Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR1986 43 Bras og þras í gagnrýnandanum — eftir Jón Hálfdanarson Mig langar að fara nokkrum orð- um um bókmenntagagnrýni, sem birtist í Morgunblaðinu föstudag- inn 20. desember. Sigurður Haukur Guðjónsson fjallar þar um bók Iðunnar Steinsdóttur Bras og þras á Bunulæk. Sú bók vann til verð- launa í samkeppni um létt lesefni fyrir börn, sem Námsgagnastofn- un efndi til. Séra Sigurður virðist vita lítið um vandamál þeirra barna, sem eiga í erfiðleikum með að læra að lesa. Þess vegna leyfi ég mér að fjalla lítillega um þau mál og um leið að skrifa nokkurs konar gagnrýni á gagnrýnina. Ég veit mig þar líka í góðri fylgd, því séra Bolli Gústavsson og Jóhann Hjálmarsson hafa skemmt lesend- um Morgunblaðsins að undan- förnu með karpi sínum um gagn- rýni Jóhanns á bók séra Bolla. Eftir lýsingu séra Sigurðar að dæma, virðist hann hafa verið kominn langt með bók Iðunnar, þegar hann uppgötvaði að hann var að lesa barnabók fyrir torlæsa en ekki ljóðabók. Sigurður dregur af því þá ályktun, að ljóðagerð sé farið að hnigna, en ég vil líta já- kvætt á málið. Bók Iðunnar hlýtur að vera prýðis góð, ef hægt er að lesa hana sem ljóðabók. Vandamál í skólum væru lítil, ef börn næðu því aö verða læs á einni bók, eins og séra Sigurður virðist gera ráð fyrir. Hann harm- ar, að Iðunn skuli ekki hafa skrifað slíka bók. Hún hæfist á einföldum setningum, sem smám saman lengdust. í lok bókarinnar væru þeir stirðlæsu orðnir óhræddir við að fást við venjulegan texta. En þannig kraftaverk gerast víst ekki á 70 síðum á okkar öld. Venjuleg Pennavinir Frá Japan skrifar 25 ára kona með tónlistaráhuga: Hisayo Uchida, 3-56-3 chomc, Asahimachi, Katuyamachi, Furui, 911 Japan. Tvítugur norskur piltur með mik- inn íslandsáhuga. Hefur auk þess áhuga á íþróttum, tónlist, ferða- lögum o.fl.: Erik Drilen, Postboks 2045 Sentrum, N-7001 Trondheim, Norge. Tvítug frönsk stúlka vill skrifast á við íslenzka pilta um og yfir tvítugt. Hún skrifar á ensku auk frönsku og hefur m.a. áhuga á íþróttum og tónlist: Laurence Soddu, Chateau St. Laup BT AZ, 13010 Marseille, France. Fertugur Bandaríkjamaður með margvísleg áhugamál vill skrifast á við íslenzkar konur: Dwight Shepherd, 207 Brush Street, St. Johns, Michigan 48879, USA Danskur frímerkjasafnari, sem vill eignast íslenzk frímerki í stað- inn fyrir norsk, dönsk, sænsk og 1 grænlenzk: Inge Friis, Pr. Valdemarsvej 5, 5000 Odense C, Danmark. Höfðar til -fólksíöllum starfsgreinum! „Venjuleg börn eru allt aö þremur árum aÖ ná góöum tökum á lestri, og öðrum miðar enn hægar. Fyrir þau börn er bókin skrifuð.“ börn eru allt að þremur árum að ná góðum tökum á lestri, og öðrum miðar enn hægar. Fyrir þau börn er bókin skrifuð. Fyrir þau hefur verið skortur á lesefni, sem gerði meiri kröfur til andlegs þroska þeirra cn hefðbundnir textar eins og Ása sá sól, Óli á ól o.s.frv. Þess vegna efndi Námsgagnastofnun til fyrrgreindrar samkeppni. Þátt- taka var góð, og bárust margar ágætar sögur að sögn þeirra, sem stóðu fyrir keppninni. Því má bú- ast við, að úr rætist á næstunni, ef fé fæst til útgáfunnar. Vandi þessara barna er m.a sá, að þau eru ákaflega seinlæs, og venjuleg sögubók nær því ekki að fanga hug þeirra. Þau fara svo hægt yfir, að þau finna ekki fyrir þeirri spennu, sem rekur þau til að lesa áfram. Þau missa því áhug- ann og fara á mis við þá ánægju, sem lestur góðra bóka veitir mönn- um. Vegna þessara erfiðleika lesa þau ekki bækur fyrir sjálf sig, stunda ekki sjálfsnám, sem er forsenda árangurs, og ná því eng- um tökum á lestri. Þau verða að heita má ólæs. Svo er komið fyrir mörgum fuliorðnum íslendingum. Bækur fyrir þennan hóp mega ekki hafa orð, sem eru torlesin en það eru öll löng orð og orð, þar sem margir samhljóðar fara saman. Sem dæmi má taka orðið gagnrýni, sem er mjög torlesið, því það er samsett, og margir samhljóðar fara saman. Á hinn bóginn er orðið Dúllía auðlesið. Einnig verður atburðarásin að vera hröð og skemmtileg til að halda áhuganum vakandi. Því koma langar um- hverfislýsingar ekki til greina. Þekking á þessum atriðum er nauðsynleg til að geta skrifað af skynsamlegu viti um bækur, sem samdar eru í þessum tilgangi. Að lokum vil ég taka undir þá von séra Sigurðar, að nútíma ljóðagerð fari fram. Ég vil aðeins bæta við þeirri frómu ósk, að gagnrýnendur skrifi af meiri þekk- ingu um viðfangsefni sín en oft vill verða. Höfundur er forstödumadur rann- sókna hji Járnblendifélaginu á Grundartanga. A N D A P A R i t I s l l H A P P D R Æ T T I V E R N D A R HANN GILDIR VÍDA VINNINGSMK3INNI LANDfiPARÍS VINNINGARNIR ERU HUNDRAÐ TALSINS OG HVER VINNINGSHAFIHEFUR FPJÁISF VALMILLIALLJRA EFTIRTAUNNA FERÐA- 7 daga feró fyrir fjóra. hvaöan sem er af landinu. Gisting d nýju hœöinni d Hótel KEA. Morgunveröur alla morgna. Kvöld- veröur fyrir 4 í Sjdllanum og miöar d sýningu hjó Leikfélagi Akureyrar. Bila- leigubíll allan ftmann og 700 km akstur innifalinn. SKÍD/AÆVINTÝRI í AUSTURRÍKI Tveggja vikna dvöl fyrir tvo t parodis skiöafólksins. Sölden í Austurríki. Gisting og morgunveröur ú Hótel Sport Alm. 5 daga skíöakennsla innifalin. VEGLEG VIKA INEW YORK 7 daga ferö fyrir tvo Gisting ó hinu þekkta hóteli New York Penta. Sigling i kringum Manhattan eyjuna. ósamt 2 leik- húsmiöum d t.d. Cats. SÓLSKINSDAGAR Á KANARÍEYJUM 10 daga Kanaríeyjaferö fyrir tvo. Dvaliö í 2ja herbergja ibúöum i hinu glœsilega ibúöahóteli Barbacan Sol. Gisting og morgunveröur ó Hótel Pulitzer í Amsterdam eina nóft ó hvorri leiö. ER ÞINN MIÐI LÍKLEGUR TIL VINNINGS? VARLA NEMA ÞÚ BORGIR HANN L A N D A P A R * I s H A p p D R Æ T T i V E R N D A R GYLMIR/SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.