Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986 9 Innilegar þakkirfyrir auðsýnda vináttu á 80 ára afmæli mínu. Bestu nýárskveðjur. Martha Þorkelsson. Hugheilar þakkir flyt ég öllum þeim, sem heiðruðu mig með heimsóknum, kveðjum og gjöfum á 85 ára afmæli mínu þann 11. desem- ber sl. Sérstaklega þakka ég starfsfólkinu á Kumbaravogi fyrir þeirra þátt í að gera mér daginn ógleymanlegan. Kristjana Steinþórsdóttir. Álfabrenna veröur á Víöivöllum, laugardaginn 4. janúar kl. 16.00. Álfakóngur, álfadrottning, grýla og leppa- lúöi ásamt föruneyti mæta á hestum. Kaffiveitingar í félagsheimilinu. Allir velkomnir. Áramótaskemmtun veröur í félagsheimilinu Víöivöllum, laugardaginn 4. janúar og hefst meö myndasýningu frá FM ’85. Áramótaglaðningur fyrir þá sem mæta fyrir kl. 22.00. Miöar seldir á skrifstofunni. Símar 82355 — 672166. Hestamannafélagið Fákur. Utsala - Utsala Útsala er hafin á eftirtöldu: Vetrarkápum, úlpum, loöfóöruðum meö hettu, drögt- um og unglingaúlpum. Verö pr. stykki er 2.000 kr. Áöur 3.200—4.200. Dalakofinn, Linnetstíg 1, sími: 54295. Eigendur og vélstjórar Caterpillar bátavéla Látiöskrá ykkur strax í dag ánámskeiö8. —10. janúar 1986. CATERPILLAR SALA S ÉUÚNUSTA Caterpillar, Cat ogCBeru skrásett vörumerki HEKIA HF Laugavegi 170-172 Sími 21240 i ■ ii 111 ■■■■■■—■»«■ 11 .. .. ÞJOÐVILJINN Spennandi ár í vændum Baráttan fyrir efnalegu frelsi og sjálfstæði mikilvægust 1986 Forystugreinar um áramót Staksteinar glugga á nýju ári í síðustu forystugreinar dag- blaðanna á því liðna. Þar kennir margra grasa og horft er um öxl og fram á veg frá ýmsum sjónarhólum. Frelsið og virð- ingin fyrir landinu Alþýðublaðið segir m.a. í áramótalciðara: „Einn kunnasti stjórn- málamaður þjóðarinnar orðaði þetta á skýran og greinargóðan hátt, þegar hann sagði: „Viðieitni til friöar er, eins og sóknin til frelsisins, ekkert einkamál stórveldanna, heldur skylda, sem hvflir ekki síður á hinum fámennustu en hinum mannflcstu. Þeir, sem unna frelsinu, verða að rnuna, að form- legt frelsi er ekki nóg. l*eim ber aö hjálpast að til að gera hvcrjum og einum mögulegt að njóta lífsins og frelsisins og leita ham- ingjunnar eftir vild innan ramma laganna." „Hluti af þessari frelsis- boðun er trúin á landiö, sem við byggjum, virðingin fyrir því og ræktarsemi. Ef þjóðin slitnar úr tegslum við land sitt er voðinn vís... Skortur á samstöðu og samvinnu kallar á ýmsar öfgakenningar, og veitir þcim brautargengi. l»ær ógna síðan frelsi og lýð- ræði. l»að er nákvæmlega sama hvað það afl nefnist, sem stuðlar að virðingu manns fyrir manni, sem stuðlar að skilningi og virðingu á starfl hvers og eins, og sem stuðlar að virðingu fyrir landinu og góðri meðferð þess. I»að afl, sem lengst gengur á þeirri braut, lilýtur að njóta stuðnings allra hugs- andi manna. Frelsiö, lýðræðiö, menn- ingin og viröingin fyrir landinu er sú kjölfesta af veraldlegum toga, sem þjóðin á bezta á erflð- leikatímum...“ NT verður Tíminn í síðustu forystugrein NT segir m.a.: „Með nýja árinu hitt- umst við á ný í Tímanum. Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík hafa bundist samtökum um útgáfu á nýju blaði með þessu gamla og góða nafni. Ljóst er, að nauðsynlegt verður að rifa seglin lítillega án þess að það komi niður á þeirri þjónustu sem blað- inu er ætlað aö veita les- endum sínum ... Barátta á blaðamarkaði er hörð. Blöð miðju og vinstri flokka hafa átt við mikla rekstrarörðugleika að stríða undanfarin ár. Þess vegna eru bundnar miklar vonir viö þær um- ræður, sem hafnar eru um aukiö samstarf og sam- vinnu blaöanna þriggja, Alþýöublaðsins, Þjóðvilj- ans og Tímans. Slíka sam- vinnu má auka verulega og einnig hefur komið til tals að þeir aðilar, sem standa að þessum blöðum þrcm og nokkrir fleiri, mynduðu félag um víð- tækan rekstur á sviði fjöl- miðlunar. Hver niðurstaöa þeirra viðræðna verður mun koma í Ijós á næstu vikum.