Morgunblaðið - 10.12.1985, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
Sjálfstætt
bankaeftirlit
Nokkur Irumvörp til laga vóru
lögð fram á Alþingi í gær, bæði
þingmannafrumvörp og stjórnar-
frumvörp. Þeirra á meóal eru:
Frumvarp til laga um sjálfstætt
bankaeftirlit. Flutningsmenn eru
Guðrún Helgadóttir og fleiri þing-
menn Alþýðubandalags. í dag
starfar bankaeftirlit samkvæmt
lögum um Seðlabanka íslands.
Frumvarpið gerir hins vegar ráð
fyrir því að eftirlitið verði sjálf-
stæð stofnun undir yfirstjórn for-
sætisráðuneytisins og þar með
ríkisstjórnarinnar sem heildar.
Framkvæmdasjóóur aldraóra.
Fram hefur verið lagt stjórnar-
frumvarp, þessefnis, að nefskattur
(einstaklinga 16—75 ára) til Fram-
kvæmdasjóðs aidraðra verði kr.
1.000 1986 (var kr. 580 í ár). Tekjur
sjóðsins yrðu þá 100 m.kr. á kom-
andi ári. Sjóðurinn stuðlar að
byggingu húsnæðis og dvalar-
stofnana fyrir aldraða.
Fæóingarorlof lengt. Fram hefur
verið lagt stjórnarfrumvarp þess-
efnis, að sé móður nauðsynlegt af
heilsufars- eða öryggisástæðum að
hefja töku fæðingarorlofs meira
en einum mánuði fyrir áætlaðan
fæðingardag skuli hún eiga rétt á
tiltekinni greiðslu, allt að einum
mánuði til viðbótar rétti sam-
kvæmt öðrum greinum almanna-
tryggingarlaga um fæðingarorlof.
Sjúkratryggingargjald. Fram er
komið stjórnarfumvarp um álagn-
ingu sjúkratryggingargjalds 1986
með sama hætti og í ár. Af fyrstu
403 þúsund krónum gjaldstofns
(sá sami og gjaldstofn útsvara)
greiðist ekkert gjald, en af því, sem
umfram er, greiðist 2%. Tekju-
stofn þessi á að gefa 225 m.kr. 1986.
Iónráógjafar. Samkvæmt stjórn-
arfrumvarpi, sem lagt var fram í
gær, skal greiða laun iðnráðgjafa,
er samtök sveitarfélaga eða iðn-
þróunarfélög ráða til starfa, úr
ríkissjóði 1986, á sama hátt og
gert er í ár.
Árs framlenging frestunar. Fram
er komið stjórnarfrumvarp sem
gerir ráð fyrir því að fresta til
ársloka 1986 „kerfi heilsugæzlu í
Reykjavíkurlæknishéraði og
heilsugæzluumdæmum í Kópa-
vogi, Garðabæ og Hafnarfirði".
Hækkun á atvinnurekcndafram-
lagi. Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir (Kvl.) flytur frumvarp til
hækkunar á framlagi atvinnurek-
enda til lífeyristrygginga um 1%.
Nái frumvarpið samþykki skal
framlag atvinnurekenda vera 3%
af öllum tegundum launa eða
þóknana fyrir starf liðins árs.
Sex mánaóa fæóingarorlof. Sigríð-
ur Dúna Kristmundsdóttir (Kvl.)
flytur frumvarp til laga um sex
mánaða fæðingarorlof, hvort sem
um er að ræða fólk í launuðum
störfum á vinnumarkaði eða
ólaunuðum störfum utan vinnu-
markaðar.
Varaþingmaður
Guðmundur H. Garðarsson, við-
skiptafræðingur, tók í gær sæti á
Alþingi í fjarveru Péturs Sigurðs-
sonar (S). Guðmundur er vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi.
Fjögur þingmál um viöskipti
Hafskip og Útvegsbanka
Þingmenn biöja um rannsóknamefnd samkvæmt 39. grein stjórn-
arskrárinnar og skýrslur samkvæmt 30. grein þingskapa
Tvær tillögur um skipun rann-
sóknarncfndar, samkvæmt 39. grein
stjórnarskrárinnar, til aó rannsaka
vióskipti Hafskips hf. vió Útvegs-
banka íslands, sem og tengd mál,
vóru lagöar fram á Alþingi í gær.
Báðar tillögurnar gera ráö fyrir því
að viökomandi þingdeild kjósi sjö
manna rannsóknarnefnd til starf-
ans. Þá vóru og lagðar fram tvær
beiönir til viðskiptamálaráðherra
um skýrslur, málió varóandi, önnur
um stöóu Útvegsbankans í Ijósi
upplýsinga í fjölmiölum um viðskipti
bankans og Hafskips hf., hin um
afskipti bankaeftirlitsins af málefn-
um Utvegsbankans.
