Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986 . ÍTALSKA, SPÆNSKA, ENSKA fyrir byrjendur. Uppl. og innritun í síma 84236. RIGMOR _________________________________ boulique rn.imaima Saumað eftir máli Nýja Kjörgarði Laugavegi 59, 2. hæð. Utsala — Útsala Mikil verölækkun Glugginn, Laugavegi 40 (Kúnsthúsinu). Sími 12854. VÖKVASTÝRI í LAPPANN Já nú er loksins hægt aö fá traust og vandaö vökvastýri í Volvo Lapplander. Allar festingar og greinargóðar leið- beiningar um ísetningu á íslensku fylgja hverju setti. Viö getum ennfremur annast ísetningu ef óskað er. Hagstætt verö. rts/MMó}® FUNAHÖFÐA 1 - REYKJAVÍK S. 91-685260 GREIÐENDUR Á bakhlið launamiðans eru prentaðar leiðbeiningar um útfyllingu einstakra reita launamiðans. Þar kemur m.a. fram að í reit 02 á launamiða skuli telja fram allar tegundir launa eða þóknana sem launþegi fær, ásamt starfstengdum greiðslum svo sem: 1. verkfærapeninga eða verkfæra- gjald, 2. fatapeninga, 3. flutningspeninga og greiðslu far- gjalda milli heimilis og vinnu- staðar. Greidda fæðispeninga skal telja fram í reit 29 ásamt upplýsingum um vinnu- dagafjölda viðkomandi launþega. Frestur til að skila launamiðum rennur út þann 20. janúar. Það eru tilmæli að þér ritið allar upplýsingar rétt og greinilega á miðana og vandið frágang þeirra. RÍKISSKATTSTJÓRI Píanótónleikar _________Tónlist Jón Ásgeirsson Halldór Haraldsson píanóleik- ari hélt tónleika sl. laugardag á vegum Tónlistarfélagsins í Aust- urbæjarbíói. Efnisskráin var feikna erfíð, hver stórvirkið eftir annað en tónleikamir hófust með „Appassionata“-sónötunni, eftir Beethoven. Hjá Halldóri var þetta fremur kaldur og ástríðulítill Beethoven, þó eitt og annað væri vel gert. Tvö Scherso, nr. 1 og 3 voru næst á efnisskránni og þó hraðaheitin séu „Presto con fu- oco“ og „Agitato" í fyrra „skeró- inu“, var harðinn hraðinn að minnsta kosti of mikill fyrir Hall- dór. Miðþátturinn, „Molto piu lento", var mjög fallega leikinn. Hraði er afstætt fyrirbrigði og við viss mörk verður að gæta þess, ef farið er yfir þau, að ekki skipti um svonefndan „púls“. Við það verður æðasláttur verksins tvisvar sinnum hægari og missir verkið þá alla spennu. í „meno mosso“-kaflanum, í þeirri þriðju, eru afar falleg blæbrigða- skipti, sem skildu sig ekki að, en runnu út f eitt hjá Halidóri. Því miður verður að segja eins og er, að margt í skersóunum var afar flausturlega flutt af Halldóri og má vera óstyrk um að kenna, er olli því að hann kunni sér ekki hóf í hraðavali sínu. Við slíkar aðstæður verður leikurinn ekki aðeins óskýr, heldur tapast einnig margt annað sem er þýðingarmik- ið. Eftir hlé voru fjögur verk eftir Franz Liszt. Funérailles var fyrst, en það hefst á klukknahringingu. Miðþátturinn minnir á frægan kafla í As-dúr, Pólonesunni, eftir Chopin. Hvað sem segja má um slíkt, þá er það merkilegt að verk- ið er samið nokkrum dögum eftir að Chopin lést, en áður hafði Liszt forðast að stæla eða taka upp eftir vini sínum. Annað Liszt- verkið var Konsertæfíng nr. 2. Verkið tekur nafn sitt, „La Leggi- erezza", af streymandi „léttum" smástígum tónhendingum, sem í veikum leik gæti hljómað eins og ímynd þess, er áleitinn vindblær splundrar glitrandi fosssprænu