Morgunblaðið - 28.11.1985, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1985
Morgunblaðið/Sig-Jóng.
Guðmundur Sigvaldaaon, sveitarstjóri á Stokkseyri, með nýjan tölvubúnað
og nýtt merki á skrifborðinu.
Svörin við þessum spurningum og 5.994
til fáið þið í spurningaleiknum
TRIVIAL PURSUIT
Útsölustaöir:
Reykjavík:
HjáMagna, Laugavegi 15.
Astund. Austurveri, Háaleitisbraut 86,
Bókabúð Breiöholts, Arnarbakka 2.
Bókabúö Fossvogs, Grímsbæ.
Bókabúð Jónasar, Rofabæ7.
Bókabúö Safamýrar, Háal.br 58-60.
Bókabúö Æskunnar, Laugavegi 56.
Bókabúöin Álfheimum 6.
Bókaversl. ísafoldar, Austurstræti 10.
Frimerkjamiöst., Skolavöröustíg 21a.
Griffill, Síöumúla 35.
Holasport, Hólagaröi, Louhólum 2-6.
Leikfangahúsiö, Skólavöröustig 10.
Leikf.versl. Smáfólk, Austurstræti 17.
Llverpool. Laugavegi 18a.
Penninn, Hafnarstræti 8.
Penninn, Hallarmúla 2.
Skákhúsiö, Laugavegi 46.
Tómstundahúsiö,
Klapparstíg 26.
Akureyri:
Amaró.
Bókabúö Jónasar.
Akranes:
Bókaverslun Andrésar Nielssonar hf.
Borgarnes:
Bókabúö Grönfeldts.
Dalvík:
Bókaverslunin Sogn.
Grindavík:
Bókabúö Grindavíkur:
Garöabær:
Bókaverslunin Grima.
Hafnarfjöröur:
Bóka. Olivers Steins, Strandg. 31.
Búsáhöld og leikföng, Strandg. 11-
13.
Leikbær, Reykjavíkurvegi 50.
Heila:
Kaupfélagiö Þór.
Húsavik:
Bókaverslun Þórarins Stefánssonar
Hverageröi:
Blómaborg.
ísafjöröur.
Bókaverslun Jónasar.
Keflavík:
Bókaverslun Keflavíkur.
Nesbók.
Kópavogur:
Veda, Hamraborg 5.
Neskaupstaöur:
Bókaverslun Brynjars Júlíussonar.
Sandgeröi:
Aldan
Sauöárkrókur:
Bókafbúö Brynjars.
Selfoss:
Höfn hf.
Seyöisfjöröur:
Bókaverslun A. Bogasonar og
E. Sigurössonar.
Siglufjöröur: ^
Gestur Fanndal.
Stykkishólmur:
Kaupfélag Stykkishólms.
Vestmannaeyjar:
Bókabúöin, Heiöarvegi 9.
Þorlákshöfn:
Bóka- og gjafabúöin.
„Triviat Pursuit" er skrásett vörumerki. Dreifing á ísiandi
Eskifell hf., s. 36228.
Leikur frá Hom Abbot. Gefinn út með leyfí Hom Abbot Intl. Itd.
Stokkseyri:
Bundið slitlag og tölvuvæð-
ing á skrifstofu hreppsins
Selfossi, 24. nóvember.
Á STOKKSEYRI var lagt bundið
slitlag á eina götu í sumar og end-
urnýjuð götulýsing ásamt því að gerð
var spennubreyting I húsum við
götuna úr 220 í 380 volt. Önnur
helsta framkvæmd þessa árs var
tölvuvæðing skrifstofu hreppsins.
Atvinnuástand er gott á Stokkseyri
um þessar mundir.
Kostnaður við gatnagerðina var
um 1400 þúsund krónur og tölvu-
væðingin kostaði sveitarsjóðinn
600 þúsund krónur. Guðmundur
Sigvaldason sveitarstjóri sagði að
nýja tölvan sparaöi kostnað sem
næmi nettó 100 þúsund krónum á
ári.
Áður en tölvan var sett upp var
bókhald hreppsins fært eftir
spjaldakerfi og mikil vinna við
uppgjör. 1984 greiddi hreppurinn
250 þúsund til endurskoðunar-
skrifstofu fyrir uppgjör og endur-
skoðun.
Guðmundur sagði að helstu
kostirnir við tölvuna væru að nú
lægju allar upplýsingar strax fyrir
um bókhald og fjárhagsstöðu í stað
þess að áður var oft langt liðið á
árið áður en uppgjör ársins á
undan lá fyrir. „Það er mikið
hagræði að geta gefið fólki upplýs-
ingar strax um stöðu þess gagn-
vart sveitarsjóði," sagði Guðmund-
ur.
