Morgunblaðið - 10.12.1985, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
Keflavík:
Eldur í Samkaupum, verslun
Kaupfélags Suðurnesja
Tveir sex ára drengir kveiktu í
Kcflavík, 9. desember.
(JM klukkan eitt á laugardaginn
barst lögreglunni í Keflavík sím-
hringing þess efnis að eldur væri
laus í lagernum í Samkaup, vöru-
markaði Kaupfélags Suðurnesja í
Njarðvíkum. Greiðlega gekk að
ráða niðurlögum eldsins og um ein-
um og hálfum tíma síðar var hann
að fullu slökktur.
Að sögn lögreglunnar voru tveir
sex ára strákar að leika sér við
að kveikja í rusli við ytri lager
verslunarinnar á suðurhlið húss-
ins. Komst eldurinn í stæðu af
barnableijum og salernispappír og
blossaði þar upp. Myndaðist mikill
reykur og komst hann inní loft-
ræstikerfi hússins og þannig inní
verslunina svo að eldsins varð vart.
Fólk var að störfum á aðallagern-
um en enginn þar varð eldsins
vár, þar sem hurð skilur á milli.
Ekki leið langur tími frá því að
eldurinn kviknaði og þar til hann
uppgötvaðist því að maður átti leið
þarna hjá um fimmtán mínútur í
eitt og varð hann einskis var.
Að sögn Guðjóns Stefánssonar,
aðstoðarkaupfélagsstjóra Kaup-
félags Suðurnesja, þá urðu
skemmdir ekki jafn miklar og á
horfðist. Eitthvað skemmdist af
vörum á lagernum, sykri, og hveiti
mestmegnis, og einnig var smá-
ræði af vörum fjarlægðar úr versl-
uninni en grunur var um að reykur
hafi skemmt þær.
Verslunin opnaði aftur á mánu-
dag og hafði verið hreinsað út af
lagernum um helgina en þar þarf
að mála og lagfæra vmsar inn-
réttingar. - *'»*'«••
Afi ?r. <
Listi yfir fórn-
arlömb gaslekans
Indveska konan Kasturi Bai, 51 árs gömul, heldur á veggspjaldi með
lista yfir nokkra þeirra, sem fórust í gaslekanum mikla í Bhopal í
Indlandi í fyrra. Kastura Bai missti mann sinn, tvo syni og fjögur
barnabörn, sem öll létust af völdum eitrunarinnar.
ANZUS-bandalagið:
Ástralir andvíg-
ir lagasetningu
Nýsjálendinga
^ Morgunblaðiö/Einar Falur
(ireiðlega gekk ad ráöa nióurlögum eldsins, en slökkviliðsmenn þurftu aó róta upp vörum og rusli til að ganga úr
skugga um að enginn eldur leyndist í öskunni.
Sydney. AP.
BILL Hayden, utanríkisráð-
herra Ástralíu, sagöi Ástralíu-
stjórn andvíga lagafrumvarpi
um hafnbann á kjarnorkuskip
á Nýja-Sjálandi, sem Geoffrey
Ml
iFrábær lausn
S ENGAR UPPISTÖÐUR
FALLEG OG STERK HILLUJÁRN SEM BERA ÓTRÚLEGAN ÞUNGA.
Spur MF-hillujárnin eru frábær lausn ef þig vantar hillu
undirt.d. sjónvarp, myndbandstæki, hljómflutningstæki,
yfir ofna, undir spegla, í eldhús, undir blóm, fyrir Ijósa-
kappa svo eitthvað sé nefnt.
Hillujárnin eru til 60 sm, 80 sm og 100 sm breið í hvítu,
brúnu og silfurlituðu.
Þú þarft ekki aö leggja
heilu veggina undir
hillusamstæður. Hillu-
járnin frá Spur-MF leysa
vandann.
1.—2. Hillunni valinn staöur, boraöog
hillujárniö fest meö skrúfu. Þaö rétt af,
merkt og boraö fyrir hinum skrúfunum,
settir tappar og járniö skrúfaö fast.
3.-4. Hillunni þrýst inn í hillujárniö.
Nota má hamar ef þurfa þykir. Hillan er
nú alveg blýföst og þolir ótrúlegan þunga.
Nauðsynlegt er aö gott hald sé í veggnum
ef bera á uppi mjög þunga hluti. Hillujárn-
iö fellur nú alveg aö og gott aö þrífa og
i halda hreinu.
Utsölustaðír
BYKO, Nýbýlavegi 6, Kópavogi.
BYKO, Dalshrauni 15, Hafnarfirði.
BYKO, Skemmuvegi 2, Kópavogi.
Verslun Jes Zimsen, Armúla 42, R.
JL. Byggingavörur, Hringbraut 120, R.
Byggingavöruversl. Gos, Nethyl 3, R.
Timburiöjan, Smiösbúö 6, Garöabæ.
Byggingaval hf„ löavöllum 10a.
Keflavik
Málningarþjónustan, Akranesi.
Byggingavöruv. Jóns Fr. Einarssonar,
Bolungarvik.
Versiunin Grímur og Ámi, Húsavik.
Kaupfélag Héraösbúa. Reyöarfiröi.
KASK Byggingavörudeild,
Höfn Hornafiröi.
Vöruhús KÁ, Selfossi.
Noröurfell hf„ Kaupvangi, Akureyrl.
Palmer, aöstoðarutanríkisráö-
herra Nýja-Sjálands, kynnti
stjórn Ástralíu.
Nýsjálendingar hyggjast lög-
festa hafnbann á kjarnorkuskip í
mars nk. Palmer kveðst vongóður
um að Anzus-bandalagið líði ekki
undir lok. Nýsjálendingar bönnuðu
bandarískum skipum, sem hafa
' kjarnavopn innanborðs, að sigla
inn á nýsjálenskar hafnir í febrúar
sl. Sú ákvörðun varð til þess að
hleypa illu blóði í samstarf Banda-
ríkjanna og Nýsjálendinga og hef-
ur nánast slitnað upp úr sambúð
ríkjanna.
Ástralir segjast ekki vilja skipta
sér af deild Bandaríkjamanna og
Nýsjálendinga, en segjast andvígir
lagasetningunni. Bandaríkjamenn
segja að ef af lagasetningunni
verði séu þeir tilneyddir til að
endurskoða þau heit, sem gefin
voru við gerð Anzus-sáttmálans.
Sáttmálinn var undirritaður árið
1951 og gerir ráð fyrir hernaðar-
samstarfi í ófriði á Kyrrahafs-
svæðinu.
VJterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!