Morgunblaðið - 23.01.1986, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986
Alusuisse:
Nýir menn taka
við í kjölfar
tapreksturs
Zlirich, 21. jonúar, frá Önnu Bjaraadóttur, fréttarítara Morgunblaósins.
MANNABREYTINGAR í forystuliði svissneska álfyrirtækisins Alu-
suisse tóku gildi í dag þegar dr. Hans Jucker tók við stöðu forstjóra
af dr. Bruno F. Sorato og dr. Nello Celio varð stjórnarformaður í
stað Emanuels R. Mayer. Mayer átti að vera stjórnarformaður til
1988 en samkvæmt fréttatilkynningu frá fyrirtækinu i dag ákvað
hann að hætta störfum svo að nýir menn kæmust þar að.
Rekstur Alusuisse gekk illa á síð-
asta ári og var fyrirtækið rekið með
tapi. Dr. Jucker sagði á blaða-
mannafundi hér í dag, að nauðsyn-
legt hefði verið að gera breytingar
á forystuliðinu svo að hægt væri
að beina fyrirtækinu inn á nýja
braut. „Fortíðin er nú að baki og ég
mun horfa fram á við án þess að
vera bundinn af gömlum ákvörðun-
um,“ sagði hann.
Stjóm Mayers hefur undanfarin
ár stefnt að aukinni fjölbreytni í
starfsemi fyrirtækisins og auknum
INNLENT
umsvifum í Bandaríkjunum. Ál-
framleiðsla átti aðeins að vera 50%
af framleiðslu Alusuisse í framtíð-
inni og 50% starfseminnar átti að
fara fram í Bandaríkjunum, en þar
hefur reksturinn gengið illa. Jucker
sagði að þessi stefna væri ekki
lengur í gildi. „Ég mun kynna mér
starfsemi fyrirtækisins á næstu
mánuðum," sagði hann. „Við mun-
um halda áfram starfsemi sem
gengur vel og framtíð er í en reyna
að losa okkur við það, sem ekki
borgar sig að reka lengur."
Dr. Jucker var forstjóri Lonza í
Vestur-Þýskalandi en rekstur þess
gekk best af dótturfyrirtækjum
Alusuisse á síðasta ári. Dr. Celio
var stjómarformaður Alusuisse á
sjöunda áratugnum. Emanuel
Mayer tók við stjómarformennsk-
unni þegar Celio var kjörinn í ríkis-
stjóm Svisslendinga. Celio verður
nú aftur stjómarformaður Alu-
suisse fram að aðalfundi fyrirtækis-
ins 1987.
Áhrif mikillar aukningar í mjólkurframleiðslu:
Utflutningsbæturnar
eru að verða búnar
Hollywood breytir um svip
Undanfamar vikur hefur verið unnið að breytingum í Hollywood. „Við rifum niður innréttingamar
í áföngum og er unnið að .breytingum frá mánudegi til föstudags en staðurinn er opinn um helg-
ar,“ sagði Baldur Brjánsson framkvæmdastjóri. „Ein hæð er tekin fyrir í einu og er verið að vinna
á neðri hæðinni þessa dagana. Stefnt er að því að Ijúka framkvæmdum og opna með glæsibrag
um næstu mánaðamót og snúa sér síðan að breytingum á efri hæðinni."
Rey ðarfj ör ður:
Afli Snæfugls 3000
tonn á síðasta ári
Reyðarfírði, 20. janúar.
TOGARINN Snæfugl kom úr
sinni fyrstu veiðiferð á árinu 11.
janúar með 126 tonn. Aðaluppi-
staða aflans var þorskur.
Leiðindaveður var er skipveijar
á Snæfugli vom að ganga frá til
heimferðar. Þá varð það óhapp um
borð að einn hásetanna klemmdist
með handlegg á milli hlera og skips.
Var siglt beint ti! Norðfjarðar með
manninn þar sem honum var komið
til læknis. Hann reyndist óbrotinn
en illa marinn og verður frá vinnu
um óákveðinn tíma.
