Morgunblaðið - 03.01.1986, Síða 45

Morgunblaðið - 03.01.1986, Síða 45
MORGUNBLAÓIÐ, FÖSTÚDAGUR 3. JANÚAR1986 45 Einar Guðmunds- son - Minningarorð Fæddur 29. mars 1930 Dáinn 25. desember 1985 Aðfaranótt jóladags 25. desem- ber lést á heimili sínu, Kirkjuvegi 84, Vestmannaeyjum, mágur minn, Einar Guðmundsson. Á skammri stundu breytist ljóssins hátíð í myrkva daga. Eiginkona og börn standa eftir með brostið hjarta, en í gegnum móðu dapur- legra stunda ljómar endurminning um góðan eiginmann og föður sem unni börnum sínum heitt. Einar fæddist 29. mars 1930 í Reykjavík, sonur þeirra Halldóru Þorsteinsdóttur og Guðmundar Jóhannssonar, fyrrv. skipstjóra, sem fluttist síðar til Bandaríkjana og átti þar heima æ síðan, en kærleikur var samt ætíð mikill með þeim feðgum. Einari var komið í fóstur hjá föðurömmu sinni, Þuríði Sigmundsdóttur, Njálsgötu 55, Rvík, yndislegri konu, og ólst hann þar upp. Móðir hans giftist síðar Jónmundi Gísla- syni, skipstjóra, og eignaðist með honum fjögur börn, og var alltaf gott samband á milli þeirra. Ungur að árum ákveður Einar að helga sjómennskunni ævistarf sitt. 1953 lýkur hann námi í Stýri- mannaskólanum. Og hafði þá stundað sjómennsku frá 15 ára aldri. Togaralífið heillaði þá dug- lega og hrausta menn. Og var Einar síðan með landsþekktum skipstjórum flotans sem allir lof- uðu dugnað hans, æðruleysi og verkþekkingu. Árið 1954 kvæntist hann eftirlif- andi eiginkonu sinni, Valdísi Vikt- oríu Pálsdóttur frá Héðinshöfða í Vestmannaeyjum. Eignuðust þau saman 9 börn og eru átta þeirra á lífi. Elstur er Páll sem kvæntur er Sólveigu Bogadóttur og eiga þau saman þrjú börn, næstur er Guð- ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningar- greinar verða að berast blað- inu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marg- gefnu tilefni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morg- unblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. LEGUKOPAR Legukopar og fóöringar- efni í hólkum og heilum stöngum. Vestur-þýzkt úrvals efni. Atlas hf Borgartúni 24 — Sími 26755. Pósthólf 493, Reykjavík. mundur, kvæntur Hafdísi Ólafs- dóttur og eiga þau eitt barn. Þeir Jónmundur, Einar Valur og Logi búa með unnustum sínum. Öll þau ofangreindu eru búsett á Reykja- víkursvæðinu, en þau þrjú yngstu, Bára Þuríður, Kristín Snjólaug og Tómas, eru í foreldrahúsum. Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu þau hjón í Vestmannaeyjum og eru fjögur elstu börn þeirra fædd þar. Ymist starfaði Einar þar sem skip- stjóri eða stýrimaður á fiskiskip- um. Um 1960 flyst fjölskyldan til Reykjavíkur og átti síðan heima þar eða í Kópavogi allt þar til þau flytjast búferlum til Eyja á sl. sumri í júlímánuði, þá var Einar búinn að starfa á togaranum Berg- ey frá Vestmannaeyjum í tvö ár. Árið 1975 verða þau hjón fyrir miklu áfalli er ungur sonur þeirra, Halldór Þór, ferst af slysförum, aðeins sextán ára gamall, öllum harmdauði. Skömmu eftir að fjöl- skyldan er búin að koma sér fyrir í nýjum heimkynnum missir Einar heilsuna, hættir hann þá sjó- mennsku og fer að starfa í fiski- matsstöðinni. Þar fékk hann starf við sitt hæfi sem hentaði honum, og líkaði honum vel, hann ávann sér traust og virðingu og mat það af einlægni sem vel var gert í þágu hans. Einn af ríkustu eðlisþáttum Einars var hin látlausa kímni, og áhrifarík sem fékk nærstædda til að hlæja, jafnvel þeir sem bæla allt innra með sér slökuðu á þönd- um strengjum. Einar var mikill vexti og að vallarsýn og samsvar- aði sér vel. En lífið er hverfult, bergmál hins liðna mun óma í eyrum þeirra sem þekktu hann. Við leiðarlok vilja móðir mín og systkini þakka honum fyrir samveruna, og biðjum við góða að styrkja ástvini hans í sorginni, sem