Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986
Yoru hætt
komnir
á Suður-
pólnum
London, 13. janúar. AP.
SIR PETER Scott, sonur
breska heimskautafarans,
lauk í dag miklu lofi á Bret-
ana þrjá, sem náðu til suður-
heimskautsins um helgina.
Skipið, sem átti að sækja þá
eftir svaðilförina, festist í ís
á leiðinni og sökk og fór svo
að lokum að flugvél Banda-
ríkjahers bjargaði þeim.
Talsmaður skipuleggjenda leið-
angursins, sem var endurgerð leið-
angurs Roberts Falcons Scott,
höfuðsmanns, 1912, sagði að flutn-
ingavél bandaríska sjóhersins af
Herkúiesgerð hafi sótt heim-
skautsfarana þijá og flogið með
þá 1.400 km leið til McMurdo.
Sir Peter Scott sagði leiðangur-
inn mikið afrek og hann sýndi að
ævintýraþráin væri ekki slokknuð
á Bretlandi.
Vísindamenn á Nýja-Sjálandi og
Bretlandi segja að ekki hefði átt
að leggja S slíkan einkaleiðangur
og það væri óþarfa álag á vísinda-
menn á vegum hins opinbera að
þurfa að koma leiðangursmönnum
til bjargar. Um þessa gagmýni
segir Scott: „Það er alltaf auðvelt
að gagnrýna, en það er of langt
gengið að segja að aðeins þeir, sem
starfa við rannsóknir á vegum
opinberra aðilja, fái að stíga fæti
á suðurheimskautið."
Scott er 76 ára gamall dýralífs-
málari og umhverfisvemdarsinni.
Hann er sonur Roberts F. Scott,
höfuðsmanns, sem lést ásamt fjór-
um leiðangursmönnum öðrum á
leiðinni frá suðurpólnum 1912.
Bretamir þrír, Robert Swan,
Roger Mear og Gareth Wood,
gengu 1.421 km á tveimur mánuð-
um og komu á suðurpólinn á laug-
ardag. Þeir eru fyrstu mennimir,
sem hafa gengið á suðurpólinn síð-
an 1912.
AP/Slmamynd
Hollendingar svartsýnir ef til hryðjuverka kemur;
Segja ómögulegt að gæta
hugsanlegra fómarlamba
Stokkhólmi og Haag, 13. janúar. AP.
MIKLAR öryggisráðstafanir
hafa verið gerðar á Norður-
löndunum og í Hollandi vegna
ótta við að hryðjuverkamenn
láti þar næst til skarar skríða.
Fylgst er með flugvöllum og
sérstakar gætur hafðar á
Bandaríkjamönnum og gyðing-
um og verustöðum þeirra, en
samkvæmt áreiðanlegum upp-
lýsingum frá Alþjóðalögregl-
unni, Interpol, ætla hryðju-
verkamenn að gera næstu árás-
ir sínar í þessum löndum. Hol-
lensk yfirvöld sögðu að það
væri næsta ómögulegt að hafa
nægilega góðar gætur á öllum
þeim bandarisku og ísraelsku
skotmörkum, sem skæruliðar
kynnu hugsanlega að ráðast
gegn.
Sænska lögreglan er á varð-
bergi og sömu sögu er að segja
frá Danmörku og Noregi. Tvær
ferðatöskur sem eigendur fundust
ekki að á Arlanda-flugvelli í
Stokkhólmi, ollu tveggja tíma töf
á innanlandsflugi til Sundsvall,
meðan gengið var úr skugga um
að þær innihéldu ekki vopn eða
sprengiefni. í ljós kom að eigandi
að töskunum fannst ekki vegna
bilunar í tölvu sem skráði farþega
f flugið. Fimm lögreglumenn til
viðbótar þvi sem venjulegt er, auk
tíu varða frá sérstöku öryggis-
fyrirtæki, stóðu vörð í aðkomu-
og brottfararsölum flughafnar-
innar, að sögn sænsku fréttastof-
unnar TT. Hins vegar hafði ör-
yggisgæsla verið minnkuð við
verustaði ísraelsmanna og gyð-
inga í Stokkhólmi og sérstakur
lögregluvörður þar var kallaður
heim.
Öryggisgæslan var hert er
Norskur lögreglumaður til alls
búinn í miðbæ Oslóar.
aðvörun barst frá Alþjóðalögregl-
unni, Interpol, um að hún hefði
ábyggilegar upplýsingar þess
efnis, að skæruliðahópur Abu
Nidal hygðist næst láta til skarar
skríða í Hollandi eða á Norður-
löndunum, en skæruliðahópur
Nidals er ásakaður fyrir að bera
ábyrgðina á árásunum á flugvell-
ina í Róm og Vínarborg í desem-
ber. Þá létu 19 manns lífíð, þar
af ^órir skæruliðar.
