Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.01.1986, Blaðsíða 26
AMERÍKA PORTSMOUTH/NORFOLK Doris 15. jan. Bakkafoss 30. jan. Doris 12. feb. Bakkafoss 25. feb. NEW YORK Doris 13. jan. Bakkafoss 28. jan. Doris 10. feb. Bakkafoss 24. feb. HALIFAX Doris 18. jan Doris 15. feb. BRETLAND/MEGINLAND IMMINGHAM Álafoss 6. jan. Eyrarfoss 12. jan. Alafoss 19. jan. Eyrarfoss 26. jan. FELIXSTOWE Eyrarfoss 13.jan. Alafoss 20. jan. Eyrarfoss 27. jan. ANTWERPEN Álafoss 7. jan. Eyrarfoss 14. jan. Álafoss 21. jan. Eyrarfoss 28. jan. ROTTERDAM Álafoss 8. jan. Eyrarfoss 15. jan. Alafoss 22. jan. Eyrarfoss 29.jan. HAMBORG Álafoss 9. jan. Eyrarfoss 16. jan. Álafoss 23. jan. Eyrarfoss 30. jan. GARSTON Fjallfoss 20. jan. NORÐURLÖND/ EYSTRASALT BERGEN Skógafoss 5. jan. Reykjafoss 12. jan. Skógafoss 19. jan. Reykjafoss 26. jan. KRISTIANSAND Skógafoss 6. jan. Reykjafoss 13. jan. Skógafoss 20. jan. Reykjafoss 27. jan. MOSS Skógafoss 7. jan. Reykjafoss 14. jan. Skógafoss 21. jan. Reykjafoss 28. jan. HORSENS Reykjafoss 17. jan. Reykjafoss 31. jan. GAUTABORG Skógafoss 8. jan. Reykjafoss 15. jan. Skógafoss 22. jan. Reykjafoss 29.jan. KAUPMANNAHÖFN Skógafoss 9. jan. Reykjafoss 16. jan. Skógafoss 23. jan. Reykjafoss 30. jan. HELSINGJABORG Skógafoss 10. jan. Reykjafoss 16. jan. Skógafoss 23. jan. Reykjafoss 30. jan. ÞÓRSHÖFN Skógafoss 12. jan. Reykjafoss 19. jan. Skógafoss 26. jan. Reykjafoss 2. feb. Áætlun innanlands. Vikulega: Reykjavik, ísa- fjörður, Akureyri. Hálfsmánaöarlega: Húsa- vík, Siglufjörður, Sauðár- krókur, Patreksfjöröur og Reyðarfjöröur. EIMSKIP Pósthússtræti 2. Sfmi: 27100 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDÁGUR3. JANÚÁR1986 Yeltsin tekur við af Grishin sem yfirmaður kommúnistaf lokksins í Moskvu Moskvu, 27. des. AP. VIKTOR V. Grishin lét' á þriöjudag af embætti yfirmanns kommúnista- flokksins í Moskvu. Við þeirri stööu tók Borish N. Yeltsin, 54 ára, en vegur hans á meöal ráðamanna í Kreml er nú talinn fara mjög vaxandi. Flak DC-3-flugvélarinnar. Flugslys: AP/Slmamynd Ricky Nelson ferst með hljómsveit sinni De Kalb, Texas, 2. janúar. AP. BANDARÍSKI söngvarinn Ricky Nelson lést í flugslysi ásamt fimm meðlimum hljómsveitar sinnar og heitkonu sinni, er DC-3-flugvél hans fórst í Noröaustur-Texas síðari hluta gamlársdags. Nelson var á lcið til Dallas, þar sem hann hugðist halda nýárshljómleika. Flugmaöur og varaflugmaður vélarinnar kom- ust lífs af og er sá síðarnefndi tal- inn í lífshættu. Nelson varð fyrst þekktur í Bandaríkjunum á sjötta áratugn- um fyrir leik í sjónvarpi, þar sem hann lék ungling í framhalds- myndaflokki, sem hét „Adventures of Ozzie and Harriet". Á sjöunda áratugnum varð hann þekktur popptónlistarmaður og varð hann þekktastur fyrir lögin „Travelin’ man“ og „Mary Lou“. Á áttunda áratugnum dalaði frægð hans nokkuð. Ekki er kunnugt um orsakir flugslyssins, en skyldmenni eins hljómsveitarmeðlimsins sem fórst, segir að erfiðieikar hafi verið með annan hreyfil vélarinnar. Grishin, sem er 71 árs að aldri, hefur átt sæti í stjórnmálaráði sovézka kommúnistaflokksins í 24 ár eða iengur en nokkur annar núverandi fulltrúi þar. Hefur Grishin jafnframt verið talinn í röð mestu valdamanna flokksins. Yeltsin hefur að undanförnu