Morgunblaðið - 10.12.1985, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
Vestur-þýska sjón-
varpið sýnir hluta af
Sakharov-myndbandinu
Hamborg, 9. desember. AP.
VESTIJR—ÞTSK sjónvarpsstöð
sýndi á mánudag brot úr 23ja mín-
útna langri myndbandsupptöku af
sovéska andófsmanninum Andrei
Sakharov, sem þýska dagblaðiö Bild
komst yfir um helgina. Vestur—
þýska sjónvarpsstöðin ZDF sýndi
um 40 sekúndna langan kafla af
myndbandinu, þar sem Sakharov
sást meö þykk sólgleraugu, álútur
og þreytulegur aö sjá.
Dagblaðið Bild hafði áður sagt
um myndbandið að þar sæist
Sakharov bera þungar töskur, fara
í búðir og ræða hinn nýafstaðna
leiðtogafund í Genf. í fréttinni
sagði blaðið að myndin hafi greini-
lega verið tekin úr felum og mynd-
bandið látið berast laumulega frá
Moskvu til ritstjórnar blaðsins
þannig að svo gæti virst að um
„leka“ væri að ræða.
„Sovétmenn vilja greinilega
telja Vesturlandamönnum trú um
að Nóbelsverðlaunahafinn Andrei
Sakharov sé alls ekki hættulega
veikur — og satt að segja er Sak-
harov ótrúlega hraustlegur að sjá
á myndunum," sagði blaðið um
myndbandið.
Sakharov, er um langt skeið
hefur verið í útlegð í borginni
Gorky, hefur verið sagður við
slæma heilsu, sem hefði hrakað
að undanförnu vegna hungurverk-
falla hans. Eiginkona Sakharovs,
Yelena Bonner, sem kom til
Bandaríkjanna á laugardag til að
gangast undir læknisaðgerð sagði
við blaðamenn í Boston að hún
hefði áhyggjur af manni sínum.
Fulltrúar sovéskra yfirvalda á
ráðstefnu sem boðað var til á
mánudag til undirbúnings hins
alþjóðlega mannréttindadags,
sögðu að Sakharov hefði verið
dæmdur í útlegð til Gorky af sér-
stökum ástæðum, en fengust ekki
til að upplýsa eftir hvaða lögum
hann hefði verið dæmdur. Sak-
harov sem er 64 ára gamall, tók
þátt í að þróa sovésku atóm-
sprengjuna en gerðist síðan virkur
í afvopnunar- og mannréttinda-
hreyfingum. Hann hlaut friðar-
verðlaun Nóbels árið 1975. Hinn
22. janúar 1980 var hann fyrir-
varalaust sendur í útlegð til Gorky
þar sem hann hefur verið síðan án
þess að réttarhöld hafi farið fram
í máli hans.
Forstjóri NASA
sakaður um svik
Washington. AP.
FORSTJORI bandarísku geimvís-
indastofnunarinnar, NASA, James
M. Beggs, hefur veriö sakaður um
að hafa svikið bandaríska varnar-
málaráöuneytið um 7,5 milljónir
dollara á árunum 1978—1981, meö-
an hann var forstjóri General Dyn-
amics.
Beggs lét af starfi forstjóra
NASA um stundarsakir í vikunni,
eða meðan mál hans og þriggja
annarra fyrrverandi yfirmanna
General Dynamics (GD) var tekið
fyrir. Fyrirtækið er þriðji stærsti
vopnaframleiðandi Bandaríkj-
anna.
Beggs kveðst saklaus af áburðin-
um. Fyrirtækið er sagt hafa svikið
7,5 milljónir dollara út úr varnar-
málaráðuneytinu með því að rukka
það um kostnað við smíði loftvarn-
arbyssu fyrir skriðdreka, Divad.
Caspar Weinberger, varnarmála-
ráðherra, lét hætta öllum tilraun-
um með vopnið í ágúst sl., en þá
var tilraunakostnaður orðinn 1,8
milljarðar dollara.
Verði Beggs sekur fundinn á
hann yfir höfði sér allt að 5 ára
fangelsi og 10.000 dollara sekt fyrir
hvert ákæruatriði. Hæsta sekt,
sem fyrirtækið á yfir höfði sér eru
70.000 dollarar.
James M. Beggs, forstjóri NASA.
Tíu tonn af hreinu járni
Nuuk, 9. des. Frá fréttaritara Morgunblaósin.s, N. J. Bruun.
HNULLUNGURINN á myndinni er klumpur úr hreinu steypujárni, sem vegur um 10 tonn. Fann jaröfræöing-
urinn Finn Ulff-Möller hann viö jarðfræðirannsóknir á Disko-eyju fyrir utan strönd Vestur-Grænlands. Járn-
klumpurinn á upphaf sitt aö rekja til eldfjallasprungu, sem einhvern tímann fyrir óralöngu lá um eyjuna
þvera. í rauninni er klumpurinn “dropi“, sem kastast hefur á loft viö eldgos og síðan fallið niöur storknaöur
viö hlið eldfjallsins.
