Morgunblaðið - 10.12.1985, Síða 4

Morgunblaðið - 10.12.1985, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985 „Mikilvægt fyrir bankann og við- skiptavini hansu — segir Lárus Jónsson bankastjóri Útvegs- bankans um yfirlýsingu Seðlabankans LÁRUS Jónsson bankastjóri Út- vegsbankans segir að yfirlýsing Seðlabankans frá því aó föstudag um aðstoö við Útvegsbankann hafi verið afar mikilvæg fyrir bankann og viðskiptavini hans. Nefndi hann sérstaklega það atriði yfirlýsingar- innar að Seðlabankinn muni sjá til þess að Útvegsbankinn geti staðið við allar skuldbindingar sínar inn- anlands og utan á meðan leitað sé að varanlegri lausn á fjárhags- vanda hans. Sagði Lárus að þetta væri mikilvæg forsenda fyrir því að Útvegsbankinn gæti starfað eðli- lega og veitt viðskiptavinum sín- um eðlilega þjónustu á næstu mánuðum. „Það er eðlilegt að Seðlabankinn setji slíkar reglur og fylgist með því samkomulagi sem ætlunin er að gera á milli bankanna með nánu og reglulegu samráði á samningstímabilinu," sagði Lárus þegar hann var spurður hvort hann liti á fyrir- hugað sérstakt eftirlit Seðlabank- ans með Útvegsbankanum og fjárráðstöfunum hans sem van- traust á stjórnendur hans. Sagði hann að þetta ætti ekki að koma neinum á óvart sem til bankamála þekkti. Lárus sagði, þegar leitað var álits hans á hugmyndum um sameiningu Útvegsbankans við Búnaðarbankann eða einkabank- ana, að staða Útvegsbankans væri í eðli sínu þannig að hún hlyti að þrýsta mjög á að tekin verði ákvörðun um uppstokkun banka- kerfisins. Hann taldi þó að svo virtist sem ýmsir hefðu ekki hugleitt hvað slíkt þýddi. Tveir ríkisbankarnir væru til dæmis með mjög gamalgróin viðskipti, ekki síst við sjávarútveginn. Ekki þýddi að stokka upp þannig að þau viðskiptasambönd yrðu látin lönd og leið. Þá þyrfti að hafa starfsfólkið í huga og fleiri sjón- armið þegar ákvörðun yrði tekin. Helena Jónsdóttir Heimsmeístarakeppni ídiskódansi: Svolítið erfítt en mjög skemmtilegt — segir Helena Jónsdóttir sem hafn- aði í 6. sæti Heimsmeistarakeppni í diskó- dansi fór fram á Hippodrome diskó- tekinu í London síðastliðinn föstu- dag. Það var Svíi sem varð í fyrsta sæti og hlaut titilinn heimsmeistari í diskódansi. Alls tóku keppendur frá 32 löndum þátt í keppninni. Helena Jónsdóttir keppti fyrir fs- lands hönd og hafnaði hún í sjötta sæti. Helena Jónsdóttir er 17 ára gömul, nemandi í Ármúlaskóla. Hún sagðist hafa haft mjög gaman af að taka þátt í keppninni. „Ég fór til London viku fyrir keppnina. Undirbúningi fyrir keppnina var þannig háttað að við ferðuðumst um í rútu og dönsuðum víða á diskótekum. Það fór allur dagur- inn í þetta og ég viðurkenni að það var svolítið erfitt, en um leið mjög skemmtilegt. Við hittum ýmsa fræga tónlistarmenn svo sem Nick Kershaw og George Michael. Það gerðist þegar verið var að taka upp lögin þeirra fyrir sjónvarp og við vorum fengin til þess að dansa eftir lögunum. Andinn var mjög góður meðal keppendanna og ég varð ekki vör við ríg milli þeirra. Allir urðu góðir vinir og ákváðum við að reyna að hittast einhvern tíma aftur,“ sagði Helena Jónsdóttir. Skiptaráðendur þrotabús Hafskips: Morgunblaðið/Bjarni Ragnar H. Hall skiptaráðandi aö störfum á skrifstofu forstjóra Hafskips í gær. Ragnar stendur fyrir miðju en hægra megin á myndinni eru bússtjórarnir Jóhann Níelsson hrl. og Gestur Jónsson hrl. en vinstra megin tveir starfsmenn Hafskips, Guðmundur Eyjólfsson yfirverkstjóti og Árni Árnason skrifstofumaður. Endurskoðendur ráðnir til aðstoðar við bókhaldsathugun Samningar við Eimskip ófrágengnir VIÐRÆÐUR standa enn yfir á milli Eimskipafélags íslands og skipta- ráðenda þrotabús Hafskips hf. um sölu á skipum og fleiri eignum Haf- skips. Ragnar H. Hall skiptaráðandi sagði aö hugsanlega yrði gengið frá sölunni í dag. Hann sagöi að skipta- ráðendur og bússtjórar væru að koma sér inn í rekstur fyrirtækisins og gera brýnustu ráðstafanir, svo sem varðandi starfsmannahald, sölu á eignum og samskipti við umboðs- skrifstofur erlendis. Hafa þeir ráðið Endurskoðunarmiðstöðina hf. — N. Manscher & co. — til að vera til aðstoðar við athugun á bókhaldi Hafskips. Ragnar sagði að þeir myndu láta kanna fjárreiður fyrirtækisins og þær ráðstafanir sem gerðar hefðu verið, bæði til að renna stoðum undir kröfur þrotabúsins á hendur öðrum aðilum og réttmæti krafna á búið sjálft. Einnigyrðu kannaðar þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið og kunna að vera riftanlegar. Ef eitthvert refsivert athæfi kæmi fram við rannsóknina yrði það einnig rannsakað sérstaklega. Hann sagði