Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR 1986 25 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fróttastjórar Auglýsingastjóri Arvakur, Reykjavik Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágústlngi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Krlnglan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 40 kr. eintakiö. Vopnaðir lögreg’lumenn Stríðið gegn alþjóðlegum hryðjuverkamönnum tekur á sig margvíslegar myndir. Nú er svo komið, að íslensk yfir- völd hafa séð þann kost vænst- an að láta vopnaða lögreglu- menn gæta öryggis í alþjóðlegu flugstöðinni á Keflavíkurflug- velli. Eins og kunnugt er hafa verið þjálfaðar sérsveitir innan lögreglunnar í Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár. Hlutverk þessara sveita, svonefndra víkingasveita, er meðal annars að takast á við hryðjuverkamenn og sinna störfum, sem eru svo hættuleg, að þau er ekki unnt að fela öðrum en þeim, sem hafa hlotið sérstaka þjálfun. Það eru lög- reglumenn úr víkingasveitun- um á Keflavíkurflugvelli og í Reykjavík, sem gæta nú örygg- is á flugvellinum í skotheldum vestum og með vestur-þýskar vélbyssur sér við öxl. Það er sem betur fer nýmæli að sjá vopnaða fulltrúa íslenska ríkisvaldsins við störf. Á sínum tíma, fyrir tæpum 360 árum, kynntust íslendingar því hví- líku tjóni þeirra tíma hryðju- verkamenn frá löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs gátu valdið með því að senda hingað 4 skip. Eftir Tyrkjaránið 1627 réðu Vestmanneyingar byssu- skyttu til að standa vakt og þjálfuðu eigið heimavamalið. Fjórir illvígir ódæðismenn gætu unnið sambærileg voðaverk nú á tímum. Þótt samningur hafi verið gerður við Bandaríkjamenn, á grundvelli aðildarinnar að Atl- antshafsbandalaginu, um að þeir veiji ísland verði á það ráðist, felst ekki í þeim samn- ingi, að Bandaríkjamenn taki að sér öryggisgæslu á borð við þá, sem nú er haldið uppi í flugstöðinni á Keflavíkurflug- velli. Enginn íslendingur vill að vopnaðir Bandaríkjamenn taki á móti eða fylgi þeim úr hlaði, sem ferðast með flugvél- um til og frá landinu. Sé gæsla af þessu tagi nauðsynleg hér á landi á hún að vera á vegum íslendinga. Sömu sögu er að segja um eyðingu á sprengjum, tæki til hennar eiga að vera í höndum íslenskra stjómvalda. Það á ekki að þurfa að kalla á vamarliðsmenn eins og gert var við Tjörnina í Reykjavík á fimmtudagskvöld. Morgunblaðið hefur stutt þá stefnu, sem Siguijón Sigurðs- son, fyrrverandi lögreglustjóri í Reykjavík, mótaði með því að láta hefja sérþjálfun lögreglu- manna. Um það er ekki ágrein- ingur, aö á vegum ísienskra stjómvalda verður að starfa sveit manna, sem er til þess þjálfuð að geta tekist á við harðsvíraða glæpa- og ódæðis- menn. Flugstöðvar og flugvélar em sá vígvöllur, sem hryðjuverka- menn hafa valið í því óhugnan- lega stríði, sem þeir heyja. Undir lok síðustu viku bámst um það boð eftir leynilegum leiðum, að ætlun þessara hrotta væri að láta næst að sér kveða á Norðurlöndum. Þessi boð voru ekki sérstaklega send til íslands en engu að síður var ákvörðun tekin um þær varúð- arráðstafanir, sem hér er lýst. Sú spuming vaknar, hvort nauðsynlegt