Morgunblaðið - 09.01.1986, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1986
41
Konunglegt tómstundagaman
Orla Pedersen er prestur í Danmörku. Frá því
hann var þrettán ára hefur hann haft það að
tómstundagamni sínu að safna brúðum. En það hafa
ekki verið neinar venjulegar dúkkur heldur skilyrði
að þær væru konunglegar.
Að vísu tók Orla sér hlé frá söfnuninni á sínum
sokkabandsárum en fyrir fimm árum byrjaði hann
aftur, og safnar semsagt eftirlíkingum af konunglegu
fólki, bæði frá liðnum dögum og nútíð. Klerkurinn
býr til mikið af brúðunum sjálfur, saumar fötin á þær
og útbýr það sem tilheyrir, allt frá orðuböndum til
skartgripa.
„Þetta er afskaplega mikil handavinna segir hann,
en mjög skemmtilegt. Núna bíð ég bara eftir því að
komast á ellilaun svo ég geti helgað mig þessu af
alvöru.“
Leigði þotu og verslaði
fyrir nokkrar milljónir
egar nóg er til af seðlum
má finna sér ýmislegt ný-
stárlegt til dundurs. Diana Ross
tók upp á því fyrir jólin að leigja
sér DC-9-þotu og fljúga til Sun
Valley þar sem hún eyddi nokkr-
um miiljónum íslenskra króna í
jólagjafir handa vinum og ætt-
ingjum sínum.
COSPER
— Húrra, það er farið að snjóa.
VARMAPLAST
AUGLÝSIR:
Seljum eingöngu tregbrennanlegt
einangrunarplast, samþykkt af
Brunamálastofnun ríkisins.
GOTT PLAST • GOTT VERÐ • GÓÐ KJÖR
VARMA-PLAST
ÁRMÚLA 16. SÍMI 31231
Hressar konur
á öllum aldri!
Viö efnum áramótaheitiö og mætum í
leikfimi hjá Ingibjörgu í Melaskóla.
Uppl. og innritun aiia daga eftir kl. 18.00 í síma
73312.
Ingibjörg Jónsdóttir
íþróttakennari.
Ski-doo Skandic 377 R með afturabakgr. Langmest
seldi sleðinn til björgunarsveita og þeirra sem þurfa að
ferðast af öryggi. Traustur, léttur, lipur og sparneytinn.
Verð f. björgunarsveitir 128.000, aðrir 268.000.
Ski-doo Formula MX. Óvenju skemmtilegur alhliöa sleöi. |
jþýður, kraftmikill. Verð ca. 315.000.
Ski-doo Tundra. Traustur, léttur, lipur, sparneytinn,
með löngu belti og farangursgrind. Verð ca. 175.000.
Aktiv Panther. Langur, er meiriháttar sleði, e.t.v. þaö
fullkomnasta á markaönum: 500 cc. Rotax-motor. Beltiö
16“, lengd 397 sm, 2 glrar, áfram (hár og lágur) og 1
afturábak. Verð til björgunarsveita 186.000, aörir 368.000.
Einnig fyrirliggjandi aftansleðar og not-
aðir sleðar og mikið af varahlutum.
Gísli Jónsson & co. hf.
Sundaborg 11, smi 686644.