Morgunblaðið - 24.11.1985, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 24.11.1985, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER1985 67 Meðal mynda, sem vöktu serstaka athygli á nýafstaðinni kvikmyndahátíð í New York borg var Colonel Redl eða Redl ofursti, sem ungverski kvikmyndaleikstjórinn, Istvan Szabo hefur gert. Szabo er hvað frægastur fyrir myndina Mephisto um þýskan leikara, sem vinnur fyrir nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Redl ofursti gerist að mestu fyrir fyrri heimsstyrjöldina og er, eins og titillinn gefur til kynna, um ofurstan Redl, sem var foringi í austurrísku leyniþjónustunni og starfsmaður austurríska herráðsins. En að auki var hann landráðamaður — njósnari fyrir Rússa. Úr myndinni Redl ofursti. Ifyrstu orustum heimsstyrj- aldarinnar fyrri missti keis- aradæmið Austurríki — Ungverjaland um hálfa milljón hermenn og almennt er talið að tugir þúsunda þeirra hafi dáið beinlínis vegna njósna og svika Redls ofursta. Hann lét Rússum í té ómetanlegar upplýsingar um herafla austurríkis- manna. Sagnfræðingar, sem fjallað hafa um síðustu daga Habsborgar- veldisins er á einu máli um að Redl hafi verið sannkallaður stórsvikari. Evrópubúar hafa alla tíð haft mik- inn áhuga á Redlmálinu. Kvikmynd Szabos er a.m.k. fimmta leikgerð sög- unnar, sem gerð hefur verið fyrir svið eða kvikmynd og um ofurstann hafa verið skrifaðar margar bækur. Það þykir erfitt að meta hve mikið tjón njósnarar nútímans vinna með starfi sínu í dag en þegar Redl sveik Austur- ríki vissi hann að hann var að senda þúsundir landa sinna í dauðann. Redlmálið hefur allt sem þarf í spennandi sögu: kynlíf, njósnir, föður- landssvik og stórkostlegan hápunkt þar sem Redl iðrast og tekur dauða sínum eins og persóna í miklum harm- leik. Og það eykur enn á dramað ?J Redlhneykslið kom fram í dagsljóúð við upphaf heimsstyrjaldarinnar, æm táknaði endi austurríska keisaradæm- isins. Það sem mönnum þykir undarlegt við þessa nýju útgáfu Szabos af sög- unni er að leikstjórinn fjallar um landráðamanninn af samúð, sem er, sögulega séð, talsverður vandi. Því er haldið fram að Redl hafi selt Rússum helstu árásaráætlun austurríkis- manna, orustuáætlanir, áætlanir um herkvaðningu (á tímum þegar her- kvaðningar gátu verið lykillinn að sigri) og nákvæmar áætlanir um víg- girðingar þær sem Rússar áttu skömmu seinna eftir að flæða yfir. Vitað er ennfremur að Redl hafi sent austurríska njósnara yfir til Rúss- lands og síðan komið upp um þá. Hann hafði einnig komið njósnurum sínum fyrir meðal starfsmanna keisarans en selt þá síðan í hendurnar á Rússum, sem annaðhvort hengdu þá eða neyddu til sjálfsmorða. Þegar herráð austurríkismanna komst að svikum Redls sendi það fjóra háttsetta foringja á hans fund. Brown- ing-skammbyssa var lögð á borð hjá honum og fjórmenningarnir biðu á götunni fyrir neðan. Redl skaut sig í hausinn. Hann skildi eftir sig orðsend- ingu. í henni stóð: „Ástríður og alvöru- leysi hafa lagt líf mitt í rúst. Eg borga fyrir syndir mínar með lífi mínu. Biðjið fyrir mér.“ Svona skrifa varla saklausir menn. Ástríðurnar, sem Redl talaði um, tengdust kynvillu hans. Þótt Rússar hafi borgað honum himinháar fjár- hæðir fyrir njósnirnar var Redl upp- haflega kúgaður til svikanna. En greiðslur Rússanna gerðu honum kleift að lifa eins og aðalsmaður. Menn gætu haldið að íburðarmikið líferni Redls hefði vakið athygli gagnnjósna- deildar austurríkismanna en á það ber að líta að Redl var í mörg ár yfirmaður gagnnjósna í landinu. Bréf gefa til kynna að Redl hafi verið afar ástfanginn af ungum ridd- araliðsforingja og haldið honum uppi af mikilli