Morgunblaðið - 10.12.1985, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR10. DESEMBER1985
75
Marxisminn og trúgirni
Ég var að lesa lýsingu á því
hvernig fólk lætur blekkjast af
auglýsingum. Norskur kaup-
maður sem vitnað er til er alveg
undrandi á trúgirni fólksins.
Hann birtir samt ekki mynd af
nauðasköllóttum manni, til að
sýna árangur af hármeðalinu
sínu, því þá hefðu færri trúað.
En hvað lætur fólk lengi
blekkjast af fagurgala marxism-
ans? Var velferðin upp á marga
fiska í Sovétríkjunum á dögum
Stalíns? Allar hörmungasögurn-
ar af útrýmingu bændanna, allar
fangelsanirnar og aftökurnar,
allt þótti þetta gott hjá marxist-
unum og allt afsakað — lofið var
kveðið hátt ög snjallt. Besta
sagan af þessu er þegar Georg
Orwell kom heim frá Spáni og
gat sannað allan hryllinginn. Þá
neitaði ritstjóri enska Þjóðvilj-
ans að taka greinina og var ekki
lengur hægt að birta greinar eftir
Orwell, því hann var farinn að
skrifa sannleikann um marx-
ismann. Ritstjórinn afsakaði
Stalín með því að með manndráp-
unum væri hann að laga fjárhag
Rússlands.
Ætiar félagshyggjufólkið að
mæía með því, að lýðræðisríki
taki upp þessi vinnubrögð. Marx-
isminn hefur sýnt að hann býður
steina fyrir brauð og allar götur
frá byltingunni hefur skorturinn
kvalið almenning í Sovétríkjun-
um. Aldrei hefur sulturinn herjað
meir á Afríku en þegar marxism-
inn hélt innreið sína i álfuna.
Marxistarnir í öllum löndum
ætlast til að við, sem reynum að
bjarga fólkinu frá bráðum hung-
urdauða, trúum því að ástandið
sé eingöngu náttúruhamförum að
kenna. Við þekkjum náttúruham-
farir á íslandi en það á að vera
auðveldara að koma matvælum i
tæka tíð til hungursvæðanna með
flugvélum og öðrum nýtískufar-
artækjum en var hér á dögum
Skaftáreldanna.
Enda þótt efnahagslífið í
kommúnistaríkjunum sé eins og
allir vita, þá eru mannréttinda-
brotin hryllilegust, þrælabúðirn-
ar eins og þær hafa alltaf verið
og enginn verkfallsréttur, ekkert
tjáningarfrelsi eða ferðafrelsi.
Þetta eiga allir að sætta sig við
vegna þess að þetta er innan-
ríkismál Sovétstjórnar. Það kom
því vel á vondan, að Rússarnir
töfðust um tíu mínútur á Keflvík-
urflugvelli og vonandi hafa þeir
skilið innanríkismálið okkar.
Húsmóðir
Bankavextir og húsgjaldið
Svo er mál með vexti að við í
húsfélagi nokkru höfum samið við
sparisjóðinn á Seltjarnarnesi um
að innheimta húsgjald okkar.
Fáum við ósköp venjulegan gíró-
seðil náægt mánaðarmótum upp
á kr. 4.000 og neðanmáls stendur,
„Vinsamlegast greiðið sem fyrst."
Nú í sumar kom svo bréf með
seðlinum, þar sem kveðið er á um
að dráttarvextir verði reiknaðir á
upphæðina þann 20. hvers mánað-
ar.
Nú í október voru heilasellurn-
ar hjá mér eitthvað í ólagi, því
að þann 23. október ranka ég við
mér með óborgað húsgjald. Ég
snarast niður í sparisjóð. En nú
átti ekki að greiða 4.000 kr. heldur
4.150 kr. Ég fullvissaði mig um
að þann 20. október átti ég að
greiða kr. 4.000 og spyr hvað þessi
mismunur heiti. Svarið var,
„dráttarvextir samkvæmt reglum
bankans“. Ég átti sem sé að greiða
50 kr. á dag í vexti af þessum 4.000
kr. Ég neitaði að greiða þessa
vexti á þeim forsendum að ég
þyrfti að kanna hvort hér væri
um okurvexti að ræða.
Við nánari athugun kom líka í
ljós að hér var um 456% ársvexti
að ræða og hefði ég aulast til að
greiða þetta segir réttarvitund
mín að ég og hinir ágætu félagar
mínir i húsfélaginu væru orðnir
sekir skóggangsmenn vegna ok-
urs. Þar með væri ég orðinn sá
skálkur að hafa notfært mér fá-
visku mína til að pretta sjálfan
mig til að greiða sjálfum mér
okurvexti gegnum „reglur bank-
ans“. En eitthvað á þessa leið
hljóðar lagagrein um okur ef ég
man rétt. Eg bíð eftir dómi.
Svavar Björnsson
Bingó — Bingó
í Glæsibæ
í kvöld kl. 19.30
Aöalvinninqur 25.000. Næsthæsti vinningur
12.000. Heildarverömæti yfir 100.000. Stjórnin.
SÍGILD HÖNNUN
Boröstofustóll án Borðstofustóll m. örm-
arma kr. 3.980 stgr. um kr. 4.340 stgr.
Stóll m. leöri eöa Stóll m. leöri kr.
hrosshári kr. 9.97Ú 10.700 stgr.
stgr.
Legubekkur meö svörtu leöri eöa hross-
hári kr. 32.555 stgr. sem sagt
.. á óumflýjanlega
hagstæðu verði
ILJI
Bláskógar
Ármúla 8, s. 686080 - 686244.
Áskriftarsíminn er 83033