Morgunblaðið - 28.11.1985, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1985
51
Starfsmenn Hafskips á fund
borgarstjóra og þingmanna
NOKKRIR starfsmenn Hafskips
gengu í gær i fund Davíðs Oddsson-
ar borgarstjóra og heimsóttu þing-
menn í Alþingishúsinu til að rsða
um stöðu mála hjá Hafskipi.
„1 sjálfu sér kom ekkert áþreif-
anlegt út úr þessum viðræðum
okkar við borgarstjóra og þing-
menn, en við vildum árétta það
sem átti að vera tiigangur fundar-
ins á mánudaginn, að starfsmenn
Hafskips væru mjög uggandi um
framtíð sína,“ sagði Valur Páll
Þórðarson, formaður starfs-
mannafélags Hafskips. „Við bent-
um þeim á, að þvi lengur sem það
er dregið að finna lausn á þessu
máli, því erfiðara verður það. Hér
er atvinna rúmlega 300 manna í
húfi og afkoma um 1.200, svo okkur
þykir eðlilegt að kjörnir fulltrúar
almennings í Reykjavík taki ein-
hvern þátt í að leysa þennan
vanda. Því ef þetta „batterí" verð-
ur leyst upp hefur það ófyrirsjáan-
legar afleiðingar fyrir stóran hluta
starfsfólksins," sagði Valur Páll
Þórðarson.
Stjórn félags íslenzkra námsmanna. Fremri röð frá vinstri: Jón Helgason,
María Ágústsdóttir og Gunnar Guðmundsson. Aftari röð: Birna Baldurs-
dóttir og Jón Valdimarsson.
Mikill kraftur í Félagi ís-
lenzkra námsmanna í Höfn
Jónshúsi, 12. nóvember.
Félag íslenzkra námsmanna í
Kaupmannahöfn hélt aðalfund sinn
24. október sl. Var hann fjölsóttur
og urðu miklar umræður á fundinum,
einkum um lagabreytingar. Guðni
Gíslason og Gunnar Kristjánsson
lögðu fram tillögur um lagabreyting-
ar, en þeir höfðu verið kosnir til
þess af síðasta aðalfundi félagsins.
Voru tillögur þeirra samþykktar með
nokkrum breytingum.
Mikill kraftur hefur verið í fé-
lagsstarfi Námsmannafélagsins
undanfarið ár. Hefur stjórnin séð
um hinar föstu samkomur, svo sem
1. des.-hátíð, Þorláksblót, árshátíð
og nú síðast stóð hún fyrir mjög
vel heppnuðu Rússagildi í Jóns-
húsi, þar sem íslenzka danshljóm-
sveitin í Kaupmannahöfn lék við
frábærar undirtektir samkomu-
gesta. Þá fær FÍNK oft vísinda-
menn, sem dvelja í fræðimanns-
íbúðinni til að flytja erindi í félags-
heimilinu og verður það nú Guð-
mundur Pétursson læknir, sem
mun ræða um hæggengar veiru-
sýkingar, svo sem visnu, riðu,
mæðiveiki og AIDS annað kvöld.
— Félagið styður við bakið á ís-
lenzku íþróttafélögunum hér og
stuðlar að jazzkvöldunum og fleiri
félagslegum þáttum með fjárfram-
lögum.
Nýlega stóð Námsmannafélagið
ásamt íslendingafélaginu fyrir
gagngerum og langþráðum endur-
bótum á sameiginlegri skrifstofu
félaganna í Jónshúsi. Voru keypt
ný húsgögn og festi FlNK kaup á
tölvu með væntanlega þátttöku
SÍDS (Félags íslendinga á Norð-
urlöndum) og íslendingafélagsins
í huga, enda tölvan hugsuð til út-
gáfustarfsemi allra aðilanna.
Blaðið Þórhildur kom oft svo seint
út til félagsmanna að dagskrárat-
Líklega
sú langbesta
RAFBORG SF.
Rauðarárstíg 1,
sími 91-11141.
riði voru liðin tíð, og reyndist
einnig mjög dýrt í prentun, svo að
nú hefur Nýr Hafnarpóstur hafið
göngu sína og er blaðið sett hér á
skrifstofunni og unnið í tölvunni.
Þrír stjórnarmenn Náms-
mannafélagsins gáfu ekki kost á
sér til endurkjörs á aðalfundinum,
Ásdís Auðunsdóttir, Gunnar Snæ-
lundur Ingimarsson og Hallur
Kristjánsson og voru Birna Bald-
ursdóttir, Gunnar Guðmundsson
og María Ágústsdóttir kosin í
þeirra stað. Er stjórnin því þannig
skipuð: Jón Helgason formaður,
Jón Valdimarsson gjaldkeri, Birna
Baldursdóttir ritari, Gunnar Guð-
mundsson spjaldskrárritari og
María Ágústsdóttir meðstjórn-
andi.
Fulltrúi FÍNK í hússtjórn Jóns-
húss er áfram Gunnlaugur Júlíus-
son og til vara Gunnar Kristjáns-
son. I félagsheimilisnefnd sitja
áfram Guðmundur Ingólfsson og
Jón Iijgi Guðmundsson, en aðal-
fulltrúi í svæðisstjórn SÍDS verður
Gunnar Snælundur Ingimarsson,
er Pétur Gunnarsson hættir um
næstu áramót, og Guðni Gislason
er varamaður. Þá er Gunnar
Guðmundsson fulltrúi félagsins
hjá SÍNE og í stjórn sögusjóðs eru
Gunnlaugur Júlíusson og Jón
Helgason.
Á sameiginlegum fundi stjórna
beggja íslenzku félaganna og rit-
nefndar Nýs Hafnarpósts sl.
mánudag var rætt um framtíð
blaðsins og fjárframlög til út-
gáfunnar.. Þá var ákveðið að skipu-
leggja næsta starfsár með tilliti
til aukins samstarfs allra aðila.
Stjórn FlNK hefur ákveðið að
bjóða skemmtikrafti frá Islandi
að koma fram á hátíðarsamkom-
unni 30. nóv. í Jónshúsi, en ekki
er enn ákveðið, hver það verður. —
Þykir sýnt að annað athafnasamt
starfsár fer nú í hönd hjá félaginu.
G.L.Asg.
optibelt
Rexnord
Vönduð vara og þjónusta
Þaó erokkar sérgrein
di
Reimskífur í fíestum
stœröum.
SACHS
Höggdeyfar fjölbreytt
úrval í evrópskar og
japanskar bifreiöar.
Asþétti í flestar teg-
undir biíreiöa og
véla
FAG
75 ára reynsla í fram -
leiöslu ákúlu ogrúllu-
legum
@iinllfiiiQ©imlláQQ
Viftureimar. véla-
reimar og kambás
reimar
TIMKEN
Keilulegur heims
þekkt gœöavara.
ItlD
Urval af leguhúsum.
precision
Hjöruliöskrossar
Amerísk gæöavara.
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, S: 84670
PABSi JMMiVJ £R PtíVNÍ, iy\AMWA
HAVN5 9R TEÍKfAISLoKK oo
5'7'ALFUR °LÍ PRlp.gAIVl
. rei)<|AÍiAGr BLA5I .
i Ný plata un Dla væntanleg
S Hverri plötu og snældu
JR fylgir textablað og líka
Ih myndabók um Óla
triswi