Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986
„Hver er sinnar
gæfu smiður“
— eftir Gunnlaug
Guðmundsson
í frétt í Morgunblaðinu, föstu-
daginn 20. desember, segir að eðlis-
fræðingur við Lawrence-tilrauna-
stöðina í Berkeley hafi flett ofan
af stjörnuspekingum og stjörnu-
kortagerðarmönnum. 28 virtustu
stjörnuspámenn heims voru próf-
aðir á vísindalegan hátt og féllu á
prófinu. Af þessu er síðan dregin
eftirfarandi ályktun: „Tilraun
þessi greinilega hrekur stjörnu-
spekikenningar um að plánetur og
fæðingarstaður og tími ráði örlög-
um manna. Miklu líklegra er, að
aðrir þættir ráði niðurstöðu
stjörnuspámanna og viðskiptavin-
irnir opinberi sig að meira eða
minna leyti áður en kortalesturinn
hefst." í lokaorðum fréttarinnar
segir: „Menn geta því óhræddir
gengið um gleðinnar dyr, því enn
er í fullu gildi, að hver er sinnar
gæfu smiður." Þar sem málið er
mér óneitanlega skylt, sérstaklega
vegna þess að stjörnuspeki og -spá
er lögð að jöfnu, vil ég gera at-
hugasemd við þessa frétt. Efnis-
lega get ég ekki fjallað um rann-
sóknina sem greint er frá, mér
hafa enn ekki borist gögn um hana,
en ég mun gera það síðar. Ég vil
hér leyfa mér að gagnrýna fram-
setningu fréttarinnar, sem ég tel
nokkuð ábótavant, og ég vil einnig
minnast á takmörk rannsókna og
þann gamla málshátt að hengja
ekki bakara fyrir smiö.
Flett ofan af
Talað er um að flett hafi verið
ofan af stjörnuspekingum. Þetta
er ósæmilegt og óvísindalegt orða-
lag í frétt sem á að fjalla um vís-
indalega rannsókn. Yfirleitt er
þetta orðalag notað þegar flett er
ofan af glæpum og svindli margs
konar. Ég tel að ein rannsókn geti
ekki sakfellt heila stétt manna.
Þó það hafi kannski ekki verið
tilgangur að sakfella menn, er
óþarfi strax í upphafi fréttar að
birta neikvæða umsögn um
stjörnuspekinga.
Eina rannsóknin
Eftir að búið er að fletta ofan
af stjörnukortagerðarmönnum er
sagt frá því að vísindamenn hafi
gefið lítið fyrir þessa speki og talið
fyrir neðan virðingu sína að sinna
henni. Einn maður, Shawn nokkur
Carlson, hafi þó haft á huga á að
sannprófa stjörnuspámenn á vís-
indalegan hátt. Hér er gefið í skyn
að svo til engar rannsóknir hafi
verið gerðar á stjörnuspeki og að
fyrsta rannsóknin, sú sem rædd
er í fréttinni, hafi afsannað
stjörnuspeki. Þetta er ekki rétt.
Fjölmargar vísindalegar rann-
sóknir hafa verið gerðar, sumar
þeirra hafa verið neikvæðar fyrir
stjörnuspeki, aðrar jákvæðar.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að
kynna sér það mál nánar vil ég
benda á bók Geoffrey Dean: Recent
Advances in Natal Astrology og
bók Eysencks og Nias: Astrology,
Science or Superstition? og þá t.d.
á rannsóknir M. Gauquelin, sem
hafa sýnt fram á að greinileg
fylgni er á milli fæðingarstundar
og stöðu pláneta og árangurs í
ákveðnum starfsgreinum. Úrtakið
í rannsóknum Gauquelin hefur
numið tugþúsundum.
28 virtustu
í fréttinni segir að 28 virtustu
og fremstu stjörnuspámenn heims
hafi tekið þátt í þessari tilraun. Ég
vil leyfa mér að draga þá fullyrð-
ingu í efa. í fyrsta lagi er ekki
greint frá því hverjir þetta eru og
í öðru lagi er erfitt að meta hver
sé fremstur og hverjum á að
sleppa. Auk þess veit ég að margir
af virtustu stjörnuspekingum
heims s.s. Stephen Arroyo og Liz
Greene eru á móti slíkum tilraun-
um sem hér greinir frá. Betra hefði
verið að tala um 28 virta stjörnu-
spekinga. Ég geri þetta að umtals-
efni hér því í fréttinni virðist sem
topparnir í stjörnuspeki hafi fallið
á prófi. Nærtækt er því að hugsa:
Hvað þáum hina?
