Morgunblaðið - 10.12.1985, Qupperneq 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1985
Landsbyggöin og frelsi
í peningamálum
— eftir Kristin
Pétursson
Mikil umræða fer nú fram um
stöðu landsbyggðarinnar með til-
liti til þeirrar óáran sem ríkt hefur
í peningamálum landsmanna.
Greinarhöfundur leggur hér fram
skerf í umræðuna. Málefnaleg
umræða á að leiða okkur í réttari
farveg eða svo vonum við að
minnsta kosti.
Um hávaxtastefnu
„Vextirnir eru að sliga heimil-
in.“ „Vaxtaokrið er að drepa at-
vinnuvegina." Þessar fullyrðingar
höfum við heyrt. Undirritaður
hefur tekið þátt í gagnrýni á háa
vexti. — En — í seinni tíð hef ég
reynt að leiða hugann að því hvers
vegna vextir séu háir. Sparifé
landsmanna hefur brunnið upp á
liðnum árum eins og kunnugt er.
Er þar um að ræða eina ógeðfelld-
ustu millifærslu á fjármunum
(þótt á óbeinan hátt sé) sem um
getur í íslandssögunni. Þeir sem
spöruðu voru rúnir inn að skyrt-
unni. Vextir voru „neikvæðir". Af-
leiðingin varð auðvitað sú að
spariféð brann upp. Það er þekkt
lögmál að minnkandi framboð
eykur eftirspurn. Hvort sem
mönnum líkar lögmálið betur eða
verr þá er það svona. Þar af leiðir
að vextir hækka. Nú er reynt að
fá fólk til þess að spara, því ekki
er hægt að lána peninga sem ekki
eru til. Þess vegna eru vextir háir.
Það er sennilega engin önnur leið
fær, nema prenta bara fleiri seðla,
en hver vill bera ábyrgð á þeirri
prentun?
Niðurstaðan er sú að hávaxta-
stefnan sé ill nauðsyn til þess að
ná aftur upp sparifjárforða í
landinu. Þegar framboð af lánsfé
eykst með raunvöxtum þá lækka
vextir af sjálfu sér. Við sem tökum
lán bölvum í sand og ösku — en
við verðum að vera sanngjörn.
Hvað meiga þeir segja, sem áttu
sparifé fyrir nokkrum árum og
máttu verða vitni að því, að mál-
tækið „græddur er geymdur eyrir“
voru einhver örgustu öfugmæli,
sem til voru á seinasta áratug. Við
getum þó sagt, að þetta máltæki
sé ekki lengur öfugmæli og jafnvel
gæti spurningin snúist um fjár-
hagslegt sjálfstæði þjóðarinnar
verði máltæki þetta aftur öfug-
mæli. Reynum því að spara ef við
getum. Kornin fylla mælinn.
Taprekstur sjávarútvegs
Öflun sjávarfangs fer aðallega
fram í hinum dreifðu byggðum
iandsins. Sjávarafurðir eru undir-
staða gjaldeyrisöflunar lands-
manna eins og kunnugt er. Tap-
rekstur í undirstöðuframleiðslu
landsmanna er orðin svo marg-
þvæld tugga, að fólki leiðist um-
ræðan, enda er hún neikvæð. En
umræðan verður að halda áfram.
Við verðum að finna leiðir til þess
að stöðva tapreksturinn. Hvers
vegna? — Vegna þess að spariféð
sogast inn í tapreksturinn, hvort
sem okkur líkar betur eða verr.
Þegar sjávarútvegsfyrirtæki getur
ekki staðið í skilum við opinbera
sjóði þá kemur ekki sú greiðsla í
viðkomandi sjóði, sem lánsfjár-
áætlun ríkissjóðs gerði ráð fyrir.
Sjóðurinn verður því að afla sér
fjár annars staðar. Viðkomandi
opinber sjóður á engra kosta völ.
Svíkja gefin lánsloforð? — Nei.
Hinn opinberi sjóður fær yfirdrátt
í Seðlabankanum eða tekur erlent
lán og veldur hvort tveggja þenslu.
