Morgunblaðið - 16.01.1986, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1986
Lagt til að rottu-
plágan verði étin
Peking.
í KINA stendur matargerðarlistin á gönilum merg og nú hafa
stjórnvöld þar ákveðið að beita þessari kunnáttu gega rottuplág-
nnni S landinu en talið er, að þær séu a.m.k. þrisvar sinnum fleiri
en mannfólkið, eitthvað á fjórða milljarð talsins.
Ráðamenn halda því fram, að unum Qölgað sem aldrei fyrr. Eru
frá því að allsherjarstríði var lýst
á hendur rottunum árið 1983 hafi
tveimur milljörðum verið komið
yfir í annan heim en þrátt fyrir
það átu þær, sem eftir eru, um
15 milljónir tonna af komi á síð-
asta ári, 1,3% af allri uppskerunni.
Um nokkurra ára skeið hefur
verið metuppskera í Kína og rott-
þær nú orðnar svo ágengar, að í
Henan-fylki einu drápu þær í
fyrra 43.000 hænur, 200 svín og
1000 kýr.
í „Fjármálatíðindum", kín-
versku dagblaði, var fyrir
skömmu rætt um rottupláguna
og þar var því haldið fram, að
besta aðferðin við að losna við
rottumar væri að éta þær. Var
hvatt til, að „rottukjötsveitinga-
stöðum" yrði komið upp sem víð-
ast og bent á, að í Guandong- og
Fujian-fylki og Guangxi væri
rottukjöt mjög eftirsóttur matur.
Það er gömul uppskrift í
Guangxi, að rottumar skuli fyrst
gufusjóða en marinera síðan
nokkra tíma í upplausn af salti,
engifer og pipar og pressa síðan.
Eftir sólarhring er rottan steikt
ásamt hrísgijónum, fræjum og
sesamolíu „þar til yndislegur kjöt-
ilmurinn fyllir eldhúsið".
Kína:
Guatemala:
Borgaraleg stj óni
tekur við völdum
Guatemalaborg, 14. janúar. AP.
VINICIO Cerezo, lögfræðingur,
tók við forsetaembætti landsins
í dag til fimm ára og er þar með
lokið fjögurra ára valdasetu
hersins, en hann komst til valda
í valdaráni árið 1982. Cerezo er
fyrsti forsetinn í sextán ár sem
ekki kemur úr röðum hershöfð-
ingja. Flokkur forsetans, Kristi-
legi demókrataflokkurinn, sem
er miðflokkur, hefur nauman
meirihluta í þinginu eða 51 sæti
af 100.
Mörg og erfíð vandamál bíða
úrlausnar nýrra stjómvalda. Verð-
bólga hækkaði úr 11% í 50% og að
mati sumra hagfræðinga í 100% á
síðasta ári og erlendar skuldir
Iandsins hafa vaxið til muna. Afköst
iðnaðar landsins eru aðeins
30—40% af því sem þau gætu verið,
en Guatemaia er mest iðnvædda ríki
Mið-Ameríku. Búist er við að verka-
lýðshreyfingin gefi ríkisstjóminni
nokkuð svigrúm, þar sem hún nýtur
ólíkt meira fijálsræðis undir borg-
aralegri stjóm, en verðbólgan á síð-
asta ári lék launþega illa. Vinnu-
veitendur hafa þegar lýst yfir and-
stöðu sinni við skattahækkanir og
mótmælt fyrirætlunum ríkisstjóm-
arinnar um að hækka innflutnings-
tolla. Þá hafa kennarar í almenn-
ingsskólum sagst munu gefa ríkis-
stjóminni 10 daga frest til að íhuga
iaunakröfur þeirra, áður en þeir
boði til verkfalla.
Herinn, sem farið hefur með
völdin undanfarin fjögur áir, er
ásakaður fyrir spillingu, mannrétt-
iridabrot og fyrir að hafa siglt efiia-
hagsmálum landsins í strand. Það
er trúa manna að hann vilji gjaman
vera laus við afskipti af stjóm-
málum á næstu árum og að hann
muni reyna að endurreisa álit sitt
f augum almennings. Það er þó ljóst
að herinn mun ekki sitja aðgerða-
laus hjá, ef hin nýja ríkisstjóm gerir
sig seka um aðgerðir sem hann fær
ekki þolað. Það er til að mynda
ekki talið líklegt að fram fari réttar-
höld yfir foringjum í hemum vegna
meintra mannréttindabrota, eins og
raunin varð í Argentínu eftir að
borgaraleg stjóm settist þar að
völdum.
Meðal þeirra sem viðstaddir voru
innsetningarathöfiiina í dag, má
nefna George Bush, varaforseta
Bandaríkjanna, forseta Nicaragua,
Daniel Ortega, Belisario, Betancur,
forseta Bólivíu og forseta Panama
og E1 Salvador.
V estur-Þýskaland:
Græningjum
ekki treyst
Karlsruhe, Vestur-Þýskalandi, 15. janúar. AP.
HÆSTIRÉTTUR Vestur-Þýskalands kvað í gær upp þann úrskurð,
að rétt væri að banna þingmönnum græningja að sitja í þingnefnd,
sem hefði eftirlit og umsjón með fjárveitingum til leyniþjónustunnar.