að kröfur í búið væru ekki farnar að berast og því ómögulegt að gera sér grein fyrir umfangi málsins. Á næstunni yrði lýst eftir kröfum í Lögbirtingar- blaðinu og frestur til að lýsa kröf- um væri tveir mánuðir frá auglýs- ingu. Ragnar sagði augljóst að þrotabúið gæti ekki veitt jafn mikinn afslátt af pakkhúsleigu og skipafélag í fullum rekstri og sagði því brýnt fyrir þá sem eiga vörur hjá félaginu að leysa þær sem fyrst út. Get með engu móti setið undir þessum ásökunum — segir Albert Guðmundsson iðnað- arráðherra í bréfinu til ríkissaksóknara HÉR FER á eftir bréf það, sem Albert Guðmundsson, iðnaðarráð- herra, skrifaði ríkissaksóknara í gær: „Með bréfi þessu vek ég athygli yðar á ásökunum, sem fram hafa komið opinberlega í minn garð um refsiverða háttsemi, meðan ég gegndi starfi formanns banka- ráðs Útvegsbankans. I því sam- bandi vitna ég til vikublaðsins Helgarpóstsins, 48. tölublað 1985, bls. 19. Þar segir efnislega að ég hafi misbeitt aðstöðu minni sem stjórnarformaður bankans til þess að veita fé til Hafskips hf. „ÁSTÆÐUR fyrir þessari ákvörðun minni eru fyrst og fremst djúpstæðir samstarfsörðugleikar, sem hafa magnast eftir því sem liðið hefur á árið,“ sagði Kristín S. Kvaran, þing- maður Bandalags jafnaðarmanna, sem í gær sagði sig formlega úr þingflokki bandalagsins. Kristín sagði, að ummæli Guðmundar Ein- arssonar að loknu formannskjöri á landsfundi BJ nú um helgina hefðu þar sem ég gegndi einnig stjórn- arforustu. Ég vitna einnig til sjónvarpsþáttarins „Kastljóss“, föstudaginn 6. desember sl. Þar lýsti Ólafur Ragnar Grímsson, alþingismaður, því yfir, að uppi væru ákærur í minn garð þess efnis, að ég hafi misnotað að- stöðu mína í bankanum til þess að greiða fyrir viðskiptum Haf- skips hf. Ennfremur skal nefnt til fréttaskeyti, sem Magnús Guðmundsson, fréttamaður Rit- zau á íslandi, sendi til Norður- landa nýverið, þar sem þessar sömu ásakanir komu fram. Þeim ásökunum var síðan dreift til undirstrikað þá skoðun sína að hún væri betur komin utan þingflokks- ins, en Guðmundur sagði meðal annars að útilokað væri að ná fram jöfnuði og bættum kjörum í þjóð- félaginu nema með gagngerum stjórnkernsbreytingum. „Það má segja að ummæli Guð- mundar séu 3amnefnari fyrir það sem átt hefur sér stað innan bandalagsins,“ sagði Kristín enn- ýmissa blaða á Norðurlöndum. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um, að hér eru mjög alvar- legar sakargiftir hafðar uppi. Ég tel mig með engu móti geta setið undir ásökunum af þessu tagi. Hið rétta er að ég hef engin afskipti haft af lánveitingum Útvegsbankans til Hafskips hf. eða af öðrum viðskiptum bank- ans við fyrirtækið. Þær ásakanir eru tilhæfulausar með öllu að ég hafi misbeitt aðstöðu minni sem formaður bankaráðs til að greiða fyrir viðskiptum þessa fyrirtæk- is. fremur. „Um þetta stóð gagnrýnin og það hefur nú farið svo, að þótt við hefðum í upphafi gert ráð fyrir að Bandalag jafnaðarmanna gæti rúmað fólk með misjafnar skoðan- ir á hinum ýmsu málum og menn hefðu leyfi til að halda þeim fram, þá virðist mesta ánægjan núna vera rikjandi yfir því að nú séu allir á sömu skoðun i bandalaginu. Ég er hins vegar ekki sammála því Með vísan til framanritaðs fer ég þess hér með á leit að þér látið framkvæma opinbera rann- sókn vegna þessara ásakana í minn garð. Jafnframt legg ég áherslu á að sú rannsókn gangi hratt fyrir sig. Af þeirri ástæðu eru þessi tilmæli sett fram við yður, þrátt fyrir rannsóknar- hlutverk skiptaráöanda, sbr. t.d. 88. gr. gjaldþrotalaga nr. 6/1978, en skv. upplýsingum skiptaráð- anda, sem fram hafa komið í fjölmiðlum, mun umfjöllun og rannsókn á gjaldþroti Hafskips hf. vera umfangsmikil og taka langan tíma. Hér ber hins vegar ríka nauðsyn til að hið sanna og rétta varðandi framkomnar ásakanir á mig liggi fyrir svo fljótt sem nokkur kostur er.“ að þar geti ekki rúmast mismun- andi áherslur í þessum efnum. Með þessu er ég ekki að segja að stjórn- kerfisbreytingar séu ekki nauðsyn- legar, en það tekur sinn tíma að ná þeim fram og á meðan verður að beita þeim aðferðum sem til- tækar eru,“ sagði Kristín S. Kvar- an. Stefán Benediktsson, sem kjör- inn var formaður þingflokks BJ á landsfundinum um helgina hafði þetta um úrsögn Kristínar S. Kvaran að segja: „Ég tel, að mann- eskja, sem greinilega er þeirrar skoðunar að vinnubrögð fjór- fiokksins skili betri árangri en okkar baráttumál, eigi bara að ganga í fjórflokkinn." Sjá frásögn af landsfundi BJ á bls. 45. Kristín S. Kvaran segir sig úr þingflokki BJ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.