Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986 Eldur í sinu við Áburðarverksmiðjuna: Framleiðsla á vetni stöðvuð í Kópavogi — eldur í sinu lýsir upp nágrennid á nýársnótt. orBun al „Mildi að ekki hlaust stórtjón af sinubruna“ Slökkvilið verksmiðjunnar slökkti eldinn, en ekki náðist samband við slökkviliðið í Reykjavík ELDUR komst í sinu á lóð Áburðar- verksmiðjunnar í Gufunesi á nýárs- nótt og tókst slökkviliði verksmiðj- unnar aö slökkva eldinn. Vetnis- framleiðsla var stöðvuð á meöan hættuástand stóð yfir. „Eldur fór hratt yfir undan Nýársnótt: Mikil ólæti við Laugar- dalshöll MIKLAR annir voru hjá lögregl- unni í Reykjavík um áramótin. Framan af gamlárskvöldi og fram á nótt höfðu lögreglumenn í nógu að snúast við að slökkva í sinu, sem kviknaði í, en síðla nætur rýmdu lögreglumenn Laugardalshöll að loknum dansleik þar. Arnþór Óskarsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn sagðist í samtali við Morgunblaðið telja það mikla mildi að enginn hefði slasast við Höllina. Sautján rúður voru brotn- ar og var fordyri Hallarinnar nán- ast eitt glerhaf. Fjöldi unglinga var fluttur í fangageymslur og þrír i slysadeild, en meiðsli þeirra reyndust smávægileg. Strætis- vagnar óku ungmennum til Hafn- arfjarðar, Kópavogs og í Reykjavík að loknum dansleik. „Ánægjulegt er að engin slys urðu á ungmenn- um við Höllina því múgsefjun var mikil, sagði Arnþór Óskarsson. austanáttinni og komst inn á lóð- ina og lagði mikinn reyk yfir. Okkur tókst að hefta útbreiðslu hans á skömmum tíma. Allt gekk þetta hratt fyrir sig og var afstaðið á 10 til 15 mínútum. Sprengihætta var ekki fyrir hendí, en við verðum að hafa í huga að við erum með eldfim efni hér og fuil þörf ýtrustu aðgæslu," sagði Runólfur Þórðar- son verksmiðjustjóri í samtali við Morgunblaðið. „Við reyndum árangurslaust að ná sambandi við slökkvilið, en lögregla kom á vettvang og aðstoð- aði við slökkvistarf. íbúar í næstu húsum komu og aðstoðuðu. Þetta leiðir hugann að því, að byggð og verksmiðjan fara ekki saman og við verðum að draga lærdóm af þessu atviki. Byggð í Grafarvogi hefur teygt sig í átt að verksmiðj- unni. Áður en hafist var handa um að byggja í Grafarvogi var næsta byggð í Kleppsholti - byggðin hef- ur sem sé færst nær. Verksmiðjan er staðreynd og gjalda verður varhug við skipulagningu byggðar í nágrenni verksmiðjunnar," sagði Runólfur Þórðarson. Hella: Grétar Hrafn Harðarson héraðsdýra- læknir Daginn eftir var jörðin svört og börnin týndu saman flugelda sem fall höfðu til jarðar og kveikt í kyrkingslegum gróðrinum. Höskuldur Jónsson skipaður for- stjóri ÁTVR Fjármálaráðherra hefur skipað Höskuld Jónsson ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins til að vera forstjóra Áfengis- og tóbaksverslun- ar ríkisins frá og með í. aprfl næst- komandi. Staða forstjóra ÁTVR var aug- lýst laus til umsóknar eftir lát Jóns Kjartanssonar forstjóra, með umsóknarfresti til 29. desember sl. Sex sóttu um stöðuna. Þrír óskuðu nafnleyndar, hinir eru auk Hös- kuldar: Geir R. Andersen auglýs- ingastjóri og Svava P. Bernhöft innkaupastjóri. Ragnar Jónsson fyrrverandi skrifstofustjóri ÁTVR er settur forstjóri stofnunarinnar Höskuldur Jónsson og verður það þar til Höskuldur tekur við 1. apríl. Höskuldur Jónsson fæddist 9. ágúst 1937. Hann lauk viðskipta- fræðiprófi frá Háskóla íslands 1963 og stundaði síðan framhalds- nám í þjóðfélagsfræðum frá Instit- ute of Social í Hollandi. Hann hefur verið starfsmaður fjármála- ráðuneytisins frá því 1. júní 1965, sem fulltrúi, deildarstjóri og skrif- stofustjóri og loks ráðuneytisstjóri frá 1. nóvember 1977. Landbúnaðarráðherra hefur skip- að Grétar Hrafn Harðarson dýra- lækni á Hellu í embætti héraðs- dýralæknis í Helluumdæmi frá 1. janúar. Umsækjendur voru sextán. Grétar Hrafn fæddist 22. des- ember 1953 í Reykjavík. Hann lauk dýralæknisprófi frá Edinborgar- háskóla 1978 og stundaði síðan tveggja ára framhaldsnám við sama skóla í fóðrun og efnaskipta- sjúkdómum mjólkurkúa. Hann starfaði sem dýralæknir í Hamps- hire á Suður-Englandi 1980-82 og frá 1982 hefur hann verið starfs- maður Holtabúsins hf. á Ásmund- arstöðum og Hellu auk þess sem hann hefur starfað sjálfstætt við dýralækningar