mur.u varðveita minningu hans. Ég vil þakka Ein- ari fyrir skemmtileg viðkynni og blessuð sé minning hans. Kristinn V. Pálsson Þó Einar Guðmundsson félli frá langt um aldur fram, var framlag hans til þjóðarbúsins verðmætara en margra, sem eldri verða, því enn og um ókomna framtíð er það þessi fámenni hópur sjómanna, sem eru stoðirnar undir þjóðarbúskap okkar. Hann gerði sjómennsku að ævistarfi sínu, tók ungur hið meira fiskimannapróf frá Sjómannaskól- anum í Reykjavík, og var í áratugi stýrimaður á togurum og bátum. Eina vertíð var hann skipstjóri á báti frá Vestmannaeyjum, en þar bjó hann í nokkur ár ásamt konu sinni, Valdísi Pálsdóttur. Þrátt fyrir að Reykjavík væri hans fæðingar- og uppáhaldsstað- ur, voru þau hjón fyrir nokkru flutt aftur til Eyja, þar sem hann var fram undir það síðasta i skips- rúmi hjá Sverri Gunnlaugssyni skipstjóra á togaranum Bergey, og mun ákvörðunin um flutning til Eyja hafa byggst á því hve vel honum líkaði þar um borð. Á undanförnum fimm árum var þrívegis búið að flytja hann á sjúkrahús í Reykjavík vegna hjartaáfalla og voru læknar búnir að banna honum að vinna erfiðis- vinnu. Þessi stóri og glæsilegi maður, sem í áratugi hafði axlað sinn poka og haldið til skips, lét ekki „feilpúst" í hjartanu stöðva sig á leið, sem hann hafði ungur hafið. Til þess varð það að stoppa alveg. Það gerðist síðastliðna jóla- nótt. Ég ætlast ekki til þess að fólk sem ekki hefur starfað á sjó, hugsi um eða skilji hve vel menn þurfa að vera gerðir til líkama og sálar til þess að gera sjómennsku að ævistarfi sínu. Við, þessir flæk- ingssjómenn, sem förum einn og einn túr, eða tökum eina vertíð og hlaupum svo í land þegar okkur líst ekki á blikuna, fáum smá innsýn í líf þeirra. Einar var afbragðs sjómaður, sem orð fór af, en einn þáttur í skapgerð hans bar af öllum öðr.um. Það var léttlyndi hans og kímni- gáfa, sem var svo mögnuð að ég hefi engan slíkan hitt. Ég hafði alltaf á tilfinningunni þegar ég hlustaði á hann, að þjóðin hefði misst til hafs mann, sem hefði getað ritað gamansögur af meiri kúnst en flestir aðrir. Eiginkonu hans, glæsilegum barnahópi þeirra og systkinum hans votta ég samúð mína, jafn- framt því sem ég óska þeim til hamingju með að hafa átt leið með slíkum afbragðsmanni. Heiðar Marteinsson miUjónamærínsiir í hverri viku? -ekkert vesen og allt borgað út Hefur þú hugleitt hvað það er þægilegt, áhyggjulaust - og spennandi að taka þátt I getraunum? Hér eru nokkur atriði til umhugsunar: - Potturinn hefur stækkað og stækkað í allan vetur og því er ekki óraunhæft að ætla að getraunir útskrifi einn milljónamæring á viku. - Þú getur tekið þátt i getraunum þegar þig lystir og þú þarft ekki að hafa vit á knattspyrnu fyrir fimmaura. - Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að sjá miðanúmerið þitt á vinningaskrá ( blöðunum og hafa gleymt að endurnýja. - Getraunir borga allt út og halda engu eftir. - Við þurfum varla að nefna að getraunir eru skemmtilegur leikur. - Þú átt möguleika á að komast í millahópinn okkar í vetur. getraunír & —leikur fyrir alla! \ Tgplega 900 þúsund í getraunum: “CTI VlHHWGUK iVlaður er alsæll mei ^ rnk ■ 1 Al ^ siaerstivinninguríGetraunumí í Oetraunum Pjonninn ».-—£5; ** '0,1 ______________________ ■S'ííl I „Ekfri pnn allt“ staarsti Sá stærsti til þessa KIDUR GrtjofcMí* klut fc-»U I Lteudm— feirmMM. «■ fce>»- i„. fcu» Uut 893 fcé»d fyrir eifce rflfc —efc 12 «f 14 mefceflefa réttmm. Potturinn var vel yfir eina milljón a» þeaau ainni. Eiður hefur iAur unni» l getraunum __„uM; ,in, mikiö off aö þessu o,. u-. ' get- rétta í Getraunum: _■■■■ flT k Bi in tæpamíiiion- narkiö er 2 miHjónir SSssS^a \ íiinninn o ifilm

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.