Morgunblaðið - 05.02.1986, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986
Hverjir verða skattar þínir í ár?
1. Tekjuskattur manna reiknast af tekjuskattsstofni, sbr.
reit 63 á framtali eftir að heimilaður frádráttur hefur
verið dreginn frá skattskyldum tekjum.
Dæmi: Hjón sem bæði hafa tekjur Kr.
1.1. Tekjur þess tekjulægri maka skv. lið T 5 eru 200.000
Notaður er 10% frádráttur eða 20.000
Tekjuskattsstofn skv. reit 63 180.000
Tekjuskattsstofn fellur allur í 1. þrep
ogreiknast 20% af 180.000 kr. eða 36.000
Frá dregst persónuafsláttur 47.600
Ónýttur persónuafsláttur (til greiðslu
eignarskatts, sjúkratryggingagjalds
og útsvars) verður 11.600
1.2. Tekjur þess tekjuhærri maka eru skv. lið
T 5 620.000 10% frádráttur (Hjón hafi sömu
frádráttarreglu) 62.000
Tekjuskattsstofn skv. reit 63 558.000
Tekjuskattur reiknast þannig:
1. þrep. Af fyrstu 272.000 kr.
reiknast 20% eða 54.400
Til viðbótar reiknast 20% af 92.000 kr. eða 18.400
Þar sem tekjuskattsstofn tekjulægri maka er
lægri en 272.000 kr. hækkartekjumark 1. þreps
um þann mismun sem tekjuskattsstofn tekjulægri
makans er lægri en 272.000 kr., þó að hámarki
um 136.000 kr. (272.00 kr. + 180.000 = 92.000).
2. þrep. Af fjárhæð sem umfram er tekjumörk
í 1. þrepi (eftir hækkun) og ekki er yfir
544.000 kr, þ.e. af 544.000 + 364.000 =
180.000 kr. reiknast 31% eða 55.800
3. þrep. Af afgangi (umfram 544.000 kr.) eða
af 14.000 kr. reiknast 44% eða 6.160
Samtals tekjuskattsstofn 558.000 kr,
reiknaður tekjuskattur 134.760
Frá dregst persónuafsiáttur 47.600
Álagður tekjuskattur 87.160
1.3. Tekjuskattur einhleypings og einstæðs foreldris reikn-
ast eftir sama skattstiga, en ekki er um að ræða
breytingu á 1. og 2. þrepi. Ef tekjur skv. lið T 5
hjá einhleypingi eru lægri en 476.000 er lágmarks-
frádráttur 47.600 en hjá einstæðu foreldri er lág-
marksfrádráttur 83.300 ef tekjur í lið T 5 eru lægri
en 833.000 kr.
2. Eignarskattur reiknast af eignarskattsstofni og geta
framteljendur reiknað út eignarskattsstofn á bakhlið fram-
tals „Ákvörðun eignarskattsstofns". Hjá hjónum skiptist
hann að jöfnu og reiknast eignarskattur af hvorum hluta
um sig. Af eignarskattsstofni að fjárhæð 1.248.000 kr.
eða lægri, reiknast enginn eignarskattur, af því sem
umfram er reiknast 0,95%.
Dæmi: Eignarskattsstofn er 1.600.000 kr. (hjá hvoru
hjóna)
Af 1.248.000 kr. reiknast ekkert
Af 352.000 kr. reiknast 0,95% eða 3.344 kr.