verið framkvæmdastjóri mið- stjórnar kommúnistaflokksins varðandi áætlanagerð á sviði hús- bygginga og vélaframleiðslu. Talið er víst, að með því að skipa hann yfirmann flokksins í Moskvu hafi Mikhail Gorbachev flokksleiðtogi enn náð að efla völd sín og styrkt stöðu sína innan flokksdeildarinn- ar í Moskvu, sem lengi hefur verið afar áhrifamikil í sovézkum stjórnmálum. Yeltsin er álitinn hafa mikil tengsl við ýmsa menn, sem hafizt hafa til valda innan sovézka stjórnkerfisins að undanförnu. í þeirra hópi eru menn eins og Nikolai I. Ryzhkov forsætisráð- herra og einn nánasti samstarfs- maður Gorbachevs nú, en einnig aðstoöarforsætisráðherrarnir Yakov A. Ryabov og Lev A. Voron- in. Grishin, sem var skipaður yfir- Ný skoðanakönnun í Noregi: Fleiri styðja Gro en Káre - í embætti forsætisráðherra Osló, 2. janúar. Frá Jan Erík Laure, fréUaritara Morgunblaösins. GRO Harlem-Brundtland hefur í fyrsta sinn frá árinu 1983 nu hlotið stuðning fleiri Norömanna til embættis forsætisráöherra en núverandi oddviti ríkisstjórnar- innar, Káre Willoch, leiðtogi Hægriflokksins. í skoðanakönnun, sem birt var rétt fyrir áramótin, kváðust 42% aðspurðra vilja fá Gro í embætti forsætisráðherra, en 40% vildu halda í Káre. I ágústmánuði síð- astliðnum hlaut núverandi for-, sætisráðherra hins vegar stuðn- ing 46% aðspurðra, en aðeins 36% studdu Gro Harlem Brundt- land, leiðtoga Verkamanna- flokksins. Að því er varðar skiptingu milli stjórnmálaflokkanna nýtur Verkamannaflokkurinn nú með- vinds á sama hátt og oddviti hans. í könnuninni kváðust 43% aðspurðra mundu kjósa Verka- mannaflokkinn, yrði kosið nú. Er það hagstæöara hlutfali en flokkurinn hefur notið um árabil. Harlem-Brundtland hefur ver- ið mjög ánægð með þessar niður- stöður og sagt, að ekki sé ólíklegt, að hún muni taka við forsætis- ráðherraembættinu fyrir næstu kosningar til Stórþingsins 1989. Heldur hún, að annarhvor af samstarfsflokkum Hægriflokks- ins í ríkisstjórninni, Miðflokkur- inn eða Kristilegi þjóðarflokkur- inn, muni geta hugsað sér sam- starf við Verkamannaflokkinn fyrir kosningarnar — en það hlyti að leiða til stjórnarskipta. maður flokksdeildarinnar í Moskvu 1967, er í hópi þeirra, sem risu til valda í stjórnartíð Leonid Brezhnevs, fyrrum flokksleiðtoga. í frásögn TASS-fréttastofunar af mannaskiptunum var ekki greint frá því, hvort Yeltsin mundi fá sæti í stjórnmálaráðinu né heldur, hvort Grishin ætti eftir að víkja úr sæti sínu þar. Líklegt er þó talið, að Grishin verði einnig látinn víkja þar og á það bent, að Nikolai A. Tikhonov hafi farið úr stjórnmálaráðinu, eftir að hann lét af embætti for- sætisráðherra fyrr á þessu ári. Uganda: Hóta gagn- aðgerðum - vegna manndrápa stjórnarhersins Nairobi, Kenya, 27. deaember. AP. YOWERI Museveni, fóringi skæru- liðahreyfingarinnar, sem samdi um frið viö Ugandastjórn í síðustu viku, sagði í gær, að stjórnvöld í landinu virtust ófær um að koma í veg fyrir hryðjuverk stjórnarhermanna. Museveni sagði á blaöamanna- fundi, að hann teldi sig enn bund- inn af vopnahléssamningnum, sem undirritaður var í Nairobi 17. desember síðastliðinn, en varaði eindregið við áframhaldandi dráp- um á saklausum borgurum. Kvað hann svo geta farið, að hermenn hans ættu engra