Atvinnuástand á Stokkseyri
hefur verið gott á þessu ári. 1
Hraðfrystihúsinu hefur verið næg
atvinna, en það er stærsti vinnu-
veitandinn á staðnum. Að undan-
förnu hefur þar verið unnið að því
að verka síld og nóg að gera. Þó
hafa komið tímabil að fólki var
sagt upp, „þá vantaði okkur togara
til að jafna vinnuna. Meðan hann
var og hét þá jók hann við vinnuna
og skapaði betri nýtingu," sagði
Guðmundur sveitarstjóri.
SigJóns.
Nýtt merki
Selfossi, 24. nóvember.
Sl. vor var nýtt merki tekið í notk-
un sem einkenni Stokkseyrarhrepps.
Merkið er táknrænt og sýnir
brimgarðinn undan ströndinni og
siglingamerkin. Það var Pétur
Behrens sem teiknaði merkið en
hann bjóð áður I Keldnakoti í
Stokkseyrarhreppi.
Verk eftir ellefu íslensk
tónskáld á hljómplötum
Karólína Eirfksdóttir afhenti Sverri Hermannssyni fyrstu eintökin af hljóm-
plötunum.
Lækkandi ferskfisk-
verð í Þýzkalandi
ÍSLENSK tónverkamiðstöð hefur
nýlega gefið út fjórar hljómplötur
með nýrri íslenskri tónlist eftir ell-
efu tónskáld. Þessi útgáfa er gerð
í samvinnu við Ríkisútvarpið og með
stuðningi frá menntamálaráðuneyti.
Af þessu tilefni voru mennta-
málaráðherra Sverri Hermanns-
syni afhent fyrstu eintökin af
þessum hljómplötum við hátðlega
athöfn í húsnæði Tónskáldafélags
íslands. Við það tækifæri lýsti
ráðherra yfir eindregnum áhuga
sínum á útbreiðslu nýrrar ís-
lenskrar tónlistar á meðal er-
lendra þjóða svo og á meðal lands-
mannasjálfra.
Hljómplöturnar fjórar eru hver
um sig helgaðar sérstöku sviði
íslenskrar tónsköpunar,
þ.e.a.s. hljómsveitartónlist, fiðlu-
tónlist, píanótónlist og raftónlist.
Auk Sinfóníuhljómsveitar Is-
lands undir stjórn Páls P. Páls-
sonar og Jean-Pierre Jacquillat
koma fram á þessum hljómplöt-
um fjórir landsþekktir einleikar-
ar, þau Einar Jóhannesson klari-
nettleikari, Kristján Þ. Stephen-
sen óbóleikari, Guðný Guðmunds-
/ dóttir fiðluleikari og Anna Áslaug
Ragnarsdóttir píanóleikari. Með
hverri hljómplötu fylgir upplýs-
ingabæklingur á íslensku og
ensku um efni plötunnar, flytj-
endurna og höfundana.
(Fréttatilkynning)
VERÐ á ferskum fiski í Þýzkalandi
hefur nú lækkað nokkuð frá því, sem
verið hefur að undanförnu. Á mánu-
dag fengust 33 til 35 krónur að
meðaltali fyrir hvert kfló af karfa
og ufsa og á þriðjudag var verðið
41,21 kr. Á síðustu vikum hefur
verðið verið allt að 50 krónum.
Skýring þessa er fyrst og fremst
sú, að framboð að undanförnu
hefur verið mikið og horfur á að
svo verði áfram. Þá er það oftast
þannig, að eftir að hátt verð hefur
haldizt um tíma, lækkar það tals-
vert aftur þar sem markaðurinn
stendur ekki undir því til lengdar.
Á mánudag seldi Karlsefni RE
148,3 lestir, mest kar'fa og ufsa, í
Bremerhaven. Heildarverð var
Þorskalysi eöa ufsalysi fra Lysi hf.
. heilsunnar vegna
ARGUS40
5.233.100 krónur, meðalverð 35,29.
Sama dag seldi Hegranes SK 163,1
lest, mest karfa og ufsa, í Cux-
haven. Heildarverð var 5.401.800
krónur, meðalverð 33,12. Loks seldi
Baldur EA sama dag 81,3 lestir í
Hull. Heildarverð var 4.641.600
krónur, meðalverð 57,11. Aflinn
var mest megnis þorskur og koli.
Á þriðjudag seldi Vigri RE 192,3
lestir í Bremerhaven, mest karfa.
Heildarverð var 7.922.900 krónur,
meðalverð 41,21. Sama dag seldi
Ljósafell SU 113,3 lestir, mest
þorsk, í Grimsby. Heildarverð var
6.222.500 krónur, meðalverð 54,95.
Þá seldi Vísir SF á þriðjudag 42,8
lestir í Hull. Heildarverð var
1.962.000 krónur, meðalverð 45,83.
Talsvert var af keilu í afla Vísis
og dró það meðalverð nokkuð nið-
ur.