Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
Frönsk fegurð
AP/Símamynd
Frakkar hafa að undanförnu verið að velja fegurstu konurnar í hverju héraði landsins og nýlendunum
að auki og nú rétt fyrir áramót voru þær eftir 40, sem þóttu bera af öðrum. Kom þessi blómi frönsku
kvenþjóðarinnar saman í Lido í París 25. desember sl. en tveimur dögum síðar átti að fást úr því skorið
hver yrði kjörin ungfrú Frakkland árið 1986.
Mikil slys á Ítalíu um áramótin:
460 manns á sjúkra-
húsum vegna bruna-
sára af völdum flugelda
Tórínó, 2. janúar. Frá fréttarilara Morgunblaðsins, Brynju Tomer.
JÓL og áramót á Ítalíu voru með sorglegasta móti í þetta sinn, en sem
kunnugt er af fréttum hefur óáran herjað á landið undanfarið. Fjöldi manns
hefur látið lífið í slv.sum og árásum og enn fleiri hafa eytt hátíðunum slasað-
ir á sjúkrahúsum, aö ekki sé talaö um fjölskyldurnar í Napolí, alls um 2.000
manns, sem þurftu að flýja heimili sín þremur dögum fyrir jól, er bcnsín-
tankar þar sprungu.
Fórst Glenn Miller yfír Erma-
sundi vegna sprengingar?
London, 2. janúar. AP.
ORRUSTUFLUGMAÐUR úr seinni heimsstyrjöldinni hefur haldið því fram
að flugvél meö hljómsveitarstjórann Glenn Miller innanborðs hafi orðið
fyrir sprengju sem varpað úr breski flugvél. Hvarf Glenns Miller hefur
valdiö miklum heilabrotum gegnum árin.
Talsmenn konunglega breska
flughersins eru aftur á móti ekki
sannfærðir um að vitnisburður
flugmannsins standist.
Glenn Miller, sem átti drjúgan
þátt í að hefja „big-bandið“ til
Veður
víða um heim
Laogst Hæst
Akureyri -6 hálfsk.
Amsterdam vantar
Aþena 12 15 heiöskfrt
Barcelona 16 léttskýjaö
Berlín +9 +3 skýjaö
Brussel 3 8 skýjaö
Chicago ■f12 0 skýjaö
Oublin 4 8 rigning
Feneyjar 2 rigning
Frankfurt 3 skýjaö
Genf +5 1 heiöskírt
Helsinki +12 +6 skýjaö
HongKong 10 16 skýjaö
Jerúsalem 11 20 skýjaö
Kaupmannah. +1 0 snjókoma
Las Palmas vantar
Lissabon 12 17 rigning
London 2 8 rigning
Los Angeles 13 20 skýjaö
Lúxemborg 2 skúrir
Malaga 17 skýjaö
Mallorca 17 skýjaö
Miami 20 26 skýjaö
Montreal vantar
Moskva +10 +6 skýjaó
New York 1 5 skýjaö
Osló +8 +7 skýjaó
París 0 8 skýjaö
Peking +8 0 skýjaö
Reykjavík +2 skýjaö
Ríó de Janeiro 20 32 skýjaö
Rómaborg 7 +6 skýjaó
Stokkhólmur +12 +6 skýjaó
Sydney vantar
Tókýó 5 10 skýjaö
Vínarborg +7 +4 skýjaö
Þórshöfn +2 skýjaö
vegs og virðingar á fimmta ára-
tugnum, var á hátindi ferils síns
þegar hann skráði sig í herinn. 15.
desember 1944 lagði hann upp frá
Englandi í lítilli flugvél og var
förinni heitið til Frakklands að
skemmta hermönnum með hljóm-
leikum. Flugvélin komst aldrei til
Frakklands og fannst hvorki tang-
ur né tetur af Miller, hinum far-
þega vélarinnar, flugmanninum og
flugvélinni.
Aðdáendur Glenns Miller hafa æ
síðan reynt að svipta hulunni af
hinu leyndardómsfulla hvarfi tón-
• listarmannsins - með litlum ár-
angri.
Alan Ross, félagi í samtökum
aðdáenda Glenns Millers, segist
hafa vitað af kenningu um að flug-
vél Millers hefði orðið fyrir
sprengjum flugvéla breska flug-
hersins yfir Ermasundi vegna
vitnisburðar Fred H. Shaw, sigl-
ingafræðings um borð í Lancaster
sprengjuflugvél, sem nú býr í Jó-
hannesarborg í Suður-Afríku.
Shaw sá kvikmyndina „The
Glenn Miller Story", sem gerð var
á sjötta áratugnum, og þegar hann
skoðaði siglingabók sína komst
hann að því að flugvél Millers
hafði horfið sama dag og
sprengjufluvélafylking sín .hefði
varpað út sprengjum yfir Erma-
sundi til að létta á sér,“ segir Ross.