hafi verið að vopna lögreglumennina á Keflavíkur- flugvelli. Frásagnir í fjölmiðlum hafa vakið óhug hjá flugfarþegum. Um heim allan er nú haldið uppi meiri öryggisgæslu en venjulega. Um Keflavíkurflug- völl leggja leið sína allra þjóða menn og ekki síst Bandaríkja- menn, sem óttast um öryggi sitt. Því miður er svo komið, að þau flugfélög og þeir flug- vellir geta misst af viðskiptum, sem ekki sýna svart á hvítu, að þar sé haldið uppi gæslu. Þá er þess að gæta, að Island er aðeins í fárra klukkustunda flarlægð frá flugvöllum, þar sem hætta á hryðjuverkum er talin yfirvofandi. Menn hafa til dæmis getað farið á milli flug- véla á Kastrup-flugvelli við Kaupmannahöfn án þess að á þeim sé leitað. Það er stórt skref, sem ís- lensk stjómvöld hafa stigið með því að vopna lögreglumennina á Keflavíkurflugvelli. Enginn kostur er góður við ákvarðanir af þessu tagi. Miklu skiptir að þær séu teknar með þeim hætti, að ábyrgð og fyrirmæli séu skýr og afdráttarlaus. Annars vegar standa menn frammi fyrir kröfunni um að fyllsta öryggis sé gætt og hins vegar andspænis þeirri sögu- legu staðreynd, að íslendingar hafa ekki lagt stund á vopna- burð og eru því vanir að hann sé ónauðsynlegur til að halda uppi lögum og reglu í Iandi þeirra. AF INNLENDUM VETTVANGI eftir GUÐMUND MAGNÚSSON Brotalamir í Lánasjóði íslenskra námsmanna Málefni Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) hafa verið í brennidepli að undanförau vegna þeirrar ákvörðunar Sverris Hermannssonar, menntamálaráðherra, að víkja framkvæmda- stjóra sjóðsins úr starfi og afnema verðtryggingu við útreikning námslána. Um hvort tveggja er mjög deilt og ráðherra borinn þungum sökum. Hér er ekki ætlunin að taka afstöðu til þessa ágreinings, heldur vekja athygli á nokkrum atriðum varðandi Lánasjóðinn og rekstur hans, sem varpað geta ljósi á það hvers vegna ráðherrann tók af skarið með jafn afdráttarlausum hætti og raun ber vitni. Menntun er án vafa ein besta fjárfesting, sem vðl er á. Um réttmæti opinberrar námsaðstoðar er ekki deilt, heldur hitt hvernig að henni á að standa, svo hún verði til hagsbóta fyrir námsmenn og skattborgara. Lánasjóður íslenskra náms- manna er nú einn stærsti lánasjóður hér á landi. Á sfðasta ári var velta hans 1,3 milljarðar króna og á fjár- lögum þessa árs er gert ráð fyrir því að ríkisframlagið til sjóðsins nemi 865 milljónum, auk heimildar til erlendrar lántöku að upphæð 400 milljónir. Framlag ríkisins í sjóðinn hefur hækkað verulega með hveiju árinu og á undanfömum fiórum ámm hefur þessi hækkun verið um 75% að raungildi. Þetta stafar af því að lögum um sjóðinn hefur verið breytt og sá hópur námsmanna, sem á rétt á láni, hefur stækkað til mikilla muna. Einnig má rekja þetta til þess að reiknireglum um fjárþörf námsmanna hefur verið breytt. Fyrir hálfum öðrum áratug voru lánþegar sjóðsins 1.700. Flest- ir þeirra voru við nám í Háskóla íslands (51%) og í háskólum erlend- is (42%). Starfsárið 1984-1985 voru lánþegamir hins vegar 5.631, þar af 3.779 hér á landi og 1.852 erlendis. Starfsárið 1983—1984 vom lánþegar 5.164 og árið þar á undan 4.516. Þetta þýðir að málefni sjóðsins snerta mörg