3. Útsvar reiknast af útsvarsstofni. Fjárhæð hans kemur
ekki sérstaklega fram á framtali. Til einföldunar er
hér miðað við niðurstöðu í lið T 5 (þ.e. ekki sé um
aðrar tekjur eða frádrátt að ræða). Hundraðshluti út-
Útreikningar tekjuskatts,
eignarskatts, útsvars,
sj úkratry ggingagj alds,
sóknargjalds og barna-
bóta gjaldárið 1986
svars er breytilegur eftir sveitarfélögum og er hér miðað
við 11%:
Útsvarsstofn tekjulægri makans er
200.000 kr. x 11% eða 22.000
Frá dregst persónufrádráttur 3.060
Álagt útsvar 18.940
Frá dragast eftirstöðvar ónýtts persónuaf- sláttar, sbr. 1.1. eftir að hluti hans hefur gengið til greiðslu eignarskatts, þ.e. (11.600 + 3.344) eða 8.256
Gjaldandi greiðir af álögðu útsvari 10.684
Útsvarsstofn tekjuhærri makans
er kr. 620.000 x 11% eða 68.200
Frá dregst persónufrádráttur 3.060
Álagt útsvar 65.140
Ennfremur lækkar útsvar um 612 kr. fyrir hvert bam
innan 16 ára á tekjuári á framfæri manns og að auki
um 612 kr. fyrir hvert bam umfram þrjú. Lækkun
þessi skiptist milli hjóna.
4. Sjúkratryggingagjald reiknast af útsvarsstofni.
Af útsvarsstofni að fjárhæð 403.000 kr. eða lægri
reiknast enginn skattur en 2% af afgangi.
í þessu dæmi reiknast sjúkratryggingagjald aðeins hjá
tekjuhærri makanum, þ.e. af 620.000 kr, þannig:
af fyrstu 403.000 kr. reiknast ekkert
af fyrstu 217.000 kr. reiknast 2% eða 4.340 kr.
5. Sóknargjöld em nú í fyrsta sinn álögð sem hlutfall af
tekjum. Gjaldstig er 0,2—0,4% af útsvarsstofni hvers
gjaldanda sem þó má tvöfalda. í þessu dæmi er miðað
við 0,4%.
Sóknargjald tekjulægri makans 200.000x0,4%=800 kr.
Sóknargjald tekjuhærri makans 620.000 x 0,4%=2.480
kr.
6. Bamabætur til framfæranda bams ákvarðast sem hér
segir og skiptast milli hjóna:
Með fyrsta barni 10.200
Með hveiju bami umfram eitt 15.300
Bamabætur með bömum einstæðra foreldra em þó
með hveiju bami án tillits til bamafjölda 20.400
Fyrir hvert bam yngra en 7 ára í lok tekjuárs
hækka bamabætur um 10.200
Auk þess verður greiddur sérstakur bamabótaauki að
fjárhæð 20.400 kr. með hveiju bami, en §árhæð þessi
skerðist skv. eftirfarandi reglum:
1. Um 8% af því sem samanlagður útsvarsstofn hjóna
fer fram úr 374.000 kr. og feilur niður við 628.000 kr.
2. Um 8% af því sem útsvarsstofn einstæðs foreldris
fer fram úr 255.000 kr. ogfellur niður við 510.000 kr.
3. Um 1,2% af því sem eignarskattsstsofns hvors hjóna
fer fram úr 1.275.000 kr. og fellur niður við 2.125.000
kr.
4. Um 2,4% af því sem eignarskattsstofn einstæðs
foreldris fer fram úr 1.700.000 kr. og fellur niður við
2.550.000 kr.