Shaw skrifaði breska varnarmála-
ráðuneytinu, en kenningu hans var
hafnað.
Ross hafði upp á Victor Gregory,
flugmanni vélarinnar, sem Shaw
flaug með, og staðfestir hann vitn-
isburð Shaws.
Gregory segir að daginn, sem
Miller hvarf, hafi áhafnarmeðlim-
ir sínir greint frá því að lítil flug-
vél hafi steypst í sjóinn þegar
sprengja sprakk skammt frá
henni. Sprengjunum var varpað
fyrir borð yfir Ermasundi til að
auka flugþol vélanna eftir að
sprengjuárás á Þýskaland hafði
verið aflýst.
Gregory kvað einn meðlim
áhafnar sinnar hafa sagt að um
sams konar flugvél hefði verið aö
ræða og Miller flaug með.
„Þetta eru staðreyndir málsins,"
segir Gregory. „Flugherinn stað-
festir að Miller fór í loftið og flaug
um þar, sem við vörpuðum
sprengjunum fyrir borð til að létta
á okkur, á svipuðum tíma og okkur
bar að. Þetta var eina flugvél
þessarar tegundar, sem hvarf
þennan dag og að minni hyggju
þarf ekki frekari vitna við.“
Ónafngreindur starfsmaður
breska flughersins segir að þessar
nýju yfirlýsingar séu haldlitlar og
frekari sannanir þurfi til að gera
kenninguna trúlega. „Eins og mál-
um er nú komið er engin ástæða
til að breyta hinni opinberu skýr-
ingu á því að Miller fórst: Að flug-
vél hans hafi horfið yfir Erma-
sundi í slæmu veðri,“ segir starfs-
maður flughersins.
Fjórir arabískir skæruliðar
gerðu sem kunnugt er árás á flug-
völlinn í Róm með þeim afleiðing-
um að 16 manns hafa látið lífið
og 45 eru slasaðir. Árásin hefur
valdið mikilli reiði um alla Evrópu
og hyggja ítalir nú á nána sam-
vinnu við aðrar Evrópuþjóðir um
kröftugar varnir gegn hryöjuverk-
um og til umræðu er að herða til
muna útlendingaeftirlit í landinu.
Hvað hert útlendingaeftirlit varð-
ar, þurfa ítalir þó að fara varlega
í sakirnar, þar sem milljónir ferða-
manna koma til landsins á ári
hverju og fjöldi héraða byggir
afkomu sína á þeim. Öryggi á flug-
völlum og járnbrautarstöðvum
hefur verið mjög til umræðu og
lögðu starfsmenn flugvallarins í
Róm niður vinnu í morgun, til að
vekja athygli á nauðsyn aukinnar
öryggisgæslu.
460 manns leituðu aðstoðar á
slysavarðstofum og sjúkrahúsum
vegna brunasára af völdum flug-
elda. Einn maður lét lífið, en stórir
flugeldar og svonefndir kínverjar
eru lögum samkvæmt bannaðir á
Ítalíu og fyrir áramót voru þrír
menn handteknir í Róm og 500
kíló af sprengiefni og stórum flug-
eldum sem fundust í íbúð þeirra
gerð upptæk.
Fimm manns hafa nú látið lífið
í kjölfar sprenginga í Napolí er
bensíntankar í austurhluta borg-
arinnar sprungu í loft upp 21.
desember síðastliðinn. 170 manns
særðust, þar af sumir alvarlega,
en flestir slösuðust lítilsháttar á
höndum og fótum. Gífurlegan reyk
lagði yfir borgina og tæplega 2.000
manns, sem búa í nágrenni tank-
anna, urðu að flýja heimili sín, þar
sem ekki reyndist unnt að stöðva
eldinn sem kviknaði auk þess sem
hætta var á frekari sprengingum.
Meginhluta fólksins var komið
fyrir í tveimur farþegaskipum sem
voru í höfn er sprengingarnar áttu
Líbanon:
Gemayel og Assad
ræða vopnahléið
Damaskus, Sýrlandi, 2. janúar. AP.
FORSETI Líbanon, Amin
Gemayel, er nú í Sýrlandi til
viðræðna við Assad forseta Sýr-
lands um aðferðir til þess að
reyna að halda uppi því vopna-
hléi sem gert hefur verið milli
kristinna og múhameðstrúar-
manna í Líbanon. Vopnahléið
var gert fyrir tilverknað Sýrlend-
inga, en átök hafa sífellt öðru
hvoru brotist út.
Því hefur verið haldið fram af
talsmanni forseta Líbanons, að
forsetanum, sem er kristinn,
hafi verið gerð fyrirsát af
kristnum mönnum á strand-
þjóðveginum norðan við Beirút.
