheimi, Sunddalsöra og
víðar í Noregi og einnig í Þýska-
landi. Fyrst og fremst sem hljóm-
sveitarstjóri, en einnig hljóðfæra-
leikari. Hans hljóðfæri er í raun-
inni trompet, en hann leikur einnig
á mörg önnur hljóðfæri. „Mér
fannst spennandi að koma til stað-
ar þar sem ekki er mikið tónlistar-
líf. Það veitir svo mikla ánægju
að vinna með áhugafólki. Allt
annað en að vinna með atvinnu-
mönnum, eins og ég hefi gert fram
að þessu," segir Ojvind þegar
spyrjandi virðist vænta frekari
skýringa. „Að vísu hafði ég áður
verið með stórar barnalúðrasveit-
ir. Var m.a. með stærstu barna-
hljómsveitina í Noregi í eitt ár,
125 börn á aldrinum 9—16 ára. Þá
fórum við í hljómleikaferðir til
Finnlands og Danmerkur, vorum
beðin um að leika á sjálfa Jóns-
messunóttina í Tívolí í Kaup-
mannahöfn."
En hér á Patreksfirði var enginn
vottur af slíkri hljómsveit, svo þú
dreifst hana bara upp?
„Hér höfðu börnin lært eitthvað
á píanó og blokkflautu, en ekkert
á blásturshljóðfæri. Svo við drif-
um i að safna peningum eða fá þá
lánaða og tókst að kaupa 35 hljóð-
færi. Getum því haft upp í 35
manna lúðrasveit. Hana mynda
mest krakkar og unglingar úr
grunnskólanum og 2—3 fullorðnir
sem líka vildu læra á blásturs-
hljóðfæri. Síðan bættum við gítar-
kennslu við, kennum á rafmagns-
gítar, vanalegan gítar og bassagit-
ar og ég vonast til að fá tónlistar-
skólanemana til þess að stofna
rokk-hljómsveit. Krakkarnir
þurfa að fá tilboð í samræmi við
það sem þau vilja sjálf. Þau vilja
mörg aðeins læra á gítarinn og þau
eiga að fá tækifæri til þess. Þau
þurfa sína rokkhljómsveit. Einnig
hefur verið keypt rafmagnsorgel,
svo við getum nú kennt á það, sem
ekki var hægt áður.“
í Tónskólanum á Patreksfirði eru
nú 110 nemendur og kennarar eru
þrír. Auk þess hefur verið komið
upp deild á Bíldudal, sem Ojvind
Solbach hefur einnig umsjón með.
Þar kennir Tone dóttir hans, sem
kom á eftir honum til íslands. Hún
kom fyrir einu ári og líkar vel.
Þessi mikli áhugi bendir ekki til
þess að allir sitji við sjónvarp og
videotæki á kvöldin á Patreksfirði.
Ojvind segir okkur að nokkrir
nemendanna séu með 3 hljóðfæri
og þeir séu sannarlega alveg upp-
teknir á hverju kvöldi í Tónskólan-
um. Kennsla fer fram allan dag-
inn. Tónskólinn er til húsa í nýja
grunnskólanum, en orgelkennslan
fer fram á heimili Ojvindar og
konu hans, þar sem orgelinu hefur
verið komið fyrir þar til nýtt Tón-
skólahús er fullbyggt og rýmra
verður um skólann.
Organisti í 7 kirkjum
Ekki situr skólastjóri Tónskól-
ans heldur auðum höndum um
helgar. Einu sinni til tvisvar sinn-
um á hverjum sunnudegi heldur
hann til messu í einhverri af þeim
7 kirkjum sem hann er organisti
í, en þær eru kirkjan á Patreks-
firði, Tálknafirði, Brjánslæk,
Haga, Saurbæ, Sauðlauksdal og
Breiðuvík. Hann tjáir okkur að í
vetur hafi verið keypt ný raf-
magnsorgel í Bíldudalskirkju og
Saurbæjarkirkju, svo að þar eru
nú góð hljóðfæri. Og organistinn
hefur sjálfur gert upp pipuorgelið
í Patreksfjarðarkirkju , sem ekki
„Ég vona að kirkjugestum Ifki orgelið núna“, sagði organistinn, eftir að
hafa tekið pípuorgelið í sundur, sent pípurnar út til framleiðandans og sett
það saman aftur.
Görlind leiðbeinir sex ára nemanda, Berglind, sem er að læra á flautu.
„Segðu mér að sunnan“ eftir Steingrfm Sigfússon túlkað og sungið í Félags-
heimilinu á Patreksfirði.
„Sfldarvalsinn*1 fluttur á Steingrímskvöldi til heiðurs höfundinum Steingrími
Sigfússyni.