Við erum í vítahring. Þess vegna
er mjög brynt að taprekstur verði
stöðvaður í sjávarútvegi. Meira að
segja núllrekstrarstefnan verður
að fara fyrir borð. Við þurfum að
snúa vörn í sókn og HAGNAÐUR
er markmiðið. Hagnaður til þess
að byggðir geti blómgast á nýjan
leik. Hagnaður til þess að stöðva
sjálfvirkt rennsli á sparifé lands-
manna inn í botnlausan taprekst-
ur. Tapreksturinn leiðir af sér háa
vexti, þar sem spariféð sogast inn
í hann. Ef við viljum, að vextir
lækki þá verður ekki bara að auka
sparnað. Það er jafnbrýnt að
stöðva taprekstur í sjávarútvegi,
og fara að reka hann með hagnaði
til þess að auka framboð á sparifé
og — þá lækka vextir. Margar
leiðir eru til þess að draga úr
taprekstri sjávarútvegs. Til dæmis
Samviimusjóðiir íslands hf.:
Hugmyndasamkeppni um ný
tækifæri í íslensku atvinnulífí
SAMVINNUSJÓÐUR íslands hf.
efnir til hugmyndasamkeppni um ný
tækifæri í íslensku atvinnulífi. Leit-
að er eftir hugmyndum að nýjum
framleiðsluvörum og/eða þjónustu-
starfsemi, jafnt innan hefðbundinna
atvinnugreina sem á nýjum sviðum.
Sérstaklega er leitað eftir hugmynd-
um sem leiða kunna til framleiðslu
og sölu til útflutnings, eða sem
skapa gjaldeyristekjur.
Þórður Ingvi Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Samvinnusjóðs
íslands, kynnti hugmyndasam-
keppnina fréttamönum á dögun-
um. Fram kom í máli hans að að
hugmyndir og tillögur skulu vera
hnitmiðaðar og afmarkaðar. Þeim
skulu fylgja einhverjar upplýsing-
ar um það hvernig hugmyndunum
verður komið í framkvæmd, hver
Herrafataverslunin Gæjar hóf
starfsemi sína (ostudaginn 22. nóv-
ember.
Verslunin hefur á boðstólum
vönduð vörumerki úr tískuheimin-
um svo sem Gin og Tonic frá
kostnaðurinn verður við fram-
kvæmd þeirra, stofn- og rekstrar-
kostnaður og mögulegir markaðir.
Veitt verða þrenn verðlaun fyrir
bestu hugmyndirnar. 1. verðlaun
eru kr. 200 þús., 2. verðlaun kr. 100
þús. og 3. verðlaun kr. 75 þús.
Samvinnusjóðurinn áskilur sér
notkunarrétt að þeim verðlauna-
tillögum sem hann álítur fýsilegar
til áframhaldandi rannsóknar og
þróunar í því augnamiði að stuðla
að framleiðslu. Hugmyndir sem
lagðar verða fram skulu merktar
dulnefni höfundar. í lokuðu um-
slagi með utanáskrift sama dulefn-
is skal raunverulegt nafn höfund-
ar, heimilisfang og símanúmer,
ásamt upplýsingum um menntun
og starfsferil, koma fram. Hug-
myndasamkeppnin er öllum opin
Þýskalandi, Equip frá Hollandi og
leðurfatnað frá ítalska fatahönn-
uðinum Romano Baldini.
Eigendur verslunarinnar eru
Árni Sigurðsson og Sjöfn Þórðar-
dóttir.
Þórður Ingvi Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Samvinnusjóðs
íslands hf.
og skilafrestur að tillögum er 20.
febrúar. Tillögum skal skilað til
Þórðar Ingva Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra Samvinnu-
sjóðs íslands, Höfðabakka 9, 110
Reykjavík.
Á fundinum með fréttamönnum
var jafnframt skýrt frá starfsemi
Samvinnusjóðs íslands hf. sem er
fyrirtæki í eigu samvinnuhreyf-
ingarinnar. Fyrirtækið var stofnað
árið 1982 og hluthafar eru um 60
talsins. Megintilgangur sjóðsins
er að efla og auka fjölbreytni
atvinnulífs á íslandi. Forgangs-
verkefni sjóðsins er að fjármagna
og stuðla að þróun nýrra atvinnu-
greina. Stjórnarformaður fyrir-
tækisins er Þorsteinn ólafsson,
framkvæmdastjóri Þróunar- og
nýsköpunardeildar SÍS, en aðrir í
stjórn eru Ólafur Sverrisson, vara-
formaður stjórnar SÍS og kaup-
félagsstjóri í Borgarnesi, Þor-
steinn Sveinsson, kaupfélagsstjóri
á Egilsstöðum, Árni Jóhannsson,
kaupfélagsstjóri á Blönduósi, og
Benedikt Sigurðsson, fjármála-
stjóri Samvinnutrygginga. Stjórn
Samvinnusjóðsins skipar dóm-
nefndina í hugmyndasamkeppn-
inni.