Oryggisgæsla var hert á Norð-
urlöndunum og í Hollandi á
fimmtudaginn í fyrri viku. Náði
hún bæði til flugvalla og veru-
staða Bandaríkja- og Israels-
manna. í Hollandi hafa mörg
bandarísk fyrirtæki aðsetur, sem
eru auðveld skotmörk og að sögn
hollensks embættismanns, er lög-
reglan þar í hreinustu vandræðum
með, hvemig eigi að koma við
nægilegri öryggisgæslu vegna
mikilla umsvifa Bandaríkjamanna
í landinu.
í veitingasal okkar, Goö-
heimum bjóöum viö
staögóöan morgunverö, létt-
an hádegisverö og Ijúf-
fengan kvöldverö.
Einnig miödegis- og
kvöldkaffi meö bœjarins
bestu tertum og kökum.
Á Hótel Hofi eru glœsileg
salarkynni til veisluhalda.
Þar eru einnig til staöar öll
hjálpargögn til funda- og
ráöstefnuhalds.
Ekki má gleyma þœgilegu
gistiherbergjunum. Þau eru
vel búin húsgögnum, sturtu,
snyrtingu, síma, útvarpi o.fl.
Asakanir um liðs-
flutninga frá
S-Afríku til Angóla
Lissabon, 13. janúar. AP.
YFIRVÖLD í Angóla ftrekuðu f
dag ásakanir sínar um að suður-
afrískir hermenn dveldust enn f
landinu til að aðstoða sveitir
skæruliða f átökum við herlið
Angóla, þrátt fyrir að suður-
afrísk stjóravöld hafi skuld-
bundið sig til að kveða herlið
sitt brott frá Angóla fyrir tæpum
tveimur árum.
í frétt frá opinberu fréttastofunni
í Angóla, Angop, segir að suður-
afrískum hermönnum hafi undan-
fama tvo mánuði borist liðsauki og
nú séu þrjár til fjórar herdeildir í
landinu. Þær hafí ráðist á birgðalest
angólska hersins 6. janúar, drepið
sex hermenn og sært 47 aðra.
Yfírvöld í Angóla saka suður-
afrísk stjómvöld um að standa ekki
við sinn hluta sáttmálans, sem
undirritaður var í Lusaka, höfuð-
borgZambíu, 16. febrúar 1983.
I sáttmálanum, sem er sá eini
sem stjómvöld landanna hafa gert
með sér, segir að yfírvöld í Angóla
skuli koma í veg fyrir að skæmliðar
frá Suðvestur-Afríku (Namibíu)
með bækistöðvar í Angóla leggi
leið sína til þessa yfírráðasvæðis
Suður-Afríku.
Þess í stað áttu suður-afrísk
jrfírvöld að að kveða herlið sitt burt
frá Angóla. Suður-afrískur her
hafði þá verið í suðurhémðum
landsins síðan 1981.
Veður
víða um heim
Lœgst Hœst
Akureyri 2 snjókoma
Amsterdam 2 7 rigning
Aþena S 12 heiðskfrt
Barcelona 12 skýjað
Berlln 2 5 skýjað
Briíssel 1 8 rigning
Chicago 0 4 hskýjað
Dublín 6 12 skýjað
Feneyjar +2 hrfmþoka
Frankfurt 2 6 rigning
Genf 1 6 rigning
Helsinki +6 +4 snjókoma
Hong Kong 16 20 heiðskfrt
Jerúsalem 6 9 skýjað
Kaupmannah. 2 3 heiðsklrt
LasPalmas Lissabon 10 15 vantar heiðskírt
London 7 11 skýjað
Los Angeles 16 31 skýjað
Lúxemborg 6 rigning
Malaga 15 heiðskírt
Mallorca 14 skýjað
Miami 15 22 helðskfrt
Montreal +2 5 rigning
Moskva +16 +13 snjókoma
NewYork 1 11 heiðskfrt
Osló +4 +3 heiðskfrt
Paris 5 11 skýjað
Peking +10 4 heiðskfrt
Reykjavik 4 úrk. í gr.
RlódeJanelro 21 33 skýjað
Rómaborg 5 15 heiðskfrt
Stokkhólmur 1 þoku-
Sydney 21 móða 25 skýjað
Tókýó 0 9 heiðskirt
Vínarborg 2 4 skýjað
Þórshöfn 5 rigning
(