Morgunblaðið - 09.01.1986, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986
Aðeins tveir
sóttu um og þeir
voru ráðnir
— segir flugmálastjóri
„NYJA skipuritið gerir ráð
fyrir ákveðnum tilfærslum
manna og þar með ráðningu
tveggja vaktstjóra. Aðeins tveir
menn sóttu um starfið og þeir
voru ráðnir,“ sagði Pétur Ein-
arsson, flugmálastjóri, um
ásakanir flugumferðarstjóra,
um gerræðisleg vinnubrögð
Flugumferðarstjórar við vinnu sína. Myndin er gömul, en í gær meinaði flugmálastjóri ljósmyndara
Morgunblaðsins myndatöku í flugstjórn. ---------
Deilan snýst um gerræðisleg
vinnubrögð flugmálasljóra
— segir talsmaður f lugumf er ðar stj óra
„DEILAN snýst ekki eingöngu
um nýja skipuritið heldur um
það hvemig að þessari fram-
kvæmd er staðið, stöðubreyt-
ingum og gerræðislegum
vinnubrögðum flugmálastjóra í
þvi sambandi," sagði Kári
Guðbjörnsson, talsmaður flug-
umferðarstjóra, um þann
ágreining, sem upp er kominn
milli Flugmálastjómar og flug-
umferðarstjóra á Reykjavíkur-
flugvelli. Kári sagði, að at-
burðir undanfama daga hefðu
ekki verið skipulagðar aðgerðir
af hálfu flugumferðarstjóra,
en hins vegar mætti búast við
ákveðnum aðgerðum á næst-
unni vegna þessa máls.
Að sögn Kára má rekja rót
þessa máls til stöðubreytinga, sem
nýja skipuritið gerir ráð fyrir, þar
sem að í stað fjögurra varðstjóra
og yfírflugumferðarstjóra í flug-
stjóm koma nú fjórir vaktstjórar.
„Við þessar breytingar var yfír-
flugumferðarstjóri sviptur sínu
starfi og skákað í nýtt tilbúið starf
til tveggja ára, gegn sínum vilja,"
sagði Kári. „Það hafa ekki fengist
svör, þrátt fyrir ítrekaðar fyrir-
spumir, hvað verði um manninn
eða stöðuna eftir tvö ár. Eins
voru tveir varðstjórar í flugstjóm-
armiðstöðinni teknir úr sínum
stöðum og skákað í önnur emb-
ætti til tveggja ára. í stað þeirra
voru tveir „gæðingar" flugmála-
stjóra skipaðir í stöðu vaktstjóra,
sem samkvæmt nýja skipuritinu
fá ekki aðeins yfírráð yfír flug-
stjóm heldur einnig yfír flugtum-
inum. Þessir tveir, sem voru
hækkaðir upp, eru teknir fram
yfir 20 til 30 aðra hæfa menn,
sem hafa lengri starfsaldur. Um
þetta snýst óánægja manna fyrst
og fremst, en þó kemur meira til.“
Að sögn Kára telja flugum-
ferðarstjórar að ólöglega hafi
verið staðið að auglýsingu um
ráðningu vaktstjóra af hálfu flug-
málastjóra, þar sem ekki var
auglýst í Lögbirtingablaðinu held-
ur hafi auglýsing verið hengd upp
á vegg í Flugtuminum. „Forsagan
var raunar sú, að við fréttum, að
flugmálastjóri hefði kallað þessa
tvo til sín og boðið þeim stöðum-
ar. Þetta kvisaðist út og stjóm
FÍF lagði þá að mönnum að sækja
ekki um stöðumar fyrr en komið
væri á hreint hvað þama væri á
seiði, það er hvort flugmálastjóri
hefði verið búinn að ákveða fyrir-
fram að ráða þessa „gæðinga"
sína. Þess vegna sótti enginn um,
nema þeir tveir, enda töldu menn
að ólöglega hefði verið staðið að
auglýsingunni. Flugmálastjóri
skýtur sér nú á bak við það að
hann hafi ráðið þá menn tvo menn
sem sóttu um.“
Kári sagði ennfremur að mikil
óánægja væri meðal flugumferð-
arstjóra vegna yfirvinnuálags og
manneklu í flugstjóm. Að sögn
Kára hafa 14 flugumferðarstjórar
í flugstjóm horfíð frá störfum síð-
an 1981, en enginn bæst við þar.
