Morgunblaðið - 23.01.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.01.1986, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986 Alusuisse: Nýir menn taka við í kjölfar tapreksturs Zlirich, 21. jonúar, frá Önnu Bjaraadóttur, fréttarítara Morgunblaósins. MANNABREYTINGAR í forystuliði svissneska álfyrirtækisins Alu- suisse tóku gildi í dag þegar dr. Hans Jucker tók við stöðu forstjóra af dr. Bruno F. Sorato og dr. Nello Celio varð stjórnarformaður í stað Emanuels R. Mayer. Mayer átti að vera stjórnarformaður til 1988 en samkvæmt fréttatilkynningu frá fyrirtækinu i dag ákvað hann að hætta störfum svo að nýir menn kæmust þar að. Rekstur Alusuisse gekk illa á síð- asta ári og var fyrirtækið rekið með tapi. Dr. Jucker sagði á blaða- mannafundi hér í dag, að nauðsyn- legt hefði verið að gera breytingar á forystuliðinu svo að hægt væri að beina fyrirtækinu inn á nýja braut. „Fortíðin er nú að baki og ég mun horfa fram á við án þess að vera bundinn af gömlum ákvörðun- um,“ sagði hann. Stjóm Mayers hefur undanfarin ár stefnt að aukinni fjölbreytni í starfsemi fyrirtækisins og auknum INNLENT umsvifum í Bandaríkjunum. Ál- framleiðsla átti aðeins að vera 50% af framleiðslu Alusuisse í framtíð- inni og 50% starfseminnar átti að fara fram í Bandaríkjunum, en þar hefur reksturinn gengið illa. Jucker sagði að þessi stefna væri ekki lengur í gildi. „Ég mun kynna mér starfsemi fyrirtækisins á næstu mánuðum," sagði hann. „Við mun- um halda áfram starfsemi sem gengur vel og framtíð er í en reyna að losa okkur við það, sem ekki borgar sig að reka lengur." Dr. Jucker var forstjóri Lonza í Vestur-Þýskalandi en rekstur þess gekk best af dótturfyrirtækjum Alusuisse á síðasta ári. Dr. Celio var stjómarformaður Alusuisse á sjöunda áratugnum. Emanuel Mayer tók við stjómarformennsk- unni þegar Celio var kjörinn í ríkis- stjóm Svisslendinga. Celio verður nú aftur stjómarformaður Alu- suisse fram að aðalfundi fyrirtækis- ins 1987. Áhrif mikillar aukningar í mjólkurframleiðslu: Utflutningsbæturnar eru að verða búnar Hollywood breytir um svip Undanfamar vikur hefur verið unnið að breytingum í Hollywood. „Við rifum niður innréttingamar í áföngum og er unnið að .breytingum frá mánudegi til föstudags en staðurinn er opinn um helg- ar,“ sagði Baldur Brjánsson framkvæmdastjóri. „Ein hæð er tekin fyrir í einu og er verið að vinna á neðri hæðinni þessa dagana. Stefnt er að því að Ijúka framkvæmdum og opna með glæsibrag um næstu mánaðamót og snúa sér síðan að breytingum á efri hæðinni." Rey ðarfj ör ður: Afli Snæfugls 3000 tonn á síðasta ári Reyðarfírði, 20. janúar. TOGARINN Snæfugl kom úr sinni fyrstu veiðiferð á árinu 11. janúar með 126 tonn. Aðaluppi- staða aflans var þorskur. Leiðindaveður var er skipveijar á Snæfugli vom að ganga frá til heimferðar. Þá varð það óhapp um borð að einn hásetanna klemmdist með handlegg á milli hlera og skips. Var siglt beint ti! Norðfjarðar með manninn þar sem honum var komið til læknis. Hann reyndist óbrotinn en illa marinn og verður frá vinnu um óákveðinn tíma. Afli Snæfugls á síðastliðnu ári var tæp 3.000 tonn. Gréta. þó verðlagsárið sé ekki hálfnað BÆTUR vegna útflutnings mjólkurafurða á yfirstandandi verðlagsári eru að verða búnar þó enn séu rúmir sjö mánuðir eftir af verðlagsárinu. Þegar útflutningsbæturnar verða bún- ar verða greiðslur stöðvaðar og allur útflutningurinn eftir það á kostnað bænda, að sögn Sigurðar Þórðarsonar skrifstofustjóra í fjármálaráðuneytinu. Skilaverð útflutnings er á bilinu 15—50% af óniðurgreiddu heildsöluverði þannig að bændur fá ekki meira en það fyrir útflutninginn þegar útflutningsbæturnar eru búnar. farið fram em ógreiddar. Samsvarp þessar 173 milljónir 6,6 milljónum mjólkurlítra og því ljóst að útflutn- ingsbætumar em að klárast. Þessi mikli útflutningur mjólkur- vara kemur til af mikilli aukningu í mjólkurframleiðslu fyrstu mánuði verðlagsársins, sem sagt hefur verið frá hér í blaðinu. Ástæður þess að mjólkurframleiðslan hefur farið úr böndunum má rekja til góðs árferðis á aðalframleiðslusvæðinu, sunnan- lands og vestan, en einnig má nefna að staðgreiðsla búvara hefur vafa- laust verkað hvetjandi og að bænd- um hefur enn ekki verið gert ljóst hvað þeir mega raunvemlega fram- leiða á fullu verði. Offramleiðslan hefur farið í mjólkurduft, osta og smjör. Vem- legur