Morgunblaðið - 10.12.1985, Side 26

Morgunblaðið - 10.12.1985, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985 NÝJUNG! SANDBLÁSTURST/CKI ÁN RYKMENGUNAR - MARGAR ST/ERÐIR - HVERFANDI ÓÞRIF - HAGSTÆTT VERÐ - KOMIÐ OG PRÓFIÐ (2.LANDSSMIÐJAN HF JSOlVHÓLSGOTU 13 - 101 REVKJAVlK f SIMM«1)?0600 TELEK 2207 GWORKS DRIFBUNAÐUR FRÁ FLEXON DRIFKEÐJUR OG HJÓL ÁSTENGI FRÁ LENZE 4 J HRAÐASTILLTIR MÓTORAR GÍRMÓTORAR ALLT VESTUR-ÞÝSK G/CÐAVARA Á HAGST/fÐUU VERÐI Veihjm oðstoð við val á drifbúnaði. Rennum hjól eftir ásmáli og frœsum kílspor. LANDSSMfÐJAN HF U m fer ðar ógnunin eftir Kjartan Norðdahl Á hverju einasta ári bíða ein- hverjir bana af völdum umferðar- innar (árekstrar, útafakstur) og fjöldinn allur slasast, sumir þann- ig að betra hefði sennilega verið fyrir þá að fá að deyja. Ekki líður sá dagur hér í Reykja- vík, að maður heyri ekki í sýrenum lögreglubíla eða sjúkrabíla, sem skunda á eða af slysstað. Með óhugnanlega stuttu milli- bili heyrir maður tilkynningar í útvarpinu um, að enn eitt bana- slysið hafi orðið á þjóðvegum landsins. Þessi umferðarógnun er orðin svo mögnuð, að enginn getur látið sem honum komi hún ekki við. Það gengur ekki lengur að segja að þetta sé nokkuð sem fylgi aukini tækni, fjölgun bifreiða, eða é-ð í þeim dúr. Slysatíðnin er of mikil. Langt umfram það sem „eðlilegt" maetti teljast. Auk þess er einhver VATNSVIRKINN býður þér eitt mesta úrval af öllu þvf er þú þarft á að halda i baðher- bergið. Allt frá sturtudreifur- um, sem við eigum f miklu úrvali, sturtuklefum, blöndunartækjum, baðkörum, vöskum af öllum gerð- um, salemisskálum, salemissetum og flestum þeim áhöldum er þú þarft á að halda fyrir hreinlætið, svo sem hengjur og hanka fyrir handklæði, tannburstaglös og sfð- ast en ekki sfst heilu baðinnrétt- ingarnar - auðvitað f miklu úrvali. Wl J MEISTARARNIR MÆLA AK MEÐ VÖRUM FRA OKKUR. Y VATNSVIRKINNí/ ÁPMÚtl 21 - PÓSTHÓLf 8620 - 128 REYKJAVÍK SÍMAR VERSLUN 686455. SKRIFSTOFA 685966 undarlegur blær, finnst mér, yfir öllu tali um umferðarslys hér, líkt og menn hugsi að þetta sé eitthvað, sem enginn fái ráðið við. Svipað og er menn tala um, að e-m sé slysagjarnt, e-r sé ólukkukráka eða hrakfallabálkur. Eða þá að sagt er að e-r hulinn máttur hafi bjargað mönnum úr bráðum háska (sbr. tvö nýleg bílslys, þar sem bíllinn fór fram af hárri brún). Það versta, sem komið gæti fyrir í sambandi við þessa auknu slysa- tíðni væri einmitt, ef menn færu að hugsa sem svo: Ekki get ég breytt neinu í þessu öllu. Þetta er bara svona og sá, sem „á“ að lenda í slysi, hann lendir í því. Það bezta, sem komið gæti fyrir væri, ef hver og einn hugsaði: Næst getur það orðið ég (eða mínir) og nú verð ég að reyna að gera a.m.k. eitthvað til þess að leggja mitt af mörkum til bóta. Með þessum orðum er ég eigin- lega búinn að skylda sjálfan mig til þess að leggja eitthvað til. Og skal það nú reynt. ÁS-TENGI Allar geröir. Tengiö aldrei stál-í-stál. Jk-jL SöiyirfMuigjtuKr Vesturgötu 16, sími 13280 „Þessar Ijósiausu gang- brautir eru meinloka, verri en ekki neitt og ættu allar að leggjast niður.