Afli Snæfugls á síðastliðnu ári
var tæp 3.000 tonn.
Gréta.
þó verðlagsárið sé ekki hálfnað
BÆTUR vegna útflutnings
mjólkurafurða á yfirstandandi
verðlagsári eru að verða búnar
þó enn séu rúmir sjö mánuðir
eftir af verðlagsárinu. Þegar
útflutningsbæturnar verða bún-
ar verða greiðslur stöðvaðar og
allur útflutningurinn eftir það á
kostnað bænda, að sögn Sigurðar
Þórðarsonar skrifstofustjóra í
fjármálaráðuneytinu. Skilaverð
útflutnings er á bilinu 15—50%
af óniðurgreiddu heildsöluverði
þannig að bændur fá ekki meira
en það fyrir útflutninginn þegar
útflutningsbæturnar eru búnar.
farið fram em ógreiddar. Samsvarp
þessar 173 milljónir 6,6 milljónum
mjólkurlítra og því ljóst að útflutn-
ingsbætumar em að klárast.
Þessi mikli útflutningur mjólkur-
vara kemur til af mikilli aukningu
í mjólkurframleiðslu fyrstu mánuði
verðlagsársins, sem sagt hefur verið
frá hér í blaðinu. Ástæður þess að
mjólkurframleiðslan hefur farið úr
böndunum má rekja til góðs árferðis
á aðalframleiðslusvæðinu, sunnan-
lands og vestan, en einnig má nefna
að staðgreiðsla búvara hefur vafa-
laust verkað hvetjandi og að bænd-
um hefur enn ekki verið gert ljóst
hvað þeir mega raunvemlega fram-
leiða á fullu verði.
Offramleiðslan hefur farið í
mjólkurduft, osta og smjör. Vem-
legur hluti útflutningsuppbótanna
hefur farið í að greiða fyrir útflutn-
ing dufts. Peninga vantar nú til að
standa undir útflutningi sem svarar
til 10—12 milljónum mjólkurlítra.
Em það aðallega 550 tonn af ostum
sem eftir er að flytja út til Banda-
ríkjanna og 600 tonn af ostum til
Evrópu. Samsvarar hvor útflutning-
ur 5,5—6 milljónum lítra af mjólk.
Rysjótt tíð á
Reyðarfirði
— Setið við kertaljós í afmæli fræðslustjórans
Mosfellssveit:
Tólf frambjóðend
ur til prófkjörs
Reyðarfirði, 20. janúar.
HÉR hefur verið heldur rysjótt
veður það sem af er nýju ári.
Fyrir jólin snjóaði mikið, en síðan
hefur rignt og snjóinn tekið upp
að mestu leyti. Fryst hefur á
milli og hefur verið hálka á
götum bæjarins.
Guðmundur Magnússon fræðslu-
stjóri varð sextugur 9. janúar og
tók hann á móti gestum í Félags-
heimilinu 11. janúar. Þá um morg-
uninn gerði leiðindaveður og versn-
aði eftir því sem líða tók á daginn.
Þennan dag fór rafmagn af öllum
bænum svo ekki leit út fyrir að
margt fólk kæmi til að gleðjast með
afmælisbaminu. En fólk úti á lands-
byggðinni lætur ekki veður hamla
för sinni og í afmælið mættu yfír
hundrað manns. Var setið við kerta-
ljós og nutu gestir góðra veitinga.
Haldnar voru ræður, sungið og
afmælisbamið riflaði upp frá sínum
ungdómsárum á Reyðarfírði. Af-
mælisveislan fór í alla staði vel
fram. Gréta.
TEKJUR ríkisstarfsmanna
hækkuðu á síðasta árí um 5—6%
umfram tekjur fólks á hinum
almenna vinnumarkaði. Sigurður
Þórðarson skrifstofustjóri fjár-
málaráðuneytisins sagði að
launataxtar opinberra starfs-
manna hefðu hækkað umfram
það sem aðrir hefðu fengið og
einnig hefði yfirvinna aukist.
