Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
*
#
Þorgils Óttar:
„Of seint
í gang“
„VIO fórum of seint í gang í þess-
um leik. Þaö er erfitt að vinna upp
svo mikinn mun eins og þeir náöu
í fyrri hálfleik," sagði Þorgils Óttar
Mathiesen línumaöur eftir leikínn
á Akureyri á laugardaginn.
„Viö þurftum aö taka áhættu i
leiknum, sem svo Vestur-Þjóöverj-
ar nýttu sér. Vandamál okkar er
sókn á móti 6-0-vörn. Viö getum
væntanlega lagaö þaö fyrir heims-
meistarakeppnina og mun Bogdan
fara yfir þessi atriöi á næstu vikum.
Vörnin var líka léleg hjá okkur í
fyrri hálfleik og því fór sem fór. Þaö
er vonandi aö viö náum upp góöu
spili í næstu leikjum okkar,“ sagöi
Þorgils Óttar.
Alfreð Gíslason:
viljað
• Atli Hilmarsson stekkur hér hæst allra og skorar eitt af sex mörkum sínum í leiknum á Akureyri á laugardaginn.
vera
Átta mörk Þjóðverja í
röð skópu slgur þeirra
Slakur leikur íslendingaá Akureyri
með“
ALFREÐ Gíslason er Akureyring-
ur og lók þar aftur í fyrsta sinn í
fjögur ár meö landsliðinu á laug-
ardaginn. Alfreð er sem kunnugt
er leikmaöur meö Essen í Vestur-
Þýskalandi og eru þeir nú í næst-
efsta sæti Bundesligunnar.
„Ég er ekkert of ánægöur með
aö fá aöeins aö leika í 20 mínútur
hér á Akureyri, en þaö er vel skilj-
anlegt, þar sem ég hef ekki getaö
veröiö meö í undirbúningi liösins
á fullu. En maður heföi viljaö vera
meira meö í leiknum," sagöi Alfreö
Gíslason er hann var spurður út í
leikinn á Akureyri.
„Þetta var slakur leikur af beggja
hálfu. Þjóöverjarnir náðu þó góö-
um kafla eftir mistök okkar. Viö
geröum mikil mistök bæöi í vörn
og sókn og jafnvel byrjendamistök,
sem ekki eiga aó sjást."
— Verður þú með í undirbún-
ingi landsliösins og í heimsmeist-
arakeppninni í Sviss?
„Ég get ekki tekiö þátt í undir-
búningnum sem framundan er. Ég
gæti sennilega verið sem vara-
skeifa fyrir þá, ef þeir kæra sig um
þaö. Þaö er mikill þrýstingur á mig
frá Essen um aö taka ekki þátt í
undirbúningnum. Þaó er mikið lagt
upp úr því aö viö stöndum okkur
í Bundesligunni og náum aö veróa
meistararívor."
— Hvernig er aö leika meö
leikmanni eins og Jochen Fraatz
hjá Essen?
„Hann er góöur leikmaöur og
er sennilega einn besti hornamað-
ur heims í dag. Þaó er ekki alltaf
gott aö leika meö honum, hann
er mjög eigingjarn á knöttinn og
gefur hann sjaldan. Fraatz skorar
mikiö, hann er nú fimmti marka-
hæsti leikmaóur deildarinnar meö
58 mörk," sagöi Alfreö sem hefur
gert 46 mörk fyrir Essen og er í
10. sæti deildarinnar yfir marka-
hæstu leikmenn.
ÍSLENSKA landsliöiö í handknatt-
leik mátti þola tap í öörum leik
sínum viö Vestur-Þjóðverja á
Akureyri á laugardaginn, 21-26.
Staöan í leikhléi var 15-9 fyrir
Vestur-Þjóöverja. Það sem réö
úrslitum < þessum leik voru af-
drifarík mistök í sóknarleiknum
um miöjan fyrri hálfleik er Vest-
ur-Þjóöverjar skoruöu átta mörk
í röö án þess aö íslendingum
tækist aö svara fyrir sig, breyttu
stööunni þá úr 4-3 í 4-11 á tíu
mínútna kafla. Vörn íslendinga
var ekki sannfærandi í leiknum
og opnaöist oft illa.
íslensku strákarnir byrjuöu vel
og skoruöu fyrsta markiö og
komust í 3-1 og voru norðlenskir
áhorfendur, sem troöfylltu íþrótta-
höllina á Akureyri, vel meö á nótun-
um. Er sex mínútur voru liönar af
leiknum var staöan jöfn, 3-3. Krist-
ján Arason skoraöi þá 4. mark
íslands meö fallegu skoti fyrir utan,
Fraatz, besti leikmaður Vestur-
Þjóöverja, jafnaöi aftur. Síöan kom
afdrifaríkur kafli hjá islendingum.
