Morgunblaðið - 05.02.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986
45
ugri en Theódór enda fer hann þar
á kostum. Bókin er frábærlega vel
myndskreytt og fallega út gefin,
raunar hreinasta perla. Má hiklaust
segja að bókin sé nú handbók allra
þeirra sem heimsækja þjóðgarðinn
fagra á þessum slóðum. Prentverk
Odds Bjömssonar gaf út þessa
fogru bók.
Fræðigreinar Theódórs frá þess-
um árum reyni ég ekki að nefna,
þær eru svo margar, né heldur
sendibréfín sem em líklega næstum
óteljandi ef til þeirra næðist, því
að hann var ótrúlega afkastamikill
bréfritari.
Auk þessa alls er mér vel kunn-
ugt um að í ritsafni hans eru þijú
óprentuð bókarhandrit, sem hann
lauk við að fullu á Austara-Landi.
Er þar fyrst að nefna tólf sagna
safn, sem hann nefndi Ilm bjark-
anna. Annað er um fuglalíf í Oxar-
fírði á fyrra helmingi tuttugustu
aldarinnar, um hundrað velritaðar
síður. Það þriðja er um atvinnu-
hætti í sömu sveit á þessum sama
tíma, einnig um hundrað vélritaðar
blaðsíður.
Það er næsta furðulegt hve þessi
sjálfmenntaði fræðimaður og bóndi
var stórvirkur á sviði ritstarfa og
rannsókna á þessum árum, ekki síst
þegar það er athugað að þá var
sjón hans farin að bila verulega.
Hlýtur það að vekja undrun og
aðdáun allra sem um það hugsa.
Árið 1977 þegar Theódór var 76
ára gamall, var Elli kerling farin
að gera töluvert vart við sig eins
og vænta mátti hjá þeim hjónunum
báðum. Þau ákváðu því eins og
fyrr getur að flytja til dóttur sinnar
og tengdasonar sem bjuggu á Húsa-
vík. í skjóli þeirra bjuggu þau síðan
í fjögur ár og nutu hjá þeim ein-
stakrar umhyggju. En þegar hið
glæsilega heimili aldraðra í
Hvammi á Húsavík var fullbúið í
júní árið 1981 fengu þau strax
vistrými þar.
Mér er vel kunnugt um, að á
Húsavík undu þau sér vel. Ég heim-
sótti þau nokkrum sinnum og hafði
auk þess alltaf náið bréfasamband
við Theódór.
Um þetta er mér vel kunnugt,
því að hann sýndi mér, gömlum
nemanda sínum, það traust að
senda mér flestar, ef ekki allar
ritgerðir sínar frá Húsavíkurárun-
um til yfírlestrar og lagfæringar,
því að eðlilega sló hann stundum á
skakka stafí vegna sjóndeprunnar.
Var mér þetta mikil ánægja, eins
og honum var vel kunnugt um, og
tókst mér að koma flestum greinum
hans á framfæri.
Og vegna þess hve áhugi hans
og atorka var enn ótrúlega mikil á
fyrstu Húsavíkurárunum, tókst
honum, þrátt fyrir fötlun slna og
afar vond og erfíð gigtarköst öðru
hveiju, að vinna að ýmsum áhuga-
málum sínum öðrum en ritstörfun-
um.
Ég minni aðeins á ýmiss konar
heimildagögn, sem hann dró saman
í margar og stórar möppur og kom
fyrir til geymslu í sýsluskjalasafn-
inu á Húsavík. Meðal annars munu
þar vera margar hljómsnældur með
röddum ýmissa sýslunga og alls
konar fróðlegu efni öðru sem hann
dró saman.
Enginn er þessu kunnugri en
hinn ágæti vörður skjalasafnsins,
Finnur Kristjánsson, fyrrum kaup-
félagsstjóri. Vænti ég að hann geri
sem fyrst grein fyrir þessum merka
heimildaþætti Theódórs, því ég
hygg að hann hafí þar algjöra sér-
stöðu sem einstaklingur.
Mun næsta erfítt að benda á
landa okkar, sem hafa verið jafn
áhugasamir og virkir og hann tölu-
vert fram á níræðisaldurinn.
Ekki er hægt að ljúka þessum
fáu minningarorðum án þess að
minnast á eiginkonu Theódórs, frú
Guðrúnu Pálsdóttur frá Svínadal.
