Morgunblaðið - 09.01.1986, Síða 30

Morgunblaðið - 09.01.1986, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986 Aðeins tveir sóttu um og þeir voru ráðnir — segir flugmálastjóri „NYJA skipuritið gerir ráð fyrir ákveðnum tilfærslum manna og þar með ráðningu tveggja vaktstjóra. Aðeins tveir menn sóttu um starfið og þeir voru ráðnir,“ sagði Pétur Ein- arsson, flugmálastjóri, um ásakanir flugumferðarstjóra, um gerræðisleg vinnubrögð Flugumferðarstjórar við vinnu sína. Myndin er gömul, en í gær meinaði flugmálastjóri ljósmyndara Morgunblaðsins myndatöku í flugstjórn. --------- Deilan snýst um gerræðisleg vinnubrögð flugmálasljóra — segir talsmaður f lugumf er ðar stj óra „DEILAN snýst ekki eingöngu um nýja skipuritið heldur um það hvemig að þessari fram- kvæmd er staðið, stöðubreyt- ingum og gerræðislegum vinnubrögðum flugmálastjóra í þvi sambandi," sagði Kári Guðbjörnsson, talsmaður flug- umferðarstjóra, um þann ágreining, sem upp er kominn milli Flugmálastjómar og flug- umferðarstjóra á Reykjavíkur- flugvelli. Kári sagði, að at- burðir undanfama daga hefðu ekki verið skipulagðar aðgerðir af hálfu flugumferðarstjóra, en hins vegar mætti búast við ákveðnum aðgerðum á næst- unni vegna þessa máls. Að sögn Kára má rekja rót þessa máls til stöðubreytinga, sem nýja skipuritið gerir ráð fyrir, þar sem að í stað fjögurra varðstjóra og yfírflugumferðarstjóra í flug- stjóm koma nú fjórir vaktstjórar. „Við þessar breytingar var yfír- flugumferðarstjóri sviptur sínu starfi og skákað í nýtt tilbúið starf til tveggja ára, gegn sínum vilja," sagði Kári. „Það hafa ekki fengist svör, þrátt fyrir ítrekaðar fyrir- spumir, hvað verði um manninn eða stöðuna eftir tvö ár. Eins voru tveir varðstjórar í flugstjóm- armiðstöðinni teknir úr sínum stöðum og skákað í önnur emb- ætti til tveggja ára. í stað þeirra voru tveir „gæðingar" flugmála- stjóra skipaðir í stöðu vaktstjóra, sem samkvæmt nýja skipuritinu fá ekki aðeins yfírráð yfír flug- stjóm heldur einnig yfír flugtum- inum. Þessir tveir, sem voru hækkaðir upp, eru teknir fram yfir 20 til 30 aðra hæfa menn, sem hafa lengri starfsaldur. Um þetta snýst óánægja manna fyrst og fremst, en þó kemur meira til.“ Að sögn Kára telja flugum- ferðarstjórar að ólöglega hafi verið staðið að auglýsingu um ráðningu vaktstjóra af hálfu flug- málastjóra, þar sem ekki var auglýst í Lögbirtingablaðinu held- ur hafi auglýsing verið hengd upp á vegg í Flugtuminum. „Forsagan var raunar sú, að við fréttum, að flugmálastjóri hefði kallað þessa tvo til sín og boðið þeim stöðum- ar. Þetta kvisaðist út og stjóm FÍF lagði þá að mönnum að sækja ekki um stöðumar fyrr en komið væri á hreint hvað þama væri á seiði, það er hvort flugmálastjóri hefði verið búinn að ákveða fyrir- fram að ráða þessa „gæðinga" sína. Þess vegna sótti enginn um, nema þeir tveir, enda töldu menn að ólöglega hefði verið staðið að auglýsingunni. Flugmálastjóri skýtur sér nú á bak við það að hann hafi ráðið þá menn tvo menn sem sóttu um.