Morgunblaðið - 28.11.1985, Side 34

Morgunblaðið - 28.11.1985, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1985 Ráðstefna um innlend jarðefni til iðnaðar RÁÐSTEFNA um innlend jarðefni til iðnaðar verður baldin í Hótel Loftleiðum & morgun, föstudag, á vegum Verkfræðingafélags íslands, Jarðfræðafélags íslands og Mann- virkjajarðfræðifélags íslands. Flutt verða nokkur stutt yfirlits- erindi um helstu iðnaðarjarðefni á landinu, svo sem vikur, sements- efni, leir, kísilgúr, mó, títan, brennistein og hveragas. Greint verður frá nýtingu þeirra og nú- verandi þekkingu okkar um þau. Einnig verður fjallað um þjóð- hagslega þýðingu iðnaðarjarðefna almennt hér á landi. Að loknum erindaflutningi verða pallborðs- umræður um horfur á nýtingu jarðefna og þjóðhagslegt gagn af þeim. Ráðstefnan er öllum opin sem áhuga hafa. Zafarí: Frönsk-íslensk rokkhátíð Frönsk-íslensk rokkhátíð verður haldin í veitingahúsinu Safarí við Skúlagötu sunnudaginn 1. desem- Ferdinand Richard bassaleikari og söngvari frönsku hljómsveitarinnar „Etron Fou Leloublan". ber. Hátíðin ber yfirskriftina „Fá- heyrður hvítur úlfur“. Fulltrúi Frakka á hátiðinni verður nýbylgjurokksveitin „Etron Fou Leloublan", sem nýtur vin- sælda í Bandaríkjunum og viða um Evrópu. Plötur þeirra hafa oft verið ofarlega á óháða vinsælda- listanum í Bretlandi. Hljómsveitin „Svart-hvítur draumur", sem nú er að senda frá sér jómfrúarplötu, kemur fram fyrir hönd íslands auk rokkskáld- anna Einars Más Guðmundssonar og Sigfúsar Bjartmarssonar, sem báðir eiga kafla á ljóðasnældum, sem Grammið mun gefa út innan skamms. Þá mun súrrealistahópurinn Medúsa auk Þórs Eldons, Sjóns, Jóhamars og Einars Melax klæða Safarí og hátíðina sérstökum við- hafnarskrúða með Ijósum, litum og tali. Forsala aðgöngumiða er I Gramminu, Laugavegi 17. Morgunblaðid/Emilía Þrjár prjónakonur Álafosstrefilsins margfræga bíða áritunar örnólfs Thorlasius, umboðsmanns Guinness- heimsmetabókarinnar. Einar Egilsson verslunarstjóri í Álafossbúðinni, stendur með viðurkenningarskjölin. Alafoss-trefillinn: Þátttakendum boðið í kaffi og veitt viðurkenningarskjöl 1 tilefni þess að lengsti trefill heims komst í heimsmetabók Guiness bauð Álafossbúðin þátt- takendum í kaffi og kökur sl. föstu- dag og laugardag í verslunina. Örnólfur Thorlasíus, umboðsmað- ur Guinness hér á landi, afhenti jafnframt þátttakendum viður- kenningaskjöl og áritaði nýút- komna heimsmetabók fyrir þá sem það vildu. Hundrað manns komu í kaffið en alls tóku 305 manns þátt í gerð trefilsins, sem náði 29,3 metrum þegar yfir lauk. Hann var prjónaður í Álafossbúðinni I verzluninni 4,—12. október sl. Trefillinn er 30 lykkjur að breidd og var Álafoss-hespulopi ein- göngu notaður í gerð hans. Akureyringar prjónuðu þó næst lengsta trefilinn, 24,5 metra, en í verslun Sigurðar Guðmundssonar kepptu Akur- eyringar við Reykvíkinga um heimsmetið. Álfoss-lopinn hefur farið víða. Á sl. ári voru 57 tonn seld til Japans í neytendaumbúðum, 80 tonn til Bandarikjanna og 14 tonn til Ástralíu. Þeir, sem ekki hafa nálgast viðurkenningaskjöl sín, geta vitj- að þeirra í Álafoss-búðinni í Vesturgötu 2. ’ Tríó Jóhannesar Snorrasonar Stúdentakjallarinn: Tríó Jóhannesar Snorrason- ar leikur föstudagskvöld Milljónabingó í Höllinni í kvöld Fræðslukvöld umkvíða Áður auglýst fræðslukvöld með Grétari Sigurbergssyni geðlækni verður í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30 í safnaðarheimili Laugarnes- kirkju. Grétar fjallar um orsakir kvíða. Eftir fyrirlesturinn