Slakur kafli
Vestur-Þjóöverjar skoruöu
næstu sjö mörk og komu þau öll
eftir aö islendingar höföu glataö
knettinum í hendur þeirra eða
reynt ótímabær skot. Sex þessara
marka komu eftir hraöaupphlaup.
islendingarnir geröu sig seka um
mikiö af röngum sendingum sem
Vestur-Þjóðverjarnir síöan nýttu
sér. Þessi tíu mínútna kafli réö
úrslitum í þessum leik. Aö missa
liö eins og þetta sex mörk yfir er
ekki svo gott aö vinna upp aftur.
Þessi munur hélst síöan út hálfleik-
inn og var staöan 9-15 fyrir Vest-
ur-Þjóðverja.
Klórað í bakkann
Jafnræöi var með lióunum í
upphafi seinni hálfleiks, siöan náöu
íslendingar aö klóra í bakkann og
minkuðu muninn í þrjú mörk um
ísland — V-Þýskaland
21:26
Texti:
Valur B. Jónatansson
Myndir:
Júlíus Sigurjónsson
miöjan seinni hálfleik, 15-18. Þarna
léku íslendingarnir vel. Þessi
munur hélst svo þar til 8 mínútur
voru til leiksloka aö þá tóku Vest-
ur-Þjóöverja mikinn fjörkipp og
breyttu stööunni úr 18-21 í 18-23.
Eftir þetta var aldrei spurning
hvaöa lið færi meö sigur af hólmi
og Þjóöverjarnir stóöu uppi sem
öryggir sigurvegarar, 21-26. Sigur
þeirra var sanngjarn og veröskuld-
aöur.
íslenska liöið náöi sér aldrei á
strik eftir aö Þjóöverjarnir náöu
afgerandi forystu um miðjan fyrri
hálfleik. Leikmenn voru mjög mis-
tækir bæöi í sókn og vörn, léku
mjög óagaö, þeir mega þó eiga
þaö aö þeir gáfust aldrei upp. Besti
leikmaöur Islendinga í þessum leik
og sá eini sem sýndi sitt rétta
andlit var Krstján Arason. Þorgils
Óttar og Kristján Sigmundsson
léku einnig ágætlega og Atli var
góöur i seinni hálfleik er hann
skoraði sex mörk. Þaö kom
kannski aö sök, aö Páll Ólafsson
meiddist í upphafi leiksins og var
lítiö meö, en þaö er engin afsökun.
Vestur-Þjóöverjar léku þennan
leik ekkert afgerandi vel, þeir
geröu einnig sín mistök. Þeir eru
meö þaö leikreynt og gott liö aö
þeir láta ekki átta marka forystu
svo auöveldlega af hendi. Jochen
Fraatz var besti leikmaöur þeirra
eins og á föstudaginn. Þaö má
aldrei af honum líta og getur hann
skoraö úr útrúlegustu færum.
Markvöröurinn, Stefan Hecker,
varöi einnig vel í seinni hálfleik,
alls 12 skot, og þá úr góöum
marktækifærum, þar af varöi hann
eitt vítakast frá Siguröi Gunnars-
syni ífyrri hálfleik.
íslendingar skoruöu 7 mörk fyrir
utan, 4 mörk af línu, 3 úr hraöaupp-
hlaupum, 2 úr gegnumbrotum og
5 úr vítaköstum. Vestur-Þjóðverjar
geröu 11 mörk úr hraðaupphlaup-
um, þar af 8 í fyrri hálfleik, 6 af
línu, 4 fyrir utan og 4 úr gegnum-
brotum og eitt úr vítakasti. íslend-
ingar voru utanvallar í 8 mínútur,
en Vestur-Þjóöverjar i 6 mínútur.
Svissnesku dómararnir voru
ekki sannfærandi frekar en fyrri
daginn. Þeir báru of mikla vióingu
fyrir Þjóöverjunum.
Mörk islands: Kristján Arason 7/3,
Atli Hílmarsson 6/2, Siguröur Gunnarsson
3, Guömundur Guömundsson 2, Þorgils
Óttar, Alfreö Gíslason og Páll Ólafsson
©itt mark hver.
Mörk Vestur-Þjóöverja: Jochen Fraatz
8, Uwe Schweuker 4, Rudiger Nðítzel 3,
Martin Schwalb 3, Erhard Wunderlich 3/1,
Christian Fitzek 2, Ulrich Roth 2 og Jörn-
Uwe Lommel 1.
• Alfreö Gíslason lék ekki mikiö meö í leikjum landsliösins um helg-
ina. Hann stóö sig þó vel er hann kom inné. Alfreö er fré Akureyri
og lék sinn fyrsfa leik þar nyröra í fjögur ér.