rausn. Hann sá honum fyrir hestum, sérsmíðuðum Daimler (sem kostaði þrenn árslaun ofursta í hinum keisaralega her) og stórri íbúð. Allt var borgað með Rússafé. Stundum hafði Redl riddaraliðsforingjann unga með sér við opinber tækifæri og sagði þá að hann væri frændi sinn. Ástin á foringjanum kom þó ekki í veg fyrir að ofurstinn gamnaði sér með öðrum félögum. Eftir að Redl framdi sjálfs- morð brutust meðlimir úr herfor- ingjaráðinu inn í íbúð hans og fundu þar ýmsar gerðir af snyrtivörum, ilmvötn, liti, krullujárn, kvensilki- sokka og ljósmyndir af Redl og öðrum austurrískum foringjum, nöktum eða í kvenmannsfötum, í fjölbreytilegum kynlífsstellingum. Allt varð þetta að hræðilegu hneyksli. Ef herforingjaráð keisarans var svona gjörspillt og einn meðlimur þess á launum hjá Rússum, hvaða trú gátu þá hermennirnir haft á foringj- um sínum? Hneykslið hefur aldrei verið kveðið niður til fulls. Þjóðverjar Þýski leikarinn, Klaus Maria Brandauer í hlutverki Alfred Redls í nýjustu mynd Szabös Redl ofursti. hafa gert þrjár kvikmyndir um Redl- málið og leikritaskáldið breska, John Osborne, skrifaði leikrit eftir því, A Patriot for He, sem fékkst þó meira við kynvillu Redls en landráð. Eftir öllu þessu að dæma er ljóst að Redl var erkiþrjótur og því kemur það á óvart þegar Szabo fjallar um hann af samúð í mynd sinni. Szabo lætur honum í té æskuvin, ungverskan aðalsmann, Kubinyi að nafni, ástkonu, Katalin að nafni, sem er systir Kub- inyi og eiginkonu, Clarissu að nafni en allar þessar persónur hefur leik- stjórinn sjálfur skáldað upp og sett í söguna. Hann lætur Franz Ferdinand erkihertoga vera í samsæri um að koma af stað „litlu, ljúfu stríði" og reyna að fá Redl til liðs vð sig en Redl færist undan. Enn er hér skáld- skapur Szabos á ferðinni og svo dregur hann úr kynvillu ofurstans niður í eitt sársaukalaust tilfelli og „landráð" hans gerir Szabo ekki að neinu Iand- ráði heldur einstöku tilviki þar sem Redl ryður útúr sér fjölda riddaraliðs- herdeilda, fótgönguliðsfylkja og þess háttar. Szabo segist ekki hafa neinn sér- stakan áhuga á kynvillu eða landráði Redls, heldur á erfiðleikum hans við að finna sjálfan sig 1 lífinu. í dag, segir hann, „vill fólk vera eitthvað annað en það er. Það er sjúkdómur aldarinnar." Og hann heldur áfram. „Það sem mér fannst svo áhugavert við Redlmálið var að Redl líkaði ekki við sjálfan sig. Hann vildi vera einhver annar en hann var. Hann var fátækur úkraínumaður sem vildi vera Austur- rískur aðalsmaður. En það er ómögu- legt að skipta um persónu. í dag vill fólk skipta um stétt, kyn, andlit. Lýta- læknar auðgast. Þetta er raunveruleg- ur sjúkdómur." Szabo viðurkennir að hafa farið mjög frjálsum höndum um Redlmálið í kvikmynd sinni. „Kannski við hefðum átt að skipta um heiti myndarinnar." En hann bætir við. „Hvað veit maður. Kannski maður lesi á morgun að ný skjöl hafi komið fram í dagsljósið sem sanni að Redl var saklaus." Szabo skrifaði handritið að Redl ofursta ásamt Peter Dobai. „Ég vil ekki hafa það þannig að mér sé fengið í hendur handrit sem einhver hefur skrifað og svo segi ég leikurunum bara að koma hér inn og ganga hér út. Ég vil eiga þátt í að skapa alla söguna frá upphafi." Flestir þeir leikstjórar, sem eru í mestu áliti hjá Szabo, — Ingmar Bergman, Federico Fellini og Luis heitinn Bunuel — skrifuðu einnig eða áttu þátt í að skrifa handritin að sínum myndum." Og svo segir Szabo. „Fólk hefur gert alltof mikið úr kvik- myndaleikstjórn. Leikstjóri þarf ekki að vita meira um kvikmyndagerð en vel gefinn stúdent getur lært á tveim- ur vikum.“ — ai.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.