Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986 2 ■* Bangsinn segir börmmum sögnr angsinn Teddy Ruxpin virðist ætla að seljast vel í ár og hann sýnist ætla að sprengja allar sölu- áætlanir. í augnablikinu er því hætt að bæta við nýjum viðskipta- aðilum þar sem fýrirtækið annar ekki eftirspuminni. Bangsamir era búnir til þannig að munnur augu og nef hreyfast á meðan þeir tala, syngja eða segja bömunum sög^ur. Kassettutæki er innbyggt í lík- ama bangsanna og era fáanlegar þrettán mismunandi spólur til að hlusta á, sögur, söngva og almennt hjal. Haft er eftir einni móðurinni, sem var að ná sér í nýjan bangsa, því hinn hafði eyðilagst, að þeir væra að minnsta kosti nokkurra þúsunda virði enda bæði skemmtilegt leik- fang og um Ieið góð gæsla sem svæfir bömin með því að segja þeim skemmtilegar sögur á kvöldin. Stephame Powers sem fólk man eflaust eftir úr sjónvarpsþáttunum „Hart to hart“ og úr myndinni „Mistral’s Daughter“. JONPALL í ERLENDRIKVIKMYND „Sagt um mig að ég éti járn, spýti nöglum og sé nokkuð erfiður viðfangs“ . .sagðijónPán Það var nú eiginlega til- viljun sem réði því að ég ákvað að fara að leika í þessari kvikmynd," sagði Jón Páll Sig- marsson, sem innan tíðar mun fara með hlutverk í kvikmynd sem ber heitið „Ring of Steel". „Ég fór að horfa á leikarana hjá Hinu leikhúsinu sýna tilbrigði í fangbragðaglímu, en tveir bresk- ir feðgar, þeir Cliff Twemlow og Brian Vete, vora fengnir hingað til lands að glímuþjálfa fyrir söng- leikinn Rauðhóla-Ransí. Eftir að hafa hitt þessa feðga og spjallað við þá kemur í Ijós að þeir era að fara að gera kvikmynd og vilja fá mig til liðs við sig. Eflaust hefur þeim fundist að ég gæti veitt myndinni aðdráttarafl með titlinum sem ég hef borið og ég ákvað bara að slá til. Myndin kemur til með að íjalla um nýja tegund hnefaleika, þar sem einsk- is er svifist og allt leyfilegt, engir hanskar notaðir og barist af hörku. Söguþráðurinn er í stuttu máli að sami maðurinn, hörkutól eitt, hefur borið heimsmeistaratit- ilinn í langan tíma og engum tekist að vinna hann. Þegar svo kemur að því að hann á að keppa við sterkasta mann í heimi (sem er ég) og er ekkert lamb að leika sér við, verða hlutimir tvísýnir og því er spennan fólgin í að sjá hvor ber sigur úr býtum. Það er fylgst með undirbúningi hjá báð- um, æfingum, mataræði og svo framvegis. Bretar neita að hafa keppnina þar í landi svo þegar það býðst að halda hana á íslandi er því boði tekið fegins hendi." lega í mig og ég strax farinn að undirbúa mig því maður þarf að vera í mjög góðu líkamlegu formi." Er búið að velja fleiri leikara? „Já, eitthvað_ er nú farið að vinna að því. Ég veit um einn, Gordon Jackson (í Húsbændur og hjú) sem mun koma til með að leika í henni og síðan munu bæði breskir, bandarískir og íslenskir leikarar koma við sögu. Tökur hefjast hérlendis í vor en ég mun einnig fara til Bretlands þar sem myndin á að gerast. Aðalatriði myndinnar gerast þó hér. Nú er verið að leita að íslenskum aðilum til að hjálpa til við að fjármagna myndina og meðal annars leitað fclk í fréttum twc wöuw/momm tm )oíi m i mm&íírm rnonu Twc icofi rtmt> rtmrn ttt THt' flLA ‘WI1<I Of/TffL' /;\ Rt.ffíOWCTIOfl Þegar Jón var spurður hvemig honum litist á sig sem leikara sagði hann: „Ég leik í sjálfu sér ekki mikið, enda ekki neinn leik- ari. Ég á að vera ég sjálfur og tala meira að segja bjagaða ensku sem íslendingur. Sum atriði myndarinnar myndu nú kannski ekki alveg lýsa mínum persónu- leika því einhvers staðar í handrit- inu segir um mig að ég sé hrika- lega harður nagli, éti jám og spýti nöglum og það er víst gert ráð fyrir því að ég sé nokkuð erfiður viðfangs," segir Jón og brosir út í annað. „En þetta leggst ágæt- til fyrirtælqa sem þama fá gott tækifæri til að auglýsa vörar sínar á erlendum markaði." Er eitthvað annað á döfinni hjáþér? „Þetta er nú það helsta hjá mér sem stendur. Að vísu kemur þetta til með að stangast á við ýmislegt sem ég var búinn að gera ráð fyrir, eins og til dæmis Hálandaleikunum í Skotlandi og svo kraftakeppnunum. En sem sagt, hjá mér þessa dagana er að vinna að því að vera í góðu líkam- legu formi.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.