þúsund fiöld- skyldur á landinu. Hlutfallsleg skipting á síðasta starfsári var sú að 36,4% vom við nám í Háskóla íslands, 32,9% í háskólum og ýms- um sérskólum erlendis og 30,7% í öðmm skólum hér á landi, s.s. Tækniskólanum, Kennaraháskólan- um, Fósturskólanum, Vélskólanum, iðnskólum og myndlistarskólum. Ekki venjuleg lán Það Iiggur í augum uppi að þessi gífurlega útþensla Lánasjóðsins skapar stjómvöldum vandræði. Hvar á að taka peningana? Skilar öll þessi „íjárfesting í menntun" ágóða, sem réttlætir flárveitinguna? Eða er hér kannski ógætilega farið með fé skattborgara? í þessu sam- bandi er rétt að hafa í huga þýðing- armikið atriði: Aðeins lítill hluti námslánanna er endurgreiddur. Ástæðan er annars vegar sú að sjálft endurgreiðslukerfi Lánasjóðs- ins er í molum. Hins vegar er á það að benda að „námslánin" em ekki lán í venjulegum skilningi þess hugtaks vegna þess að þau bera ekki vexti, um lántökugjald er ekki að ræða og ekki er gert ráð fyrir því að höfuðstóllinn sé allur greidd- ur til baka. Af þeim sökum er rökréttara að tala um námsaðstoð og í sumum tilvikum námsstyrki, þótt það sé ekki alltaf gert hér. Um það er ekki ágreiningur milli stjómmálaflokkanna að rétt sé að reka lánasjóð á vegum ríkisins til að tryggja að allir námsmenn geti stundað nám án tillits til efnahags. Þeir sem öðm halda fram fara með staðlausa stafi. Um hitt er deilt hvemig standa á að þessari náms- aðstoð svo hún skili þjóðfélaginu raunvemlegum árangri og verði ekki baggi á skattborgumnum. Menn hijóta að vera sammála um það að námsmenn eigi ekki að vera forréttindastétt í íjárhagslegu tilliti og hið sama eigi að gilda um þá og aðra þegna landsins þegar draga þarf saman seglin. Á þessu hefur hins vegar orðið misbrestur. Frá 1982 og fram í desember á sfðasta ári hefur kaupmáttur námslána aukist um 13,8%. Á sama tíma hefur kaupmáttarskerðing launa numið um 14,7%. Námslán til ein- staklinga nema nú 20.900 kr. á mánuði, en byijunartaxtar BSRB ná ekki þeirri upphæð. Hjón með eitt bam fá 50.710 krónur á mán- uði. Það er því algengt að ráðstöf- unartekjur heimila námsfólks lækki að námi loknu, þegar launatekjur taka við af lánunum. Sú breyting, sem menntamála- ráðherra gerði á reglugerð LÍN í desember, felur í sér að námslán sem veitt verða á næstunni hækka ekki í samræmi við framfærsluvísi- tölu, heldur verða þau um sinn a.m.k. óbreytt að krónutölu miðað við tímabilið september-nóvember 1985. Þau skerðast m.ö.o. í sam- ræmi við verðbólguna á sama hátt og laun gera nú. Þessi breyting kann að leiða til þess að Lánasjóður- inn nái endum saman á þessu ári, þó það sé alls ekki víst. Formælend- ur námsmanna telja hins vegar óeðlilegt að slík breyting sé gerð á miðjum vetri, þegar námsmenn hafa steypt sér út í miklar fiárskuld- bindingar. Sumir þeirra vilja bíða eftir því að sett verði ný lög um sjóðinn, en núgildandi lög hafa verið í endurskoðun og Ifklegt að lagt verði fram stjómarfrumvarp um breytingar á lögum LÍN þegar al- þingi kemur saman á ný. Aðrir virðast hins vegar andvígir öllum breytingum sem hrófla á einhvem hátt við núverandi skipulagi náms- aðstoðarinnar. Þeir telja athafnir