Morgunblaðið - 28.11.1985, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1985
Ráðstefna um innlend
jarðefni til iðnaðar
RÁÐSTEFNA um innlend jarðefni
til iðnaðar verður baldin í Hótel
Loftleiðum & morgun, föstudag, á
vegum Verkfræðingafélags íslands,
Jarðfræðafélags íslands og Mann-
virkjajarðfræðifélags íslands.
Flutt verða nokkur stutt yfirlits-
erindi um helstu iðnaðarjarðefni á
landinu, svo sem vikur, sements-
efni, leir, kísilgúr, mó, títan,
brennistein og hveragas. Greint
verður frá nýtingu þeirra og nú-
verandi þekkingu okkar um þau.
Einnig verður fjallað um þjóð-
hagslega þýðingu iðnaðarjarðefna
almennt hér á landi. Að loknum
erindaflutningi verða pallborðs-
umræður um horfur á nýtingu
jarðefna og þjóðhagslegt gagn af
þeim.
Ráðstefnan er öllum opin sem
áhuga hafa.
Zafarí:
Frönsk-íslensk
rokkhátíð
Frönsk-íslensk rokkhátíð verður
haldin í veitingahúsinu Safarí við
Skúlagötu sunnudaginn 1. desem-
Ferdinand Richard bassaleikari og
söngvari frönsku hljómsveitarinnar
„Etron Fou Leloublan".
ber. Hátíðin ber yfirskriftina „Fá-
heyrður hvítur úlfur“.
Fulltrúi Frakka á hátiðinni
verður nýbylgjurokksveitin „Etron
Fou Leloublan", sem nýtur vin-
sælda í Bandaríkjunum og viða um
Evrópu. Plötur þeirra hafa oft
verið ofarlega á óháða vinsælda-
listanum í Bretlandi.
Hljómsveitin „Svart-hvítur
draumur", sem nú er að senda frá
sér jómfrúarplötu, kemur fram
fyrir hönd íslands auk rokkskáld-
anna Einars Más Guðmundssonar
og Sigfúsar Bjartmarssonar, sem
báðir eiga kafla á ljóðasnældum,
sem Grammið mun gefa út innan
skamms.
Þá mun súrrealistahópurinn
Medúsa auk Þórs Eldons, Sjóns,
Jóhamars og Einars Melax klæða
Safarí og hátíðina sérstökum við-
hafnarskrúða með Ijósum, litum
og tali.
Forsala aðgöngumiða er I
Gramminu, Laugavegi 17.
Morgunblaðid/Emilía
Þrjár prjónakonur Álafosstrefilsins margfræga bíða áritunar örnólfs Thorlasius, umboðsmanns Guinness-
heimsmetabókarinnar. Einar Egilsson verslunarstjóri í Álafossbúðinni, stendur með viðurkenningarskjölin.
Alafoss-trefillinn:
Þátttakendum boðið í kaffi
og veitt viðurkenningarskjöl
1 tilefni þess að lengsti trefill
heims komst í heimsmetabók
Guiness bauð Álafossbúðin þátt-
takendum í kaffi og kökur sl. föstu-
dag og laugardag í verslunina.
Örnólfur Thorlasíus, umboðsmað-
ur Guinness hér á landi, afhenti
jafnframt þátttakendum viður-
kenningaskjöl og áritaði nýút-
komna heimsmetabók fyrir þá sem
það vildu.
Hundrað manns komu í kaffið
en alls tóku 305 manns þátt í
gerð trefilsins, sem náði 29,3
metrum þegar yfir lauk. Hann
var prjónaður í Álafossbúðinni I
verzluninni 4,—12. október sl.
Trefillinn er 30 lykkjur að breidd
og var Álafoss-hespulopi ein-
göngu notaður í gerð hans.
Akureyringar prjónuðu þó
næst lengsta trefilinn, 24,5
metra, en í verslun Sigurðar
Guðmundssonar kepptu Akur-
eyringar við Reykvíkinga um
heimsmetið.
Álfoss-lopinn hefur farið víða.
Á sl. ári voru 57 tonn seld til
Japans í neytendaumbúðum, 80
tonn til Bandarikjanna og 14
tonn til Ástralíu.
Þeir, sem ekki hafa nálgast
viðurkenningaskjöl sín, geta vitj-
að þeirra í Álafoss-búðinni í
Vesturgötu 2.
’
Tríó Jóhannesar Snorrasonar
Stúdentakjallarinn:
Tríó Jóhannesar Snorrason-
ar leikur föstudagskvöld
Milljónabingó í
Höllinni í kvöld
Fræðslukvöld
umkvíða
Áður auglýst fræðslukvöld með
Grétari Sigurbergssyni geðlækni
verður í kvöld, fimmtudagskvöld, kl.
20.30 í safnaðarheimili Laugarnes-
kirkju.
Grétar fjallar um orsakir kvíða.