“ Kári sagði ennfremur að mikil óánægja væri meðal flugumferð- arstjóra vegna yfirvinnuálags og manneklu í flugstjóm. Að sögn Kára hafa 14 flugumferðarstjórar í flugstjóm horfíð frá störfum síð- an 1981, en enginn bæst við þar. Síðustu tvö ár hafí umferð hins vegar aukist um 25%. Kári sagði Flugmálastjóri um manneklu í flugstjórn: Tveir menn hefðu get- að annað úthaf sfluginu að 35 menn, sem störfuðu í flug- stjóm, hefðu skilað um 1100 tólf tíma aukavöktum á ellefu mánuð- um á síðasta ári sem samsvaraði að meðaltali tveggja mánaða yfír- vinnu á mann, sem væri óheyri- legt álag í svona starfi. Ofan á þetta bætist svo við- brögð flugmálastjóra nú við þeim töfum sem urðu á mánudag og þriðjudag vegna manneklu í flug- stjóm. „Flugmálastjóri gefur í skyn að þetta séu skipulagðar aðgerðir og tilbúin veikindi hjá okkur. Það er hægt að færa sönn- ur á eðlileg forföll þessara manna. Af þeim ijórum, sem vantaði á mánudaginn, voru þrír veikir. Einn þeirra lenti í bílslysi í nóv- ember og hefur verið frá síðan. Annar var frá vinnu á þriðja mán- uð á síðasta ári vegna veikinda og af og til síðan. Sá þriðji er baksjúklingur og var í meðferð þennan dag.“ Varðandi fyrirhugaðar aðgerðir flugumferðarstjóra sagði Kári að þær myndu fyrst og fremst felast í því að menn yrðu tregir til að taka aukavaktir. Eins og vakta- skrámar hefðu verið undanfama mánuði hefði verið treyst á að fylla upp í göt með aukavöktum, en ef svo færi fram sem horfði, myndi það eflaust verða erfitt, og lítið þyrfti því út af að bregða til að vandræðaástand skapaðist. hans varðandi framkvæmd nýs skipurits í flugumferðarþjón- ustunni. Pétur sagði að í janúar hefði hann samið um það við stjóm Félags flugumferðarstjóra, að þessar fjórar stöður vaktstjóra yrðu auglýstar innan hópsins. Stöðumar hafi síðan verið aug- lýstar um vorið og þeir tveir sem sóttu um verið ráðnir í framhaldi af því. Varðandi hin nýju störf, sem tveir varðstjórar og yfírflug- umferðarstjóri voru skipaðir í sagði Pétur: „Félag flugumferðar- stjóra fór fram á það við ráðuneyt- ið að það gæfi þá yfirlýsingu, að skipuritinu yrði ekki breytt án vitundar og vilja ráðuneytisins. Það hefur engu verið breytt án vitundar og samþykkis sam- gönguráðuneytisins. Hins vegar er ómögulegt að segja fyrir um það í dag, hvað verður eftir tvö ár. En það stendur ekki til að leggja niður stöður þessara manna eða ýta þeim úr starfi, enda eru þeir skipaðir og þar með æviráðnir." Flugmálastjóri sagði, að það væri alþekkt í flugumferðarþjón- ustu um allan heim að víxla til yfirmönnum á um það bil tveggja ára fresti. Rætt hefði verið við alla þá menn sem fyrirhugað var að flytja til í starfi. „Svona fram- kvæmd er ekki hægt að gera nema í fullu samkomulagi við starfsmenn eða þá hreinlega með því að gera harkalegar ráðstafan- ir. Það var rætt við þá 9 menn í stjómun sem þetta varðaði og engin andmæli komu frá þeim fyrr en 12. desember, frá þremur, og síðan 31. desember, frá tveim- ur. Fjórir hafa hins vegar kosið að hlýða þessu. Ég heyrði engar óánægjuraddir fyrr en þann 12. desember. Staðreyndin er hins vegar sú, að þessi andmæli eru fram komin vegna mjög harðrar pressu frá félaginu. Það má bæta því við að þessir tveir, sem ráðnir voru í vaktstjórastöðu, hafa feng- ið skeyti frá stjóm félagsins, þar sem þeim er hótað brottrekstri úr félaginu," sagði Pétur Einarsson. VEGNA DEILNA sem upp eru komnar varðandi flugumferðar- stjórn á Reykjavíkurflugvelli hefur Pétur Einarsson, flugmála- sljóri, sent frá sér fréttatilkynningu þar sem drepið er á nokkra þætti þessa máls. Fréttatilkynning flugmálastjóra er svohljóðandi: „I yfirlýsingum talsmanns félags flugumferðarstjóra í gær, þ.e. 7. janúar, kemur fram að fækkað hafi um fjórtán manns í flugum- ferðarþjónustu á síðustu ámm, og enginn