Sex hæstaréttardómarar af átta setningu meðaldrægu flauganna í
höfnuðu þeirri kröfu græningja, að
þeir fengju að skipa menn í nefnd-
ina en tveir voru henni samþykkir.
Með þessari ákvörðun hefur hæsti-
réttur staðfest rétt þingsins til að
takmarka setu manna í nefndum,
sem §alla um ríkisleyndarmál, í
þeim tilgangi að koma í veg fyrir
uppljóstranir. Eins og kunnugt er
hafa græningjar barist gegn upp-
Vestur-Þýskalandi og andstaðan
gegn Atlantshafsbandalaginu er
ofarlega á blaði hjá þeim.
Nefndin, sem fjallar um fjár-
mögnun leyniþjónustustarfseminn -
ar, er nú skipuð tveimur fulltrúum
kristilegra demókrata, tveimur
jafnaðarmönnum og einum fulltrúa
ftjálsra demókrata.
Þing rithöfundasamtakanna PEN:
Athygli beint að
samviskuföngum
New York, 15. janúar. AP.
FULLTRÚAR á þingi alþjóða-
samtaka rithöfunda, PEN, lögðu
til hliðar deilur um utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna en beindu
athyglinni þess i stað að málstað
nærri 500 rithöfunda, sem sitja
í fangelsi víða um heim fyrir
skoðanir sínar.
Hafa nokkrir fulltrúa boðið til
blaðamannafundar fyrir hönd
þingsins um mál þessara samvizku-
fanga. í hópi fundarboðenda eru
Jorge Valls frá Kúbu og Hiber
Conteris frá Uruguay, sem eru ný-
lega lausir úr fangelsi. PEN lét mál
beggju til sín taka á sínum tíma
og svo er einnig um þá rithöfunda,
ritstjóra og þau skáld, sem vitað
er að sitja inni fyrir skoðanir sínar.
Flestir þessara eru þegnar rílqa
þriðja heimsins eða ríkja handan
jámtjaldsins.
Engin fulltrúa á þingi PEN
hreyfði mótmælum eftir ræðu
Amadou Mahtar M'Bow, fram-
kvæmdastjóra UNESCO, menning-
ar- og menntastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, í gær, jafnvel þótt stofn-
unin sé umdeild vegna áætlunar um
nýtt fyrirkomulag upplýsingamiðl-
unar. Norman Mailer, fram-
kvæmdastjóri þingsins og forseti
Ameríkudeildar PEN, sem gagn-
lýndur var fyrir að bjóða George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna að halda ræðu á þinginu,
varð að orði í fundarlok að það
hefði mátt vita það fyrir að enginn
myndi mótmæla ef vinstrimanni
yrði boðið orðið.
Pólverjar biðja
um greiðslufrest
Varsjá, 15. janúar. AP.
Fjármálaráðherra Póllands
hefur greint frá, að pólsk stjórn-
völd hafi farið fram á það við
vestræna lánardrottna sína að fá
að fresta afborgun á 550 milljón
dollara láni, sem féll í gjalddaga
í árslok 1985, að sögn daghlaða
í dag, miðvikudag.
Greiðslunni, sem er hluti af-
borgunar af 29 milljarða dollara
erlendu láni, hefur áður verið frest-
að. Afborguninni hefur nú verið
skotið á frest í þijá mánuði, á meðan
samningaviðræður milli Pólveija og
ríkisstjóma lánardrottnanna fara
fram.
Stanislaw Nieckarz fjármálaráð-
herra sagði á blaðamannafundi á
þriðjudag, að pólsk stjómvöld hefðu
vonast til að fá 6—800 milljóna
dollara ný lán hjá vestrænum ríkis-
stjómum á slðasta ári.
Á árinu 1985 skrifuðu Pólveijar
undir samkomulag við ríkisstjómir
17 vestrænna þjóða um frestun
afborgana af lánum, sem nema
samtals um 13,3 milljörðum dollara
og áttu að greiðast á árunum 1982-
85.
Grænland:
Tóku færeyskan
togara að ólög-
legum veiðum
Kaupmannahöfn, 14. janúar. Frá Nils
Jörgea Bruun, fréttaritara Morgunblads-
ins.
EFTIRLITSSKIPIÐ Hvidbjömen
tók nýlega færeyska togarann
Sólborgu að ólöglegum veiðum
við vesturströnd Grænlands.
Færeyingamir höfðu brotið regl-
ur um möskvastærð og ákvæði um
færslu aflaskýrslu og leiðarbókar.
Veiðarfæri voru gerð upptæk og
skipstjórinn látinn sæta sekt að
upphæð 50.000 danskar krónur (um
235.000 fsl. kr.).
AP/Símamynd
Með loftbelg yfir Alpana
Áttunda BP-loftbelgjakeppnin í Ölpunum fór fram fyrir nokkrum
dögum skammt frá Salzburg í Austurríki. Ekki hafði frést af
úrslitunum en keppnin var í þvi fólgin að komast sem lengst á
sex dögum. Myndin var tekin á fyrsta degi keppninnar þegar
verið var að búa belgina undir flugið.