Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLABIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1986
Frá athöfninni er akkerið hafði verið sett upp. Þorkell Þorkelsson, einn áhugakafaranna, afhendir Ragnari S.
Halldórssyni akkerið.
Ragnar S. Hall-
dórsson forstjóri
ÍSAL flytur ávarp
við akkerið.
Gamalt akkeri sett
upp í Straumsvík
Á GAMLÁRSDAG var komið
fyrir á athafnasvæði ÍSAL í
Straumsvík akkeri, sem áhuga-
kafarar fundu í höfninni þar sl.
sumar og tókst að ná upp. Frá
þessu var skýrt i Morgunblaðinu
á sínum tfma.
Af þessu tilefni var athöfn í
Straumsvík, þar sem Ragnar S.
Halldórsson forstjóri flutti stutt
ávarp. í ávarpinu lýsti Ragnar
akkerinu og fundi þess og hvers
vegna það var sett upp á athafna-
svæði ISAL. Ragnar sagði m.a.:
„Þetta akkeri hefur sjálfsagt
ekki farið framhjá starfsmönum
ÍSAL og eflaust hafa margir velt
því fyrir sér, hvaðan það er komið.
Akkerið fannst af tilviljun í mynni
Straumsvíkurhafnar fyrir skömmu,
þegar áhugakafarar voru að kafa
f höfninni sér til skemmtunar. Með
sérstaklega útbúnum belgjum og
með hjálp hafnarkranans komu þeir
akkerinu á land á enda hafnar-
bakkans. Aklcerið er af svokallaðri
„Admiralty“-gerð og vegur rúmlega
1.000 kg. Framkvæmdastjórn
ákvað að kaupa akkerið og koma
Íví fyrir héma við aðalinngang
SAL, bæði vegna þess að akkerið
hefur líklega fylgt staðnum um
langa hríð, og eins af hinu að ekki
borgar sig að storka örlögunum
með því að flytja það á brott. Þá
er mikil prýði af þessu akkeri, sem
er fulltrúi gamals tíma, en um leið
tákn ístöðu og festu. Sem slfkt er
akkerið því áminning til starfs-
manna ÍSAL um að láta ekki reka
á reiðanum. Þjóðminjavörður, Þór
Magnússon, hefur góðfúslega afsal-
að sér hugsanlegu tilkalli til grips-
ins.
Lýsing á akkerinu: Neðsti hluti
armanna tveggja með flaugum á
endunum er kallaður hnakki. Hom-
rétt á hann er leggurinn með akker-
ishringnum á endanum. Þvert á
legginn, neðan við hringinn, er
svokallaður stokkur. Með því að
taka splitti úr stokknum má leggja
hann samsfða leggnum, áður en
akkerið er dregið í kluss. Á eldri
gerðum akkera var stokkurinn úr
eik. Stokkurinn reisir akkerið þann-
ig að önnur flaugin fær botnfestu.
Stokkakkeri lögðust af þegar nú-
verandi vængjaakkeri var fundið
upp fyrir um 100 árum. Álplata
verður fest á þennan stein við
akkerið. Á henni stendur. „Þetta
100—150 ára gamla akkeri fannst
í mynni Straumsvíkurhafnar haust-
ið 1985. íslenzka álfélagið hf. kom
því fyrir á þessum stað þann 31.
desember sama ár.“
Til þess að fomleifafræðingar
framtfðarinnar geti betur áttað sig
á hvað hér er um að ræða, hef ég
skrifað undir eftirfarandi texta á
pergamenti: „Akkeri þetta fundu
áhugakafarar af tilviljun á 18 metra
dýpi í mjmni Straumsvíkurhafnar
haustið 1985. Akkerið er talið
100-150 ára gamalt. Forráðamönn-
um íslenska álfélagsins hf. þótti við
hæfí, að akkerið yrði varðveitt ó
þessum stað og var þvf komið fyrir
þann 31. desember 1986.
Foretjóri ÍSAL,
Ragnar S. Halldórsson."
Ég læt nú skjal þetta f álhólk til
varðveizlu f steininum.
Ég lýsti því hér með yfír í heyr-
anda hljóði, að akkeri þessu er
komið fyrir hér í Straumsvík, ís-
lenska álfélaginu hf. og starfs-
mönnum þess til halds og trausts."
(W I Gabriel M HÖGGDEYFAR
V 3 í MIKLU ÚRVALI ÆÆ
§■ 1ÁBERG ”
SK EIFUNNI 5A, SÍMI: 91-8 47 88
Bón- og þvottastööin hf.
Sigtúni 3
AUGLÝSIR:
Bifreiðaeigendur, vitiö þið aö þaö tekur aðeins 15 mínútur að
fá bílinn þveginn og bónaðan, ótrúlegt en satt.
Ath. eftirfarandi:
Mótttakan er í austurenda hússins,
þar er bíllinn settur áfæriband og
leggur síöan af staö í ferö sína gegnum
húsiö. Eigendur fylgjast meö honum.
Fyrst fer bíllinn í hinn ómissandi
háþrýstiþvott, þar sem öll lausleg
óhreinindi, sandur og því um líkt,
eru skoluð af honum, um leið fer
hann í undirvacjnsþvott. Viðskipta-
vinir eru mjög anægöir með þá þjón-
ustu, því óhreinindi safnast mikið
fyrir undir brettum og sílsum.
Síðan er hann þveginn með mjúkum
burstum (vélþvottur), þar á eftir kemur
handþvotturinn (svampar og sápa.) Hægt
er að sleppa burstum og fá bílinn ein-
göngu handþveginn.
Næst fer bíllinn í bónvélina og er þar
sprautaö yfir hann bóni og síðan herði.
Að þessu loknu er þurrkun og snyrting.
8 bílar eða fleiri geta verið í húsinu í einu,
t.d. einn í móttöku, annar í háþrýstiþvotti,
þriðji í handþvotti o.s.frv.
Bíll, sem þveginn er oft og reglulega,
endist lengur, endursöluverð er hærra
og ökumaður ekur ánægðari og örugg-
ari á hreinum bíl.
Tíma þarf ekki aö panta.
Þeir sem koma með bílinn sinn í fyrsta
skipti til okkar undrast hvaö margt
skeður á stuttum tíma (15 mínútum).
Opiö mánudaga -föstudaga 08.00 -18.40.
Laugardaga 09.00 -16.40.
Bón- og þvottastöðin hf.
Sigtúni 3,
Sími 14820.