Morgunblaðið - 10.12.1985, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
51
dóm í kosningum að þeir æski eftir
útsölu. Haldið þið, Hafnfirðingar
góðir, að þær þúsundir sem munu
leggja leið sína í áfengisútsöluna
í húsi Hagkaups, fari síðan beint
til Hafnarfjarðar til annarra inn-
kaupa? Ég er hræddur um, eða
réttara sagt fullviss um, að margir
myndu freistast til að gera inn-
kaup sín á einum og sama stað.
Það er einmitt hugmyndin að baki
verslunarmiðstöðvar Hagkaups,
að fólk hafi sem mesta möguleika
að fá þá þjónustu sem það sækist
eftir á einum stað.
ÁfengisvandamáliÖ
Ég geri mér fulla grein fyrir að
áfengisneysla landsmanna er gíf-
urleg og það er sannfæring mín,
að það sé síst ofreiknað hjá Páli
Daníelssyni, að það kosti þjóðina
minnst einn milljarð fyrir utan
„ágóðann" af ÁTVR. En hvað
myndi það kosta þjóðina ef sala
áfengis yrði bönnuð? Myndi sala
annarra vímugjafa ekki aukast?
Er ekki áfengi einfalt í framleiðslu
er mundi stuðla að stórkostlegu
heimabruggi? Hefur sagan ekki
sannað okkur að áfengisbanni
fylgir glæpastarfsemi, tvískinn-
ungsháttur og neðanjarðarhag-
kerfi? Hvað á að gera við alla þá
sem mundu brjóta bannið? Láta
þá borga sektir? Hvað háar? Og
hvað oft? Stinga fólki í fangelsi?
Við sem eigum ekki fangelsi fyrir
marga okkar harðsvíruðustu
glæpamenn. Halda templarar og
aðrir andstæðingar áfengis að
almenningur fáist í náinni framtíð
til að líta á neyslu áfengis sem
glæpsamlegt athæfi? Þýðir nokkuð
að setja bönn og boð á almenning
sem ekki eru almennt viðurkennt
að séu siðferðilega rétt? Ég held
ekki.
Áfengi hefur fylgt mannkyninu
frá ómuna tíð, og það hefur aldrei
tekist að útrýma eða minnka
neyslu þess með boðum og bönn-
um. Af einhverjum ástæðum sem
ég get ekki skýrt, hefur neysla
áfengis á öllum tímum, fallið vel
inn í lífsmynstur mannsins. Það
er eins og menn hafi þörf fyrir að
rífa sig lausa frá raunveruleikan-
um og lífsbaráttunni, sumir aðeins
í nokkrar stundir aðrir allt lífið.
Væri það eflaust verðugt og
arðbært verkefni vísindamanna og
stjórnmálamanna að reyna að
nálgast áfengisvandamálið frá
nýjum sjónarhól, en það kæmi mér
ekki á óvart að niðurstaðan yrði
sú i flestum eða öllum tilfellum
að mannskepnan hefði einhverja
innri þörf til sjálfsblekkingar, sem
kæmi út í neyslu áfengis eða ann-
arra vímugjafa. Hlýtur það að vera
hlutverk hvers hugsandi manns
að sporna við slíku með því að
hafa áhrif á hugsunarhátt almenn-
ings gagnvart áfengi og öðrum
vímugjöfum.
Höíundur er tæknifræðingur bú-
settur í Hafnarfirði.
Vinkonurnar Þuríður Hrund Hjartardóttir og Berglind Jónsdóttir, nemend-
ur í Ölduselsskóla, héldu hlutaveltu til styrktar sundlaug Ölduselsskóla.
Afhentu þær skólastjóra upphæðina rúmlega 1.600 kr.
Finnskir stálpottar.
Þessir pottar eru fáanlegir 11/2, 2ja, 3ja, 4ra og 5 lítra.
Einnig flatir pottar fyrir suöu og steikingu.
f/% KRiSTjnn
/M SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870
AFSTAi
9
I sjóferð, ert þú þá með það á hreinu hvar allur björgunarbúnaður skipsins er staðsettur og
hvort öll siglingatæki eru virk?
Pað er góð regla í upphafi hverrar sjóferðar, að glöggva sig á staðsetningu og ástandi
öryggisbúnaðar skipsins.
REYNSLAN SÝNIR AÐ EKKERT KEMUR í VEG FYRIR SLYS Á SJÓ NEMA
ÁRVEKNI, DÓMGREIND OG KUNNÁTTA SJÓMANNA SJÁLFRA.
ÖRYGGISMÁLANEFND SJÓMANNA
midas