Morgunblaðið - 09.01.1986, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986
Frá álf agleði Hattarmanna.
Egilsstaðir:
Álfagleði á þrettánda
Egilsstöðum, 7. janúar.
Iþróttafélagið Höttur gekkst
fyrir áifagleði hér á Egilsstöð-
um í gær, á þrettánda degi jóla.
Fjöldi manns safnaðist saman
við íþróttahúsið — en þaðan var
gengið fylktu liði um bæinn og
fóru blysberar fyrir göngunni
ásamt álfakóngi og álfadrottn-
ingu í þar til gerðum skraut-
sleða sem gæðingur einn dró.
Hersingin staðnæmdist siðan á
íþróttavellinum þar sem upp-
hófst mikil álfagleði eftir að
kveikt hafði verið í myndarleg-
um bálkesti.
Álfakóngur lét þess getið í
ávarpi sínu til manna að hvergi
væri lífvænlegra fyrir álfa og aðra
hulda vætti að búa en á Egilsstöð-
um. Má þetta rétt vera — því að
mikill fjöldi torkennilegra vera
kom a.m.k. til álfagleðinnar,
gamlar og hrumar nomir, bergris-
ar, diýslar auk hjarðsveina kóngs
og drottningar.
Við brennuna voru þjóðkunn
þrettándalög kyijuð og dragspilin
þanin. Þá var efnt til veglegrar
flugeldasýningar.
Þrettándagleði sem þessi er
ekki hefðbundin skemmtun hér
um slóðir — en þó hafa ýmis fé-
lagasamtök hér áður gengist fyrir
þvílíkri þrettándagleði. En hafí
fréttaritari skilið þá Hattarmenn
rétt eru þeir nú staðráðnir í því
að láta ekki álfagleði á þrettánda
misfarast hér eftir.
Veður var í gær eins og best
verður á kosið til slíkrar útisam-
komu — enda tóku þátt í leiknum
um átta hundruð manns. - óiafur
Bolvíkingum fæddum 1
fyrra afhent skírnargjöf
UM MIÐJAN desember bauð
stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur
öUum Bolvíkingum sem fæddir
voru á árinu 1985 ásamt foreld-
rum tíl veislu þar sem þessum
nýju borgurum voru afhentar
skímargjafir frá Sparisjóðnum.
Þama voru samankomnir þeir
tuttugu einstaklingar sem fæddust
í Bolungarvík á sl. ári, og veittu
þeir móttöku hver fyrir sig spari-
sjóðsbók með 2.500 króna innstæðu
og þar að auki sparibauk sem án
efa kemur í góðar þarfír í mark-
vissri vinnu þessara einstaklinga til
að auka sína innstæðu því eins og
Sólberg Jónsson sparisjóðsstjóri vék
að í ávarpi sínu við þetta tækifæri,
þá er aftur í gildi orðtækið „grædd-
ur er geymdur eyrir" með betri
verðtryggingu spariljár og vonandi
varanlegri hjöðnum verðbólgu.
Hér eftir mun Sparisjóður Bol-
ungarvíkur færa nýfæddum Bolvík-
Sólberg Jónsson sparisjóðsstjórí
afhenti skímargjafimar fyrír
hönd sparísjóðsins.
ingum skímargjöf.
Innlánsaukning sparisjóðsins
nam 43% á síðasta ári.
Bol víkingamir 20 sem fæddust á sl. árí ásamt foreldrum.
Grindavík:
Námskeið í slysa-
vörnum fyrir sjómenn
Grindavík, 5. janúar.
AÐ frumkvæði björgunarsveitar-
innar Þorbjöms í Grindavík var
haldið fjölþætt námskeið um
slysavamir fyrir sjómenn 3.-5.
janúar í húsi björgunarsveitar-
innar við Hafnargötu. Námskeið-
ið var verklegt og bóklegt.
Þorvaldur Axelsson leiðbeinir á
námskeiðinu í Grindavík.
Aðalstjómendur voru Þorvaldur
Axelsson, erindreki Slysavamafé-
lags íslands, sem hefur sérhæft sig
í öryggismálum sjómanna, og Hös-
kuldur Einarsson, frá Landssam-
bandi slökkviliðsmanna, sern leið-
beindi um eldvamir í samvinnu við
Slökkvilið Grindavíkur og kenndi
meðferð slökkvitækja og reykköf-
un. Verkleg æfíng var í meðferð
gúmmíbáta á sjó og notkun flug-
línutækja.
Á námskeiðið komust aðeins 27
yfir- og undirmenn á fískiskipum,
en fyrirhugað er annað námskeið
fyrir þá sem frá þurftu að hverfa
því hvert námskeið er miðað við
um 25 nema.
— Guðfmnur
Hópurínn, sem brautskráðist frá Fjölbrautaskóla Suðumesja.
Keflavík:
79 brautskráðir frá Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja
Keflavík, 2. ianúar.
Keflavík, 2. janúar.
21. DESEMBER lauk 19. starfs-
önn Fjölbrautaskóla Suðuraesja
með brautskráningu nemenda i
Ytri-Njarðvíkurkirkju. Var þetta
fjölmennasti hópurínn sem
brautskráðst hefur frá skólan-
um, en frá upphafi hefur hann
útskrífað 807 nemendur.
Fjölbrautaskóli Suðumesja er í
mikilli þenslu, bæði hvað snertir
fjölda nemenda og þær námsgrein-
ar sem kenndar em. Nú útskrifuð-
ust nemendur í fyrsta skipti úr rétt-
indanámi skipstjóra og er það einn-
ig í fyrsta sinn sem skóli á Suður-
nesjum brautskráir skipstjóra. Að
þessu sinni skiptist útskriftarhópur-
inn þannig: 17 nemendur af flug-
liðabraut, af tveggja ára viðskipta-
braut einn nemandi, 6 nemendur
af iðnbrautum, einn af verknáms-
braut, 17 af stúdentsbrautum, 21
úr réttindanámi vélstjóra og 16 úr
réttindanámi skipstjóra.
í tali aðstoðarskólameistara,
Jón Sigurðsson tekur við blóm-
vendi frá Hjálmari Áraasyni
skólameistara i tilefni af þvi að
hann var 800. nemandinn sem
brautskráðist frá skólanum.
Sturlaugs Ólafssonar, kom fram að
aldrei hafa fleiri sótt nám við skól-
ann en í vetur, eða um 1200 talsins
á ýmsum sviðum. Minntist hann á
þá nýbreytni sem skólinn hefur
bryddað uppá með starfsnámi og
námsflokkum. Hjálmar Ámason
skólameistari kvaddi brautskráða
og kom víða við í ræðu sinni. Sagði
hann meðal annars að kennsla við
skólann hafí farið fram á 8 stöðum
í vetur og vonaðist hann eftir úr-
bætum strax. Ræddi hann einnig
um vilja skólayfírvalda til að sinna
brautum á sviði sjávarútvegs og
fískeldis til muna betur.
Fjöldamörg verðlaun voru veitt
til þeirra nema sem sköruðu framúr
í ýmsum sérgreinum og einnig
veittu fulltrúar Vélstjórafélags
Suðumesja og Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Vísis viðurkenn-
ingu þeim mönnum sem bestu ein-
kunn fengu í réttindanámi vélstjóra
og skipstjóra.
Fjöldi gesta var við brautskrán-
inguna og söng kór FS við athöfn-
ina undir stjóm Kjartans Más Kjart-
anssonar.
— EFI.
ttgargrgii!*.-?**
aegesa
uæaaagg;-. .attRJiSsr '':TSXBmas*BeBBB!!5*BHBE