hluti útflutningsuppbótanna hefur farið í að greiða fyrir útflutn- ing dufts. Peninga vantar nú til að standa undir útflutningi sem svarar til 10—12 milljónum mjólkurlítra. Em það aðallega 550 tonn af ostum sem eftir er að flytja út til Banda- ríkjanna og 600 tonn af ostum til Evrópu. Samsvarar hvor útflutning- ur 5,5—6 milljónum lítra af mjólk. Rysjótt tíð á Reyðarfirði — Setið við kertaljós í afmæli fræðslustjórans Mosfellssveit: Tólf frambjóðend ur til prófkjörs Reyðarfirði, 20. janúar. HÉR hefur verið heldur rysjótt veður það sem af er nýju ári. Fyrir jólin snjóaði mikið, en síðan hefur rignt og snjóinn tekið upp að mestu leyti. Fryst hefur á milli og hefur verið hálka á götum bæjarins. Guðmundur Magnússon fræðslu- stjóri varð sextugur 9. janúar og tók hann á móti gestum í Félags- heimilinu 11. janúar. Þá um morg- uninn gerði leiðindaveður og versn- aði eftir því sem líða tók á daginn. Þennan dag fór rafmagn af öllum bænum svo ekki leit út fyrir að margt fólk kæmi til að gleðjast með afmælisbaminu. En fólk úti á lands- byggðinni lætur ekki veður hamla för sinni og í afmælið mættu yfír hundrað manns. Var setið við kerta- ljós og nutu gestir góðra veitinga. Haldnar voru ræður, sungið og afmælisbamið riflaði upp frá sínum ungdómsárum á Reyðarfírði. Af- mælisveislan fór í alla staði vel fram. Gréta. TEKJUR ríkisstarfsmanna hækkuðu á síðasta árí um 5—6% umfram tekjur fólks á hinum almenna vinnumarkaði. Sigurður Þórðarson skrifstofustjóri fjár- málaráðuneytisins sagði að launataxtar opinberra starfs- manna hefðu hækkað umfram það sem aðrir hefðu fengið og einnig hefði yfirvinna aukist. Launaútgjöld A-hluta ríkissjóðs vom á síðastliðnu ári um 44% hærri Með búvörusamningum ríkis- stjómarinnar og Stéttarsambands bænda frá því í lok ágúst sl. tryggði ríkið bændum fullt verð fyrir 107 milljónir lítra mjólkur á verðlagsár- inu. Miðað var við 100 milljóna lítra neyslu innanlands og að 7 milljónir yrðu fluttar út. Útflutningsbætur vegna þessara 7 milljóna lítra vom áætlaðar rúmlega 180 milljónir kr. Verðlagsárið stendur frá 1. sept- ember til 31. ágúst og em því ekki liðnir fullir fímm mánuðir af yfír- standandi verðlagsári. Ríkissjóður er þegar búinn að greiða 123 millj- ónir kr. í útflutningsbætur vegna mjólkur og 50 milljóna kr. bætur vegna útflutnings sem þegar hefur en árið 1984 á sama tíma og at- vinnutekjur á hinum aimenna vinnumarkaði hækkuðu um 37%. Sigurður Þórðarson sagði að þessi munur fælist í þrennu: Hækkun launataxta hjá ríkinu umfram al- menna vinnumarkaðinn, Qölgun starfsmanna og aukinni yfírvinnu hjá ríkinu. Sagði hann að launataxt- ar hefðu hækkað um 38—39% samkvæmt kjarasamningum ríkis- ins og sérkjarasamningum. Þá PRÓFKJÖR frambjóðenda Sjálf- stæðisflokksins í Mosfellssveit við næstu sveitarstjómarkosn- ingar fer fram 8. febrúar. Þátt- takendur eru 12 talsins. Þórarinn Jónsson formaður kjör- nefndar sagði að framboðsfundur yrði haldinn fímmtudaginn 6. febrú- hefðu launaútgjöld ríkisins aukist u.m 3—4% frá fyrra ári vegna auk- innar yfírvinnu og um 1—2% vegna íjölgunar starfsmanna hjá ríkinu. Sigurður vildi segja almennt um þetta að laun ríkisstarfsmanna hefðu dregist aftur úr launum annarra starfshópa undanfarin ár en á síðasta ári hefðu þeir fengið meiri launahækkanir en aðrir og þannig náð að jafna metin að ein- hveiju leytí. ar. Kosning fer fram í Hlégarði frá 9—6 laugardaginn 8. febrúar en utankjörstaðakosning viku fyrr, í versluninni Þverholti. Dregið var um niðurröðun fram- bjóðenda á lista og gefa eftirfarandi kost á sér í prófkjörinu: Óskar Kjartansson, gullsmiður, Stórateig 26, Helga Richter, kennari, Arkar- holti 18, Hilmar Sigurðsson, viðskipta- fræðingur, Ásholti 3, Jón Baldvinsson, framkvæmda- stjóri, Furuvöllum, Þórdís Sigurðardóttir, skrifstofu- stjóri, Bjargartanga 16, Pétur Fenger, fjármálastjóri, Leirutanga 17 A, Björk Bjarkadóttir, fangavörður, Brekkutanga 31, Guðmundur Davíðsson, vélvirki, Bjargartanga 9, Bima Gunnarsdóttir, setjari, Hlíðatúni 7, Magnús Kjartansson, fram- kvæmdastjóri, Akurholti 5, Þengill Oddsson, læknir, Reylqa- lundi, Magnús Sigsteinsson, búfræð- ingur, Blikastöðum. Launaútgjöld ríkisins aukast um 3—4% vegna aukinnar yfirvinnu Tekjur ríkisstarfsmanna hækkuðu um 5—6% umfram það sem aðrir fengu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.