Morgunblaðið - 10.12.1985, Side 7
Fyrirlestrar:
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
7
Færeysk
málrækt og
mannanöfn
JOHAN Hendrik Poulsen, for-
stöðumaður Foroyamálsdeildar
Fróðskaparseturs Foroya, flytur
tvo opinbera fyrirlestra í bodi
heimspekideildar Háskóla ís-
lands, Félags íslenskra fræða og
íslenska málfræðifélagsins dag-
ana 11. og 12. desember nk.
Fyrri fyrirlesturinn nefnist
„Færeysk málrækt" og verður
fluttur á miðvikudaginn kl. 17.15
í stofu 301 i Árnagarði. Seinni
fyrirlesturinn nefnist „Færeysk
mannanöfn" og verður fluttur á
fimmtudaginn á sama tíma og á
sama stað.
Johan Hendrik Poulsen hefur
um árabil starfað við Fróðskap-
arsetur, lengst af sem forstöðu-
maður Foroyamálsdeildar og því
verið forystumaður í færeyskum
fræðum í heimalandi sínu. Hann
hefur birt ritgerðir á því sviði,
séð um útgáfur og einkum unnið
mikið starf við orðabókargerð.
Hann hefur áður flutt fyrirlestra
við Háskóla íslands. Fyrirlestr-
arnir verða fluttir á íslensku og
er öllum heimill aðgangur.
FrétUtiikynning.
Hæstiréttur:
Umsögn í
Samúel um
áfengi ekki
refsiverð
HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað rit-
stjóra Samúels af kröfu ríkissak-
sóknara um áfellisdóm vegna skrifa
blaðsins um líkkjörinn Myers’s
rjómaromm í janúar 1984. Þar með
staðfesti Hæstiréttur dóm undirrétt-
ar frá 18. janúar síðastliðins. Ríkis-
saksóknari krafðist þess að ritstjór-
ar Samúels, þeir Ólafur V. Hauks-
son og Þórarinn J. Magnússon, yrðu
dæmdir til refsingar „fyrir að brjóta
gegn banni við áfengisauglýsing-
um . . . með því að hafa sem rit-
stjórar og ábyrgðarmenn tímaritsins
„Samúel” birt á 5. blaðsíðu í 79.
hefti tímaritsins, sem út kom í
Reykjavík í janúar 1984, mynd af
áfengisflösku og rammagrein með
yfirskriftinni „Myers’s rjómaromm,
hreinasta sælgæti”, sem tclja verður
í heild sinni áfengisauglýs-
ingu . . .“ eins og sagði í ákæru.
Við málflutning kváðu ritstjórar
Samúels ástæðu greinarinnar hafa
verið þá, að upplýsa lesendur
blaðsins um nýjungar á vínmark-
aðinum og stuðla að betri vín-
menningu. Ekki hefði verið um
auglýsingu að ræða, heldur rit-
stjórnarefni og vísuðu til 72. grein-
ar stjórnarskrárinnar, sem kveður
á um prentfrelsi.
Fallist var á að ekki væri um
auglýsingu að ræða, heldur rit-
stjórnarefni. Hæstiréttur klofnaði
í afstöðu sinni, meirihluta mynd-
uðu Guðmundur Skaftason og
Halldór Þorbjörnsson, en Sigur-
geir Jónsson skilaði séráliti og
vildi sakfella ritstjórana sam-
kvæmt ákæru. Ríkissjóði var gert
að greiða sakarkostnað, bæði í
héraði og l'yrir Hæstarétti. Lög-
maður ritstjóra Samúels var Jón
Steinar Gunnlaugsson, hrl., en
Þórður Björnsson, ríkissaksókn-
ari, flutti málið af ákæruvaldsins
hálfu.
<
(/)
£
8
c
o
o
Þar að auki getur þú valið:
A. Gulan skjá
B. Grænan skjá
C. IBM lyklaborð
D. Keytronic lyklaborð
E. Auk þess er vélin grafísk
Allt eftir hvað þér hentar best og verðið
hefur aldrei verið hagstæðara eða
kr. 183.900,-
Við förum ekki troðnar slóðir í tölvumálum
i
Okkar þekking í þína þágu
GÍSLI J. JOHNSEN SF.
n i
NYBYLAVEGI 16 • RO BOX 397 • 202 KÓPAVOGUR • SÍMI 641222
SUNNUHLlÐ, AKUREYRI, SÍMI 96-25004
JHínc0iiniMítíi i íJ
Askriftarshninn er 83033