“ „Spennandi ár í vændum“ Þjóðviljinn sagði m.a.: „Arið 1985 var að mörgu leyti undarlegt ár, fullt af mótsögnum en þó þingið þeirri spennu sem er und- anfari nýrra tíma og verð- ur aldrei skýrð með orðum heldur skynjuð og upplif- uð, numin úr hljóði vinds- ins og viðmóti fólksins. Það er hoggið að rótum margra hinna skorðuðu og mótuöu stofnana þjóöfé- lagsins, sem samanlagt mynda hiö flókna gang- virki þjóðfélagsins og hafa þá nátturu að viðhalda stirnðuöu kerfl löngu eftir að fólkið vill breyting- ar...“ Síðan fjallar blaðið um „bylgju hrokafullrar hægri stefnu" og viðnám vinstri hreyfíngar, sem ekki hafí verið sem skyldi. „]>etta hefur leitt til þess“, segir blaðið, “að mjög margir, einkum á meöal hinna yngri, hafa sett spurningarmerki viö gildi verkalýðshreyflngar og vinstri stefnu... Margt bendir til þess að sinnu- leysið sem hefur legið i landi hjá yngri kynslóó- inni, um mannhyggju og samúð með þeim sem minna mega, sé á undan- haldi, og þá gildir að reka flóttann á réttan hátt... Það er vísir að endur- reisn í loftinu. Stórtækar umbreytingar í atvinnulífl, frjómagn meira en áður í listum og menningu, og þegar saman fara bæði þessi atriði er Ijóst að já- kvæð umbrot eru í aðsigi. Þess vegna lítum við með tilhlökkun til ársins 1986.“ Flokkar stjóm- arandstöðunnar DV segir m.a. í áramóta- leiðaræ „Skoðanakannanir bentu fram eftir árinu tfl þess, aö formannsskipti í Alþýðuflokknum hefðu hresst mikið upp á fylgi flokksins. Alþýðuflokkur- inn hafði áður veriö deyj- andi flokkur. Valdataka Jóns Baldvins Hannibals- sonar breytti miklu. Þó var síðla árs sýnt, að fylgis- aukning Alþýðuflokksins yrði minni en fyrstu kann- anir höfðu geflð til kynna. Skoðanakönnun DV á miðju sumri benti til þess, aö Alþýöuflokkurinn hefði misst forskot sitt yfir Framsókn og Alþýðu- bandalag. l»essir þrír flokkar eru á svipuöu róli. Klofningur var mikill í Alþýðubandalaginu og Bandalagi jafnaöarmanna. Nokkuð dró úr sundrungu Alþýðubandalagsins á landsfundi í haust Stríð- andi fylkingar sættust í bili. Nýr varaformaður var kjörinn. Líklegt er, að ágreiningurinn blossi upp á nýju ári. Alþýöubanda- laginu hefur mistekizt margt að undanfórnu, þótt hagur flokksins hefði átt að vænkast við kjaraskerö- ingar. Bandalag jafnaðar- mann er nærri útdautL Aðeins traust cndurskoðun getur bjargað þeim flokki. Sem stendur eru ekki lík- ur til þess, að flokkurinn hressisL" Háþrýstislöngur og tengí. Atlas hf Borgartún 24, símí 26755. Pósthólf 493 — Reykjavík. SKÁK SK0LMN Ný námskeiö hef jast 7. janúar Sex vikna námskeiö fyrir alla aldurshópa. Byrjendaflokkur Framhaldsflokkur I Framhaldsflokkurll Framhaldsflokkur III Börn og unglingar vikulega kl. 17—19. Úrvalsflokkur áfimmtudögum. Þátttökugjald kr. 1.800. Námskeið fyrir fullorðna Eitt kvöld í viku, kl. 20—23. Ef þú ert ein(n) af þeim sem yndi hefur af skák en þekkir lítið til skákbyrjana og gleymir stundum grundvallaratriöunum, þá er þetta námskeið fyrir þig. Þátttökugjald kr. 2.500. Einnig framhaldsnámskeiö fyrir fulloröna. Innritun í Skákskólanum, Laugavegi 51,3. hæö laug- ardag og sunnudag kl. 14—19. Allar frekari upplýs- ingar í dag kl. 17—19 og næstu daga í síma 25550. Munið 10% klúbbfélaga- og systkinaafsláttinn. SKÁKSKÓLMN Laugavegi 51 -simi 25550 Guðmundur Sigurjónsson, Helgi Ólafsson Jón L. Arnason, Margeir Pétursson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.