Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR1986 5 vogshælinu: „Við könnuðum húsa- kynnin þar þrisvar á árinu 1980 og skrifuðum um það tvær skýrsiur, í janúar og desember, sem við sendum forstöðumönnum hússins. Við töldum að ýmsu væri þar ábóta- vant,“ sagði Þórður. „Nú veit ég ekki hvort nokkuð hefur verið aðhafst þar síðan til að koma á betra ástandi. En okkur fannst sár- iega vanta samtengt brunaviðvör- unarkerfí, það er að segja kerfí hita- og reykskynjara, sem tengdir eru við eina stjómstöð. Ennfremur þótti okkur nauðsynlegt að gera ýmsar breytingar þannig að eldur og reyk- ur kæmist ekki viðstöðulaust inn í svefmými. í því skyni hefði þurft að setja upp brunahindrandi dyr. Þá gerðum við nokkrar athuga- semdir við skipulag næturvakta," sagði Þórir. Menn frá Brunamála- stofnun munu næstu daga vinna að rannsókn brunans, að sögn Þórð- Tjón Húseignir Kópavogshælisins eru tryggðar hjá Brunabótafélagi ís- lands. Menn frá Brunabót skoðuðu skemmdir á deildinni í gær og er tjónið á fasteigninni einni metið á rámiir tvær milljónir króna, að sögn Ásgeirs Ágústssonar í tjónadeild. „Þótt aðeins eitt herbergi hafí brunnið eru reykskemmdir miklar í húsinu öllu og auk þess komst eldurinn í einangnin, þak og loft- ræstikerfí," sagði Ásgeir. Hafíst var handa við að þrífa húsið og lagfæra skemmdir eftir hádegi í gær, en að sögn Bjöms Gestssonar forstöðumanns gæti það tekið 2—3 vikur að gera deildina íbúðarhæfa á ný. Fram að þeim tíma verður að hafa önnur ráð með að hýsa fólkið. „Ég geri ráð fyrir að við munum deila fólkinu á aðrar deildir okkar, en sennilega munum við þó ekki koma öllum fyrir þann- ig, en við munum fá Kópavogs- braut, sem unglingaheimilið í Kópa- vogi hefur notað, en hefur staðið autt í nokkrar vikur. Lítið einbýlis- hús,“ sagði Bjöm. Kópavogshælið Kópavogshælið er í eigu ríkisins og rekið af Ríkisspítölunum og þjónar landinu öllu. Það er vistunar- stofnun fyrir þroskaheft fólk og em þar að jafnaði 160—70 vistmenn. Tæplega 192 stöðugildi em við hælið. Starfsemi við fyrstu deildina þarhófstþann 13. desember 1952. ráðuneytisins verið reynt að „taka upp ný vinnubrögð, bæta tækjabún- að og stórauka þjálfun lögreglu- manna á Keflavíkurflugvelli, meðal annars með endurþjálfun í Lög- regluskóla ríkisins í apríl 1984. Á síðasta ári fóm lögreglumenn úr liði Keflavíkurflugvallar til V-Þýskalands og kynntu sér meðal annars vamir gegn hryðjuverkum og aðrar öryggisráðstafanir á flug- völlum," sagði Sverrir Haukur. Hert gæsla og eftirlit á mörgnm sviðum Hann sagði að síðan um sumarið 1984 hafi verið viðhaft aukið eftirlit með farþegum á Keflavíkurflug- velli, m.a. með því að lögreglumenn hafa verið í bíl á flughlaðinu við hverja komu flugvélar frá útlönd- um. „Það gefur að sjálfsögðu auga- leið í þessu sambandi, að þessar ráðstafanir em víðtækari, það er ekki aðeins vopnað varðlið á vellin- um. Útlendingaeftirlit hefur verið hert og sömuleiðis vopnaleit, toll- gæsla og hliðvarsla,“ sagði hann. Vélbyssumar, sem lögreglu- mennimir nota í flugstöðinni þessa dagana, em vestur-þýskar. Þær em í eigu lögreglunnar á Keflavikur- flugvelli. Atvinnuleysi á Suðurnesjum: Ástandið hefur aldrei verið svona slæmt — segir Karl Steinar Guðnason, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur „ÁSTANDIÐ hefur aldrei verið svona slæmt, síðan ég hóf af- skipti af verkalýðsmálum, enda má segja að öll fiskvinnsla hér á Suðumesjum sé í rúst,“ sagði Karl Steinar Guðnason, formað- ur Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavikur um hið mikla atvinnu ■ leysi, sem nú er á Suðuraesjum. rs juglýsinga- síminn er 2 24 80 „Sprengjumaðurinn“: I gæslu og geðrannsókn PILTURINN, sem hefur viður- kennt að hafa komið fyrir eftir- líkingu að sprengju við Odd- feUowhúsið, var úrskurðaður i gæsluvarðhald til 29. janúar næstkomandi og gert að sæta geðrannsókn. Um áramótin vom um 600 manns á atvinnuleysisskrá, en þeim mun eitthvað hafa fækkað á síðustu dögum þar sem vinnsla hefur hafíst á ný í nokkmm fískvinnslustöðvum. Karl Steinar sagði að yfír 400 manns væm þó enn á atvinnuleysis- skrá af félagsmönnum Verkalýðs- og sjómannafélagsins og væm þá ótalið fólk úr öðmm starfsstéttum. Útlitið væri svart framundan og óvíst um hvort þetta fólk fengi vinnu í bráð, en margt af því hefur verið atvinnulaust frá því um miðjan desember. Flest em þetta konur úr físk- vinnslunni, en einnig er um að ræða fólk úr ýmsum öðmm atvinnugrein- um svo sem bílstjórar og hafnar- verkamenn. Eins og áður greinir vora um 600 manns á atvinnuleysis- skrá um áramótin á Suðumesjum, það er í Keflavík, Sandgerði, Grindavík, Njarðvík, Garði, Vogum og Höfnum. Bátar em nú famir að róa á ný eftir jólaleyfí, en þó er talið að það muni ekki bæta at- vinnuleysisástandið nema að litlu leyti. Guðmundur Blöndal. Guðmundur Blöndal látinn GUÐMUNDUR Blöndal lést á heimili sínu í Reykjavík, sunnu- daginn 12. janúar síðastliðinn, á 75. aldursári. Guðmundur Blöndal fæddist á Siglufirði hinn 24. maí árið 1911. Hann var sonur hjónanna Jósefs Blöndal og Guðrúnar Guðmunds- dóttur Blöndal. Guðmundur ólst upp á Siglufírði og vann þar við ýmis störf fram til ársins 1940, síðast sem vélstjóri við sfldarverksmiðjur. Árið 1940 fluttist Guðmundur til Reykjavíkur þar sem hann bjó og starfaði síðan. Guðmundur var um 20 ára skeið húsvörður í Morgun- blaðshúsinu við Aðalstræti, en hann lét af því starfi er hann varð sjötug- ur, árið 1981. Eftirlifandi kona Guðmundar er Rósa Gísladóttir Blöndal. Daihatsuumboðið Armúla 23. s. 685870 — 81733

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.