Síðustu tvö ár hafí umferð hins
vegar aukist um 25%. Kári sagði
Flugmálastjóri um manneklu í flugstjórn:
Tveir menn hefðu get-
að annað úthaf sfluginu
að 35 menn, sem störfuðu í flug-
stjóm, hefðu skilað um 1100 tólf
tíma aukavöktum á ellefu mánuð-
um á síðasta ári sem samsvaraði
að meðaltali tveggja mánaða yfír-
vinnu á mann, sem væri óheyri-
legt álag í svona starfi.
Ofan á þetta bætist svo við-
brögð flugmálastjóra nú við þeim
töfum sem urðu á mánudag og
þriðjudag vegna manneklu í flug-
stjóm. „Flugmálastjóri gefur í
skyn að þetta séu skipulagðar
aðgerðir og tilbúin veikindi hjá
okkur. Það er hægt að færa sönn-
ur á eðlileg forföll þessara manna.
Af þeim ijórum, sem vantaði á
mánudaginn, voru þrír veikir.
Einn þeirra lenti í bílslysi í nóv-
ember og hefur verið frá síðan.
Annar var frá vinnu á þriðja mán-
uð á síðasta ári vegna veikinda
og af og til síðan. Sá þriðji er
baksjúklingur og var í meðferð
þennan dag.“
Varðandi fyrirhugaðar aðgerðir
flugumferðarstjóra sagði Kári að
þær myndu fyrst og fremst felast
í því að menn yrðu tregir til að
taka aukavaktir. Eins og vakta-
skrámar hefðu verið undanfama
mánuði hefði verið treyst á að
fylla upp í göt með aukavöktum,
en ef svo færi fram sem horfði,
myndi það eflaust verða erfitt, og
lítið þyrfti því út af að bregða til
að vandræðaástand skapaðist.
hans varðandi framkvæmd nýs
skipurits í flugumferðarþjón-
ustunni.
Pétur sagði að í janúar hefði
hann samið um það við stjóm
Félags flugumferðarstjóra, að
þessar fjórar stöður vaktstjóra
yrðu auglýstar innan hópsins.
Stöðumar hafi síðan verið aug-
lýstar um vorið og þeir tveir sem
sóttu um verið ráðnir í framhaldi
af því. Varðandi hin nýju störf,
sem tveir varðstjórar og yfírflug-
umferðarstjóri voru skipaðir í
sagði Pétur: „Félag flugumferðar-
stjóra fór fram á það við ráðuneyt-
ið að það gæfi þá yfirlýsingu, að
skipuritinu yrði ekki breytt án
vitundar og vilja ráðuneytisins.
Það hefur engu verið breytt án
vitundar og samþykkis sam-
gönguráðuneytisins. Hins vegar
er ómögulegt að segja fyrir um
það í dag, hvað verður eftir tvö
ár. En það stendur ekki til að
leggja niður stöður þessara
manna eða ýta þeim úr starfi,
enda eru þeir skipaðir og þar með
æviráðnir."
Flugmálastjóri sagði, að það
væri alþekkt í flugumferðarþjón-
ustu um allan heim að víxla til
yfirmönnum á um það bil tveggja
ára fresti. Rætt hefði verið við
alla þá menn sem fyrirhugað var
að flytja til í starfi. „Svona fram-
kvæmd er ekki hægt að gera
nema í fullu samkomulagi við
starfsmenn eða þá hreinlega með
því að gera harkalegar ráðstafan-
ir. Það var rætt við þá 9 menn í
stjómun sem þetta varðaði og
engin andmæli komu frá þeim
fyrr en 12. desember, frá þremur,
og síðan 31. desember, frá tveim-
ur. Fjórir hafa hins vegar kosið
að hlýða þessu. Ég heyrði engar
óánægjuraddir fyrr en þann 12.
desember. Staðreyndin er hins
vegar sú, að þessi andmæli eru
fram komin vegna mjög harðrar
pressu frá félaginu. Það má bæta
því við að þessir tveir, sem ráðnir
voru í vaktstjórastöðu, hafa feng-
ið skeyti frá stjóm félagsins, þar
sem þeim er hótað brottrekstri úr
félaginu," sagði Pétur Einarsson.
VEGNA DEILNA sem upp eru komnar varðandi flugumferðar-
stjórn á Reykjavíkurflugvelli hefur Pétur Einarsson, flugmála-
sljóri, sent frá sér fréttatilkynningu þar sem drepið er á nokkra
þætti þessa máls. Fréttatilkynning flugmálastjóra er svohljóðandi:
„I yfirlýsingum talsmanns félags
flugumferðarstjóra í gær, þ.e. 7.
janúar, kemur fram að fækkað
hafi um fjórtán manns í flugum-
ferðarþjónustu á síðustu ámm,
og enginn komið í staðinn. Þessi
staðhæfing er beinlínis röng.