verða kaffi- veitingar, organistar kirkjunnar flytja tónlist og í lok kvöldsins verður helgistund í kirkjunni. Fræðslukvöldið er öllum opið. Norræna húsið: Gerda Antti lesúr verkum sínum SÆNSKI rithöfundurinn Gerda Antti les úr verkum sínum í Norræna húsinu í kvöld kl. 20.30. Hún er stödd hér á landi í boði sænska sendiráðsins og Norræna hússins. Gerda Antti sendi frá sér sfna fyrstu bók árið 1961, Ijóðabókina „Har och nu“, en vakti þó ekki verulega athygli fyrr en með smá- sagnasafninu „Inte varre an vanligt“ árið 1977 og þó enn frekar þegar skáldsagan „Skref fyrir skref' kom út árið 1980. Fyrir tvær síðasttöldu bækurnar fékk Gerda Antti bók- menntaverðlaun Svenska Dagbladet auk þess sem hún hlaut bókmennta- styrk. Sagan „Skref fyrir skref", sem nýlega var lesin í ríkisútvarpinu, greinir frá Astrid, konu á miðjum aldri, sem býr í ástlausu hjóna- bandi, missir mann sinn og þjáist af samviskubiti yfir að hafa ekki reynst honum betur. Margt fleira fléttast inn í söguna og þykir Gerdu Antti takast meistaralega að lýsa lífi og umhverfi söguhetj- anna. Stíll hennar er kíminn og fjörugur en eilftið blandinn hæðni, þótt alltaf skíni í gegn samúð með fólkinu sem hún skrifar um. Sög- una þýddi Guðrún Þórarinsdóttir á íslensku. TRÍÓ Jóhannesar Snorrasonar leik- ur annað kvöld, föstudag, í Stúdenta- kjallaranum við Hringbraut. Auk Jóhannesar skipa þeir Gunnar Páls- HELGA Steffensen sýnir 60 af leik- brúðum sínum í sýningarsal Dyn- heima á Akureyri. Sýningunni lýkur um næstu helgi. Allar brúðurnar, sem sýndar eru, hafa verið ýmist á sviði eða komið fram í sjónvarpinu og er elsta brúðan frá árinu 1969 og sú son og Hreiðar Sigurjónsson tríóið. Þeir leika einkum melódískan djass. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og er aðgangur ókeypis. yngsta er eins árs gömul. Á sýning- unni eru margar gerðir af brúðum t.d. hanskabrúður, skaftbrúður og stórar brúður, sem stjórnandinn fer innan í. Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 1. desember og þá er opið til kl. 10. Knattspyrnudeildir Fram og KR efna til stórbingós, sem kallað er milljónabingó, í kvöld í Laugardals- höll. Húsið verður opnað kl. 19 en bingóið hefst kl. 20.30. Aðgangseyrir er enginn. Aðalvinningar i milljónabingó- inu eru tvær bifreiðir, Ford Escort Laser 3ja dyra 1100, 5 gíra, að verðmæti um 360.000 krónur, og Ford Fiesta 1000 3ja dyra, að verð- mæti um 325.000 krónur. Þess má geta að vinningsbílarnir tveir eru til sýnis 1 Austurstræti. Af öðrum vinningum má nefna Útsýnarferðir fyrir tvo, Sharp myndbandstæki og Pioneer hljóm- flutningstæki. Heildarverðmæti vinninga verður um ein milljón króna. Vakin er athygli á að allir vinn- ingarnir verða dregnir út í kvöld. Kristján Jóhannsson, óperu- söngvari, syngur á bingóinu í kvöld við undirleik ítalans Mauritzio Barbacini. Boðið verður upp á greiðslu- kortaþjónustu í kvöld, VISA og Eurocard. Stjórnandi milljónabingósins verður hvorki KR-ingur né Fram- ari — heldur Valsmaðurinn Her- mann Gunnarsson. Það vekur ef til vill furðu manna að KR-ingar og Framarar skuli halda bingó í sameiningu, en leik- mennirnir á meðfylgjandi mynd virðast alveg sáttir við það þar sem þeir stilla sér upp við (og á) aðal- vinningana fyrir utan Laugardals- höllina. Frá vinstri: Ágúst Már Jónsson KR, Guðmundur Torfason Fram, Gunnar Gíslason KR, Frið- rik Friðriksson Fram, Kristinn Jónsson Fram og Jósteinn Einars- son KR. Akureyri: Sýning á leikbrúðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.