menntamálaráðherra undanfama daga „pólitfska aðfor“ og árás á það markmið sjóðsins að jafna aðstöðu til náms. Þegar málefni LÍN em athuguð á yfirvegaðan hátt kemur í ljós að þessi skoðun hefur ekki við nein rök að styðjast. Hvort sem ráðherra hefur staðið skynsam- lega að verki eða ekki, leikur enginn vafi á því að hann var að bregðast við tveimur erfiðum vandamálum. Annars vegar því að Lánasjóðurinn hefur þanist út fyrir eðlileg mörk, svo sem þegar hefur komið fram, og hins vegar því að alvarlegar brotalamir voru í rekstri hans, eins og nú verður vikið að. Léleg þjónusta Um árabil hafa námsmenn kvart- að yfír þjónustu á skrifstofu LÍN, sem er í 300 fermetra húsnæði að Laugavegi 77 í Reykjavík. Kvartan- ir þessar em margs konar og lúta m.a. að hrokafullu viðmóti sumra starfsmanna, seinagangi í af- greiðslu og margs konar mistökum starfsfólksins. Samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins hafa verið vemleg brögð að alvarlegum mis- tökum. Lán hafa margsinnis verið skakkt reiknuð út, gögn týnst á skrifstofunni, rangar og mótsagna- kenndar upplýsingar veittar eða fyrirspumum ekki sinnt. Ofan á þetta bætist að úthlutunarreglur sjóðsins þylga flóknar og ekki á hvers manns færi á að átta sig á því hvemig lán em reiknuð út og hvemig að endurgreiðslu þeirra er staðið. Stúdentaráð Háskóla íslands hefur oft gert athugasemdir við þjónustu skrifstofunnar og hefur t.d. nýlega gert samþykkt þar sem óskað er eftir því að sérstakri nefnd verði komið á fót til að vinna að tillögum um það hvemig bæta megi þjónustuna. Þá hefur Stúdentaráð nýverið óskað eftir því að náms- menn fái kvittun fyrir þeim gögnum sem þeir skila á skrifstofu sjóðsins, svo þeir standi ekki uppi réttlausir þegar gögnin týnast, eins og oft mun hafa gerst. í grein, sem Ólafur Amarson, fulltrúi Stúdentaráðs í stjóm LÍN, ritaði hér í blaðið sl. fimmtudag segir hann að enginn þurfi að fara í grafgötur um það, að ein helsta orsökin fyrir hinni slæmu þjónustu sé sú að stjómun skrifstofunnar hafi verið ábótavant. Hann segir bemm orðum, að fyrrverandi fram- kvæmdastjóri hafi verið „þröskuld- ur í vegi umbótamála" og hjá hon- um hafi ekki virst neinn „merkjan- legur áhugi . . . á því að breyta einu eða neinu til hagsbóta fyrir viðskiptavini sjóðsins." Hér er ekki vettvangur til að leggja dóm á þessar þungu ásakanir, en þau gögn sem Morgunblaðið hefur undir höndum benda ótvfrætt til þess að ýmsu hafi einnig verið ábótavant í þeim þáttum í rekstri skrifstofu LÍN, sem ekki lúta beint að þjónustu við námsmenn. Ríkisendurskoðun ger- ir athugasemdir Svo sem fram kom hér í blaðinu á fimmtudag og föstudag hefur Ríkisendurskoðun nokkmm sinnum gert athugasemdir við reikningsskil LÍN og fyrir liggur að ekki hefur öllum fyrirmælum hennar verið sinnt. Af þeim sökum sendi Ríkis- endurskoðun fyrrverandi fram- kvæmdastjóra LJN bréf í október sl. þar sem athygli hans er vakin á því að ríkisfyrirtækjum beri skilyrð- islaust að fara eftir úrskurðum stofnunarinnar. í bréfinu segir síð- an orðrétt: „Lagt er fyrir yður að fullnægja nú þegar úrskurði vegna ársins 1984, sem sendur var yður 20. sept. sl. og senda