yfír gróandi blómabrekku. Tvö seinni Liszt-verkin voru 10. og 11. æfingin úr „Transcendental"- æfíngunum, sem kalla mætti „nálgun hins yfirskilvitlega". Liszt hugsaði hátt í listsköpun sinni, ekki aðeins varðandi tækni- legar úrlausnir, heldur í túlkun háleitra tilfinninga. í elleftu æf- ingunni, sem kalla mætti „nætur- Halldór Haraldsson. óman“ leikur hann með hljóm- brigði, sem segja má að ilmi af næturangan og minna óneitan- lega á síðari túlkun Debussy. Þarna var Halldór í betra jafn- vægi, að því er virtist, þó brygði fyrir einstaka erfiðu augnabliki. Þessi verk er mjög erfitt að leika og túlkun þeirra næst ekki að marki, fyrr en tækniörðugleikam- ir hafa verið sem nær því yfir- unnir. Síðasta verkið var sónata frá árunum 1926, eftir Bela Bart- ok. í þessu verki fellir Bartok alþýðulög að formi klassísku són- ötunnar. Fyrsti þátturinn er hryn- sterkur, annar þátturinn dul- úðugur og síðasti fjörugt til- brigða-rondo. Verkið er erfitt og gerir miklar kröfur til hrynskerpu flytjandans en einnig skýrleika og hreina hljóman. Sé einhverstaðar slakað á verða hljómrænir árekstrar of mikils ráðandi í upplifun verksins, sem má vera „kaldhamrað" í flutningi en um- fram allt spennuþrungið. Halldór Haraldsson á til marga góða hluti en ekki er undirritaður viss um að það sé í sjálfu sér markmið, að taka til meðferðar svo erfiða efnisskrá, sem hann gerði nú, því ekki bjóðast svo mörg tækifæri hér á landi til að flytja slíka tónlist, að komist verði hjá því að vera sífellt að leika í fýrsta sinni, þ.e. hveija efnisskrá aðeins einu sinni. Ekki er heldur hægt að ætla hugumstórum lista- manni að hokra að litlu, gera sátt við meðalmennskuna og því ber að sjá til með þeim, sem tendraðir eru og snúast vilja gegn brimandi hversdagsmennskunni, er löðr- andi æðir yfir og slettist í allar áttir. Kynningarstarf Hólmfríðar Karlsdóttur: Ákvörðun um þátttöku Reykjavíkur vísað til borgarstj ómar ÁKVORÐUN um þátttöku Reykjavíkurborgar í kynningar- starfi Hólmfríðar Karlsdóttur var vísað til borgarstjómar eftir atkvæðagreiðslu um málið í borgarráði á föstudag. Verður málið tekið fyrir á borgarstjóm- arfundi hinn 16. janúar næst- komandi. Á fundi borgarráðs voru lögð fram drög að samningi Flugleiða, Ferðamálaráðs, Félags íslenskra iðnrekenda, fiskútflytjenda og samstarfsnefndar um ferðamál í Reykjavík við „Miss World Ltd.,“ um kynningarstarfsemi í tengslum við ferðir Hólmfríðar Karlsdóttur. Gert er ráð fyrir að kostnaður samstarfsnefndarinnar vegna sam- komulagsins verði 5000 sterlings- pund, um 305 þúsund íslenskar krónur. í borgarráði hlaut tillagan fjögur atkvæði gegn einu atkvæði Sigurjóns Péturssonar, fulltrúa Alþýðubandalags, og fer því sjálf- krafa fyrir borgarstjóm. íþrótta- og tómstundaráð: Mælir með Jóni Magnús- syni í stöðu vallarstjóra ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Reykjavíkur hefur mælt með því við borgarráð, að Jón Magnússon, verkstjóri hjá íþróttavelli Reykja- víkur, verði ráðinn í stöðu vallar- stjóra við íþróttavelli borgarinnar. Við atkvæðagreiðslu í íþrótta- og tómstundaráði hlaut Jón þrjú at- kvæði og Jóhannes Óli Garðarsson tvö atkvæði. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.