NiðurstaÖan
Ég mun fjalla frekar um niður-
stöður fréttarinnar síðar í þessari
grein og rökstyðja þar nánar að
ekki er hægt að draga þá ályktun
útfrá einni rannsókn að heilt fag
beri að dæma dautt og ómerkt.
Slík ályktun er að mínu viti frétta-
manninum til vansæmdar og
Morgunblaðinu, sem leggur metn-
að sinn í að birta vandaðar fréttir,
einnig til vansa. Þegar slíkri
fréttamennsku er þar á ofan gert
hátt undir höfði, þ.e. fréttin er
birt með feitletraðri fyrirsögn og
breiður rammi er utan um hana,
sem gerir hana að mest áberandi
erlendri frétt þann dag á innsíðum,
er málið öllu alvarlegra.
Ónákvæmni
Að öðru leyti er fréttin óná-
kvæm. í fyrsta lagi er talað á víxl
um stjörnuspámenn og stjörnu-
spekinga og hvorir tveggja settir
undir einn hatt. Ég vil taka það
fram að um tvo ólíka hópa er að
ræða, menn sem fást við ólíka
hluti. Munurinn er helst sá að
stjörnuspekingar fást ekki við
atburðaspár og hafa t.d. ekkert
með stjörnuspár dagblaðanna að
gera. Stjörnuspeki er stórt fag sem
hefur innan sinna vébanda marga
anga og stefnur, Jíkt og heimspeki
eða sálarfræði og því er ótækt að
setja alla undir einn hátt og draga
fram eina rannsókn sem afgerandi
fyrir allt fagið*. Hvaða félag
„stjörnuspádómarannsóknarfélag
Bandaríkjanna" er veit ég ekki.
Þetta félag á að hafa lýst því yfir
að prófið væri sanngjarnt. Eftir
því sem ég best veit heitir virtasta
félag bandarískra stjörnuspekinga
AFA, American Federation of
Astrologers, sem útleggst Samtök
amerískra stjörnuspekinga. Einn-
ig vil ég gera athugasemd við lok
fréttarinnar: Stjörnuspekingar
hafa aldrei haldiö því fram að
hver sé ekki sinnar gæfu smiður.
Stjörnuspekin segir einmitt:
Þekktu sjálfan þig og þá getur þú
unnið með líf þitt á jákvæðari hátt
en áður.
Gagnrýni á stjörnu-
spámenn
Ekki var það ætlun mín að gera
einungis athugasemd við fram-
setningu fréttarinnar. Ég vil einn-
ig gagnrýna þá stjöruspámenn sem
tóku þátt í þessari rannsókn og
einnig rannsóknina sjálfa, útfrá
þeim forsendum sem lagðar voru
til grundvallar. Ég tel að þessum
28 „fremstu og virtustu" stjörnu-
spámönnum hafi verið mislagðar
hendur er þeir tóku þátt í þessu
prófi. Sú fullyrðing stéttarfélags-
ins: „að þeir gætu og myndu skil-
greina nákvæmlega eðli og skap-
gerð fólks, án þess nokkurn tíma
að hitta viðkomandi, en eingöngu
með því að teikna og lesa úr
stjörnukortum hvers og eins“, er
„Talað er um að flett
hafi verið ofan af
stjörnuspekingum.
Þetta er ósæmilegt og
óvísindalegt orðalag í
frétt sem á að fjalla um
vísindalega rannsókn.“
hæpin. Þeir stjörnuspekingar sem
ég þekki til telja þetta illfram-
kvæmanlegt, sérstaklega þegar um
slíka ópersónulega rannsókn er að
ræða. Stjörnuspeki er gagnlegt
tæki til sjálfsþekkingar en erfðir,
umhverfi og uppeldisáhrif hafa
töluverð áhrif á líf manna.
Stjörnuspeki fjallar um orku
mannsins. Umfjöllun um þá orku
er að sjálfsögðu best framkvæmd
í samvinnu við viðkomandi aðila.
Þó við ætlum okkur að vera vís-
indaleg, er ekki hægt að komast
framhjá þeirri staðreynd að mann-
legt eðli er órætt og óvísindalegt.
Það er að mínu viti erfitt að setja
hið mannlega í vísindalegan og
staðlaðan tölfræðilegan ramma.
Ég vil taka það fram að persónu-
lega tek ég fegins hendi á móti
gagnrýni á stjörnuspeki. Gagnrýni
leiðir til frjórra skoðanaskipta og
hún hreinsar andrúmsloftið en
hún verður að vera málefnaleg til
að mark sé á takandi.