í Rangárvallasýslu. Grétar Hrafn er giftur Sigurlínu Magnúsdóttur kennara og eiga þau tvö börn. Víða kviknaði í sinu út frá flugeldum og blysum. Miklar annir slökkviliðs og lögreglu SLÖKKVILIÐ, lögregla og almennir borgarar víða á höfuðborgarsvæðinu höfðu í nógu að snúast á gamlárs- kvöld og nýársnótt við að slökkva eld í sinu. Slökkviliðið hafði ekki undan að sinna útköllum, símaborð ofhitnaði og fjölmargir náðu ekki sambandi þegar reynt var að kalla á aðstoð. Þeirra á meðal voru starfs- menn áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi, sem hugðust kalla á að- stoð þegar logaði í sinu austan við verksmiðjuna og var vetnisfram- leiösla í verksmiðjunni stöðvuð. Verst var ástandið í Fossvogi, sem bókstaflega logaði enda á milli. Slökkviliðsmenn, lögreglu- menn og almennir borgarar höfðu í nógu að snúast og á nokkrum stöðum munaði litlu að eldur kæmist í íbúðarhús og garða. Slökkviliðið var kallað 48 sinnum út, en varð að neita á milli 15 og 20 beiðnum. Þá áttu sem fyrr segir margir í erfiðleikum með að ná sambandi við slökkvilið. Auk þess slökktu slökkviliðsmenn elda á fjölmörgum stöðum þar sem þeir komu á leið í útköll. Eldar kviknuðu í sinu út frá flugeldum og blysum. Slökkvilið Reykjavíkur var með um 20 manns á þremur bílum og fóru þeir víða um. Ástandið var verst í Fossvogs- dal þar sem gróðursælast er í borgarlandinu. En einnig kvikn- uðu víða eldar í vesturbænum, Laugardalnum og Mosfellssveit, Kópavogi og Hafnarfirði. „Ég tel mikla mildi að ekki hlaust stórtjón af völdum sinubruna. Á nokkrum stöðum var á síðustu stundu af- stýrt að eldur kæmist í íbúðarhús," sagði Arnþór Óskarsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn í samtali við Morgunblaðið. Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins: ViU ekki taka neina áhættu í öryggismálum ísland áfram í NATO en samið við Sameinuðu þjóðirnar og Norðurlöndin ÉG VIL ekki undir neinum kringumstæðum taka neina áhættu þegar öryggi landsins er annars vegar, segir Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins, í samtali við tímaritið Þjóðlíf, en fyrsta hefti þess kom út á dögunum. Hann segir að ísland eigi að vera áfram í Atlants- hafsbandalaginu og tryggja eigi því sérstöðu hér á landi, varnarliðið hverfi úr landi, en gerðir verði samningar við Sameinuðu þjóðirnar og Norðurlöndin. Yfirlýsingar alþýðubandalagsmanna um öryggis- og varn- armál hafa hingað til miðast við úrsögn úr Atlantshafsbandalaginu og brottför varnarliðsins án þess að frekari grein hafi verið gerð fyrir því, hvernig öryggið eigi að tryggja. Svavar Gestsson segir Al- þýðubandalagið munu leggja fram skýr og ófrávíkjanleg skil- yrði í utanríkismálum fyrir allri ríkisstjórnarþátttöku, en gengið verði út frá því grundvallarat- riði, að öryggi landsins verði tryggt. Hann kveðst sannfærður um að hægt sé að skapa breiða samstöðu um nýja utanríkis- stefnu, sem ekki taki mið af hagsmunum þeirra sem raki saman gróða vegna veru banda- ríska hersins á íslandi. Síðan segir orðrétt: „Ég er enginn ævintýramaður í þessum efnum. Það kemur aldr- ei til greina af minni hálfu að taka einhverja áhættu í öryggis- málum íslands. Þegar bandaríski herinn fer héðan, þá þarf að koma einhver trygging fyrir því að fullveldi landsins verði virt, að hver sem er geti ekki vaðið hér inn á skítugum skónum. Við göngum út frá því grundvallarat- riði að tryggja öryggi landsins. Ég vil halda þannig á hlutum að gerðir verði samningar við Sam- einuðu þjóðirnar og Norðurlönd- in um að við stæðum að því sameiginlega að tryggja öryggi þessara þjóða hér í Norður- Atlantshafinu. Ég vil ekki undir neinum kringumstæðum taka neina áhættu þegar öryggi lands- ins er annars vegar.“ Síðan segir í viðtali Þjóðlífs við Svavar Gestsson, að hann telji hugsanlega unnt að ná þessu takmarki í mörgum áföngum. Það þurfi að einangra herinn frá áhrifum í íslensku þjóðlífi. Einn af síðustu áföngunum gæti verið í líkingu við samning, sem ríkisstjórn Olafs Jóhannessonar, þáverandi formanns Framsókn- arflokksins, hafði fullbúinn, þegar hún lét af völdum, um að Island yrði áfram í NATO, sem yrði tryggð sérstaða hérlendis við sérstakar aðstæður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.