komið í staðinn. Þessi staðhæfing er beinlínis röng. Frá árinu 1981 hefur fækkað um 12 manns í flugumferðar- þjónustu. Sá fyöldi skiptist þannig: Níu manns hafa látið af störf- um af ýmsum ástæðum og þrír er annast aðflugsstjóm fyrir Reykjavíkurflugvöll í Keflavíkur- flugtumi. A sama tíma hafa 9 flugum- ferðarstjórar hafið störf. Þessi tala hefði getað orðið 12 ef ekki hefðu komið til mjög harðar að- gerðir félags flugumferðarstjóra þegar þeir stöðvuðu kennslu í október 1984 og vegna þess hröktust 3 nemar í flugumferðar- stjóm frá námi. Auk þess eru nú átta nemar í flugumferðarstjóm væntanlegir til landsins í febrúar að loknum 9 mánaða námstíma í Kanada. Þeir munu geta hafíð störf sem flugumferðarstjórar næstkomandi haust að lokinni starfsþjálfun. Nám flugumferðarstjóra hefur ekki gengið með eðlilegum hætti því hver einasti hópur nema hefur á einhveijum tíma stöðvast í námi vegna aðgerða félags flugum- ferðarstjóra. Einn hópur hefur verið stöðvaður ijórum sinnum, en vonandi heppnast að ljúka námi þeirra á næstu vikum. Ennfremur leggur talsmaður- inn áherslu á tveggja mánaða yfirvinnu 35 manna á ársgrund- velli. Rétt er þess vegna að fram komi að eitt af fjölmörgum atrið- um, sem stjómendur flugmála stefna að með skipulagsbreyting- unni er jöfnun yfírvinnu þannig að óhóflegt álag verði ekki á einstaka menn. í dag hefur verið lesin í útvarpi yfirlýsing frá nokkrum flugum- ferðarstjórum þar sem því er haldið fram að vegna öryggis hafi ekki verið hægt að manna allar stöður í flugstjóm morgun- inn 7. janúar og innanlandsflug- deild því lokuð. Manneklu var kennt um. Rétt er að taka fram af þessu tilefni að þáverandi vaktstjóri, sem er varaformaður Félags ís- lenskra flugumferðarstjóra, tók ákvörðun um að manna ekki inn- anlandsdeild (ACC LOW) og ráð- stafaði þeim 5 mönnum er hann hafði yfír að ráða í úthafsdeild (ACC High/Oceanic). Á tímabilinu kl. 08.00—09.00, er töfin á innanlandsfluginu varð, voru þvi 5 menn að stjóma umferð 13 flugvéla. Það er mat yfirmanna flugumferðarþjónustu að tveir, 2, menn hefðu getað annað þeirri umferð. Þrír hefðu því getað annast innanlandsflug, sem bráðlá á að gera.“ Reynsla varðstjórans vegur þyngra en álit flugmálastj óra — segir í yfirlýsingu flugumf er ðar stj óra sem voru á vakt á þriðjudaginn sl. „ÁRATUGA reynsla varðstjór- ans við flugumferðarstjóm hlýtur að vega þyngra á metun- um en álit núverandi flug- málastjóra," segir meðal ann- ars í yfirlýsingu frá flugum- ferðarstjórum, sem voru á vakt þriðjudaginn 7. janúar, er inn- anlandsflug taf ðist. Yfirlýsing flugumferðarstjór- anna er svohljóðandi: „Vegna ummæla flugmála- stjóra í kvöldfréttum útvarpsins 7. janúar 1986, um varðstjóra í flugstjómarmiðstöðinni á Reykja- víkurflugvelli, viljum við benda á eftirfarandi: Við eram alfarið sammála ákvörðun varðstjóra okkar þann 7. þessa mánaðar að opna ekki innanlandsdeild flugstjómar þennan dag, meðan nægur mann- afli var ekki til staðar. Sú ákvörðun flugmálastjómar að kreljast opnunar allra deilda þrátt fyrir takmarkaðan mann- afla, gengur í berhögg við gildandi starfsreglur, og er að okkar mati ábyrgðarleysi sem á ekkert skylt við öryggi flugumferðar. Teljum við að áratuga reynsla varðstjórans við flugumferðar- stjóm hljóti að vega þyngra á metunum en álit núverandi flug- málastjóra, Péturs Einarssonar."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.