annarra kosta völ en að grípa til varnaraðgerða. Fréttir hafa borist um, að yfir sex tugir manna hafi verið felldir í grennd við Kampala, höfuðborg landsins, og á svæðum, sem stjórn- arherinn hefur á valdi sínu, frá því að friðarsamningurinn gekk í gildi. Museveni sagði, að margir manna sinna væru óánægðir með samninginn, en engir borgarar hefðu verið drepnir á yfirráða- svæðum skæruliöahreyfingarinn- ar, enda væri agi meðal liðsmanna góður. Noregur: Ekkert gas og engin olía á „Gullblokkar-svædinu" Eins og köld gusa framan í olíuríkið Osló, 2. janúar. Prá Jan Erik Laure, fréUnrilarn Morgunblaðsins. „OLIU-NOREGUR“ hefur oröið fyrir miklu áfalli. Komið hefur 1 Ijos, aö hið svokallaöa „Gullblokkar-svæði“ í Norðursjó, sem allir sérfræð- ingar töldu öruggt, að hefði að geyma stórkostlegar lindir gass og olíu, er galtómt. Mun þetta hafa ófyrirsjáanleg áhrif á rekstur margra fyrir- tækja í olíuiönaöinum, auk þess að valda norska ríkinu umtalsveröum skakkaföllum. Eins kann svo aö fara, að olíuleitinni verði nú í auknum mæli beint á önnur svæði, bæði norðan og sunnan 62. breiddarbaugs. Það var slegist um að fá vinnsluréttindi á Gullblokkar- svæðinu í Norðursjó. Allar jarð- fræðilegar rannsóknir bentu til, að þar væri að finna mikið magn gass og olíu. Var vinnslusvæðinu að umfangi til jafnað við Ekofisk-svæðið. Norsk Hydro hefur nú borað margar tilraunaholur á Gull- blokkar-svæðinu. Engin þeirra hefur gefið neina olíu, og fátt hefur fundist ummerkja um gas eða olíu. Vonbrigðin innan norska olíuiðnaðarins eru gífurleg. Eng- inn getur gert sér grein fyrir, hvers vegna jarðfræðirannsókn- irnar hafa brugðist svo gersam- lega. Giskað hefur verið á, að gas- og olíulindirnar hafi „flúið“ til annarra svæða, sem nú er verið að búa undir vinnslu, m.a. hins svokallaða „Gullfaxa-svæðis", sem er í grenndinni. Káre Kristiansen, orku- ogolíu- ráðherra Noregs, segir, að ríkið verði að úthluta olíufélögunum nýjum leitarsvæðum vegna þess að Gullblokkar-svæðið hafi brugðist; slík ráðstöfun sé nauð- synleg, eigi norski olíuiðnaðurinn að geta haldið starfseminni gang- andi á næsta áratug. Mörg af þeim olíusvæðum, sem nú eru nýtt, eru um það bil að tæmast. Eigi norska ríkið að geta reitt sig svipaðar tekjur af olíu- vinnslunni og fengist hafa undan- farin ár, verður að finna ný svæði. Finnist þau ekki, verður landið gjaldþrota. Þetta mun hafa í för með sér, að aukin áhersla verður lögð á að kanna hugsanleg olíusvæði úti fyrir strönd Norður-Noregs. Mikl- ar sviptingar hafa verið um það á pólitískum vettvangi, hversu hratt skuli fara í þessum rann- sóknum. Hefur m.a. verið deilt um, hvort rétt væri að halda uppi könnunar- og tilraunaborunum allt árið - með tilliti til þeirrar hættu, sem það hefur í för með sér. Einkum eru það sjómenn, sem hafa verið mótfallnir leit allt árið og miklum hraða viö verkið; hafa þeir bent á hættu, sem slíkt gæti haft í för með sér fyrir sjvarút- veginn. Gullblokkar-áfallið kemur eins og köld gusa framan í olíuríkið Noreg. Ef til vill líður ekki á löngu, áður en norska ríkið verður á nýjan leik að leita eftir lánum erlendis til þess að standa undir kostnaði vegna velferðarinnar í landinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.