Viðbót við lið 1.3. Einhleypingur — Einstætt foreldri Einhleypingur með tekjur í lið T 5 620.000
10% frádráttur 62.000
Tekjuskattsstofn skv. reit 63 558.000
Tekjuskattur reiknast þannig: Af 272.000 kr. reiknast 20% eða 54.400
Af næstu 272.000 kr. reiknast 31% eða 84.320
Af afgangi 14.000 kr. reiknast 44% eða 6.160
Reiknaður tekjuskattur 144.880
Frá dregst persónuafsláttur 47.600
Álagður telquskattur 97.280
Einstætt foreldri með tekjur í lið T 5 620.000
Lágmarksfrádráttur 83.300
Tekjuskattsstofn skv. reit 63 536.700
Tekjuskattur reiknast þannig: Af 272.000 kr. reiknast 20% eða 54.400
Af 264.700 kr. reiknast 30% eða 82.057
Tekjuskattur reiknast 136.457
Frá dregst persónuafsláttur 47.600
Álagður tekjuskattur 88.857
Frá slysstað á Laugavegi. Farþegi (litlu bifreiðinni var fluttur f slysadeild.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglubifreið í árekstri
HARÐUR árekstur varð á mótum
Kringlumýrarbrautar og Lauga-
vegar laust eftir flmm að morgni
sunnudagsins þegar lögreglubif-
reið á leið í neyðarútkall var
ekið austur Laugaveg yfir gatna-
mótin gegn rauðu ljósi. Lög-
reglubifreiðin skall á litilli
Mazda-bifreið, sem ekið var
norður Kringlumýrarbraut. Lög-
reglumenn höfðu rauð blikkandi
ljós og sírenu á bifreið sinni.
Farþegi í litlu bifreiðinni hlaut
höfuðmeiðsl og var fluttur f sjúkra-
hús til aðgerðar. Meiðsl hans munu
þó ekki alvarleg. Nokkur slys urðu
um helgina og á mánudag. Á
Kleppsvegi var ekið á rúmlega
sextugan mann á móts við Klepps-
spítala. Hann hlaut höfuðáverka og
var fluttur í slysadeild. Þrítug kona
varð fyrir strætisvagni við Hlemm
í hádeginu á mánudag, en meiðsl
hennar reyndust ekki alvarleg. Þá
varð fuliorðinn maður fyrir bifreið
á Hringbraut síðdegis, en ekki var
talið að hann hefði hlotið alvarleg
meiðsl.
Ekið á hrossahóp
austan við Hellu
STÓRUM jeppa var ekið inn f
hrossahóp á Suðurlandsvegi,
austan við Hellu um klukkan 7 á
föstudagskvöldið. Tveir hestar
drápust strax, en einn hestur
fótbrotnaði og varð að aflífa
hann á staðnum. Tvö önnur hross
slösuðust lftillega. Einn hestanna
sem drapst hafði nýlega verið
seldur fyrir hátt verð, en ekki
verið afhentur nýjum eiganda.
Hin voru tamningahross.
Að sögn Einars Öders Magnús-
sonar tamningamanns í Gunnars-
holti voru fimm hestamenn, þrír
fullorðnir og tveir unglingar, á leið
frá Gunnarsholti á föstudagskvöldið
er slysið varð. Myrkur var skollið á
og fór bíll með blikkandi aðvörunar-
ljósum á undan hópnum til þess að
vekja athygli á honum. Allur hópur-
inn, um 20 hross, var uppi á vegin-
um og var í þann mund að fara
yfír brú, þegar jeppann bar að.
Ókumaður bílsins sem var á undan
hópnum reyndi að aðvara ökumann-
inn sem kom á móti með því að
blikka háu ljósunum, en allt kom
fyrir ekki. Bfllinn kom á fullri ferð
inn í hópinn með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Einar sagði að meðfram veginum
væri reiðvegur, en til þess að fara
yfir brúna þyrfti að reka hrossin
upp á veginn. Þar væri oft ekið
mjög hratt og lítið tillit tekið til
hestamanna sem þama eru oft á
ferð.
Guðjón Einarsson lögreglumaður
á Hvolsvelli sagði að ökumaður
jeppans hefði tekið eftir bflnum, en
ekki séð hrossin sem á eftir honum
komu fyrr en um seinan. Þegar
ökumaður bflsins sem var á undan
hrossunum blikkaði háu ljósunum
hélt hann að verið væri að gefa til
kynna að hann væri sjálfur með of
sterk ljós. Mikil ísing var á veginum
þegar slysið varð. Engin slys urðu
á mönnum, en jeppinn varð óöku-
fær.