Ríkisendur- skoðun afrit af honum með áritun yðar um fullnustu." Þessari kröfu mun ekki hafa verið sinnt. Athugasemdir Rikisendurskoð- unar lúta m.a. að því að starfsmenn séu mun fleiri en heimilt er sam- kvæmt fjárlögum, yfirvinna qokk- urra starfsmanna sé óhófleg, reikn- ingsskil vegna ferðalaga starfs- manna til útlanda óviðunandi o.fl. Ennfremur gagnrýnir Ríkisendur- skoðun að laun lausráðinna starfs- manna séu ákveðin af fram- kvæmdastjóranum og greidd eftir reikningi í Veðdeild Landsbankans, sem þýðir að þau eru tekin af því fé sem fara á í námslán samkvæmt ákvörðun alþingis. Vill Ríkisendur- skoðun að allar launagreiðslur sjóðsins fari ( gegnum launadeild fjármálaráðuneytisins. Fyrrverandi framkvæmdastjóri hefur bent á það, að samkvæmt reglugerð um LJN hafi hann heimild til að lausráða starfsfólk til tíma- bundinna verkefna. Ekki hafi verið unnt að sinna verkefnum sjóðsins eingöngu með þeim mannafla, sem heimilt var að ráða. Hvort tveggja er án vafa rétt, en það breytir ekki hinu að óeðlilega virðist staðið að ráðningu þessa fólks og launa- greiðslum til þess. Um vandann, sem staðið var frammi fyrir, er m.ö.o ekki ástæða til að deila, held- ur hitt hvemig hann var „leystur". Úrlausn vanda af þessu tagi hlýtur að vera verkefni ráðherra, en ekki framkvæmdastjóra eða sjóðsstjóm- ar. Raunar er ekki á hreinu hver hlutur stjómarinnar er S þessu máli, en rétt er að vekja á því athygli, að fulltrúar ríkisins í stjóm Lána- sjóðsins eru skipaðir til fjögurra ára í senn og það var ekki fyrr en í haust sem núverandi ríkisstjóm komst þar í meirihluta. Fyrir þann tíma munu hafa verið margvíslegir erfiðleikar í samskiptum Ragnhild- ar Helgadóttur, þáverandi mennta- málaráðherra, og sjóðsins. Ragn- hildur beitti sér fyrir því árið 1983 að gerð væri rækileg úttekt á sjóðn- um og í framhaldi af því vom gerðar nokkrar breytingar á reglugerð LÍN og úthlutunarreglum. Ákveðið var að bíða með frekari aðgerðir þar til lokið væri endurskoðun laganna um sjóðinn, en það var svo mat Sverris Hermannssonar að ein for- senda þess að koma breytingum í höfn væri að framkvæmdastjórinn viki úr starfi. Annars er ástæða er til að benda á, að ekki virðast allar mannaráðn- ingar sjóðsins hafa verið jafn brýn- ar. í nýjustu starfsskýrslu LÍN kemur t.d. fram að ráðinn hefur verið „sérfræðingur" í fullt starf til að sinna fjárhagsáætlunum, út- gáfustarfi og rannsóknum á sögu sjóðs og námsaðstoðar. Úrbætur á Lánasjóðnum. Ýmsar hugmyndir em uppi um það hvemig bregðast eigi við þeirri stöðu sem blasir nú við í máium LÍN. Tillögur menntamálaráðherra þar að lútandi verða væntanlega kunngerðar innan skamms, en hér skulu að lokum nefnd tvö atriði, sem hljóta að koma til álita þegar hugað er að úrbótum. í fyrsta lagi er biýnt að einfalda alla starfsemi Lánasjóðsins. Kemur sterklega til greina að leggja skrif- stofuna hreinlega niður og fela bönkum að greiða lánin út og inn- heimta þau. Þetta mundi leiða til þess að eftirlit yrði minna með námsmönnum, en nú er, en þá ber að hafa ( huga að unnt er að gera dijúgan hluta núverandi eftirlits skrifstofu LÍN óþarfan með laga- breytingu (s.s. með því að láta tekjur