Rannsókn á viðskipt-
um Útvegsbankans
og Hafskips
Jóhanna SÍKurðardóttir (A), Ól-
afur Þ. Þórðarson (F), Guðrún
Agnarsdóttir (Kvl.) og Guðmund-
ur Einarsson (BJ), hafa lagt fram
tillögu um skipun rannsóknar-
nefndar, skv. 39. grein stjórnar-
skrárinnar, til að rannsaka við-
skipti Hafskips hf. við Útvegs-
bankann, svo og samningatilboð
um yfirtöku eigna Hafskips hf.
frá íslenzka skipafélagsinu hf.
Verkefni nefndarinnar skal vera
að rannsaka 1) Viðskipti Útvegs-
bankans og Hafskips og forsendur
þeirra, 2) Hvort bankinn hafi feng-
ið réttar upplýsingar um stöðu og
rekstur Hafskips, 3) Ábyrgð
bankastjórnar og bankaráðs Út-
vegsbankans á fjárhagslegri stöðu
bankans og þar með ríkissjóðs
vegna þessara viðskipta, 4) Hvort
Stjórnarfrumvarp um aö flokka
alnæmi (aids) með kynsjúkdómum
var samþykkt, nokkuð breytt, eftir
aðra umræðu í efri dcild Alþingis í
gær með 13 samhljóða atkvæðum.
Frumvarpið gengur nú til þriðju
umræðu og síöan til neðri dcildar. I
lagagreininni, eins og hún hljóðar
nú, er hinsvegar ekki talað um al-
næmi eins og í upphaflegu orðalagi,
heldur „smitun af HTLV3-veiru“.
Þrjú nefndarálit komu fram.
Meirihlutaálit fimm þingmanna:
Davíðs Aðalsteinssonar (F),
Björns Dagbjartssonar (S). Krist-
yfirtaka Eimskips á eignum Haf-
skips sé ótvírætt hagkvæmasti
kosturinn, 5) Hvort réttar upplýs-
ingar hafi verið gefnar í tengslum
við hlutafjárútboð að upphæð 80
m.kr. fyrir aðalfund Hafskips í
júni 1985, 6) Aðra þætti málsins
eftir því sem ástæða þykir til.
Mánaðarlegar bráöa-
birgðaskýrslur —
lokaskýrsla inna
fjögurra mánaða
Ólafur Ragnar Grimsson (Abl.)
og fleiri þingmenn Alþýðubanda-
lags flytja og tillögu um skipun
rannsóknarnefndar, samkvæmt
39. grein stjórnarskrárinnar.
Verkefni hennar skal vera:
1) Að rannsaka öll viðskipti
Hafskips hf. við Útvegsbankann
sl. tiu ár, þar á meðal veð lána og
sannleiksgildi skýrslna frá Haf-
skip hf., 2) Að rannsaka öll við-
skipti Hafskips hf. við innlend og
erlend fyrirtæki í því skyni m.a.
að „sannreyna upplýsingar um að
fjármunir hafi verið fluttir út úr
fyrirtækinu til annarra fyrirtækja
í eigu stjórnenda Hafskip, kanna
staðhæfingar um að blekkingum
og fölsunum hafi verið beitt í bók-
haldi Hafskips", 3) Að „rannsaka
öll afskipti ráðherra, alþingis-
manna og annarra forystumanna
í stjórnmálum" af málefnum Haf-
skips „í því skyni að leiða í ljós
hvort sannar séu ásakanir um að
fyrirtækið hafi á beinan eða óbein-
an hátt notið velvildar og fyrir-
jönu Millu Thorsteinsson (S), Arna
Johnsen (S) og Karls Steinars
Guðnasonar (A), sem mæltu með
samþykkts frumvarpsins með
nokkrum breytingum. Minni-
hlutaálit Helga Seljan (Abl.), sem
telur vafasamt að ákvæði laga um
kynsjúkdómavarnir geti stuðlað
að takmörkun á útbreiðslu alnæm-
is. Vitnar hann til umsagnar
samstarfsnefndar Landspítala og
Borgarspítala í því efni. Loks kom
minnihlutaálit frá Kolbrúnu Jóns-
dóttur (BJ), sem byggði andstöðu
sína á svipuðum forsendum.
greiðslu pólitískra áhrifaaðila", 4)
Að “rannsaka skuldastöðu helztu
stórfyrirtækja sem meiriháttar
lán hafa fengið frá ríkishönkunum
þremur".