Áöur hafa fundizt sams konar járnklumpar á Disko-eyju og var einn þeirra hvorki meira né minna en 25
tonn aö þyngd, annar 7 tonn og sá þriöji 4 tonn. Sænskur könnunarleiöangur flutti þá brott og eru þeir nú
varðveittir í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og Helsingfors. Vitað er um, aö Grænlendingar fyrr á tímum þekktu
til þessara járnklumpa. Hömruöu þeir sneiöar úr þeim og notuðu í verkfæri.
Ítalía:
Nýfætt bam fannst
lifandí í sorptunnu
Torino, Ítalío, 9. desember. Frá Brynju Tomer, fréttaritara Morgunblaðsins.
NTFÆTT sveinbarn fannst lifandi í sorptunnu í borginni Bari á Suöaustur-
Ítalíu nú um helgina. Barniö er nú í súrefniskassa á Ciovanni XXIII-sjúkra-
húsinu í Bari, og er vonast til, aö það haldi lífi og heilsu. Fjöldi manns
hefur óskað eftir að ættleiða barniö, en lögreglan leitar nú ákaft móöurinn-
ar og þeirra, sem hugsanlega hafa aðstoöað hana við fæöinguna og út-
burðinn.
Það var gullfallegur, svart-
hærður og dökkbrúneygur dreng-
ur, sem fannst í sorptunnunni í
Bari, 500.000 manna borg Puglia-
héraði á Suðaustur-Ítalíu. Kona
nokkur, sem átti leið hjá, heyrði
veikt og undarlegt hljóð koma úr
tunnunni. Er hún athugaði nánar
hvað um væri að vera sá hún ný-
fætt barn, sem komið hafði verið
fyrir í plastpoka í sorptunnunnL
Hún fór rakleiðis með barnið á
sjúkrahús og hafði síðan samband
við lögregluna.
Drengurinn, sem vegur 3,2 kg,
er nú í súrefniskassa á Giovanni
XXIII-sjúkrahúsinu, og er vonast
til, að hann lifi af þessa ómann-
eskjulegu meðferð.
„Líðan drengsins er nokkuð góð
miðað við aðstæður," sagði Papa-
dia, læknirinn sem sér um dreng-
inn á sjúkrahúsinu. „Hann hefur
verið í kaldri tunnunni heila nótt
innan um sorpið og gæti því verið
með lungnabólgu. Einnig getur
verið, að eitrun frá sorpinu hafi
borist gegnum naflastrenginn. En
það kemur í ljós á næstu tveimur
sólarhringum, hvort hann lifir
þetta af og heldur heilsu."
Þessi atburður hefur vakið óhug
hjá fólki hér, og menn spyrja sig,
hvað það sé, sem reki móður til
að bera barn sitt út. Margir hafa
haft samband við lögregluna og
sjúkrahúsið, þar sem barnið
dvelst, og óskað eftir að fá að
ættleiða það.
Lögreglan leitar móðurinnar nú
ákaft, svo og þeirra, sem kunna
að hafa aðstoðað hana við fæðing-
una og útburðinn, en þeir aðilar,
sem hér komu við sögu, eiga þunga
refsingu yfir höfði sér.
Ah/örutölva l ótrúlegu verði!
* ORTOLVA Z-80 A
* ROM minni, 32 KB
* RAM minni, 64 KB
* UPPLAUSN 258x192
* LITIR 16-Microsoft basic
* 72 LYKLAR í BORÐI
GEYSILEGT
u úrval leikja og
forrita
ÍXtWaÁýfX OQ lOonamL
ATH! 3 forrit fylgja
— —
Gunnar Ásgeirsson hf. íiuöurlandsbraut 16 Simi 9135200 QX&-
Kasparov skrif-
ar bók um heims-
meistaraeinvígið
Moskvu, 9. desember. AP.
NÝKRÝNDUR heimsmeistari í
skák, Garry Kasparov, er nú með
bók í smíðum um einvígið við landa
sinn, Anatoly Karpov, fyrrverandi
Kasparov
heimsmeistara, aö því er sovéska
fréttastofan Tass greindi frá á laug-
ardag.
) Tass átti viðtal við Kasparov í
sumarleyfisbænum Zagulba í ná-
grenni heimaborgar hans, Baku, í
Azerbaijan, þar sem heimsmeist-
arinn var að hvíla sig eftir átökin.
Fréttastofan hafði eftir Kasp-
arov, að gerð bókarinnar væri
þáttur í undirbúningi hans fyrir
væntanlegt einvígi hans og
Karpovs, sem fram á að fara í
febrúarmánuði næstkomandi.
Einn af þjálfurum hans, Alexand-
er Shakarov skákmeistari, aðstoð-
ar hann við ritun bókarinnar.
Kasparov sagðist mundu tefla
sex skákir við hollenska stór-
meistarann Jan Timman í Hol-
landi í desembermánuði til undir-
búnings einvíginu við Karpov.