Launaútgjöld A-hluta ríkissjóðs
vom á síðastliðnu ári um 44% hærri
Með búvörusamningum ríkis-
stjómarinnar og Stéttarsambands
bænda frá því í lok ágúst sl. tryggði
ríkið bændum fullt verð fyrir 107
milljónir lítra mjólkur á verðlagsár-
inu. Miðað var við 100 milljóna lítra
neyslu innanlands og að 7 milljónir
yrðu fluttar út. Útflutningsbætur
vegna þessara 7 milljóna lítra vom
áætlaðar rúmlega 180 milljónir kr.
Verðlagsárið stendur frá 1. sept-
ember til 31. ágúst og em því ekki
liðnir fullir fímm mánuðir af yfír-
standandi verðlagsári. Ríkissjóður
er þegar búinn að greiða 123 millj-
ónir kr. í útflutningsbætur vegna
mjólkur og 50 milljóna kr. bætur
vegna útflutnings sem þegar hefur
en árið 1984 á sama tíma og at-
vinnutekjur á hinum aimenna
vinnumarkaði hækkuðu um 37%.
Sigurður Þórðarson sagði að þessi
munur fælist í þrennu: Hækkun
launataxta hjá ríkinu umfram al-
menna vinnumarkaðinn, Qölgun
starfsmanna og aukinni yfírvinnu
hjá ríkinu. Sagði hann að launataxt-
ar hefðu hækkað um 38—39%
samkvæmt kjarasamningum ríkis-
ins og sérkjarasamningum. Þá
PRÓFKJÖR frambjóðenda Sjálf-
stæðisflokksins í Mosfellssveit
við næstu sveitarstjómarkosn-
ingar fer fram 8. febrúar. Þátt-
takendur eru 12 talsins.
Þórarinn Jónsson formaður kjör-
nefndar sagði að framboðsfundur
yrði haldinn fímmtudaginn 6. febrú-
hefðu launaútgjöld ríkisins aukist
u.m 3—4% frá fyrra ári vegna auk-
innar yfírvinnu og um 1—2% vegna
íjölgunar starfsmanna hjá ríkinu.
Sigurður vildi segja almennt um
þetta að laun ríkisstarfsmanna
hefðu dregist aftur úr launum
annarra starfshópa undanfarin ár
en á síðasta ári hefðu þeir fengið
meiri launahækkanir en aðrir og
þannig náð að jafna metin að ein-
hveiju leytí.
ar. Kosning fer fram í Hlégarði frá
9—6 laugardaginn 8. febrúar en
utankjörstaðakosning viku fyrr, í
versluninni Þverholti.
Dregið var um niðurröðun fram-
bjóðenda á lista og gefa eftirfarandi
kost á sér í prófkjörinu:
Óskar Kjartansson, gullsmiður,
Stórateig 26,
Helga Richter, kennari, Arkar-
holti 18,
Hilmar Sigurðsson, viðskipta-
fræðingur, Ásholti 3,
Jón Baldvinsson, framkvæmda-
stjóri, Furuvöllum,
Þórdís Sigurðardóttir, skrifstofu-
stjóri, Bjargartanga 16,
Pétur Fenger, fjármálastjóri,
Leirutanga 17 A,
Björk Bjarkadóttir, fangavörður,
Brekkutanga 31,
Guðmundur Davíðsson, vélvirki,
Bjargartanga 9,
Bima Gunnarsdóttir, setjari,
Hlíðatúni 7,
Magnús Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri, Akurholti 5,
Þengill Oddsson, læknir, Reylqa-
lundi,
Magnús Sigsteinsson, búfræð-
ingur, Blikastöðum.
Launaútgjöld ríkisins aukast um
3—4% vegna aukinnar yfirvinnu
Tekjur ríkisstarfsmanna hækkuðu um 5—6% umfram það sem aðrir fengu