Takmörk rannsókna
ímyndum okkur 28 virta lækna-
heims taka þátt í þeim leik að sjúk-
LAUGARDAGINN 4. janúar kl. 16.00,
kveður Belcanto-kórinn jólin með tón-
lcikum í Garðakirkju. Efnisskráin
verður sú sama og á tónleikum kórsins
í llveragerðiskirkju 22. desember sl.
Meðal verkefna verða „Das neuge-
borne Kindelein", kantata fyrir kór,
strengi og orgel eftir Buxtehude,
dómsgreina 126 sjúklinga, blind-
andi eða á skömmum tíma í ein-
hverju prófi. Ég held að slíkt próf
gæfi allskrýtnar niðurstöður. Ég
veit ekki betur en að flestir telji
það sjálfsagt að ganga vikum
saman á milli sérfræðinga áður
en meinsemdin er fundin. Ég vil
því segja, gott á stjörnuspámenn-
ina, fyrir fljótfærnina og hrokann.
Það er þessi hroki stjörnuspá-
manna, sem birtist í forsendum
rannsóknarinnar, sem fellir þá.
Stjörnuspekingar og -spámenn
verða að læra að þekkja takmörk
sín og fólk almennt að læra að
þekkja takmörk stjörnuspekinnar.
Kollhnís yfir
Niagarafossa
Ef við þekkjum takmörk fagsins
er hægt að birta málefnalega
gagnrýni en sleppa því að gagn-
rýna stjörnuspekinga fyrir það að
geta ekki farið kollhnís yfir Niag-
arafossa. Bláókunnugt fólk kemur
inn af götu til stjörnuspekings og
segir: „Hvernig er ég?“ Stjörnu-
spekingurinn á að svara á fimm
mínútum, umhugsunarfrestur 30
sekúndur. Ef hann svarar ekki
rétt, þá er ekkert að marka
stjörnuspeki. Fólk fer til sálfræð-
ings, það er látið mæta í 10—20
tíma, þylur upp ævisöguna og
tekur nokkur próf. Þá fyrst liggur
niðurstaðan fyrir. Er þetta sann-
gjarnt gagnvart stjörnuspeking-
um? Nei, og að þessu ættu þeir að
huga. Þeir ættu ekki að láta hafa
sig út í marklitlar tilraunir. Að
þessu leyti á slík frétt sem birtist
í Morgunblaðinu fullan rétt á sér.
Stjörnuspámenn létu hafa sig út í
þessa rannsókn, þeir féllu á próf-
inu og því er fyllsta ástæða til að
hlæja að þeim. Hvaða ályktun skal
af því draga er annað mál. Og í
guðanna bænum, ef verið er að
gagnrýna efnafræðinga, sleppum
því að flækja veðurfræðinga í þá
umræðu.
Vinsamleg ábending
Ég vil að endingu gefa frétta-
riturum þá vinsamlegu ábendingu
að draga ekki of stórar ályktanir
útfrá of litlum gögnum. Þó ákveðin
rannsókn sýni fram á neikvæða
fylgni afsannar hún ekki heilt fag.
Ég vil taka heimatilbúið dæmi: 28
lyfjafræðingar unnu árum saman
að því á rannsóknarstofu svissn-
esks lyfjafyrirtækis að þróa lyfið
penzóbótómín gegn sykursýki.
Eftir tilraunir með 126 einstakl-
inga kom í ljós að Iyfið hafði engin
áhrif. Hljóp þá fréttaritarinn í
Luzern upp til handa og fóta og
símaði þá frétt heim að lyfjafræð-
ingar hefðu fallið á prófinu, sú
fullyrðing að lyf hefðu áhrif á
sjúkdóma væri röng, sennilega
væri það bara viðmót læknisins
sem skipti öllu,- Við getum því
óhrædd gengið lyfjalaus um gleð-
innar dyr, því enn er í fullu gildi
að hver er sinnar gæfu smiður.
Höfundur rekur Stjörnuspekimiö-
stöðina í Reykja rík.
Laudate Dominum eftir Mozart og
Ave María eftir DePrés.
Einsöngvari á tónleikunum verð-
uri Marta G. Halldórsdóttir, ein-
leikari á fiðlu Hildigunnur Hall-
dórsdóttir, orgelleikari Gústaf Jó-
hannesson. Stjórnandi kórsins er
Guðfinna D. Ólafsdóttir.
Styrkið og fegrið líkamann
Dömur og herrar.
Ný 5 vikna námskeiö hefjast 8. janúar.
Hinir vinsælu herratfmar f hádeginu.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi ætingum. Sértím-
ar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eda meira. Sértímar fyrir eldri
dömur og þær sem eru slæmar í baki eda þjást af vöðvabólgum. Vigtun
mæling — sturtur — gufuböd — kaffi og hinir vinsælu sólaríumlampar.
