Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986 + Móðir okkar og tengdamóðir, BIRNA INGIBJÖRG HAFLIÐADÓTTIR, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykjavík 3. janúar sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir eru faerðar starfsfólki Hrafnistu fyrir frábæra hjúkrun og umönnun í langvarandi veikindum hennar. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Heilsugæslusjóð Hrafn- istuheimilanna. Guðjón S. Sigurðsson, Valdís Danfelsdóttir, Pétur S. Sigurðsson, Sigríður Sveinsdóttir, börn og barnabörn. Móðir mín og amma okkar, RÓSA ÍVARS, Hávallagötu 11, andaðist í Landspítalanum sunnudaginn 12. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Agnar ívars, Guðrún ívars, Jón ívars. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁGÚST HALLSSON, Skúlagötu 78, andaðist föstudaginn 10. janúar. Björn Ágústsson, Ingvi Áústsson, Jón Viðar, Halla Ágústsdóttir, Ágúst Ágústsson, Guðrún Ágústsdóttir, Guðfinna Halldórsdóttir, Anna Norðdahl, Ingvar Kristjánsson, Jóhanna Jónsdóttir, Sófus Alexandersson og barnabörn. Minning: David Zinkoff David Zinkoff hinn góðkunni 25. desember sl. „Zink“, eins og þulur Philadelphia 76ers körfu- hann var kallaður af öllum sem knattleiksliðsins lést í Philadelphia hann þekktu víðsvegar um heim, + Faðir minn, tengdafaðir og afi, TRYGGVI ÓLAFSSON, rennismiður, andaðist að heimili sínu, Austurbergi 32, föstudaginn 10. janúar. Trausti Tryggvason, Kristborg Haraldsdóttir og barnabörn. + Fósturbróðir minn, MAGNÚSKARLANTONSSON, Snorrabraut 35, lést í Landakotsspítala 8. janúar. HalldórS. Guðjónsson. + Konan mín, ÁSTA ÓLAFSDÓTTIR, Hafnarbraut 20 í Neskaupstad, lést í Landspítalanum þann 13. janúar. Árni Sveinsson. 1 i ' ; i í i \ < ! - í * I -------7----- VOLKSWAGEN GOLF ÁRGERÐ 1986 ÞÝskur kostœgripur, sem hceíir öllum MEDNÝRRI OG KRAFTMEIRI VÉL GOLFINN ei tœz í ílestan sjð # Kjörírm íjölskyldubíll # Duglegur atvinnubíll # Vinsœll bílaleigubíll # Skemmtilegur sportbíll Verö frá kr. 498.000 hafði nokkrum dögum áður gengið undir mikla hjartaaðgerð og sýndist á góðum batavegi, er hann lést. Zink átti marga vini á íslandi, og mér er óhætt að fullyrða, að ekkert land utan föðurlands hans stóð honum nær hjarta en ísland. Hann gegndi um íjögurra ára skeið herþjónustu á íslandi á styijaldarár- unum og var þá upplýsinga- og menningarfulltrúi bandaríska her- liðsins. Hann sá þá um komu margra þekktra skemmtikrafta og listamanna til íslands s.s. Marlene Dietrich og Isaac Stern, sem varð einn nánasti vinur hans. Zink hélt fyrstu fegurðarsamkeppnina á ís- landi og var'ábyrgur fyrir allri íþróttastarfsemi á vegum hersins. Þannig kynntist hann íslendingum best á þeim árum og margir íslend- ingar kynntust í gegnum herliðið ýmsum íþróttum, sem þeir þekktu lítið til áður. Ég hafði sem formaður Körfuknattleikssambandsins áhuga á að afla upplýsinga um körfuknatt- leik á Islandi á þessum árum, og sá áhugi kom mér í kynni við Zink í einni af íslandsferðum hans eftir nokkur bréfaskipti. Hann rauf aldr- ei samband sitt við ísland og stofn- aði, eftir að hann kom heim til Bandaríkjanna, félagið FBI, „Forg- otten Boys of Iceland", sem eru samtök fyrrverandi hermanna á stríðsárunum á íslandi. í þeim samtökum eru enn í dag um 3.000 félagar. Zink gekkst fyrir ferðum þessara fyrrverandi hermanna til Islands og var ætíð fararstjóri 20-30 manna hóps á hverju sumri. Hann átti í fórum sínum mikið myndasafn úr þessum ferðum og frá stríðsárunum og undraðist ég mjög hve marga vini Zink átti á íslandi og hve marga fyrirmenn hann hafði hitt á þessum ferðum sínum s.s. forseta og ráðherra. En þetta var nú áður en ég kynntist manninum betur. Hann gaf árlega út fréttablað sem hann nefndi White Falcon, en hann hafði staðið að stofnun blaðs á íslandi á stríðsárunum. Það kemur enn út undir sama nafni á vegum varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli. Zink var hafsjór af fróð- leik og hafði einstaklega gaman af því að miðla af honum. Blað hans bar þess skýr merki. Körfuknattleikur gerði Zink heimsfrægan og Philadelphia 76ers sjá nú á bak sínum sjötta manni eins og ýmsir andstæðingar sögðu að Zink væri. Hin sérkennilega rödd hans og framsetning í lýsingu leikja höfðu á stundum mikil áhrif á gang leikja. Orðatiltæki, sem hann fann upp, voru einkar vel fallin til að vekja beyg hjá aðkomuliðinu og áhangendum þess. Nægir að nefna „Malone - Alone“ eða „Celtics call tiiiiime" eftir að usli hafði verið gerður í vöm þess liðs. Zink dró seiminn lengi til áherslu. Hann gat með þessu þaggað niður í áhang- endum mótheijanna og gert stuðn- ingsmenn 76ers að því afli, sem við íslendingar þekkjum vel til í ýmsum greinum íþrótta hjá okkur. Zink var þulur Harlem Globe- trotters-liðsins um tíma og farar- stjóri þeirra um allan heim á árun- um 1952-1964. Hann ritaði bók um liðið árið 1953, sem hann nefndi Around the World with the Harlem Globetrotters. Hann var virkur í svo mörgum félagsstörfum að með ólík- indum má telja. Hinn frægi körfu- knattleiksmaður Julius Erving hélt ræðu við útför hans og minntist hans sem sérstaks manns og vinar, sem allir söknuðu. Zink giftist aldrei. Sagðist vera alltof upptekinn til að ætla nokkrum kvenmanni að standa í slíku. At- hafnasemi hans og skemmtileg framkoma var sérstök. Þær mörgu viðurkenningar, sem honum hlotn- uðust á lífsleiðinni, bera góðum dreng vitni. Hann var 75 ára er hann lést og hafði þá lýst sínum síðasta leik þann 15. nóvember. Nafn hans er letrað gylltum stöfum í sögu bandarísks körfu- knattleiks. Helgi Ágústsson Þú svalar lestrarþörf dagsins ásfcium Moggans!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.