Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986
13
Morgunblaðið/Svavar
Æfingar á námskeiðinu voru marg-
víslegar, m.a. björgun manna með
þyrlu.
Slysavarna-
félagið með
námskeið á
Ólafsfirði
Akureyri, lO.janúar.
Slysavarnafélag íslands hélt í
vikunni, frá þriðjudegi til
fimmtudags, námskeið fjrir
skipshöfnina á Sigurbjörgu OF 1
í Ólafsfirði. 29 manns tóku þátt
í námskeiðinu sem Þorvaldur
Axelsson stjórnaði. „Ef námsefn-
ið hefur ekki komist til skila er
það ekki nemendunum að kenna
því þetta var mjög áhugasamur
og skemmtilegur hópur,“ sagði
Þorvaldur í samtali við blaða-
mann Morgunblaðsins á Akur-
eyri.
Á námskeiðinu var fjallað um
flesta þætti öryggistækja um borð
í skipum, nýliðafræðslu og neyðar-
skipulag, maður fyrir borð, meðferð
gúmmíbáta, flotbúninga, fluglínu-
tækja og línubyssu, björgun með
þyrlu, skyndihjálp — einkum lífgun
úr dauðadái, blástursaðferð og
hjartahnoð, og brunavarnir og
slökkvistörf.
Ólafsfjörður er þriðji staðurinn á
landsbyggðinni þar sem Slysa-
vamafélagið hefur haldið námskeið
sem þetta í vetur, áður gekkst fé-
lagið fyrir námskeiði í Grindavík
og Skagaströnd, og einnig hefur
námskeið verið haldið í Reykjavík.
Þorvaldur sagði námskeiðið byggj-
ast á sérstakri dagskrá sem enn
væri í mótun og Slysavarnafélagið
yrði á ferðinni í vetur með nám-
skeiðahald eftir því sem beðið yrði
um.
Þorvaldur var spurður hvort
hann héldi kunnáttu sjómanna í
öryggis: og björgunarmálum ábóta-
vant. „Ég held það ekki — ég veit
að henni er hættulega ábótavant,
enda er slysatíðni meðal íslenskra
sjómanna sú hæsta í heiminum. Og
því miður má rekja mikinn hluta
óhappa til mannlegra mistaka,"
sagði hann.
Síðustu árin hafa strönd og elds-
voðar í skipum stórlega aukist að
sögn Þorvalds. „Ef við tökum 20
ára tímabil, fyrstu árin 1964-73 og
síðan 1974-83, þá hefur ströndum
fjölgað um 150% milli þessara tíma-
bila, þrátt fyrir tæknibiltingu í öil-
um leiðsögutækjum. Ég er smeykur
um að oftrú á tækin sé oft um að
kenna — kannski líka þreytu.
Ásamt Þorvaldi leiðbeindu á
námskeiðinu Höskuldur Einarsson
og Þórir Gunnarsson frá Landssam-
bandi slökkviliðsmanna. Þá má geta
þess að Landhelgisgæslan sendi
nýju þyrluna, TF-SIF, til að kynna
mönnum getu hennar og hún tók
þátt í björgunaræfingu.
INÝTT ÁFANGAKERFII
Byrjendur.. .Lærlin gar
Sveinar...Meistarar
Mímir tekur nú upp nýtt áfangakerfi með það fyrir augum að auóvelda
nemendum skólans að meta framfarir sínar við tungumálanámió. Áfangakerfið
samanstendur af fjórum stórum áföngum en innan hvers áfanga eru fjögur
sjö vikna námskeið sem tengjast innbyróis. Milli áfanga veröa haldin
stöðupróf en lítil (progress) próf í lok hvers sjö vikna námskeiðs.
Áfangana höfum við skírt gamalkunnum nöfnum; Byrjendur.
Lærlingar. . .Sveinar. . . Meistarar. Fyrstu námskeiðin hefjast
15. janúar og standa til 4. mars; kennt verður í öllum a) og
c) flokkum áfanganna á þessari fyrstu önn ársins 1986.
ykkar í tungumálinu leysa stöðuprófin
úr þeim vanda.
Semsagt: minnsta mál í heimi!
Próf
Próf
BYRJENDUR
7 vikur j 7 vikur 7 vikur j 7 vikur
a l i b c ! d
t
28 vikur
enska
þýska
franska
spænska
ítalska
ísl.f.útl.
t
LÆRLINGAR
I 7 vikur I 7 vikur i i 7 vikur 1 7 vikur i l
l 1 a | b 1 ? ! d
enska
þýska
franska
spænska
ítalska
ísl.f.útl.
t
óf
SVEINAR
7 vikur | 7 vikur 1 1 i 7 vikur 1 7 vikui 1 1 I 1
1 1 1 1 ? ! b l i i c | d
28 vikur.
28 vikur
enska
þýska
franska
spænska
ísl.f.útl.
enska
þýska
franska
spænska
ísl.f.útl.
enska
X
siftl
enska
? i b I c 1
a.m.k. 28,vikur
enska enska
ATH! Námskeió í sveina- og meistaraflokkum veröa haldin ef næg
þátttaka fæst.
15. jan-4. mars
Þið getið notað þá málfræði sem
þið hafið lært. Erlendis verðið
þið fær um að bjarga ykkur á
hótelum, flugvöllum, veitinga-
húsum, o.s.frv. Þið getið rætt
hversdagslega hluti á einfaldan
hátt og gert ykkur skiljanleg. Þið
kunnið u.þb. 1500 orð.
SVEINAR:
Þið eigið auðvelt með að tala og
bjarga ykkur við flestar að-
stæður. Hvort sem þið eruð að
kvarta um hótelið, að ræða um
vinnuna, lýsa þeim kvikmynd-
um eða bókum sem ykkur finnst
góðar, eða að segja frá reynslu
ykkar, þá getið þið það án erfið-
leika. Þið getið rætt um fjölbreytt
umræóuefni, meðal annars,
vinnu, menningu, heilsu, mat,
tómstundaáhugamál og síöast
en ekki síst — veðrið.
MEISTARAR:
Samræður eru ekkert mál. Á
þessu stigi eruð þið að reyna að
auka oróaforðann og þekkingu
ykkar á tungumálinu og blæ-
brigðum þess.
Kennt er tvisvar í viku, tvær
kennslustundir í senn og öll
kennslugögn innifalin í nám-
skeiðsgjaldi. Síödegis- og kvöld-
tímar f öllum áföngum en lfka
morgun- og dagtímar fyrir byrj-
endur og lærlinga.
Mímir
ÁNANAUSTUM 15
MÁLASKÓLI
RIT ARASKÓLI