ekki hafa áhrif á upphæð námslána, enda bitnar það verst á efnalitlum námsmönnum). í raun virðist eina eftirlitið, sem þörf er á, vera að vottorðum sé skilað um að nám fari raunverulega fram og því miði eðlilega. í öðru lagi þurfa endurgreiðslur að vera örari og hærri, en nú við- gengst. Ekki virðist óeðlilegt að sama regla gildi hér og víða erlend- is, að lagðir séu á lánin vextir og lántökugjald, sem standi undir kostnaði við afgreiðslu þeirra. Hér þyrfti þó að gæta þess að fþyngja námsmönnum ekki um of fyrstu árin eftir að þeir ljúka námi og eru að eignast heimili og fjölskyldu. Jólaskákmótið í Hastings: Glæsilegnr signr Margeirs Péturs- sonar færði honum stórmeistaratitil Jólaskákmótið í Hastings 1985—1986 Titill «ti* 1 2 8 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 vinningar rU 1. MargeirPétuisson AM 2510 X >/2 >/2 ‘/2 >/2 >/2 1 V2 '/2 1 1 1 1 1 9 V2 2. Mikhailschisin (Sovétrikjunum) AM 2455 >/2 X >/2 >/2 ‘/2 1 V2 1/2 1 V2 1 >/2 1 1 9 3. Conquest (Engiandi) AM 2550 >/2 V2 X ‘/2 ‘/2 1 >/2 >/2 0 1 0 1 1 1 8 4. Balasjov(Sovétríkjunum) SM 2480 >/2 •/2 V2 X ‘/2 V2 V2 V2 V2 1 V2 '/2 1 1 8 5. Jóhann Hjartarson SM 2510 '/2 >/2 >/2 '/2 X 0 1 V2 V2 0 >/2 1 1 1 7 V2 6. Greenfeld (Israei) AM 2350 >/2 0 0 V2 1 X 0 V2 1 1 0 1 1 1 7‘/2 7. Braga (Argentfnu) KvSM 2420 0 ‘/2 '/2 >/2 0 1 X Va >/2 V2 1 1 V2 1 7'/2 8. Federovicz (Bandaríkjunum) AM 2515 >/2 ‘/2 ‘/2 '/2 '/2 V2 V2 X V2 >/2 '/2 >/2 V2 1 7 9. Waíson (Gngiandi) FM 2345 >/2 0 1 V* */2 0 ‘/2 V2 X 0 1 V2 1 1 7 10. Rukavina(Júgóslavfu) SM 2505 0 ‘/2 0 0 1 0 V2 V2 1 X 1 V2 V2 1 6‘/2 ‘ 11. BeUoo(^áni) AM 2435 0 0 1 >/2 V2 1 0 V2 0 0 X 0 V2 0 4 12. Plasket(Gnglandi) AM 2480 0 >/2 0 >/2 0 0 0 V2 Va '/2 1 X V2 0 4 13. Pia Cramiing (Svfþrjóð) SM 2505 0 0 0 0 0 0 V2 V2 0 '/2 V2 '/2 X 1 3'/2 14. Fonnanek(B*ndarfljunum) SM 2435 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1 1 0 X 2 XI. Styrkleikaflokkur FIDE: Stórmeistaraárangur: 9 */2 v, árangur alþjóðlegs meistara: 6 */2 v. Skák Bragi Kristjánsson Jólaskákmótinu í Hastings lauk á sunnudag með glæsilegum sigri Margeirs Péturssonar. Hann hlaut 9 ‘/2 vinning í 13 skákum án taps. Með þessum frábæra árangri hefur Margeir tryggt sér stórmeistaratitil í skák, fimmti íslendingurinn er öðlast þann titil. Friðrik Ólafsson, Guðmundur Siguijónsson, Helgi Ólafsson og Jóhann Hjartarson hafa titilinn fyrir. Margeir gerði jafntefli í tveim fyrstu skákunum í Hastings, en tók svo mikinn sprett, hlaut 6 V2 vinn- ing úr sjö næstu skákum. Hann var þá orðinn langefstur og þurfti að- eins 2 vinninga í 4 skákum sem eftir voru, til að ná stórmeistara- titli. Margeir tók þá ákvörðun að tefla fyrir öryggið til að tryggja sér titilinn og gerði fjögur varfæmisleg jafntefli í lok mótsins. Hann varð þar með stórmeistari og forskotið dugði honum til að verða einn f efsta sæti mótsins. Margeir er mjög vel að þessum árangri kominn. Hann tefldi af miklum sigurvilja og var aðeins einu sinni í taphættu, gegn Braga frá Argentínu. Margeir hefur ekkert teflt í hálft ár og mátti þess vegna búast við erfíðleikum hjá honum f upphafi. Þegar í mótið kom tefldi hann eins og sá sem valdið hefur og safnaði vinningum af miklu öryggi. Sú mikia reynsla sem Mar- geir öðlaðist á millisvæðamótinu sl. sumar er sennilega að skila sér nú. Gaman verður að fylgjast með frammistöðu hans í tveim stórmót- um í febrúar. Sovéski stórmeistarinn Mikhailschisin, varð í öðru sæti. Hann tefldi mjög rólega framan af mótinu, en vaknaði til lífsins í 10. umferð. Endasprettur hans, 3 V2 v. í 4 síðustu skákunum, kom of seint til að hann næði Margeiri. í 3.