Hún var frábær húsmóðir og mikil-
hæf mannkostakona, sem bjó fjöl-
skyldunni hlýiegt og fagurt heimili
hvar sem þau voru, og reyndist
eiginmanni sínum ómetanlegur
förunautur. Þurfti hún oft að sjá
ein um heimilið, bú og börn, þegar
bóndi hennar var tímunum saman
fjarverandi við ýmis störf. Má því
hiklaust segja, að meginþungi
heimilisins hafí oft hvílt á henni
einni. Það kom sér því vel að hún
var löngum heilsuhraust og sigraði
jafnan þá erfíðleika sem að henni
sóttu.
Síðustu tvö eða þijú árin á Húsa-
vík hefur hún átt við mikla van-
heilsu að stríða og er nú þungt
haldin á sjúkrahúsinu þar.
Síðustu missirin fór svo, eins og
vænta mátti, að mjög dró úr hinum
mikla þrótti Theódórs, og síðustu
mánuðina fjaraði hann að mestu
út. Hann naut bestu aðhlynningar
á sjúkrahúsi Húsavíkur síðustu
vikumar, leið aldrei mjög mikið og
héit vöku sinni til síðustu stundar,
er hann hneig fram á borðið í sæti
sínu, án þess að nokkur veitti því
sérstaka athygli, og var allur.
Þannig hvarf hann frá okkur,
þessi góðir vinur minn og kennari
og fágæti atorkumaður og fræða-
þulur.
Honum fylgja innilegar óskir og
þakkir frá mér og fjölskyldu minni
yfír á ný og fegri tilverusvið, — og
einnig áreiðanlega frá öllum þeim
mörgu sem kynntust honum. Jafn-
framt sendum við eiginkonu hans
og ijölskyldu hennar innilegar
samúðarkveðjur.
Jarðarförin fór fram við fjöl-
menni þann 19. mars síðastliðinn á
einkar látlausan hátt, eins og hann
hafði sjálfur mælt fyrir um, í ættar-
grafreit hans á Skinnastað. Kven-
félag Öxfirðinga veitti viðstöddum
hinn besta beina.
Veðrið var eins gott og á fegursta
vordegi. Þannig tók sveitin okkar
fagra í síðasta sinn á móti einum
sínum kunnasta og besta syni.
Sigurður Gunnarsson
frá Skógum.
Viltu Þá er forðast kvef? reynandi aö taka
C ) eöa O O
Lýsi hf. Grandavegi 42, Reykjavík, sími 91 -28777
Nemenda-
mót
Verzlunar-
skólans
ídag
NEMENDAMÓT Verzlunar-
skóla íslands verður haldið i
Háskólabíói í dag 5. febrúar og -
í kvöld verður dansleikur i
Þórscafé.
Á sýningunni, sem ber heitið
No Milk Today, er boðið upp á
steppdans, skemmtiþátt, rokk-
dans og lög frá árunum 1962-
1970 sem Kór Verzlunarskólans
syngur.
í frétt frá Verzlunarskólanum
segir að undirbúningur fyrir
Nemendamótið hafí staðið yfír í
allan vetur. Strákamir hafa safn-
að hári og gömul föt hafa verið
tekin út úr fataskápunum.
Almenningi gefst kostur á að
sjá skemmtiatriðin í Háskólabíói
laugardaginn 8. febrúarkl. 13.30.
Frá æfingu: The Supremes, eða
þær Helena Gunnarsdóttir,
Helga Lárusdóttir og Bryndis
Eiríksdóttir.
STOR
HAPPDRÆTTI
FLUGBJÖRGUNARSVEITANNA
KRONA
10 stk.
NORDMENDE
Myndbandsupptökutæki.
f 5 stk.
pppkz
Einkatölvur.
3^.1°V°’°
leicel.
SKATTFRJÁLSIR
VINNINGAR
r-zzz----
Macintosh
Einkatölvur.
50 stk.ISÍ
GoldStcir
NORDMENDE
Myndbandstæki.
1 Skíðaferð fyrir tvo
+ skíðaútbúnaður.
2 Utanlandsferðir.
100 Soda-Stream tæki.
Ferðahljómflutningstæki. STYRKIÐ
BJÖRGUNARSTARFIÐ
í LANDINU!
17. FEBRUAR
1986
SPAIílSIOI >lllí
PI A K| W'ÍKIIP
uí\\iíui:\ms
FLUGBJÖRGUNARSVEITIRNAR