Eigendur verslunarinnar „Gæjar“, Árni Sigurðsson og Sjöfn Þórðardóttir.
Versluniit Gæjar
— ný herrafataverslun
Kristinn Pétursson
„Við þurfum frjálsa
verslun á sem flestum
sviðum þjóðlífsins. Þá
verður landsbyggðinni
borgið. Stærsti sigurinn
vinnst þegar gjaldeyris-
verslunin verður gefin
frjáls... “
má leggja niður sjóðakerfið og
hætta millifærslum innan sjávar-
útvegsins, lækka tilkostnað með
markvissum aðgerðum, auka
framleiðni með stóraukinni tækni-
væðingu. Allt tekur þetta sinn
tíma — en viljinn er númer eitt.
Jákvætt hugarfar í garð atvinnu-
rekstrar er jafnvel það brýnasta.
Sú illkvittni og ég vil segja sá
kvikindisháttur, sem ónefndir að-
ilar nota stundum í umfjöllun
sinni um atvinnurekstur, er
ábyrgðarlaust niðurrif og læt ég
lesandanum eftir að meta hvað við
er átt. Slík niðurrifsumfjöllun lýs-
ir best innrætinu í þeim, sem láta
slíkt frá sér fara, og væri vel við
hæfi að vísa slíku til föðurhúsanna
oftar en gert er.
En með jákvæðu hugarfari og
hóflegri bjartsýni eigum við að
geta tekist á við þessi vandamál
öll og lagfært það sem að er. Ekki
má gleyma að minnast á kjör
þeirra, sem vinna við þennan
undirstöðuatvinnuveg þjóðarinn-
ar. Kjörum starfsfólks er borgið
daginn, sem tekst að finna leiðir
til þess að reka þessa atvinnugrein
með hagnaði. Það er hagur fyrir-
tækjanna að geta greitt starfsfólki
sínu vel. En enginn greiðir neitt
með tapi. Þetta er grundvallarat-
riði. Starfsfólk undirstöðuatvinnu-
greinanna þarf að gera meira af
því að fjalla um þennan þátt, sem
grundvallaratriði til þess að geta
óskað eftir bættum kjörum.
Erlenda lántakan
Lánsfjárgleði síðustu ríkis-
stjórnar var íslandsmet í veðsetn-
ingum. Það var ríkisstjórnin, sem
veðsetti þjóðina upp fyrir haus —
erlendum fjármagnseigendum.
Það er með erlendu lánin eins og
eiturlyfin, að fyrsti skammturinn
virkar þannig að sagt er, að við-
komandi verður syngjandi sæll og
glaður. Síðan kemur næsti
skammtur og koll af kolli. Nú erum
við orðnir forfallnir lánaneytend-
ur og núverandi ríkisstjórn virðist
eiga fullt í fangi með að stækka
ekki skammtinn. En — við þurfum
að venja okkur af þessum fjanda.
Greiða niður e'rlendu lánin á næstu
árum. Erlend lán valda fölsku
framboði á gjaldeyri, gengið verð-
ur of lágt skráð fyrir sjávarútveg-
inn, og verðbólgudraugurinn fær
byr undir báða vængi.
Af þessum sökum verður að gera
þá kröfu á hendur öllum ábyrgum
einstaklingum í þjóðfélaginu að
þeir sameinist um að hjálpa
stjórnvöldum við að venja okkur
Hér segir frá því hvernig gera má hreingerninguna mun
auðveldari en hingað til - jafnt á litlum sem stórum vinnustöð-
um. Nýju moppurnar frá Burstagerðinni og fylgihlutir þeirra
eru svo sannarlega...
BYITINGfl
Nýju moppumar eru léttar og liprar
í notkun og láta einstaklega vel að
stjórn. Þær eru ferkantaðar, hafa
stærri snertiflöt en eldri gerðir og
þrífa því betur. Moppumar eru úr
sérstakri blöndu af bómull og akrýli,
taka vel til sín raka og óhreinindi og
skila þeim líka vel af sér í vindingu
og eftirþvotti.
Nú er auðveldara en áður að
komast inn í horn og skot vegna
þess að moppan er á ferkantaðri
festiplötu, en ekki á rúnnaðri grind
eins og á eldri gerðum. Einnig næst
mjög góður árangur við hreingem-
ingu á stigum og veggjum - auk
þess sem moppurnar dreifa bóni
afar vel.