Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 55
Þrír nýliðar í A-liðinu
ÞRÍR nýliðar eru í A-liði íslands í
körfuknattleik sem leikur í fjög-
urra liða mótinu sem hefst í Kefla-
vík í kvöld. Þetta eru þeir Leifur
Gústafsson, Val, Ragnar Torfa-
son, ÍR, og Matthías Matthíasson,
sem leikur með öandarísku fé-
lagsliði. Fyrsti leikur keppninnar
verður viðureign A-liðs íslands
og B-liðs og hefst leikurinn kl.
19.00 í íþróttahúsinu í Keflavík.
A-landsliðið er skipaö eftirtöld-
um leikmönnum:
Bakverðir: Páll Kolbeinsson,
KR, Pálmar Sigurösson, Haukum
og Jón Kr. Gíslason, ÍBK.
Miðverðir: Matthías Matthías-
son, St. Paul Univ., Þorvaldur
Geirsson, Fram, og Ragnar Torfa-
son, ÍR.
Framherjar: Valur Ingimundar-
son, UMFN, Torfi Magnússon, Val,
sem jafnframt er fyrirliöi, Hreinn
Þorkelsson, ÍBK, og Leifur Gú-
stafsson, Val.
Auk beggja íslensku liöanna
taka þátt í þessu móti Danir og
háskólaliöiö Luther Coll.
Luther Coll. lék æfingaleik viö
Njarðvík á mánudagskvöld og sigr-
aöi Njarövík í þeim leik, 63-61.
Fresta varö leiknum í rúmlega
klukkustund vegna rafmagnsleys-
is. Bandaríska liöiö haföi forystu í
hálfleik, 26-31. Njarövíkingar unnu
svo þennan mun upp í seinni hálf-
leik og gott betur og sigruöu meö
tveggja stiga mun. Valur Ingi-
mundarson var stigahæstur Njarö-
víkinga, skoraöi 21 stig. Banda-
ríska liöiö var frekar slakt.
Fyrsti leikurinn í þessari fjögurra
landa keppni fer fram í Keflavík í
kvöld. KKÍ er meö nýtt fyrirkomu-
lag á aögöngumiöum. Nú er hægt
aö fá eins konar mótapakka, þeir
sem kaupa sig inn á tvo leiki fá
frítt á þann þriðja.
Leikirnir veröa eins og hér segir:
Föstudagur 3. janúar í Keflavík:
Kl. 19:00. island A-liö - ísland B-liö
Kl. 21:00. Luther Coll. - Danmörk
Laugardagur 4. janúar í Njarðvík:
Kl. 14:00. island B - Luther Coll.
Kl. 16:00. island A - Danmörk
Sunnudagur 5. janúar í Keflavík:
Kl. 14.00. ísland A - Luther Coll.
Kl. 16:00. ísland B - Danmörk
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
Annar sigur Petrovic
- Girardelli efstur í heimsbikarnum
HINN ungi og efnilegi skíðamaður
frá Júgóslavíu, Rok Petrovic, sigr-
aði í sinni annarri svigkeppni
heimsbikarsins á þessu keppnis-
tímabili, í heimalandi sínu 21.
desember. Svigbrautin var mjög
erfið og voru aðeins 18 af 84
keppendum sem komust í mark.
Þeir sem féllu úr keppni voru
m.a. þeir Marc Girardelli frá Lúx-
emborg, sem nú er efstur í stiga-
keppni heimsbikarsins og Ingemar
Stenmark, sem var í sjötta sæti
eftir fyrri ferö, en keyrði full djarft
í seinni ferðinni og féll úr keppni.
Rok Petrovic haföi besta braut-
artímann í báöum umferðum og
var mikiö hvattur af 30.000 áhorf-
• Rok Petrovic vann sinn annan sigur í heimsbikarnum rétt fyrír jólin.
endum, sem komu til aö horfa á
þennan unga og efnilega sktöa-
mann. Keppnin fór fram í Kranjska
Gora, sem er heimabær Petrovic
og kunni hann því vel viö sig á
heimaslóðum.
Svíinn Jonas Nilsson varö annar
tæpri sekúndu á eftir Petrovic.
Nilsson er nú efstur aö stigum í
svigkeppninni og í fimmta sæti
samanlagt.
Úrslit uröu sem hér segir í svig-
keppninni:
Rok Petrovic, Júgóslavíu, 1:44.83 mín.
Jonas Nilsson, Svíþjóð, 1:45.63
Thomas Stangassinger, Austurríki, 1:46.92
Richard Pramotton, Ítalíu, 1:47.63
Paul Frommelt, Liechtenstein, 1:47.90
Max Julen, Sviss, 1:48.30
Klaus Heidegger, Austurríki, 1:48.32
Tiger Shaw, Bandaríkjunum, 1:48.38
Didier Bouvet, Frakklandi, 1:48.50
Lars Gjoran Halvarsson, Svíþjóð, 1:48.55
Keppt var í bruni karla í Schlad-
ming í Austurríki á gamlársdag.