-4. sæti komu enski unglingurinn Conquest og sovéski stórmeistarinn Balasjov. Conquest kom mjög á óvart með góðri taflmennsku. Hann var í mótsbyijun með næstlægstu stigin en tefldi af mikilli hörku. Hann náði árangri alþjóðlegs meist- ara, en sagt er að hann hafi þegar náð þeim titli. Balasjov virðist ekki leggja sig mikið fram og uppsker í samræmi við það. ^ Jóhann Hjartarson, Greenfeld (ísrael) og Braga (Argentínu) voru jafnir í 5.-7. sæti með 7 V2 vinning hver. Jóhann er varla ánægður með sinn hlut en tvö slysaleg töp gerðu vonir hans um efstu sætin að engu. Ekki er þó hægt að segja að fimmta sætið í svo sterku móti sé slæm útkoma. Greenfeld byijaði vel en tapaði þrem skákum í lokin og þar með missti hann af efstu sætunum. Argentínumaðurinn tefldi mun bet- ur en búist var við og hefði með smáheppni getað orðið enn ofar í mótslok. í 8.-9. sæti komu Federovicz ( Bandaríkjunum) og Watson (Eng- landi). Bandaríícjamaðurinn er einn þeirra skákmanna sem árum saman hefur reynt að ná stórmeistaratitili. í byijun fannst honum mótið svo sterkt að hann reyndi ekki að ná titlinum, heldur sneri sér að því að fjöldaframleiða jafntefli. Þessi af- staða Federovicz lýsir betur en mörg orð hver frammistaða Mar- geirs er glæsileg. Watson byijaði mjög vel en þijú töp í röð sendu hann niður vinningstöfluna. Frammistaða Piu Cramling veld- ur vonbrigðum. Hún var geysilega taugaóstyrk og hafði ekki úthald til að tefla skákimar til enda. í næsta mánuði byija áskorendaein- vfgi kvenna og árangur Piu nú gefur ekki fögur fyrirheit um baráttu hennar við sovésku skákkonumar. Um önnur úrslit vísast til meðfylgj- andi töflu. Eftirfarandi staða kom upp í 8. umferð í skák Margeirs við Banda- rikjamanninn Formanek. Hvítt: Margeir Svart: Formanek Hvítur hefur mun betri stöðu en hann á erfítt með að notfæra sér það vegna þess að staðan er mjög lokuð. Formanek var kominn í mikið tímahrak og hyggst veiða hrókinn áb5. 35. Kd3 - Ra7 óvíst er, að fómin á c5 standist ef svartur leikur ekki riddara sínum á þennan óhagstæða reit. 36. Rxc5! — Bxc5 Eða 36. — Rxb5, 37. Rxa6 og hvítur vinnur a.m.k. peð. 37. Bxc5 — dxc5 Hvítur hefur vinningsstöðu eftir 37. - Rxb5, 38. cxb5 - H6a7 (38. — dxc5, 39. bxa6 — Hxa6, 40. Hb7 ásamt Rb5 og Kc4 o.s.frv.) 39. Bxa7 - Hxa7, 40. b6 - Hb7, 41. Rb5 — Kd7, 42. Ra3 ásamt 43. Rc4 o.s.frv. 38. Hxc5 — Rac8 Eftir 38. - Hc8, 39. Hxc8+ - Raxc8, 40. Hb7 ásamt c5 og Rb5 getur svartur ekki stöðvað framrás hvítu miðborðspeðanna. 39. Rb5 — Kd8. Formanek féll á tfma um leið og hann lék þennan leik, en staða hans er gjörtöpuð eftir 40. Rc7 og annar svarti hrókurinn fellur í skiptum fyrir riddarann.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.