Atta af lífvörðum forsetans létu
lífið í árásinni, sem gerð var
með handsprengjum og byssum.
Opinberar heimildir herma
að Sýrlendingar vilji fá stuðn-
ing Gemayels við vopnahléið,
sem var samið um fyrir þremur
vikum af forustumönnum
þriggja stærstu herfylkinganna
í Líbanon. Samþykki Gemeyels
er nauðsynlegt vegna þess að
fyrr getur samkomulag um nýja
samsteypustjórn ekki tekið
gildi. Gert er ráð fyrir að sú
samsteypustjórn hafi eitt ár til
þess að enda borgarastyrjöld-
ina, afvopna alla herflokka og
láta múhameðstrúarmönnum í
té völd til jafns við kristna
menn.
Forsetinn hefur að undan-
förnu í auknum mæli verið
gagnrýndur af kristnum mönn-
um. Lögregla segir að að
minnsta kosti 14 hafi fallið og
40 særst í átökum milli krist-
inna hópa um nýárið. Endur-
spegla þau átök valdabaráttuna
innan raða kristinna manna.
Vopnahléið undirritaði fyrir
hönd kristinna manna, Elie
Hobeika, sem er fyrir meginher
kristinna manna, en hann hefur
í stöðugt auknum mæli reynt
að einangra Gemayel innan
kristna samfélagsins.
sér stað og í fjölmiðlum var greint
frá og rætt við mannmargar fjöl-
skyldur sem eyddu jólum og ára-
mótum í eins til tveggja manna
káetum. Alls hafa nú brunnið upp
25 tonn af eldsneyti og nemur tjón-
ið af völdum sprenginganna tugum
milljóna líra.
Skömmu fyrir miðnætti á Þor-
láksmessu rákust saman farþega-
lest og vöruflutningalest skammt
frá borginni Ferrara með þeim
afleiðingum að tíu manns létu lífið
og 11 slösuðust. Lestarstjóri far-
þegalestarinnar fullyrðir að hafa
haft „grænt ljós“, merki um að
engin lest væri framundan, og ók
því á 100 kílómetra hraða á kyrr-
stæða vöruflutningalest. Orsakir
slyssins eru ekki ennþá kunnar og
deilt er um hvort mistökin hafi
verið tæknilegs eðlis eða af
mannavöldum. Þess má geta að
sjálfvirkur ljósabúnaður með
rauðum og grænum ljósum stjórn-
ar umferð um 10 þúsund lesta um
alla Italíu á hverjum degi.
Þá er þess enn ógetið að eld-
fjallið Etna á Sikiley vaknaði til
lífsins að nýju á jólanótt. í kjölfar-
ið fylgdu kraftmiklir jarðskjálftar
sem ollu því að nokkur hús og þar
með talið eitt hótel hrundu til
grunna. Rauði krossinn og björg-
unarsveitir frá hernum komu upp
tjöldum fyrir fjölda manns sem
flúðu hús sín vegna jarðskjálfta-
hættunnar. Einn maður lét lífið í
jarðskjálftunum og 13 slösuðust.
Mesta hættan mun nú liðin hjá,
en fólki sem býr á hættusvæðinu
hefur enn ekki verið leyft að flytj-
ast afturíhússín.
Mikill fjöldi ítala heldur jól og
áramót hátíðleg í Alpafjöllum og
létu þrír menn lífið á skíðum í gær
er þeir renndu sér utan almennra
skíðabrauta. Þá létust fjögur ung-
menni nálægt borginni Ferracina
í bílslysi aðfaranótt nýársdags er
þau héldu heim á leið að loknu
nýárssamkvæmi.
ERLENT
Gengi
gjaldmiðla
London, 2. janúar. AP.
BANDARIKJADOLLAR lækkaði í
dag í gengi gagnvart ýmsum helztu
gjaldmiölum heims. I London fór
hann niöur fyrir 200 japönsk jen, en
þaö hefur ekki gerzt síðan 1979.
Talið er, að bollaleggingar um lægri
vexti í Bandaríkjunum hafi ráðið
mestu um lægra gengi dollarans.
Dollarinn lækkaði gagnvart
brezka pundinu, sem kostaði
1,44885 dollara síðdegis í dag
(1,4460). Gengi dollarans var að
öðru leyti þannig, að fyrir hann
fengust 2,43775 vestur-þýzk mörk
(2,4450), 2,0520 svissneskir frankar
(2,0605), 7,4850 franskir frankar
(7,5055), 2,7565 hollenzk gyllini
(óbreytt), 1.669,50 ítalskar lírur
(1.670,50), 1,40065 kanadískir doll-
arar (1,39725) og 199,10 jen
(200,60).
Gullverð hækkaði aðeins og
kostaði það 327,25 dollara únsan
(326,75).