Innritun og upplýsingar alla virka daga
frá kl. 13—22 í síma 83295.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Belcanto-kórinn heldur tónleika í Garðakirkju
Stjörnuspámenn féllu
á stjörnuspekiprófi
•* Inwrearv^ilrani
u I B>
krtH. Iudk.l(ln (rlUl M i «(<• !»■(><
rn lAlrf. rm líllmui ttml Maáa *f Uuru r>*UI
'**k- •' ««hi. hnnbéilnii kuu wfi Apw m a*
u. • ► ui. |rrt» m. I ur»l ti* Mufk k.I. Uk.
. •m.kHU. Of k,ld.. aá prrM.mi.kr... of fr.alM IMk.
- I—
' ' - umni h»f. prfið lltið .tjðrnuapáirunn. veitlu fulltinpi
• •.— .prki Ot t.lió fjrrir wU Stáu.rfálng þrirrt Mjðrnu-
rðinitu tin. mb .inn. .pádóm.r.nnaókn»rfflwt
hr»'.- crrin stjnrn- o* tálvis- Bnnd.rikj.nnn. lý»li þvl yfir mk
iml. h« rr nAruvMi f.nð um prófift vari snnngjarnt. Prftfínu
Sh»»r nnkkurn (’nrlson. Cnrlson vnr sndn n-tlaft nð snnnn. sft
rr .1 v mnulftframnAur o* vnnn stjomusprkincar v«ru .kU
fyrir srr mrft tftfrnbr««ðum. i
mrft*' hann stundnði nám I rftl- Lriddir vom frnm 28 frrmstu
I.frmfti vift Kalifornluháskftla stjftrnuspámmn I Evrftpu og
< .11» hnffti áhufta á nð prftfn Amrrlku. pvl vnr hnldið frnm nf
ttjnrnuspámrnn á vlsindnlrftnn slátUrfftlaginu. nð þrir g»tu o*
h.tt t« Iritnði nnmstnrfs við myndu nkilcrrina nákvvmlr«»
•trttinn sjálfa. Þvl vnr vrl trkift rðli og sknpcrrft fftlks, án þrss
Vnr ákvrðið að nrmja prftf I þrasu nokkurn tlmn nð hitU viðkom-
rfm llrlMu Iriðtagar ntvinnu- andi, rn rinfðncu mrð þvl nð
Uikn. o* Imn ðr stjftrnukortum
hvrrs o« rins Prir fftllu á prftf-
inu. Sprkincnrnir rryndu hsrfi-
kika sfna ft I2S rinstaklincum
oft rrjrndust hafn rmngt fyrir sftr
um tvonf hvrrjum þrrmur.
prrindir samkvvmt nðfrrðum.
srm nftilnr komu sftr snman um
Nokkrir Ulfrssðin«nr úr hftpi
stjðrnusprkinca hjálpuftu Carl-
son vift þnnn hluU vrrknins. I*r».
vnr intt. aft spurnincnr og stnft-
rryndir gtncju n»(ilrf. vnikið á
vlsl Þnnnic vnr trynri. nð á báftn
bftfta vmrl útlloknð sð svlndln
Tvmr spámnnnanna notuftu
stjðrnuspátftlvur við nft kort-
Irodn hinnr ftsftftu sálir Þm. vnr
yfirlritt (sstt I hvlvetna nft full
snnncirni rlkti ficnvart spá-
mðnnunum. srm hftldu þvl frnm
»ð «11 fyrri prftf hnfi vrrið hlut-
dr«* i þrirrn *»rft Niðurstoft
urnnr voru slðnn mj«c vnndlcca
mrtnar or vrcnar. Þnð kom spá-
mftnnum þrns vrcnn rnjft* á
ftvart. aft vopnið snrrist I hftodun-
um á þrim Kncinn þrirrn hrfur
rnn viljnft láu hnfn rftir sftr ritt
rfta nritt um málið.
Arancurinn. þrjátiu prósrnt
rfttt. rr rncu brtri rn hnndnhftfs-
nðfrrðin. Tilraun þrsni frrinilrc a
hrrkur stjornusprkiktnninfnr
um nð plánrtur o* fmftingnrsuft
ur OC tlmi ráfti Orlogum mannn.
Miklu liklrcra tr. »A nðrir þmttir
rftfti niAurttoftu stjornuspá
ra.nn. og viftakipUvinirair opin-
brri sig nft mrira rða minnn Iryti
áftur rn korUlrsturinn hefst
Mrnn gru þvl fthrsrddir crnRÍft
um fltðinnar dyr, þvl enn er I
fulhi fildi, nft hvrr tr sift".'