Eftir fyrirlesturinn verða kaffi-
veitingar, organistar kirkjunnar
flytja tónlist og í lok kvöldsins
verður helgistund í kirkjunni.
Fræðslukvöldið er öllum opið.
Norræna húsið:
Gerda Antti
lesúr
verkum sínum
SÆNSKI rithöfundurinn Gerda
Antti les úr verkum sínum í Norræna
húsinu í kvöld kl. 20.30. Hún er
stödd hér á landi í boði sænska
sendiráðsins og Norræna hússins.
Gerda Antti sendi frá sér sfna
fyrstu bók árið 1961, Ijóðabókina
„Har och nu“, en vakti þó ekki
verulega athygli fyrr en með smá-
sagnasafninu „Inte varre an vanligt“
árið 1977 og þó enn frekar þegar
skáldsagan „Skref fyrir skref' kom
út árið 1980. Fyrir tvær síðasttöldu
bækurnar fékk Gerda Antti bók-
menntaverðlaun Svenska Dagbladet
auk þess sem hún hlaut bókmennta-
styrk.
Sagan „Skref fyrir skref", sem
nýlega var lesin í ríkisútvarpinu,
greinir frá Astrid, konu á miðjum
aldri, sem býr í ástlausu hjóna-
bandi, missir mann sinn og þjáist
af samviskubiti yfir að hafa ekki
reynst honum betur. Margt fleira
fléttast inn í söguna og þykir
Gerdu Antti takast meistaralega
að lýsa lífi og umhverfi söguhetj-
anna. Stíll hennar er kíminn og
fjörugur en eilftið blandinn hæðni,
þótt alltaf skíni í gegn samúð með
fólkinu sem hún skrifar um. Sög-
una þýddi Guðrún Þórarinsdóttir
á íslensku.
TRÍÓ Jóhannesar Snorrasonar leik-
ur annað kvöld, föstudag, í Stúdenta-
kjallaranum við Hringbraut. Auk
Jóhannesar skipa þeir Gunnar Páls-
HELGA Steffensen sýnir 60 af leik-
brúðum sínum í sýningarsal Dyn-
heima á Akureyri. Sýningunni lýkur
um næstu helgi.
Allar brúðurnar, sem sýndar
eru, hafa verið ýmist á sviði eða
komið fram í sjónvarpinu og er
elsta brúðan frá árinu 1969 og sú
son og Hreiðar Sigurjónsson tríóið.
Þeir leika einkum melódískan
djass. Tónleikarnir hefjast kl.
21.00 og er aðgangur ókeypis.
yngsta er eins árs gömul. Á sýning-
unni eru margar gerðir af brúðum
t.d. hanskabrúður, skaftbrúður og
stórar brúður, sem stjórnandinn
fer innan í. Síðasti sýningardagur
er sunnudagurinn 1. desember og
þá er opið til kl. 10.
Knattspyrnudeildir Fram og KR
efna til stórbingós, sem kallað er
milljónabingó, í kvöld í Laugardals-
höll. Húsið verður opnað kl. 19 en
bingóið hefst kl. 20.30. Aðgangseyrir
er enginn.
Aðalvinningar i milljónabingó-
inu eru tvær bifreiðir, Ford Escort
Laser 3ja dyra 1100, 5 gíra, að
verðmæti um 360.000 krónur, og
Ford Fiesta 1000 3ja dyra, að verð-
mæti um 325.000 krónur. Þess má
geta að vinningsbílarnir tveir eru
til sýnis 1 Austurstræti.
Af öðrum vinningum má nefna
Útsýnarferðir fyrir tvo, Sharp
myndbandstæki og Pioneer hljóm-
flutningstæki. Heildarverðmæti
vinninga verður um ein milljón
króna.
Vakin er athygli á að allir vinn-
ingarnir verða dregnir út í kvöld.
Kristján Jóhannsson, óperu-
söngvari, syngur á bingóinu í kvöld
við undirleik ítalans Mauritzio
Barbacini.
Boðið verður upp á greiðslu-
kortaþjónustu í kvöld, VISA og
Eurocard.
Stjórnandi milljónabingósins
verður hvorki KR-ingur né Fram-
ari — heldur Valsmaðurinn Her-
mann Gunnarsson.
Það vekur ef til vill furðu manna
að KR-ingar og Framarar skuli
halda bingó í sameiningu, en leik-
mennirnir á meðfylgjandi mynd
virðast alveg sáttir við það þar sem
þeir stilla sér upp við (og á) aðal-
vinningana fyrir utan Laugardals-
höllina. Frá vinstri: Ágúst Már
Jónsson KR, Guðmundur Torfason
Fram, Gunnar Gíslason KR, Frið-
rik Friðriksson Fram, Kristinn
Jónsson Fram og Jósteinn Einars-
son KR.
Akureyri:
Sýning á leikbrúðum