Þar sigraði brunkappinn, Peter
Wirnsberger. Þetta var jafnframt
hans annar sigur í bruni í vetur.
Annar í bruninu á gamlársdag
var Peter Muller frá Sviss, tæplega
sekúndu á eftir Wirnsberger. Erwin
Resch frá Austurríki varö þriöji og
Michael Mair frá ítalíu fjóröi. i
fimmta sæti var svo heimsbikar-
hafinn, Marc Girardelli frá Luxem-
borg og er hann nú efstur í stiga-
keppninni.
Staðan f f karlaflokki ar nú þasai:
Marc Girardelli, Luxemburg, 92 atig
Peter MUIIer, Sviaa, 90
Peter Wirnaberger, Auaturriki, 90
Rok Petrovic, Júgóalavfu, 62
Jonas Nilaaon, Svíþjóó, 57
Bojan Krizaj, Júgóalaviu, 55
Karl Alpiger, Svlaa, 55
Robert Erlacher, ftalíu, 53
Hubert Strolz, Austurrikl, 46
Ingemar Stenmark, Sviþjóó, 44
Getrauna- spá MBL. C 3 Ol i > Q c e 'f 1 b. 9 ? Q ! 2 < 1 • 3 K Sunday Mirror Sunday People Sunday Express I | o 90 * i SundayTelegraph SAMTALS
1 X 2
Carlisle - QPR 2 2 2 2 2 2 X 2 X X 2 2 0 3 9
Coventry - Watford X 1 1 X 2 2 2 2 X 2 X X 2 5 5
Crystal Palace - Luton 2 X 2 X 2 X 2 2 0 X 0 0 0 4 5
Grimsby - Arsenal 2 2 2 2 1 2 1 2 X 2 2 2 2 1 9
Ipswich - Bradford 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 0 0
Liverpool - Norwich 1 1 1 1 1 1 1 1 0 1 0 0 9 0 0
Middlesbro - Southampton X 2 X 2 2 2 2 X 2 X X X 0 6 6
Millwall - Wimbledon 2 1 X 2 X 1 2 X 2 2 X 2 2 4 6
Nott'm Foreat - Blackburn 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 12 0 0
Oxford - Tottenham 2 2 2 X 2 X X 2 X X 2 X 0 6 6
Portamouth - Aaton Villa 1 X 1 1 1 1 1 1 1 1 X X 9 3 0
Shrewsbury - Chelsea 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 2 0 0 12
• Pálmar Sigurðsson, Haukum, verður í sviðsljósinu með landsliöinu
íkvöld.
Nýárssund fatlaðra
barna og unglinga
ÍÞRÓTTASAMBAND fatlaðra efnir
sunnudaginn 5. janúar nk. til hins
árlega Nýárssundmóts fatlaöra
barna og unglinga.
Mótiö fer fram í Sundhöll
Reykjavikur og hefst kl. 15.00. Rétt
til þátttöku eiga börn og unglingar
fædd 1968 og síðar, en keppt
veröur í flokkum blindra- og sjón-
skertra, þroskaheftra og hreyfi-
hamlaöra.
Keppt verður í eftirtöldum grein-
um: 50 m bringusundi, 50 m skriö-
sundi, 50 m baksundi og 50 m
flugsundi.
Foreldrar fatlaöra barna eru sér-
staklega boönir velkomnir, en sér-
stakur heiðursgestur mótsins
veröur borgarstjórinn i Reykjavík,
Davíö Oddsson, og mun hann í
mótslok afhenda sigurvegara
mótsins svonefndan Sjómannabik-
ar, sem er farandbikar gefinn af
Sigmari Ólasyni sjómanni á Reyö-
arfirði.
Týr sigraði
RÚDOLFSMÓTIÐ sem er óopin-
bert innanhússmót í innanhúss-
knattspyrnu í Vestmannaeyjum
fór fram á annan dag jóla.
Á þessu móti keppa eldri flokkar
Týs og Þórs fjóra leiki. Stigahærra
félagið telst sigurvegari, Týr bar
sigur úr býtum í ár, sigraöi í þremur
flokkum en Þór í einum. Úrslit
leikja uröu þessi: Meistaraflokkur:
Týr—Þór 8—2, 1. fl.: Týr—Þór
15—4, 2. fl.: Þór—Týr 6—4. Old
boys: Þór gaf. Keppt hefur verið
um Rúdolfsbikarinn frá þvi áriö
1976 og hefur Týr unnið mótiö öll
árin- — HKG.
Knattspyrnuþjalfarar
Ungmennafélagiö Leiknir Fáskrúösfiröi óskar aö
ráöa knattspyrnuþjálfara fyrir komandi keppnis-
tímabil.
Upplýsingar í síma 97—5363 og 97—5310.