“ Eitt af því, sem foreldrar hafa ávallt áhyggjur af, er þegar börn þeirra þurfa að fara yfir miklar umferðargötur. Þykir mikill kost- ur að búa í hverfi þar sem slíkt er ekki nauðsynlegt, t.d. til að komastískólann. Umferðaryfirvöld hafa að sjálf- sögðu reynt að gera ýmislegt til að auka öryggi eða öllu heldur minnka hættuna við slíkar aðstæð- ur t.d. með uppsetningu göngu- Ijósa. En þau hafa einnig séð um annað umferðaratriði, sem ég er algjörlega mótfallinn og legg ein- dregið til að endurskoðað verði, jafnvel þótt alþjóðlegt sé. Hér á ég við hinar svonefndu zebrabrautir, merktar (hvítstrik- aðar) ljóslausar gangbrautir. Ég tel það hrapallegan misskilning að vera að hvetja ökumenn til að nema staðar við þessar brautir og hleypa gangandi vegfarendum yfir. Þetta eiga menn aldrei að gera, nema þeir geti tryggt hundrað prósent að annað ökutæki komi ekki meðfram þeirra eigin, og það geta menn ekki, þegar fleiri en ein akbraut er í sömu átt. Að gera þetta er stórhættuleg, misskilin kurteisi, sem getur kost- að þann, sem sýna átti kurteisina, limlestingu eða dauða. Það hlýtur hver maður að sjá, að þessar aðstæður eru verri en þó engin merking væri. Hinn gangandi, hvort sem um barn er að ræða eða fullorðinn, hefur miklu betri aðstöðu til að sjá í kringum sig en ökumaðurinn inni- lokaður í bíl sínum. Hugsum okkur nú aðeins sem snöggvast hvernig atvik geta raðast þannig, að úr verði banvæn gildra. Á annarri akrein ekur rólyndur maður á meðalferð. Fyrir aftan hann á sömu akrein eru nokkrir bílar, þar á meðal einn, sem hefur annað ökulag en hinir. Honum er ekið af dálítið sérstæðum ökumanni. Þetta er maður, sem sker sig ekk- ert sérstaklega úr í daglegu fari, getur bæði verið prúður og við- kunnanlegur, en það undarlega gerist að ætíð þegar hann sezt undir stýri á bílnum sínum, verður hann smám saman að taugahrúg- aldi, sérstaklega í mikilli umferð. Allt fer að fara í taugarnar á honum, allir keyra of hægt eða vitlaust, og loks gefst hann upp og hyggst skjótast fram úr öllum þessum sauðum, og er þá alveg undir hælinn lagt, hvort gang- braut er framundan eða ekki. Hann hugsar ekkert um það, því hann ætlar sér að komast fram úr þessum rolum, sem geta ekki drull- ast áfram. Á sama tíma kemur barn að zebrabrautinni, sem er þarna yfir götuna. Það lítur til hliðar og sér röð bíla koma akandi. Það hugsar sér að bíða þolinmótt þar til hlé verður á umferðinni. En nú stopp- ar fremsti bíllinn, sömu megin og það stendur, og skerðir um leið útsýni þess yfir á hina akbrautina. Vingjarnlegur ökumaður bendir barninu gegnum rúðuna að hlaupa yfir. Þetta allt saman, strikuð gangbrautin, að bíllinn nam stað- ar, bending ökumannsins, skapar barninu falska öryggiskennd um að öllu sé óhætt að það stekkur af stað — beint fyrir bílinn á hinni akgreininni, en þar situr undir stýri hinn óþolinmóði kunningi okkar með benzínið í botni. Hefði nú enginn bíllinn stoppað, þá hefði barnið bara beðið þangað til öruggt hlé hefði myndast í umferðinni, sem alltaf gerist með stuttu millibili. Þessar ljóslausu gangbrautir eru meinloka, verri en ekki neitt og ættu allar að leggjast niður. Vilji menn hafa gangbrautir verða þær skilyrðislaust að vera með ljósum. Varðandi kostnað má benda á, að talið er að hvert bana- slys kosti þjóðfélagið sem svari einu einbýlishúsi, og enn meira ef afleiðing slyss er ævilöng sjúkra- húsvist. Kostnaður við uppsetn- ingu ljósa yrði margfalt minni. Það er svo annað mál, að líf og heilsa verða ekki metin til fjár, í öðrum skilningi. Höíundur er flugmafiur. Demantshringar — Draumaskart Gull og demantar Kjartun Ásnwndsson. gullsmiður. Aðalslræti 7. simi 112^0. Afbragds jólagjafír Smátæki frá Siemens Smith & Norland, Nóatúni 4, sími 28300.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.