Frá árinu 1981 hefur fækkað
um 12 manns í flugumferðar-
þjónustu. Sá fyöldi skiptist þannig:
Níu manns hafa látið af störf-
um af ýmsum ástæðum og þrír
er annast aðflugsstjóm fyrir
Reykjavíkurflugvöll í Keflavíkur-
flugtumi.
A sama tíma hafa 9 flugum-
ferðarstjórar hafið störf. Þessi
tala hefði getað orðið 12 ef ekki
hefðu komið til mjög harðar að-
gerðir félags flugumferðarstjóra
þegar þeir stöðvuðu kennslu í
október 1984 og vegna þess
hröktust 3 nemar í flugumferðar-
stjóm frá námi. Auk þess eru nú
átta nemar í flugumferðarstjóm
væntanlegir til landsins í febrúar
að loknum 9 mánaða námstíma í
Kanada. Þeir munu geta hafíð
störf sem flugumferðarstjórar
næstkomandi haust að lokinni
starfsþjálfun.
Nám flugumferðarstjóra hefur
ekki gengið með eðlilegum hætti
því hver einasti hópur nema hefur
á einhveijum tíma stöðvast í námi
vegna aðgerða félags flugum-
ferðarstjóra. Einn hópur hefur
verið stöðvaður ijórum sinnum,
en vonandi heppnast að ljúka
námi þeirra á næstu vikum.
Ennfremur leggur talsmaður-
inn áherslu á tveggja mánaða
yfirvinnu 35 manna á ársgrund-
velli.
Rétt er þess vegna að fram
komi að eitt af fjölmörgum atrið-
um, sem stjómendur flugmála
stefna að með skipulagsbreyting-
unni er jöfnun yfírvinnu þannig
að óhóflegt álag verði ekki á
einstaka menn.
í dag hefur verið lesin í útvarpi
yfirlýsing frá nokkrum flugum-
ferðarstjórum þar sem því er
haldið fram að vegna öryggis
hafi ekki verið hægt að manna
allar stöður í flugstjóm morgun-
inn 7. janúar og innanlandsflug-
deild því lokuð. Manneklu var
kennt um.
Rétt er að taka fram af þessu
tilefni að þáverandi vaktstjóri,
sem er varaformaður Félags ís-
lenskra flugumferðarstjóra, tók
ákvörðun um að manna ekki inn-
anlandsdeild (ACC LOW) og ráð-
stafaði þeim 5 mönnum er hann
hafði yfír að ráða í úthafsdeild
(ACC High/Oceanic).
Á tímabilinu kl. 08.00—09.00,
er töfin á innanlandsfluginu varð,
voru þvi 5 menn að stjóma umferð
13 flugvéla. Það er mat yfirmanna
flugumferðarþjónustu að tveir,
2, menn hefðu getað annað þeirri
umferð. Þrír hefðu því getað
annast innanlandsflug, sem
bráðlá á að gera.“
Reynsla varðstjórans
vegur þyngra en
álit flugmálastj óra
— segir í yfirlýsingu flugumf er ðar stj óra
sem voru á vakt á þriðjudaginn sl.
„ÁRATUGA reynsla varðstjór-
ans við flugumferðarstjóm
hlýtur að vega þyngra á metun-
um en álit núverandi flug-
málastjóra," segir meðal ann-
ars í yfirlýsingu frá flugum-
ferðarstjórum, sem voru á vakt
þriðjudaginn 7. janúar, er inn-
anlandsflug taf ðist.
Yfirlýsing flugumferðarstjór-
anna er svohljóðandi:
„Vegna ummæla flugmála-
stjóra í kvöldfréttum útvarpsins
7. janúar 1986, um varðstjóra í
flugstjómarmiðstöðinni á Reykja-
víkurflugvelli, viljum við benda á
eftirfarandi:
Við eram alfarið sammála
ákvörðun varðstjóra okkar þann
7. þessa mánaðar að opna ekki
innanlandsdeild flugstjómar
þennan dag, meðan nægur mann-
afli var ekki til staðar.
Sú ákvörðun flugmálastjómar
að kreljast opnunar allra deilda
þrátt fyrir takmarkaðan mann-
afla, gengur í berhögg við gildandi
starfsreglur, og er að okkar mati
ábyrgðarleysi sem á ekkert skylt
við öryggi flugumferðar.
Teljum við að áratuga reynsla
varðstjórans við flugumferðar-
stjóm hljóti að vega þyngra á
metunum en álit núverandi flug-
málastjóra, Péturs Einarssonar."