Morgunblaðið - 31.01.1986, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR1986
ffclk í
fréttum
Kominn á 5 ára samning erkmdis
OKRYNDA
DROTTNINGIN
Gunilla von Bismark greifynja og sonurinn fyrir utan veitingastað sinn.
Prjónar á
Dusehan Sordjan, sem er 37
ára gamal! Þjóðveiji frá
Stuttgart, telst líklega hraðvirkasti
„pijónari" heimsins. Met hans er
80 lykkjur á mínútu í sex klukku-
stundir og 58 mínútur. Arangurinn
methraða
var stór og falleg angóruflík.
Duschan byrjaði að pijóna sex
ára gamall og hefur gert marga
módelkjóla á þekkt fólk svo sem
Audrey Landers í Dallas, sem á ein
fimmtán stykki eftir hann.
Gunilla von Bismark greifynja hefur í sjö ár
verið gift Luis Ortiz-Morena fyrrum þjóni
og segir þau alsæl í sambúðinni. Gunilia á sinn
eigin veitingastað á Marbella sem ber nafn
hennar og þykir einstakur, ekki síst fyrir blóm-
skrúðið fyrir dyrum úti.
Þessi kona þótti áður sjálfsögð í ævintýraveislum
aðals og auðfólks í Evrópu, en segist nú orðin
ráðsett og breytt eftir að sonurinn hennar kom
í heiminn.
Fer með eitt
— segir Bubbi Morthens
Bubbi Morthens hefur verið
töluvert í sviðsljósinu undan-
farið og mikla athygli vakti á dög-
unum þátturinn í sjónvarpinu með
þeim Megasi. Fram hefur komið að
nú sé Bubbi búinn að gera nokkurra
ára samning erlendis og til að afla
nánari frétta var hann króaður af
í vikunni og spurður um málið:
„Ég er búinn að gera fimm ára
samning við „Mistlur Records" í
Svíþjóð. Það á sér langan aðdrag-
anda og byijaði þegar hljómsveitin
Ego var á rokkhátíð í Noregi árið
1982. Þá vakti hún óskipta athygli
og fékk mörg tilboð. Á þeim tíma
vorum við samningsbundnir héma
heima, en leist mjög vel á þennan
tiltekna aðila í Svíþjóð og fórum
því yfir og lékum þar með enskri
hljómsveit. Þeim leist vel á textana
mína og gerðu mér tilboð sem ég
á þeim tíma hafnaði.
Árin liðu en svo komst ég í
samband við fyrirtækið fyrir
nokkm, og aðalmaðurinn þar flaug
er sagt að tónlistin sé ólík því sem
ég hef áður sett frá mér. Næsta
haust eða fyrir jólin kemur þessi
piata væntanlega á islenskan mark-
að, en þá að sjálfsögðu á íslensku."
— I lokin Bubbi. í þættinum
ykkar Megasar bar ástina nokk-
uð á góma. Viltu eitthvað upplýsa
lesendur nánar um þau mál?
„Ég er mjög ástfanginn, ekki get
ég neitað því, en aftur á móti langar
mig ekkert til að upplýsa þjóðina
nánar um það.
Hinsvegar er frekar stuttur tími
síðan ég fór að verða sáttur við
sjálfan mig og stóra ástin í lífí mínu
er því ég sjálfur. Fmmskilyrðið til
að geta elskað aðra er nefnilega
að geta elskað sjálfan sig.“
hingað heim og við gerðum samning
sem rennur út í maí árið 1990.
Þetta fyrirtæki er ekki ósvipað
Gramminu, nema töluvert stærra
og það hefur fengist nokkuð við að
kynna tónlist sem ekki hefur átt
upp á pallborðið í Svíþjóð og það
skilað sér með góðum árangri.
Þetta hentar mér allt mjög vel ég
hef trú á því sem ég er að gera
núna og er eiginlega að byija upp
á nýtt. Þama úti er ég tiltölulega
óþekktur, það er að segja hef nýjan
markað og annað fólk en vanalega.
Það er nefnilega fátt sem ég hef
að segja héma heima núorðið, nema
bara að vera til.“
— Kemurðu til með að búa
erlendis samningstímann?
„Ég verð auðvitað meira og
minna þama úti en það var fellt inn
í samninginn að ég fengi að vera
á íslandi eins og mig lysti."
— Ertu farinn að vinna eitt-
hvað i Svíþjóð?
„Ég er búinn að gera plötu og í
augnablikinu er verið að kynna mig
í Evrópu. í apríl fer ég til Svíþjóðar
að ljúka við plötuna og er jafnvel
að hugsa um að taka fimm lög út
af henni og setja ný í staðinn.
Textamir em á ensku og mér
. M
aðalhlutverkið
1 „Miami Vice“-
þáttunum
Miami Vice nefnist framhalds- um. Tveir aðalleikaramir, Philip
myndaflokkur sem hefur átt Michael Thomas sem leikur rann-
miklu fylgi að fagna í Bandaríkjun- sóknarlögreglumanninn Ricardo
Tubbs og Don Johnsson, njóta því
* mikillar hylli. En það er þó aðallega
Don Johnson sem fer með hlutverk
rannsóknarlögreglunnar Donny
Crockett. Hann leikur þar órakaða
en vel klædda, hrífandi persónu-
leika sem fær aðdáendur til að
standa fyrir utan upptökustaði tím-
unum saman.
Hér áður fyrr var framtíðin ekki
eins björt hjá Don. Hann er marg-
kvæntur og var á kafí í víni og
eiturlyfjum. Þegar hann fékk þetta
hlutverk og hitti sambýliskonu sína,
Patti D’Arbanville, fóru hjólin að
snúast og hlutimir að færast honum
íhag.
Þau eiga dótturina Jesse sem er
þriggja ára, hann er hættur að nota
eiturlyf og misnotar ekki lengur vín.
Heimili þeirra er í Los Angeles þó
að auðvitað búi Don mestmegnis í
hjólhýsinu sínu á upptökustað.
Don Johnson nýtur mikilla hylli
um þessar mundir.
Á milli þess sem hann er ekki
með fjölskyldunni, á æfíngum eða
í upptökum vinnur hann nú að stórri
hljómplötu.
Morgunblaðið/Emilía
Bubbi
Ég hef trú á því
sem ég er að gera