Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986
Fj ölbreytt dag-
skrá á Listahátíð
unga fólksins
LISTAHÁTÍÐ unga fólksins
var sett að Kjarvalsstöðum
síðastliðinn laugardag.
Við opnunina lék blásarasveit
Sinfóníuhljómsveitar æskunnar
undir stjóm Odds Bjömssonar.
Þá flutti Halldóra Jónsdóttir,
fulltrúi unga fólksins, ávarp og
setti hátíðina. Að lokum sýndu
dansarar frá Dansnýjung Kollu.
Meðal gesta við opnunina var
borgarstjóm Reykjavíkur og
ýmsir embættismenn borgarinn-
ar.
Dansarar frá Dansnýjung KoUu, sem sýndu dans á opnunarhátiðinm.
HaUdóra Jónsdóttir setur hátíðina. Morgunbiaðið/ói.K.M.
Fjölbreytt dagskrá verður á
meðan hátíðin stendur yflr. Á
sunnudaginn fór fram sýning á
bandmyndum í samkeppninni
„Ungt fólk og umferð". Rokk-
tónleikar voru í gækvöldi og
verða aftur í kvöld í Tónabæ. A
miðvikudags-, fímmtudags- og
föstudagskvöld verða ýmsar
uppákomur á Kjarvalsstöðum og
hefjast þær kl. 21.00. Ýmis
skemmtiatriði verða síðan á
lokahátíðinni, en Listahátíð unga
fólksins lýkur á sunnudaginn.
Á Kjarvalsstöðum er sýning á
myndverkum eftir ungt fólk og
er hún opin alla dagana frá kl.
14.00 til 22.00.
Biásarasveit Sinfóniuhljómsveitar æskunnar ásamt stjórnandanum Oddi Bjðmssyni.
Verður Kolbeinseyin seld til Þórshafnar?
Það er lífsspursmál
fyrir okkur að fá skip
— segir Bjarni Aðalgeirsson
bæjarstjóri á Húsavík .
Akureyri, 13. janúar.
„ÞAÐ yrði auðvitað mjög al- fengjum ekki skipið aftur,“
varlegt að okkar mati, ef við sagði Bjarni Aðalgeirsson,
afla í Stakfelli
— ef við fáum Kolbeinsey, sagði
Jóhann A. Jónsson, framkvæmda-
stjóri hraðfrystihússins á Þórshöfn
Fullvinnum allan
bæjarstjóri á Húsavík í samtali
við Morgunblaðið um Kol-
beinseyjarmálið.
„Kolbeinsey hefur aflað 40 til 50%
af hráefni frystihússins, hefur verið
með vægi á móti bátaflotanum. Síð-
an um miðjan nóvember hefur engin
vinnsla verið í frystihúsinu. Við
fáum auðvitað bátaflsk þegar á líð-
ur en ekki nú. Það er því lífsspurs-
mál fyrir okkur að fá skip,“ sagði
Bjami.
223 voru atvinnulausir á Húsavík
í byrjun árs, þar af stór hluti úr
frystihúsinu. Nú er nokkur rækju-
vinnsla í gangi á Húsavík og „smá-
vegis er sett í sa!t“, eins og Bjami
sagði.
Akureyri, 13. janúar.
„ÞAÐ liggur fyrir að við ætlum
að fullvinna allan afla í Stak-
fellinu, ef við fáum Kolbeins-
eyna, og Kolbeinsey mun þá
sjá um ísfisk fyrir húsin, það
eru forsendur fyrir arðsemisút-
reikningi þeim sem við gerð-
um,“ sagði Jóhann A. Jónsson
framkvæmdastjóri Hraðfrysti-
hússins á Þórshöfn í samtali við
Morgunblaðið.
IMNLENT
Jóhann sagði fyrirtækið hafa
fylgst með skipamarkaðinum síð-
ustu tvö til þijú árin. „Við höfum
skoðað nokkur skip, en ekki verið
ánægðir, hvorki með verð né skipin
sjálf. Við komum til með að fylgjast
áfram með markaðinum, hvort sem
við fáum þetta skip eða ekki.“
Jóhann var spurður um afkomu
Hraðfrystihúss Þórshafnar á síð-
asta ári: „Ég held að óhætt sé að
segja að afkoman hafl verið þokka-
leg, bæði til lands og sjávar. Út-
gerðin og fiskvinnslan komu betur
út en árið á undan,“ sagði hann.
Jóhann sagði Þórshafnarbúa bíða
spennta eftir fundi stjómar Fisk-
veiðasjóðs á morgun, þriðjudag, en
sagðist þó ekki hafa trú á að það
yrði ákveðið á þeim fundi hveijir
fengju skipið.
Reksturinn gengur ekki
nema með svona skipi
— segir Tryggvi Finnsson, framkvæmdastj óri
Fiskiðjusamlags Húsavíkur
Akureyri, 13. janúar.
„VIÐ vitum ekki mikið hvað
gerist í málinu,“ sagði Tryggvi
Finnsson, framkvæmdastjóri
Fiskiðjusamlags Húsavíkur í
samtali við Morgunblaðið um
helgina um mál Kolbeinseyjar-
innar.
Tiyggvi sagði Húsvíkinga ekki
komna það langt að hafa gert ráð-
stafanir til að fá annað skip ef
Kolbeinsey fengist ekki aftur til
bæjarins. „Það hefur ekki verið
fjailað opinberlega um það má)
ennþá, en við hugsum okkar mál
aftur ef við fáum ekki Kolbeins-
eyna. Reksturinn gengur ekki hjá
okkur nema við fáum slíkt skip.“
Tfyggri var spurður hvort honum
þætti siðferðilega rétt, að Fisk-
veiðasjóður léti skipið aftur til
Húsavíkur og yrði þannig af 20
milljónum króna. „Ég vil ekki tjá
mig um það nú opinberlega Ég hef
ekki séð tiiboðin í skipið,“ sagði
Tryggvi.