í samræmi við tilvitnaða grein
stjórnarskrárinnar skal nefndin
hafa rétt til allra upplýsinga frá
opinberum aðilum, fyrirtækjum
og einstaklingum, eftir því sem
nauðsynlegt reynist. Rannsóknar-
nefndin skal hafa heimild til að
ráða til sín sérfræðinga, svo sem
lögfræðinga, rekstrarfræðinga og
bókhaldsfræðinga. Hún skal skila
mánaðarlegum skýrslum til Al-
þingis og lokaskýrslu „eigi síðar
en innan fjögurra mánaða frá
samþykkt þessarar ályktunar".
Tillögur Alþýðubandalagsins
standa til þess að hvor þingdeild
kjósi sína rannsóknarnefnd, en
þær vinni síðan saman að rann-
sókninni.
Staða Útvegsbankans
og viðskipti við Hafskip
Jón Baldvin Hannibalsson og
átta aðrir þingmenn úr Alþýðu-
flokki, Bandalagi jafnaðarmanna
og Kvennalista hafa beðið við-
skiptaráðherra um skýrslu „um
stöðu Útvegsbankans í ljósi upp-
lýsinga í fjölmiðlum um viðskipti
bankans og fyrirtækisins Haf-
skips", með vísan til 30. greinar
þingskapa, laga nr. 10/1961 um
Seðlabanka, lagaákvæða um ríkis-
ábyrgð á skuldbindingum ríkis-
banka og upplýsinga í fjölmiðlum.
Spurt er m.a.: 1) Hversu hárri
upphæð nema heildarútlán og er-
lendar ábyrgðir bankans vegna
Hafskip hf.? 2) Hversu hátt hlut-
fa.ll er hér um að ræða af heildar-
útlánum og skuldbindingum bank-
ans? 3) Hvert var eigið fé bankans
12. nóvember sl.?, 4) Hvað er áætl-
að að tap bankans vegna viðskipta
við Hafskip nemi mikilli upphæð?,
5) Hefur stjórn bankans sniðgeng-
ið reglur og hefðir í bankaviðskipt-
um um greiðslutryggingar út-
lána?, 6) Hefur banakstjórn fengið
villandi upplýsingar frá Hafskip
hf. um rekstur, afkomu, hagnað
og veðhæfni eigna? Þá er spurt
um viðbrögð bankaráðs, hvort
bankaleynd verði aflétt, hvers-
vegna „stjórn Seðlabanka Islands
og bankaeftirlit hafi ekki vikið
bankastjórninni frá eins og for-
dæmi er fyrir af hliðstæðu tilefni,
hvort rkisstjórnin hyggist draga
þá til ábyrgðar sem „vegna að-
gerða sinna eða aðgerðarleysis"
kunna að hafa valdið ríkissjóði og
skattgreiðendum fjárhagslegu
tjóni og loks hvort til standi fækk-
un, afnám eða sameining ríkis-
banka af þessu tilefni?
Afskipti banka-
eftirlitsins
Steingrímur J. Sigfússon og átta
aðrir þingmenn úr Alþýðubanda-
lagi, Alþýðuflokki, Kvennalista og
Bandalagi jafnaðarmanna hafa
beðið viðskiptaráðherra um
skýrslu „um afskipti bankaeftir-
litsins af málefnum Útvegsbank-
ans“, með tilvísan til 30. greinar
þingskapa.
Spurt er:
1) Hver hafa verið afskipti
bankaeftirlits Seðlabanka af mál-
efnum Útvegsbankans frá og með
árinu 1975 til þessa dags?
2) Til hvaða aðgerða afskipti
bankaeftirlitsins af málefnum Út-
vegsbankans hafi leitt?
3) Hvort viðskipti Útvegsbank-
ans og Hafskips hf. eða annarra
stærri viðskiptavina bankans hafi
orðið tilefni til sérstakra afskipta
af hálfu bankaeftirlitsins?
4) Hverjir hafi fjallað um álit
bankaeftirlitsins eða framkvæmt
þær tillögur þess sem tilgreindar
eru hér að framan, og hver hafi
orðið framgangur þeirra mála í
hverju einstöku tilfelli?
Þess er jafnframt óskað að
skýrslan verði „til umræðu á fundi
Sameinaðs Alþingis fljótlega eftir
að henni hefur verið útbýtt meðal
þingmanna".
Hafnarfram-
kvæmdir:
Þrjú ár
— hálfur
milljarður
Heildarframkvæmdir í höfnum
hér á landi vóru 144,3 m.kr.
1982, 184,5 m.kr. 1983 og
206,9 m.kr. 1984, eða samtals
síðastliðin þrjú ár, 535,7 m.kr.
Á síðasta ári sundurliðast
framkvæmdir sem hér segir:
Almennar hafnir.,160,5 m.kr.
Reykjavíkurböfn.. 30,1 m.kr.
Landshafnir.. 10,6 m.kr.
Ferjuhafnir.. 5,7 m.kr.
Samtals....206,9 m.kr.
Alnæmi:
Þrjú nefndarálit